Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2002, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ VISIR 168. TBL. - 92. ARG. - FIMMTUDAGUR 25. JULI 2002 VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK MATSEÐILL MEÐ 15 ARA GOMLU VERÐI Á HARD ROCK. BLS. 12 Útsala hefst í versluninni Nanoq á morgun. Hún varö gjaidþrota, sem kunnugt er, en nýtt félag keypti rekstur og nafn fyrirtækisins. í morgun var unniö aö undirbúningi útsölunnar en gert er ráð fyrir verulegum veröiækkunum. Kannað hvort tilboðið var hækkað eftir útboð - varnarliðið talið hafa fallist á skýringu Eyktar um prentmistök fyrir útboðið Utanríkisráðuneytið er að kanna hvort rétt sé að útboðsdeild vamar- liðsins á Keflavíkurflugvelli hafi samþykkt að hækka tilboð bygg- ingafyrirtækisins Eyktar ehf. um eina milljón dollara (85 milljónir króna) eftir að tilboð þess og fleiri aðila voru opnuð vegna fram- kvæmda við endurbætur á fjölbýlis- húsi á vamarsvæðinu. MikO óá- nægja og undrun hefur skapast í kjölfar þessa, ekki sist hjá þeim byggingafyrirtækjum sem buðu á móti Eykt í framkvæmdina. Samkvæmt heimildum DV var það upplýst af hálfu yfirmanns hjá varnarliðinu fyrir síðustu helgi að Bandaríkjamenn hefðu tekið gildar skýringar Eyktar um að prentmis- tök hefðu orðið við útboðsgerð fyrir- tækisins. Það hefði valdið því að til- boð þess í verkið hljóðaði upp á 1,8 milljónir dollara þegar tilboðin voru opnuð ásamt öðrum. Sam- kvæmt heimildum DV upplýstu for- svarsmenn Eyktar ehf. að tilboð þess hafi átt að vera upp á 2,8 millj- ónir dollara - mistök hafi átt sér stað við tilboðsgerðina á heimavíg- stöðvum. Næstlægsta tilboðið var frá ís- lenskum aðalverktökum, 3,2 millj- ónir dollara fyrir verkið. Tilboð ístaks og Keflavíkurverktaka voru hins vegar hærri. Þegar forsvars- menn íslenskra aðalverktaka og aðrir sem þátt tóku í útboðinu fréttu af því að Bandaríkjamenn hefðu fallist á að hækka tilboð Eykt- ar um milljón dollara, eftjr að til- boðin voru opnuð, skapaðst megn óánægja. Þarna telja menn með ólíkindum að útboðsupphæð sé leið- rétt eftir að tilboð eru opnuð. Þegar DV spurði framkvæmda- stjóra Eyktar um málið sagðist hann ekkert vilja um það ræða. Gunnar Gunnarsson, skrifstofu- stjóri vamarmálaskrifstofu utanrík- isráðuneytisins, sagði við DV að ráðuneytið væri að athuga málið. „Við erum i sambandi við vamar- liðið vegna þessa.“ Þegar útboð fara fram á vegum vamarliðsins sér skrifstofa vamar- máladeildar utanríkisráðuneytisins um svokallað forval á tilboðsgjöfum. Þannig er auglýst eftir tilboðsgjöf- um. Svokölluð forvalsnefnd sendir síðan bréf til vamarliðsins um hverjir teljist hæfir en eftir það fara útboð fram. -Ótt Björgólfur Guömundsson. Olafur Davíðsson. Ríkisbankarnir: Þremenning- arnir bíða „Ég ekkert enn,“ Ólafur íðsson, maður kvæmda- nefndar um einkavæð- ingu, þegar DV innti hann eftir því í morgun hvort nefndinni hefðu borist erindi um kaup á hlut ríkisins í Landsbanka og Búnaðar- banka. Frest- ur til að lýsa áhuga á kaup- únum rennur út klukkan fjögur í dag. Stjóm fjárfestingarfélagsins Kaldbaks samþykkti i gær að veita framkvæmdastjóra félags- ins heimild til þess að óska eftir viðræðum við einkavæðingar- nefnd um kaupin. Kaldbakur er að stærstum hluta til í eigu KEA en Samherji og Lifeyrissjóður Norðurlands em einnig stórir hluthafar. Björgólfur Guðmundsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Magnús Þorsteinsson óskuðu um síðustu mánaðamót eftir við- ræðum um kaup á kjölfestuhlut í Landsbanka íslands. Stjórn- völd brugðust sem kunnugt er við með þvi að auglýsa eftir öðr- um áhugasömum, en þremenn- ingamir drógu þá ósk sína um viðræður til baka. Af orðalagi yfirlýsingar þre- menninganna má ráða að ekki þurfi endilega að koma til önnur- beiðni af þeirra hálfu til þess að viðræður um kaupin geti hafist. í yfirlýsingunni sagði að þeir drægju ósk sína um viðræður til baka „að svo stöddu." Ástæðan var sögð þessi: „Ekki er hægt að setjast að samningaborði við einn aðila á meðan auglýst er eftir tilboðum frá öðram í sama hlut. Eðlilegt er að bíða með við- ræður þar til tilboðsfrestur rennur út.“ „Þessi mál öll verða metin klukkan fjögur í dag,“ sagði Ólafur Davíðsson i morgun að- spurður um þennan skilning. Fundur verður í einkavæðingar- nefnd klukkan fimm þar sem ákvörðun verður tekin um fram- haldið. -ÓTG. RIVALDO Á FÖRUM FRÁ BARCELONA: Sættir sig ekki við sultarlaun FRUMSÝNINGAR í KVIKMYNDAHÚSUNUM: I Eldspúandi drekar, Villtur foli ogvandræði j 18 Smáauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.