Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2002, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002
DV
Fréttir
Lagaumhverfi hér verndar ekki heimildarmenn nema í gegnum blaðamenn:
Berskjaldaðir
- íslendingar aftarlega á merinni í alþjóðlegum samanburði á „flautun“
Uppljóstrari
/ máli starfsmanns Landssímans, sem vikiö var úr starfi fyrir aö veita DV
upplýsingar togast á grundvallarsjónarmiö.
Svo virðist sem það sé nokkuð út-
breidd skoðun meðal lögmanna,
blaðamanna og margra stjórnmála-
manna að þörf kynni að vera á sér-
stakri vernd fyrir þá sem láta vita af
spillingu eða lögbrotum í fyrirtækj-
um og/eða stofnunum í íslenskum
lögum. í það minnsta að þörf sé á
umræðu um slíka vemd sem erlend-
is færist í vöxt og gengur almennt
undir heitinu „whistle-blowing" eða
„flautun". Gilti þá einu hvort um
væri að ræða heimildarmenn fjöl-
miðla eða þá sem ljóstra upp um
misferli á einhverjum öðmm víg-
stöðvum. Kenningin er, að með því
að skapa einhvern þann farveg, sem
tryggir mönnum a.m.k. skaðleysi
þótt þeir greini frá misferli sem
menn komast að í starfi sínu, muni
leiða til þess að aðhald verði meira
almennt með stjórnendum jafnt hjá
opinberum aðilum sem einkaaðilum.
Ljóst er þó að það yröi í mögum til-
vikum erfitt að setja slíkar reglur og
vandi getur komið upp við það að
meta hvar mörkin eigi að liggja milli
þess sem kallast eðlilegur trúnaður
við fyrirtæki og/eða yfirmenn ann-
ars vegar og svo hvað borgaraleg
skylda býður hins vegar.
Landssímamaðurinn
Dæmið um starfsmann Landssím-
ans sem var rekinn fyrir að gefa upp-
lýsingar innan úr fyrirtækinu um
meint óeðlOeg viðskipti stjómarfor-
manns og fyrirtækisins hefur mikið
verið í umræðunni og augljóst að í
hans tilfelli togast á þau grundvallar-
sjónarmið sem hljóta að koma upp í
málum af þessu tagi. „Málin geta
verið tvieggjuð. Vissulega getur það
verið í ákveðnum tilfellum þjóðfé-
lagslega æskilegt að menn skýri frá
upplýsingum, sem þeir búa yfir, en
síðan vitum við á hinn bóginn að
mörg störf krefjast trúnaðar og
stundum getur verið erfitt fyrir við-
komandi starfsmann að greina á
milli þess hvað eru upplýsingar sem
fela í sér brot og hvaö ekki,“ segir Ei-
ríkur Tómasson lagaprófessor þegar
hann lýsir þeim vanda sem við er að
eiga. Hann telur því að snúið geti
verið að setja um þetta mjög ákveðn-
ar lagareglur, þó það sé síöur en svo
útilokað. Eiríkur bendir hins vegar á
að í íslenskum lögum séu ákvæði
sem komi í veg fyrir að blaðamenn
þurfi að gefa upp heimildarmenn
sína, og um það hafi gengið hæsta-
réttardómur sem hafi nokkuð ákveð-
ið markað stefnuna. Eins og lagaum-
hverfið á íslandi sé í dag sé þetta í
raun sú eina vernd sem heimildar-
menn hafi, en ekki megi þó gera lít-
ið úr henni því hún sé mjög þýðing-
armikil. Engu að síður standi heim-
ildarmenn berskjaldaðir ef einhver
annar en blaðamaðurinn finnur út
hver hann er og þá mun hann þurfa
að svara fyrir þann trúnaðarbrest
sem upp hefúr komið.
Opinber eða einkafyrirtæki
Eiríkur bendir raunar á að fleira
geti skipt miklu í þessu sambandi.
Þannig geti það skipt verulegu máli
hvort viðkomandi heimildarmaður
sé að vinna t.d. hjá opinberu fyrir-
tæki eða stofnun eða einkafyrirtæki
og hvort hann flokkist sem opinber
embættismaður. Einnig geti það
skipt máli hverjum heimildarmaður-
inn veiti upplýsingarnar, sem hann
telur þörf á að koma á framfæri.
