Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002
DV
Fréttir
Óráðlegt að reikna með söluaukningu á lambakjöti:
Flóðbylgja af kjúkl-
ingum fram undan
- formaður landbúnaðarnefndar ósammála ákvörðun landbúnaðarráðherra
Ákvörðun Guðna Ágústssonar
landbúnaðarráðherra um 25% út-
flutningsskyldu á dilkakjöti mætir
andstöðu víða. Markaðsráð mælti
með 28% útflutningskyldu en ráð-
herra lækkaði hana niður í 25%. Út-
flutningsskyldan var 21% í fyrra.
Sigurður Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Sölufélags Austur-
Húnvetninga, segir að eftir talsverð-
ar hræringar á kjötmarkaðnum á
þessu ári og greinilega birgðasöfnun
í landinu sé ástæða til að hafa var-
ann á. Það verði ekki til að bæta
markaðinn að ráðherra skyldi ekki
fara að tilmælum markaðsráðs með
útflutningsskylduna. „Ég óttast að
þetta komi í bakið á bændum. Hing-
að til hefur birgðasöfnun og minni
eftirspurn en framboð ekki þýtt
neitt annað en verðlækkun. Ég ótt-
ast að sú verði raunin,“ segir Sig-
urður Jóhannesson.
Milljónir í geymslukostnað
Bændasamtökin studdu 28% út-
flutningsskyldu og hefur Sigurgeir
Þorgeirsson, framkvæmdastjóri
Bændasamtakanna, gagnrýnt
ákvörðun ráðherra. Sigurgeir segir
ofmælt að þessi 3% skipti sköpum
en mismunurinn sé þó um tvö
hundruð tonn af kjöti og áætlað sé
að beinn kostnaður við að geyma
slikt magn sé 12-16 milljónir á ári.
„Birgðir í landinu eru að okkar
mati óþægilega miklar í dag og mikl-
ar birgðir eru neikvæðar í öllu sölu-
starfi. Þess vegna sjáum við ekki
áistæðu til að viðhalda þeim eða
auka. Jafnvel þótt við næðum að
auka sölu lambakjöts töluvert á ár-
inu þá yrði engin hætta á að kjötið
seldist upp,“ segir Sigurgeir.
Óháður aðili hefur verið fenginn
til að meta birgðastöðuna nákvæm-
lega en Sigurgeir segir áætlað að
birgðimar séu nú um 750 tonn og
æskilegt hafi verið talið að koma
þeim niður í 400 tonn. Þetta eru
heldur meiri birgðir en voru í fyrra.
Ameríski draumurinn
Eiríkur S. Jóhannsson, fráfarandi
kaupfélagsstjóri KEA, sagöi í viðtaii
við DV í sumar að íslendingar ættu
Birgöir hlaðast upp
Meira er til af lambakjöti nú en um nokkurt skeiö og kostar geymslan á
birgðunum umtalsvert fé.
Guðni
Ágústsson.
Drífa
Hjartardóttir.
Eiríkur S.
Jóhannsson.
Sigurgeir
Þorgeirsson.
að einbeita sér að hagræðingu á inn-
anlandsmarkaði og geyma útflutn-
ing fyrr en því marki væri náö. Enn
sem komið er hefur ekki náðst við-
unandi verð fyrir útflutt lambakjöt
en Sigurgeir segir ótimabært að slá
af slíka möguleika. „Ég tek fram að
ég fuflyrði ekki að þetta verði raun-
hæfur möguleiki til frambúðar en
það eru viss teikn á lofti núna um að
við getum flutt út lambakjöt t.d. til
Ameríku á viðunandi verði ef menn
ná eðlilegri hagkvæmni i vinnslu. Ef
hægt verður að flytja þetta kjöt út
ferskt með skipum þá er þetta ekki
útilokað," segir Sigurgeir.
Misjöfn trú á markaðsátak
Ráðherra segir að ástæða þess að
útflutningshlutfaUið hækki nú sé
aukin birgðasöfnun, m.a. vegna
samdráttar í sölu kindakjöts innan-
lands. „Samkvæmt bréfi B.í. er út-
flutningsþörftn talin vera 1.694 tonn
en lagt er til að flutt verði út 200
Björn Þorláksson
blaöamaður
Fréttaljós
tonn til viðbótar til lækkunar á
birgðum. Á það er ekki fallist og
leggur landbúnaðarráðherra
áherslu á að fremur verði brugöist
við vaxandi birgðasöfnun með sölu-
átaki innanlands. Þá vísar landbún-
aðarráðherra til þess að á næstu
dögum hefjast viðræður um endur-
skoðun gildandi sauðfjársamnings
þar sem m.a. fyrirkomulag útflutn-
ings hljóti að koma til skoðunar.
Eðlilegt sé því að fresta svo róttæk-
um breytingum á útflutningshlut-
fafli þar til niðurstaða úr þeim við-
ræðum liggi fyrir,“ segir í fréttatil-
kynningu frá landbúnaðarráðherra.
