Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Blaðsíða 19
19 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 I>V Tilvera lí f iö E . F T I R V I M N U •Leikhús ■Beyglurnar: Sýning pg faBlI i Iftnó Leikritiö Beyglur meö öllu er frumsýnt í kvöld í lönó. Því miöur er uppselt á þessa sýningu en hér er aö feröinni kvennahúmor af bestu gerö, framreiddur af fjórum leikkonum í leik* stjórn Maríu Reyndal. Eftir frumsýningu verö- ur svo sérstakt Beygluball sem hefst kl. 23.30 í lönó og stendur þaö fram á nótt. Þar spilar hljómsveitin Rokkslæöan ásamt plötu- snúöunum Gullfossi og Geysi en auk þess veröa óvæntar uppákomur. Allir eru velkomn- ir á balliö en miöaverö er 500 kall. Þaö er til- valiö aö skella sér í mat á veitingastaöinn Tjarnarbakkann í lönó en þar er m.a boöiö upp á Beygluseöil sem samanstendur af pönnusteiktri hörpuskel í sítrusspínatsósu, marineruöum kjúklingabringum meö risotto og sérríhnetusósu og kaffi Tjarnarbakkans. BSellófan í Hafnarfiröi Sellófon er kærkomin innsýn í daglegt líf Elín- ar sem hefur tekiö aö sér þaö hlutverk í lífinu aö halda öllum hamingjusömum, nema ef til vill sjálfri sér. Á gamansaman hátt er skyggnst inn í líf Elínar sem er tveggja bama móöir í ábyrgöarstöðu hjá tölvufyrirtæki á milli þess sem hún tekur til sinna ráöa til þess aö viöhalda neistanum í hjónabandinu. BJörk Jakobsdóttir er handritshöfundur en hún er jafnframt eini leikarinn í sýningunni. Verkiö er sýnt í Hafnarfjaröarlelkhúsinu í kvöld kl. 21. •Tónleikar BHórður Torfa i Óperunni Enginn annar en ofur-trúbadorinn Höröur Torfason veröur meö tónleika í íslensku óper- unnl í kvöld. Þaö er sérstök upplifun aö sjá kallinn í óperunni og því ættu þeir sem ekki hafa upplifaö þaö áöur aö skella sér í kvöld. •Síöustu forvöö ■Verk úr plexigleri á Sólon Á Kaffi Sólon (áöur Hús málarans) lýkur sýn- ingu grafíska hönnuöarins og myndlistarkon- unnar Valgeröar Einarsdóttir í dag. Þetta eru mjög framúrstefnuleg verk sem eru unnin í plexigler og koma virkilega á óvart. •Uppákomur MKremlarkvöld á Café Victor Þjóömálaritiö KREML boöar til Kremlarkvölds um stjórnmálaástandiö á veitingastaönum Café Victor (efri hæö) í Hafnarstræti í kvöld klukkan 20.00. ■Pansleikur í Gerðubergi Félagsstarf Geröubergs heldur dansleik í A- sal Geröubergs í kvöld kl 20. Hljómsveit HJör- dísar Geirs leikur fýrir dansi ásamt þeim Gretti Bjömssyni og Ragnari Páli. •Klúbbar ■Pi Cesar i búrinu á Spotlight Dj Cesar veröur í búrinu á Spotlight í kvöld. ■Hacienda-Sportkaffi Enginn annar en Dave Hasiam, einn af hinum víöfrægu Hacienda-plötusnúöum, sem kenndir eru viö hinn alræmda Hacienda-klúbb í Manchester, sem var starfræktur fram á síö- asta áratug og hefur haft meiri áhrif á tónlist- arsenu heimsins en margan grunar, mun spila á Sportkaffi. Þaö er í tengslum viö frum- sýningu myndarinnar 24 Hour Party People sem er svokölluö mockumentary um staö- inn. Þetta er nokkuö sem sannur klúbbari á ekki aö láta fram hjá sér fara. ■Salsakvóld á Astró Þaö veröur gargandi salsastemming á Astró þar sem dansarar frá Kramhúsinu munu dilla sér. Lárétt: 1 dugleg, 4 eyktamark, 7 hrammur, 8 kjötkássa, 10 vitleysa, 12 traust, 13 götu, 14 