Hvort það sé gert við stjórnendur
viðkomandi fyrirtækis eða hvort það
sé gert viö fjölmiðla.
Ragnar Aðalsteinsson hrl. sér mál-
ið með svipuðum hætti og Eiríkur
hvað þetta varðar. Hann bendir á að
það geti skipt máli hvert menn fari
með uplýsingarnar þó í flestum til-
fellum hljóti það að vera til fjöl-
miðla. Og Ragnar telur það líka eins
og Eiríkur að það skipti verulegu
máli hvort um embættismann sé að
ræða eöa einhvern annan. Um rétt-
indi og skyldur embættismanna sé
hægt að setja og hafi verið sett fjöl-
mörg lög, en erfiðara sé að ná utan
um það þegar menn eru ekki opin-
berir starfsmenn. Ragnar segir að lít-
ið hafi verið um þessi mál rætt í nor-
rænni lögfræði, en hins vegar sé fyr-
irbærið „whistleblowing" eða flaut-
un nokkuð sem hafi verið talsvert
rætt í Bandaríkjunum.
Agnesarmálið
Eins og fram kemur hjá lögmönn-
unum er í íslenskum lögum gert ráö
fyrir þvi að blaðamaður geti verndað
heimildarmenn sína. Byggir það á
prentlögum frá 1956 og lögum um
meðferð opinberra mála frá 1991.
Eins og fram kom hjá Eiríki
Tómassyni hér að ofan hefur reynt á
þetta fyrir Hæstarétti í máli Rann-
sóknarlögreglu ríkisins gegn Agnesi
Bragadóttur blaöamanni. Málið sner-
ist um það að Agnes ritaði árið 1995
í Morgunblaöið greinaflokk um SíS
og skuldaskil fyrirtækisins í Lands-
bankanum. Þetta var um það bil sem
Sambandið var að ganga frá sínum
málum í bankanum. Þótti bankaeft-
irlitinu sýnt að við ritim greinanna
hefði Agnes haft undir höndum trún-
aðarupplýsingar, sem enginn nema
yfirmenn í Landsbankanum gætu
hafa látið henni í té. Með því hafi
viðkomandi yfirmenn rofið trúnað
og ríkir hagsmunir væru til að koma
refsingu yfir þá. Málið sneri þvi að
starfsmönnum eða starfsmanni
Landsbankans, sem þá var ríkis-
banki og viðkomandi starfsmaður
því opinber starfsmaður. Auk þess
hvílir sérstök þagnarskylda á starfs-
mönnum viðskiptabanka og spari-
sjóða um allt sem varðar hagi við-
skiptamanna þeirra. Eftir að hafa
reifað málið komst Hæstiréttur að
því að Agnes þyrfti ekki að gefa upp
nafn heimildarmanns síns. Ástæðan
var hins vegar ekki sú að Agnes ætti
skilyrðislausan rétt til að vernda
heimildarmann sinn, heldur var
ástæðan sú að Hæstiréttur taldi þá
hagsmuni sem SÍS hafði í málinu
ekki slíka að hún yrði að gera það.
Fordæmisgildi
1 dóminum segir: „Eins og mál
þetta liggur fyrir, hefur ekki verið
sýnt fram á, að svo ríkir hagsmunir
séu í húfi fyrir Landsbanka íslands,
Samband íslenskra samvinnufélaga
sem viðskiptamann hans, almenning
eða rannsóknarvald, að varnaraðili
geti ekki borið fyrir sig fyrri málslið
1. mgr. 53. gr. Laga nr. 19/1991.“ Með
öðrum orðum, þá leggur Hæstiréttur
mat á það hagsmunajafnvægi sem
uppi er, annars vegar hagsmuni fyr-
irtækisins og hins vegar almanna-
hagsmunina sem felast í þvi að blaða-
maðurinn geti verndað heimildar-
mann sinn. Niðurstaðan var að al-
mannahagsmunir í þessu tilfelli
væru meiri. Engu að síður ber ekki
að vanmeta fordæmisgildi þessa
dóms því hann hefur verið túlkaður
þannig að í reynd geti blaðamenn
verndað heimildarmenn sína.