Drífa ósammála Guðna
Drífa Hjartardóttir, þingmaöur
Sjálfstæðisflokksins og formaður
landbúnaðamefndar, telur að
Guðni Ágústsson hafi tekið ranga
ákvörðun. „Ég hefði samþykkt til-
lögu markaðsráðs. Strax í vor
stefndi í miklar umframbirgðir og
það munar gríðarlega um hvert
prósent,“ segir Drifa. Hún telur rétt
að fækka sauðfé enn frekar til sam-
ræmis við markað og hagræðingu.
Seljandi sem DV ræddi við telur
afar óliklegt að sala á lambakjöti
muni aukast á næstunni. Yfirvof-
andi sé flóðbylgja af kjúklingum á
niðursettu verði og þá sé svínakjöt
með ódýrasta móti. Formaður land-
búnaðamefndar er ekki heldur
bjartsýnn. „Nei, ég held aö sölu-
átak innanlands dugi afls ekki til.
Samkeppnin er gríðarleg sem
stendur en ég held þó að það sé
hægt að selja lambakjötið með
markvissari hætti eins og t.d. þekk-
ist hjá bæði kjúklinga- og svina-
kjötsbændum.“
Ógrynni slátraö af kjúkling-
um
Drífa er sammála því mati að
kjúklingar muni veita lambakjöt-
inu mikla samkeppni á næstunni.
Þannig hafi ógrynni af kjúklingum
verið slátrað á Hellu í fyrradag fyr-
ir amerísku dagana sem eru fram
undan.
„Það hefði átt að leyfa 28% út-
flutning til að grynnka á birgða-
stöðunni og jafhvel hefði ekkert
veitt af hækkun í 30%.“
-BÞ
Samtök fiskvinnslustöðva:
Bjartsýni í upphafi
fiskveiðiárs
Sinfónían til
Grænlands
Þann 9. sept. nk. fer 45 manna hóp-
ur í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
í tónleikaferð til Nuuk á Grænlandi.
Tvennir stórtónleikar verða haldnir í
Katuaq, norræna menningarhúsinu i
Nuuk, og verða flutt verk eftir Ross-
ini og Bizet. Grænlenski fiðluleikar-
inn Hanne Qvist leikur einleik i 1.
þætti fiðlukonserts nr. 1 í a-moll eftir
J.S. Bach og grænlenskir kórar munu
syngja með hljómsveitinni kórlög frá
heimalandi sínu. Einnig verður frum-
flutt verkið Clouds eftir grænlenska
tónskáldið Per Rosing.
Hljómsveitin mun einnig halda 5
skólatónleika fyrir grunnskólanem-
endur í Nuuk. Þar verður flutt verkið
Pétur og úlfurinn eftir Prokofieff. Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands hefúr
látið þýða söguna á grænlensku og
verður Per Rosing sögumaður.
Þetta er í fyrsta sinn sem hljóm-
sveitin fer í tónleikaferð út fyrir land-
steinana og þykir við hæfi að 10.
starfsár hennar hefjist á þennan hátt.
Ferðin er liður í verkefni sem unnið
hefur verið að á vegum Akureyrar-
bæjar undanfarin misseri, undir yfir-
skriftinni Vest-Norden 2002. Auk Ak-
ureyrarbæjar styrkja Nordisk Kultur-
fond, menntamálaráðuneytið, Nuuk
kommune og fleiri ferðalagið.
-BÞ
Töluverð bjartsýni ríkir hjá
rekstraraðilum hraðfrystihúsa í
upphafi nýs fiskveiðiárs, sem hófst
1. september sl. Sérhæfing húsa
jókst á árinu í íslenskri fisk-
vinnslu og verkefnastaðan hefur
stundum veriö verri. Arnar Sigur-
mundsson í Vestmannaeyjum, for-
maður Samtaka flskvinnslustöðva,
segir að þrátt fyrir það beri staðan
þess merki að um nokkum sam-
drátt sé að ræða í botnfisktegund-
um, en nú viti fiskvinnslan nokk-
uð hvað reikna megi með til
vinnslu á fiskveiðiárinu, þó það
geti orðið sveiflukennt innan fisk-
veiðiársins. Arnar telur aö staðan
nú sé svipuð og hún var í upphafi
nýlokins fiskveiðiárs en aukin sér-
hæfing skapi meiri verðmæta-
aukningu innanlands því nú sé
unnið umtalsvert magn af fiskteg-
undum sem ekki voru eins mikið
og vel nýttar áður þar sem þær
dreifðust þá á svo marga aðila. Nú
er meira framboð af þeim og
minni fiskvinnsluhús hafa getað
sérhæft sig í vinnslu þessara fisk-
tegunda í auknum mæli. Arnar tel-
ur að þessi þróun muni halda
áfram.
„Á sínum tíma fór töluverður
hluti fiskvinnslunnar út á sjó og
það hefur orðið lítil breyting á því,
og alls ekki aukning. Fyrir
nokkrum árum fóru fiskvinnslu-
hús og útgerðir að miða uppgjörið
við fiskveiðiárið, þar sem það féll
nokkuð vel að „atinu“, en ekki
almanaksárið en það er að mestu
að ganga til baka. Menn höfðu trú
á því að þetta væri heppilegt en
þegar fyrirtækin fóru í vaxandi
mæli inn á markað, þ.e. á Verð-
bréfaþing og Kauphöll, þá rakst
það illa á 6 og 9 mánaða uppgjör í
samanburði við önnur fyrirtæki
svo flest þeirra hafa horfið aftur
til almanaksársins með uppgjör.
