Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2002, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 I>V 7 Fréttir Frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytta stjórn fiskveiða: Stríðsyfirlýsing úr smiðju LÍÚ - að mati stjórnarandstöðunnar - sjávarútvegsráðherra vísar slíku á bug Harðar deilur urðu á þingi í gær um nýtt frumvarp sjávarútvegsráð- herra um breytingar á lögum um stjóm fískveiða. Stjórnarandstöðu- þingmenn töldu að frumvarp ráð- herra væri „stríðsyfirlýsing" og féllu þung orð um að ryki hefði ver- ið slegið í augu þingmanna og al- mennings. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, hafði frum- kvæði að umræðunni undir liðnum „Störf þingsins" og rifjaði hann upp að stjórnarflokkamir hefðu lofað hástöfum að ná sátt um fiskveiði- stjórnunarkerfið fyrir síðustu kosn- ingar. Hann hefði haldið að tillögur auðlindanefndar væru innlegg í þá sátt en nú lægi fyrir að ekkert mark væri tekið á hugmyndum stjómar- andstöðu. Fmmvarp Áma Mathies- ens byggðist fyrst og fremst á óska- draumum LÍÚ og útgerðarinnar. „Við munum ekki láta valta yfir okkur,“ sagði Össur og hét þvi að Samfylkingin myndi taka hart á af- greiðslu málsins. Hann sagði að Ámi væri nánast smækkuð útgáfa af Kristjáni Ragnarssyni. Gervisátt Steingrímur J Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, tók undir þau orð og sagði framkomu ríkisstjórn- arinnar með hreinum og klárum endemum. Sáttagjörðin mikla, sem talað hefði verið um, væri að engu orðin. Fyrir þinginu hefði legið um mánaðarskeið tilboð stjómarand- stöðu um frekari vinnu til að reyna að sætta sjónarmiðin en sú vinna hefði einskis verið metið. „Ætlunin er að kasta stríðshanska hér inn á þingið,“ sagði Steingrímur og gerði því skóna að Sjálfstæðisflokkurinn væri með frumvarpinu að færa deil- urnar í þjóðfélaginu burt frá spill- ingarmálum flokksins og yfir í fisk- veiðarnar. Logandi ófriður yrði um þetta mál áfram. Svanfríður Jónasdóttir, Samfylk- ingunni, sagði að ef málið væri ekki jafn alvarlegt og raun bæri vitni myndi hún helst halda að sjávarút- vegsráðherra væri að gera að gamni sínu. Ráðherra héldi því fram að tekjumar vegna nýju gjaldtökunnar gætu farið upp í 2 milljarða en á móti töpuðust gjöld hjá ríkinu sem næmu um 900 milljónum króna. Arni Mathiesen. Ossur Skarphéðinsson. Steingrímur J. Sigfússon. Sverrir Hermannsson. Frá fundi sjávarútvegsráðherra Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra kynnii nýtt frumvarp breytingar á lögum um fiskveiöar í gær. Metár þyrfti til að gjaldtakan skil- aði svo háum fjárhæðum. Ráðherra svarar fullum hálsi Árni Mathiesen svaraði að hon- um þætti mög athyglisvert að heyra þessar raddir þótt þær kæmu ekki á óvart. Samfylkingin hefði lengi ýjað að andstöðu við frumvarpið og hann hefði haft á tiifinningunni að það skipti engu máli hvemig frum- varpið myndi líta út. Samfylkingin hefði alltaf ætlað að vera gegn því. Ámi taldi að með afstööu sinni væri Samfylkingin að hafa að engu álit þriggja fulltrúa þeirra í auð- lindanefnd og vekti það athygli. Það væri miður að Samfylkingin skyldi ekki standa við samkomulag sem hún hefði áður ritað undir en þó kæmi það ekki alveg á óvart. Ráð- herra sagðist ekki alveg vita hvern- ig hann ætti að bregðast við orðum formanns Vinstri grænna. Þau væru líkust því að Steingrímur vildi ráða bæði eigin liðsskipan og liði andstæðinganna. Útúrsnúningur Lúðvík Bergvinsson, Samfylking- unni, kvaddi sér næst hljóðs og sagði ræðu Árna hafa verið skrýtna. Auðlindanefnd hefði greinilega að- eins verið