Aftarlega á merinni
íslendingar virðaðst - eins og
raunar aðrar þjóðir Norðurlanda -
vera nokkuð aftarlega á merinni
hvað flautun varðar, sérstaklega í
samanburði við enskumælandi lönd.
Viðast hvar í kringum okkur, bæði
i Bandaríkjunum og í Evrópu, eru nú
komnar reglur sem leiðbeina um
meðferð mála þar sem einstaklingur
fmnur sig knúinn til að koma upp
um misferli eða spillingu af ein-
hverju tagi, hvort heldur er hjá því
opinbera eða einkafyrirtækjum.
Lagaákvæðin geta verið mismunandi
eftir löndum og málaflokkum, en
ganga yfirleitt út á það að bannað sé
að refsa starfsmönnum sem koma
upp um misferli. Skilyrðandi ákvæði
ólíkra laga geta síðan fjallað um með
hvaða hætti komið er upp um spill-
inguna. Svíar, einir Norðurlanda-
þjóða, hafa raunar breytt lögum hjá
sér þannig að óheimilt er að refsa
þeim sem kemur upp um misferli hjá
hinu opinbera og/eða fyrirtækjum í
eigu opinberra aðila. Bretar hins veg-
ar hafa reglur um þetta sem gilda al-
mennt á vinnustöðum hvort heldur í
einkageiranum eða hjá hinu opin-
bera. Þeirra löggjöf kallast: Upplýs-
ingalög í almannaþágu (UK Public
Interest Disclosure Act) sem undir-
strikar að menn sjá þetta ekki ósvip-
uðum augum og þau lög sem við
þekkjum sem upplýsingalög.
Paul van Buitenen
Eitt frægasta dæmið um það að
einstaklingur uppljóstrar um spill-
ingu eða misferli er greinargerð og
upplýsingar hollenska endurskoð-
andans Paul van Buitenen, en upp-
lýsingar frá honum um spólingu og
misferli leiddu fyrir nokkrum árum
tO þess að gerð var úttekt á starfsemi
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, úttekt sem sýndi að upplýs-
ingar van Buitenens voru réttar og
meira en það. í kjölfarið þurftu allir
framkvæmdastjórarnir 20 að segja af
sér í einhverju umfangsmesta
hneykslismáli sem upp hefur komið í
ESB. Þetta mál átti jafnframt stóran
þátt í því að veikja framkvæmda-
stjórnina gagnvart ráðherraráðinu
og þinginu. Fróðlegt er að skoða ör-
lög van Buitenens eftir uppljóstranir
hans, því hann var leystur frá störf-
um til að byrja með en fékk hins veg-
ar fljótlega uppreisn æru. Samkvæmt
upplýsingum frá Fastanefnd ESB fyr-
ir ísland og Noreg hefur van Buit-
enen fengið eðlilegan framgang inn-
an embættismannakerfis fram-
kvæmdastjórnarinnar. í kjölfar upp-
ljóstrana hans hafa verið settar regl-
ur um flautun og flautara hjá fram-
kvæmdastjórninni. í Evrópusam-
bandinu er nú í gildi sérstök reglu-
gerð um þessi mál, sem gengur undir
heitinum „European Charter for
Whistleblowers". Eru starfsmenn nú
hvattir til að gerast uppljóstrarar og
mun sá ágæti endurskoðandi van
Buitenen t.a.m. hafa verið öflugur
liðsmaður í þessari hreyfingu.
Enron
Nýlegra dæmi um flautara kemur
hins vegar frá Bandaríkjunum, en
Enron-hneykslið má rekja til slíkra
uppljóstrana. Landssamtök flautara
þar vestra hafa einmitt fyrir
nokkrum dögum kynnt sérstakt
frumvarp, sem þeir vilja að fari fyrir
þingið sem tekur sérstaklega á vernd
flautara sem tengjast fyrirtækjum á
hlutabréfamarkaði. Frumvarpið er
byggt á öðrum álíka lagaákvæðum
um flautun og hefur það verið kynnt
í Washington sem leið til að koma í
veg fyrir annað Enron-hneyksli.