heimsk, 15 áköf, 16 bindi, 18 komust, 21 grasið, 22 skaði, 23 makaði. Lóðrétt: 1 vigt, 2 rá, 3 vandvirk, 4 samviskulausar, 5 fataefni, 6 kraftur, 9 sápulögur, 11 hindrunarlaus, 16 vön, 17 hraði, 19 fljótið, 20 grjót. Lausn neðst á síöunni. Svartur á leik! Sumir afleikir í skák eru skrýtnir og afdrifaríkir! Judit Polgar tefldi at- skákeinvígi við Pólverjann Bartlomiej Macieja núna í seinnihluta ágústmán- aðar en það var úrslitaeinvígi í Umsjón: Sævar Bjarnason keppni á vegum pólskra og ung- verskra aðila. I stað þess að leika hinum afdrifarika leik 23. Hd7 kom 23. De5 eða 23. d6 til greina þótt svartur stæði betur. Þetta var síðasta skákin í einviginu og staðan var 4-3 fyrir skákina. Judit varð að vinna en tapaði sem sagt! Hvítt: Judit Polgar (2681) Svart: Bartlomiej Macieja (2607) Rússnesk vörn Búdapest (8), 22.08. 2002 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. 0-0 Be7 8. Hel Bf5 9. c4 0-0 10. Rc3 Rxc3 11. bxc3 Bxd3 12. Dxd3 dxc4 13. Dxc4 Bd6 14. Db5 Df6 15. Bg5 Dg6 16. c4 a6 17. Db2 b6 18. a3 Dd3 19. Hadl Dxc4 20. d5 Ra5 21. Be7 Bxe7 22. Hxe7 Hae8 (Stööumyndin) 23. Hd7?? Da4! O-l Lausn á krossgátu__________ •Qjn OZ ‘bub 61 ‘ISE L\ ‘uioi 9i ‘QiaiS n ‘jnjnj 6 ‘UB 9 ‘ubi s ‘jBUiínJdo þ ‘injæSÍsoij g ‘ejs z ‘2oa x jjajQOi •QUBJ 8Z ‘inara zz ‘ubuis \z ‘nQBU 81 ‘Jbji 91 ‘isæ gl ‘3aJl n ‘2i;s gx ‘tu; zi ‘|2nj oi ‘sej2 8 ‘eddoj i ‘euo þ ‘s(soa x jjajeq Dagfari ■ ? ' mÆm* Löng, stutt, löng Hringing kveður við 1 sveitasímanum. Löng - stutt - löng. Á línunni er organistinn að auglýsa messu næsta sunnudag. Ekki er nóg að heimilisfólkið meðtaki þann boðskap, hann þarf að berast líka á næstu bæi og þar er að- eins sími á einu heimili af fimm. Því er tölt af stað að boða fagnaðarerindið. Hund- arnir, Státi, Snati, Smali, Kar- mon og Bósi gera sig breiða á stéttunum og þreytast aldrei á að gelta að okkur nágranna- krökkunum sem erum þó tíðir gestir. Maður þverfetar sig fram hjá þeim, hittir fólkið, kemur erindinu til skila, þigg- ur köku og spjallar svolítið meira. Næsta dag er hringt og beðið um þingmanninn í síma. Það er áríðandi. Þá er hvítt lak breitt á stóra steininn í hlaðinu. Þingmaðurinn, sem er við bústörf langt frá bæ, skilur merkið og hraðar för sinni til bæjar. Þessi boðskipti úr bernsku koma mér stundum í hug þeg- ar símarnir glymja allt í kringum mig allan daginn. Heimasímar, vinnusímar, far- símar. Það er hringt milli húsa, hæða og herbergja, jafn- vel milli borða. Þeir sem ganga fram hjá eru flestir að tala í síma. Við tölum meira í síma en við næsta mann. Eitt eiga þó farsímarnir sameigin- legt með gamla sveitasíman- um, annað en flytja orð, þeir hafa hver sinn tón sem eig- andinn þekkir, rétt eins og hringingin löng - stutt - löng gilti bara heima hjá mér þótt hún heyrðist á öllum sím- væddum bæjum í sveitinni. i i 'S ‘S SP re Hvað er að langfyruán- asta sem hann ga?ti mögulega gert? Ef herra Smokkfl6kur á að slá í gegn verður hann að vera mjög fyndinn! Hann .. hann ... \ hann... B0RAR í NEFIÐ! FRÁBÆRT! KOMÍSKUR SNILLINGUR! FÆRÐU ÞIG LADDII Hvernig gengur teiknimynda* Ldjobbið? Bg var rekinn Raunsa?tt mat...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.