sett á stofn til að tefja um- ræðu um málið fram yfir kosningar en niðurstaðan væri fráleitt byggð á vinnu nefndarinnar. Lúðvík sagði tal ráðherra um annað vera útúr- snúning af verstu tegund. Frum- varpið væri fyrst og fremst árás á minni útgerðir í landinu og ljóst væri að Sjálfstæðisflokkurinn hefði í engu breytt afstöðu sinni um óbreytt ástand. Kosningablekking Sverrir Hermannsson, formaður frjálslyndra, sagði að menn þyrftu ekki að undrast þessar lyktir. Allt tal um sættir hefði verið kosninga- blekking til að sefja þjóðina. Auð- lindanefnd hefði verið skipuð til að fá þannig niðurstöðu að hver gæti túlkað hana með sínum hætti. Auð- lindagjald væri þykjustugjald. Jóhann Ársælsson, Samfylking- unni, sagði frumvarpið stríðsyfir- lýsingu á hendur stjómarandstöðu. Menn ætluðu sér greinilega að halda áfram að láta veiðiheimildir streyma til þeirra stærstu og áfram skyldi einokunin vera við lýði. Einkavæðingin væri trúarbrögð Sjálfstæðisflokksins og Framsókn lufsaðist með. Það væru ósannindi að ætla að segja þjóðinni að með frumvarpinu væru sjónarmið sætt. -BÞ Vinstri grænir: Leynd verði svipt - af Landsvirkjun Þingflokkur Vinstri hreyfingar- innar - græns framboðs hefur rætt kröfu Landsvirkjunar um að leynt verði farið með upplýsingar um raf- orkuverð frá fyr- irhugaðri Kára- hnjúkavirkjun. Þingflokkurinn hafnar að taka við slíkum upp- lýsingum undir þeim formerkjum og mun gera allt sem í hans valdi stendur til að knýja á um að upplýsingamar verði gerðar opinberar. „Almennir orkunotendur og allur almenningur á skýlausa kröfu á þessum upplýsingum sem og þing- menn sem eiga að taka afstöðu til málsins á þingi. Fulltrúi þingflokks- ins í iðnaðamefnd mun að sjálf- sögðu virða trúnað varðandi upplýs- ingar sem fram hafa komið í nefnd- inni. Þingflokkur Vinstri hreyfing- arinnar - græns framboðs mun á næstunni kanna og eftir atvikum láta reyna á mögulegar leiðir til að svipta leynd af þessum upplýsing- um,“ segir í ályktun hjá þingflokkn- um sem Ögmundur Jónasson, þing- flokksformaður vinstri grænna, las upp á þingfundi í gær. -BÞ Ogmundur Jónasson. Til félagsmanna í Félagi fasteignasala: AÐALFUNDIR2002 Aðalfundir Félags fasteignasala, Ábyrgðarsjóðs Félags fasteignasala og Fmmkvæðis ehf. verða haldnir fimmtudaginn 28. febrúar 2002, kl. 17.00 síðdegis, í fundarsalnum „Háteigi“ á 4. hæð á Grand Hótel Reykjavík. Á dagskrá aðalfundar FF verða eftirtalin mál: 1. Skýrsla stjómar um starfsemina á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjómar. 5. Kjör endurskoðenda. 6. Ákvörðun félagsgjalda. 7. Önnur mál. Athygli er vakin á 8. gr. laga FF en þar segir að atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi hafi félagsmenn sem skuldlausir eru við félagið. Á fundinum verða léttar veitingar að venju. Stjómin IR! r ZAUG. 2.MARS SQLDÖGG Sjallanum Akureyri A MQTI SOL BUTTERCUP STUÐMENN Höllinni Uestm.eyjum Nl-Bar Reykjanesbæ Kaffi Reykjauík PLAST (Gunni Ola ex. Skímó) Uídalín u. Ingólfstorg BER (Iris Kristins & Co) PlayBTS Kópauogi V_ FÖST. 8. BUFF BSG HUNANG IAR1 Uídalín v/ Ingólfstorg Kaffi Reykjauík Players Kópavogi zaug. 9. MARS ENGLAR (Einar Ágúst ex Skimó) Sjallanum Ak. PAPAR Höllinni Uestm.eyjum BER Sjávarperlunni Grindavík BUFF Uídalín v. Ingólfstorg BSG Kaffi Reykjavík HUNANG Players Kópavogi www.promo.is Miðv. 27.feb. BESSIE SMITH KUÖLD Uídalín Fim. 28. feb. GEIR ÓLAFS S Co Uídalín FOST. 1. MARS Kaffi Reykjauík PLAST (Gunni Úla, ex. Skímó) Uídalín v. Ingólfstorg PAPAR Players Kópauogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.