„Samkvæmt frumvarpinu yrði
óheimilt að reka eða refsa launþega
sem kemur upp um brot á alríkislög-
um á þessu sviði. Umbótalöggjöf sem
verndar ekki flautara á þessu sviði
yrði algjör mistök," er haft eftir
Stephen M. Kohn, stjórnarformanni
Landssamtaka flautara í Bandaríkj-
unum, sem jafnframt er lögfræðingur
með flautun sem sérgrein.
Góð ráð fyrir „flautara"
• Ekki gera neitt I óöagoti
• Ekki gerast einkaspæjari, allra síst þar sem tölvur eru annars vegar
• Ekki gleyma aö þaö gæti veriö fyrir hendi saklaus og eðlileg skýring
• Ekki nota þennan farveg til aö fá útrás fyrir persónuleg vonbrigöi eöa fjandskap
• Hugsaöu um þaö í upphafi hvert þetta ferli kann aö leiöa
(Af breskri vefsíöu um „whistleblowing")
• í>£ ^jíiy^j/ÆJJ
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 18.40 18.19
Sólarupprás á morgun 08.39 08.30
Síódegisflóö 18.49 23.22
Árdegisflóð á morgun 07.05 11.38
Víðast léttskýjað
N 8-13 m/s allra austast en annars
hægari noröaustlæg átt. Él
noröaustan til en léttskýjað á
sunnan- og vestanverðu landinu.
Frost 3 til 12 stig, kaldast inn til
Iandsins.
Þykknar upp
Hæg breytileg átt, léttskýjað og frost
4 til 14 stig fram undir hádegi en
síðan hæg SV-átt og fer aö þykkna
upp og draga úr frosti vestan til. Él
allra vestast undir kvöld
kmmsmmt
Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
‘W
H'lti 0”
«18°
Víndur:
6-12 "'A
'Tm
Híti 1°
til 5°
Víndur:
10-15™/«
Hiti 0°
til 4°
Vindur:
8-13™/»
Hæg breytileg átt. Uítilsháttar él. Hrtl kringum frostmark á suövestur- horninu en frost 3 til 8 stlg norðan og austan til. SA 10-15 m/s og slydda eða rigning austan til en SV 10-15 og skúrir eða slydduél vestan til. Hiti 1 tll 5 stig. SV 8-13 m/s og él vestan til en léttskýjaö á austanverðu landlnu. Frost 0 til 4 stig.
Logn m/s 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gota 3,4-5,4
Stlnnlngsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stlnningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
ISSSaE 3
AKUREYRI skýjaö -8
BERGSSTAÐIR léttskýjaö -10
BOLUNGARVÍK léttskýjaö -9
EGILSSTAÐIR skýjaö -8
KIRKJUBÆJARKL. heiöskírt -9
KEFLAVÍK léttskýjaö -10
RAUFARHÖFN alskýjaö -7
REYKJAVÍK heiðskírt -10
STÓRHÖFDI heiöskírt -5
BERGEN alskýjað 1
HELSINKI snjókoma -1
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 3
ÓSLÓ alskýjaö -1
STOKKHÓLMUR sandbylur 1
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 0
ÞRÁNDHEIMUR alskýjaö -4
ALGARVE skýjaö 11
AMSTERDAM léttskýjaö 6
BARCELONA léttskýjaö 11
BERLÍN rigning 7
CHICAGO snjókoma -7
DUBUN slydduél 1
HAUFAX þoka á síö. klst. 3
FRANKFURT rigning 7
HAMBORG léttskýjaö 4
JAN MAYEN skafrenningur -8
LONDON léttskýjaö 3
LÚXEMBORG skúr 5
MALLORCA skýjaö 14
MONTREAL 2
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -16
NEW YORK skýjaö 8
ORLANDO heiöskírt 15
PARÍS skýjaö 7
VÍN skýjaö 8
WASHINGTON alskýjaö 4
WINNIPEG heiöskírt -18