Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2002, Blaðsíða 11
11 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 DV___________________________________________ Útlönd Bandaríkjamenn urðu undir í atkvæðagreiðslu hjá SÞ: Mistókst að koma í veg fyrir sáttmála gegn pyntingum Bandaríkjamönnum hefur mistekist það ætlunarverk sitt að koma í veg fyrir alþjóðlegan sáttmála Sameinuðu þjóðanna, um bann gegn pyntingum, en sáttmálinn var samþykktur í efnahags- og félagsmálanefnd Sameinuðu þjóðanna í gær með 35 atkvæðum gegn 8. Sáttmálinn sem gerir ráð fyr- ir því að eftirlitsnefnd SÞ geti fyrirvaralaust gert rannsóknir á fangelsum og gæslusvæðum um allan heim, verður seinna á árinu lagður fyrir 189 fulltrúa Allsherjarþing SÞ til af- greiðslu, en þó hann hljóti sam- þykki meirihluta ráðsins, sem gera verður ráð fyrir, verða hvorki Bandarikin né aðrar þjóðir sem kjósa gegn sáttmál- anum skuldbundnar til að framfylgja honum heimafyrir. Til að hljóta lagalegt giidi þurfa ríkisstjómir að minnsta kosti tuttugu ríkja að sam- þykkja hann. Andstaða Bandaríkjamanna gegn sáttmálanum kom reynd- ar ekki á óvart, en fulltrúar þeirra höfðu áður lagt fram tillögu um að ríkjamanna var felld með 29 at- kvæðum gegn 15. Þessi niðurstaða er túlkuð sem mikill ósigur fyrir Banda- ríkin, sem beittu sér að fullum þunga til að koma i veg fyrir samþykkt sáttmálans, en með því að samþykkja hann hefðu stjórnvöld opnað aðgang eftir- litsmanna SÞ að öllum fangels- um innan Bandaríkjanna og þar á meðal fangabúðunum við Guantanamo-flóa á Kúbu, sem hýsa stríðsfanga sem fluttir hafga verið frá Afganistan. „Það er erfitt að skUja þessa afstöðu stjórnvalda sem beinist gegn mannréttindum í heiminum," sagði Joanna Wec- hsler, frá bandarísku samtökunum Mannréttindavaktin, sem samtökin styðja sáttmálann. Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem Bandaríkjamenn lenda undir í atkvæðagreiðslu í Öryggisráð- inu, en í lok júní beyttu þeir neitunarvaldi sínu, þegar afgreiða átti friðargæslusamninga í Bosníu. Frá fangabúðun Bandaríkjamanna á Kúbu Meö samþykkt sáttmálans heföu eftirlitsmenn SÞ fengiö aögang aö búöunum á Kúbu. fresta afgreiðslu málsins og hefja aðra ir að málið hafi verið uppi á borðum umferð samningaviðræðna, þrátt fyr- SÞ í meira en tíu ár. Sú tiUaga Banda- REUTERSJHYND Aukin harka Bretar hyggjast stööva þá sem allt vilja eyöileggja á Noröur-írlandi. Bretar ætla að stöðva skæruliða Breska ríkisstjómin lofaði harka- legum aðgerðum gegn örfáum skæruliðum í Norður-írlandi sem ógna með aðgerðum sínum að skemma allt það friðarferli sem hef- ur verið í gangi í landinu síðan 1998 þegar stríðandi aðfiar skrifuðu und- ir friðarsamkomulag. „Við veröum að tryggja að þessir fáu harðlínumenn - sem styðja hver sinn málstað - eyðUeggi ekki einu almennUegu framtíðarvon Norður- írlands," sagði Blair við bresku rík- isstjómina í gær. Byrjað verður á því að senda 250 lögreglu- og hermenn tU helstu átakasvæða höfuðborgarinnar Bel- fast. REUTERSMYND Eitthvaö fyrir erfiöiö Kínverskur maöur dregur hér vagn meö hjóli sínu sem á eru endurvinnanlegar plastflöskur. Maöurinn hyggst selja þær í endurvinnslu og fær 0,08 yuoan fyrir kílóiö af plastflöskum en þaö rétt tæplega 1 króna. Dalia Rabin-Pelossof. Dóttir Rabins segir af sér Dalia Rabin-Pelossof, varavarnar- málaráðherra Israels, hefur sagt sig úr ríkisstjóm Ariels Sharons í mót- mælaskyni við stefnu hennar. Hún hefur sérstaklega mótmælt harð- línustefnu Sharons forsætisráð- herra undanfarna mánuði, sér í lagi fyrir að reyna með öUu brögðum að koma leiðtoga Palestinumanna, Yasser Arafat, frá völdum. Rabin-Pelossof er dóttir Yitzhaks Rabins, fyrmm forsætisráðherra landsins, sem var myrtur af ísra- elskum öfgamanni. Hún hefur hvatt flokk sinn tU að segja sig úr sam- steypustjóm Sharons. Enn eitt æru- morðið í Svíþjóð í aprU sl. fannst sjónvarpskonan Asrin Masifi hengd í íbúð í norður- hluta Stokkhólms. Nú hafa faðir henn- ar og systir verið tekin fóst, grunuð um að hafa myrt konuna. Ástæðan er talin að hún var trúlofuð manni sem ekki var samboðinn íjölskyldunni. Feðginin voru bæði viðstödd þegar hún fannst, með sjal vafið um háls sér, hangandi í ljósastæði. Eftir ítarlega rannsókn á líkinu er lögreglan viss í sinni sök um að hún hafi verið kæfð með belti áður en hún var hengd upp. Asrin var af kúrdiskum uppruna og hafði getið sér gott orð sem þáttastjóm- andi í sænska ríkissjónvarpinu. Hún var áberandi í samfélagi irmflytjenda og lét meðal annars tU sín taka eftir að landa hennar, Fadime Sahindal, var myrt af fóður sínum af sömu ástæðu sl. vetur. Það sem vekur fólki furðu við morð- ið á Asrin er að faðir hennar hafði oft komið fram með henni þar sem þau vöruðu landa sína og trúsystkin, við ærumorðum og hvöttu þá tU að tU- einka sér sitt nýja samfélag, sænska velferðarríkið. „Hún talaði oft um fóð- ur sinn, sem var hennar stærsta fyrir- mynd, um hvað hann væri umburðar- lyndur og gott fordæmi fyrir múslima sem væru að koma sér fyrir í nýju landi," sagði Jenny Dielmans, sam- starfskona Asrin, hjá sænska sjónvarp- inu. Nú situr hann á bak við lás og slá, ásamt annarri dóttur sinni, ákærður fyrir að hafa rutt Asrin úr vegi. -GÞÖ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.