Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2002, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 JOV 1 Fréttir Fimm ungir menn ákærðir vegna atburðar við íþróttahús ÍR síðastliðið vor: Ákært fyrir að skjóta 8 sinnum úr skammbyssu - gefið að sök háskabrot en ekki tilraim til manndráps - sakbomingar neita Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 27 ára Reykvíkingi fyrir að hafa skotið 8 sinnum úr hálf- sjálfvirkri skammbyssu á bifreið, sem tveir menn sátu í, við íþróttahús ÍR við Skógarsel í lok april á síðasta ári. Á bílastæðinu voru 10 ungir menn á fjór- um bílum. Fjórir aðrir í hópnum eru ákærðir fyrir brot, allt frá umferðar- lagabrotum upp í sérstaklega hættu- lega líkamsárás með því að aka á mann sem kastaðist upp á vélarhlíf, síðan framrúðu og þak og féll svo á göt- una fyrir aftan bílinn. Samkvæmt upp- lýsingum DV var mál þetta ekki sprott- ið af fikniefnauppgjöri eins og látið var í veðri vaka á síðasta ári heldur höfðu einhvers konar hótanir eða heitingar komið fram sem i raun eru ekki i gögnum málsins. Rothögg, ákeyrsla og skothríð Ákæran telst óvenjuleg í þvi ljósi að þegar hleypt er af skotvopni í átt að fólki, ekki síst ítrekað, er vaninn að gefa fólki að sök tilraun til manndráps. í þessu tilviki var því hins vegar ekki til að dreifa að ásetningur hefði sann- ast um að viðkomandi hefði ætlað að gera öðrum mein heldur einungis að vekja ótta hjá hinum. Ríkissaksóknari ákærir því í þessu tilviki brot gegn 4. málsgrein 220. greinar hegningarlag- anna sem segir m.a. að það varði fang- elsi allt að 4 árum að stofna lífi ann- arra í augljósan háska með gáska eða á sérstaklega ófyrirleitinn hátt. Einn mannanna er ákærður fyrir líkamsárás með því að rota mann á fertugsaldri með hnefahöggi þannig að fómarlambið féll í götuna og hlaut heilahristing og minni háttar áverka. Annar er ákærður fyrir umferðarlaga- brot með því að hafa slegið steypu- styrktarjárni i framrúðu bOs sem var á ferð. Rúðan sprakk en tveir menn vora i bílnum. Þriðja aðilanum er gefið að sök að hafa kastað felgulykli í fram- rúðu annars bíls sem einnig var á ferð með tveimur mönnum í. í fjórða lagi ákærir rikissaksóknari mann fyrir sérstaklega hættulega lík- amsárás og umferðarlagabrot, því að aka þeim bíl sem sleginn var með steypustyrktarjáminu á mann sem var á bílastæðinu. Sá stökk upp á vélarhlíf- ina, kastaðist á framrúðuna, þaðan upp á þak og féll svo á götuna. Maður- inn hlaut ýmsa áverka en þó ekki al- varlega. Eftir skotárás Maöur hefur verið ákærður fyrir að skjóta 8 skotum úr skammbyssu að þessum bíl. Tveir menn voru í bílnum þegar skotárásin vargerð. Að síðustu er einn fimmmenning- anna ákærður fyrir að skjóta 8 sinnum úr skammbyssunni, sem hann hafði ekki skotvopnaleyfi fyrir, á þá bifreið sem felgulyklinum hafði verið kastað í. Tveir menn sátu í framsætum hans. Tvö skot lentu á vélarhlífinni, þrjú í afturhurð og þrjú í afturstuðara. „Með þessu stofhaði ákærði lífi eða heilsu þeirra sem í bifreiðinni voru og ann- arra viðstaddra á ófyrirleitinn hátt í augljósan háska,“ segir í ákæru ríkis- saksóknara. Sami maður er einnig ákærður fyrir að hafa ræktað og haft í vörslum sínum 5 kannabisplöntur þar til lögreglan fann þær við húsleit dag- inn eftir atburðina i Breiðholtinu. -Ótt Nýja MAN-rútan afhent. Frá hægri: Vilhelm V. Guðbjartsson, Bjarni Björnsson, Árni Oddsteinsson, Valdimar Gunnarsson og Erlingur Guöjónsson. Þessir fimm stóðu að stofnun nýja fyrirtækisins. Auglýsing um frest til að lýsa kröfum Með úrskurði, dags 27. nóvember 2001, var Burnham International á íslandi hf., kt. 550191 -1729, tekið til gjaldþrotaskipta. Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta starfar skv. lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Markmið þeirra laga er m.a. að veita viðskiptavinum verðbréfafyrirtækja lágmarksvernd gegn greiðsluerfiðleikum þeirra. Sjóðnum er m.a. skylt við gjaldþrot verðbréfafyrirtækis að greiða viðskiptavinum þess andvirði verðbréfa og reiðufjár í tengslum við viðskipti með verðbréf, eftir þeim lögum og reglum sem um starfsemi sjóðsins gilda. Frestur til að lýsa kröfum á sjóðinn vegna gjaldþrots Burnham International á íslandi hf. rennur út 31. maí 2002. Kröfur skulu berast Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta, b.t. Sveinbjörns Hafliðasonar, ritara stjórnar sjóðsins, Kalkofnsvegi 1,150 Reykjavík. Kröfulýsingu skal fylgja afrit af kröfulýsingu í þrotabú Burnham International á íslandi hf. Nánari upplýsingar veitir ritari sjórnar sjóðsins í síma 569 9624 Reykjavík, 25. febrúar 2002 Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta Nýtt hópferðafyrirtæki stofnað: Fimm félagar slógu saman í einn bíl Nýi bílinn Erlingur Guðjónsson fór fyrstu ferðina á nýja bílnum fyrir nýja fyrirtækið: milli tvegg/'a skemmtistaða í Reykjavík með árshátíðargesti. „Þetta var sú leið sem við völdum að prófa, að slá okkur saman um rekstur á einum svona bíl,“ sagði Vilhelm V. Guðbjartsson, betur þekktur sem Villi Valli á Hvammstanga, þegar hann og fjórir félagar hans og keppinautar í út- gerð hópferðabíla tóku sameiginlega á móti nýjum hópferðabíl í þorralokin. Þessu nýja fyrirtæki hefur verið val- ið heitið Bílar og fólk ehf. og þeir sem að þvl standa auk Villa Valla eru Valdimar Gunnarsson, Skagafirði, Er- lingur Guðjónsson, Eyrarbakka, Bjami Bjömsson, Reykjavik, og fyrir- tækið Hópferðabílar Suðurlands, Vík, en fulltrúi þess við móttöku nýja bíls- ins var Ámi Oddsteinsson. Bíllinn sem þeir völdu í þessa til- raun til samrekstrar er fyrsta nýja MAN-rútan sem seld er á íslandi - aðr- ar rútur af gerðinni MAN hérlendis hafa verið fluttar inn notaðar eða yfir- byggðar hjá öðram aðila.. Þetta er þriggja öxla bíll, 57 farþega, Lion¥s Top Coach. Að sögn Villa Valla, sem einkum hafði orð fyrir þeim félögum, var stærðin m.a. valin með hliðsjón af því að flestir þeirra félaganna era úr tiltölulega fámennum sveitarfélögum og hafa stundum þurft að leigja sér bil af þessari stærð til að geta komið hóp- um úr heimabyggð í einn bU. Einnig er stærðin hagkvæm við ýmis önnur tækifæri, að mati þeirra félaga. Allir eru þefr félagar aðUar að Hóp- ferðamiðstöðinni og munu BUar og fólk ehf. einnig hafa aðstöðu þar og njóta markaðssetningar hennar. Fyrir- hugað er að ráða sérstakan bUstjóra á þennan nýja bU en eigendur og starfs- menn þeirra hlaupa undir bagga eftir því sem með þarf, m.a. vegna ákvæða um hvUdartíma ökumanna. Samanlagt era eigendur BUa og fólks með um 20 bUa í rekstri. Að þeirra dómi er orðin knýjandi þörf á að endumýja mikið af þeim bUum. Það er hins vegar kostnaðarsamt og þvi var ákveðið að fara þessa leið tU reynslu. Ef hún gefúr góða raun má búast við að haldið verði áfram á þeirri braut. Nýir fólksflutningabUar af þeim stærðum sem algengastar era kosta nú 20-25 mUljónir króna. Algengur ár- sakstur á svona bU er um 30 þúsund km en ekki er fráleitt að ímynda sér að eftirspum eftir svo nýjum bU gæfi eitt- hvað meira af sér. Hópferðamiðstöðin á 25 ára afmæli á þessu ári og fimmmenningamir, sem allir eru starfandi hluthafar í henni, fagna því að tilkomu þessa nýja bUs beri upp á afmælisárið. Auk hans era þrír nýir bUar væntanlegir tU aksturs fyrir Hópferðamiðstöðina. Tveir þeirra era smíðaðir hér heima, hjá Guðmundi Tyrfingssyni á Selfossi og Reyni Jó- hannssyni á Akranesi, hvort tveggja stórir bUar. Þriðji bUlinn er 18 sæta bttl sem fluttur er inn fuUgerður. -SHH SPRENGITILBOÐ Tilboöið gildir 21. ~28. febr. stór franskar, hrásalat og sósa, 2 I Pepsí KJUKLIIVGt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.