Þannig hafa bæði Vinnslustöðin
og ísfelag Vestmannaeyja horfið til
fyrra tímabils," segir Árnar Sigur-
mundsson.
- Hvemig lítur 6 mánaða upp-
gjörið út hjá þeim fiskvinnslufyr-
irtækjum sem það hafa birt?
„Nokkuð vel, og mun betri á
Verðbréfaþinginu en a sama tíma í
fyrra, enda hefur gengishagnaður-
inn sem stafar af styrkingu krón-
unnar og lækkun erlendra skulda
komið mönnum til góða. Svo kem-
ur stöðugleiki í efnahagslífinu í
kjölfarið, einmitt það sem menn
vora að sækjast eftir. Auðvitað
verður skilaverð eitthvað lægra en
þá er að laga sig að því, en verð á
sjávarafurðum hefur verið hátt að
undanförnu. En ýmis aðföng verða
einnig ódýrari.
í upphafi fiskveiðiárs ríkir því
þokkaleg bjartsýni." -GG
Ríkisskattstjóri:
Efast um birtingu
skattskráa
Vafamál er
hvort birting
skattskráa skilar
því aðhaldshlut-
verki sem ætlun-
in er. Velta má
upp þeirri
spurningu hvort
hana beri að
leggja af eins og
annað þegar þess
tími er liðinn.
Þetta segir Indriði H. Þorláksson
ríkisskattstjóri í nýju tölublaði Tí-
undar, fréttabréfi embættis hans.
Hann segir að opinberri birtingu
skattaálagningar hafi á sínum
tíma verið komið á til að gefa
gjaldendum og öðrum tækifæri til
að sannfærast um að „réttilega
hafi verið staðið að niðurjöfnun
gjalda“, eins og hann kemst að orði
- og bætir við að þetta hafi skapað
aðhald bæði yfirvöldum og borgur-
um.
Að mati ríkisskattstjóra var til-
gangurinn með birtingu skránna í
sjálfu sér góður og sé það enn.
Hins vegar megi draga í efa að birt-
ing í núverandi mynd leggi mikiö
af mörkum til almennrar umræðu
og upplýsinga um skattamál og
álagningu. „Karp um birtingu
skránna þjónar litlum tilgangi en
full þörf er á umræðu um það
hvemig mest megi tryggja það
hagsmunamál borgaranna, ríkis og
sveitarfélaga að skattlagningin, lög
um hana og framkvæmd sé með
þeim hætti sem best má vera,“ seg-
ir Indriði í grein sinni. -sbs
....................... .
Ferðakaupstefna:
500 manns frá
20 þjóðlöndum
Vestnorræna
ferðakaupstefn-
an, Vest-Norden,
verður haldin í
íþróttahöllinni á
Akureyri dag-
ana 11.-12. sept-
ember næstkom-
andi. Þetta er 1
17. sinn sem
kaupstefnan er
haldin en hún er
sérstaklega ætluð aðilum i ferða-
þjónustu. Löndin þrjú sem mynda
Vest-Norden-hópinn, þ.e. ísland,
Færeyjar og Grænland, hafa skipst
á um að halda kaupstefnuna en
hún var haldin á Grænlandi í
fyrra. Um 500 manns frá rúmlega
20 þjóðlöndum munu sækja kaup-
stefnuna en hún er ekki opin al-
menningi.
Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri segir ánægjulegt hvernig
sýningin hafi þróast. „Við byijuð-
um í mjög smáum stíl fyrir 17
árum. Þá voru gististaðir og fyrir-
tæki á samgöngusviðinu nánast
einráð í hópi sýnenda en síðan
hefur kaupstefnan stækkað jafnt
og þétt og hópurinn sem er að selja
vöru og þjónustu er nú mun breið-
ari. Það er sérstaklega ánægjulegt
að í ár eru mjög margir nýir kaup-
endur búnir að boða komu sína,
m.a. fleiri aðilar en fyrr frá Banda-
ríkjunum og nokkrum löndum
sem ekki hafa selt ferðir til Vest-
Norden-landanna fram að þessu,“
segir Magnús. -BÞ
Varnarliðið:
Sækir slasaðan
mann
Tvær þyrlur Varnarliðsins á
Keflavíkurvelli auk tankflugvélar af
Herkúlesgerð voru í morgun kallað-
ar út til að sækja slasaðan skip-
verja. Hinn slasaði var um borð í
bandarískri skútu sem er stödd um
300 sjómílur suður af landinu. Mast-
ur skútunnar mun hafa fallið niður
á skútuna með þeim afleiðingum að
maðurinn slasaðist. Þyrlumar voru
væntanlegar hingað til lands um ell-
efuleytið. -aþ
Indriði H.
Þorláksson