Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Blaðsíða 18
Tilvera FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 x>v bandagagnrýni The Believer ★★★ 4 Tvöfalt líf Það er langsótt að hugsa sér að gyðingur sem elst upp innan um strangtrúaða geti orðið nýnasisti. Og ef The Believer væri ekki byggð á stað- reyndum þá hefði þessi hugmynd aldrei náð fram að ganga. Aðalper- sónan er Danny Balint (Ryan Gosl- ing) uppreisnargjam ungur maður sem langt í frá er sáttur við lífið og tilveruna. Hann er árásargjarn og tilheyrir hópi nýnasista sem frekar má líkja við hryðjuverkhóp heldur en stjómmálaafl. Það er ekki fyrr en við höfum kynnst miklu hatri Dann- ys á gyðingum sem hann vill helst drepa sem farið er aftur til þess tíma þegar hann var í skóla fyrir strangtrúaða gyðinga og var rekinn fyrir öfgafullar skoðanir. Þar lærir hann hebresku sem síðar meir kem- ur upp um uppruna hans. Kynni hans af Cörlu (Summer Phoenix) dóttur foringja hryðjuverkahóps sem hann tilheyrir, verða til þess að hann fer meira og meira að hugsa um uppruna sinn og þegar hann hittir fyrrum skólafélaga sína fær hann aftur áhuga á gyðingatrúnni. Og þó að Danny berjist gegn þessum ^ áhrifum er ljóst aö hann er orðinn klofrnn persónuleiki á versta veg. Á öfgafullan hátt fer hann gegn sjálf- um sér andlega og líkamlega hvort sem er á vettvangi nýnasista eða gyðinga. Það er viss áræðni bak við gerð The Believer. Það er djarft að skella svo ólíkum hugmyndum í sömu persónu og krefst mikils af leikaranum. Ryan Gosling, lítt þekktur leikari, er sterk- ur á svellinu og lætur gamminn geisa í hlutverki þar sem spilað er á aila til- finningastrengi. Aðall myndarinn er “pó handritiö sem er innhaldsríkt og vel skrifað af leikstjóra myndarinnar, Henry Bean. -HK Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Henry Bean. Bandaríkin 2001. Lengd: 103 mín Leikarar: Ryan Gosling, Summer Phoen- ix, Theresa Russell og Billy Zane. Bönn- uð börnum innan 16 ára. Lone Hero ★★ Nútímavestri Það er ekkert verið að leyna því að fyrir- myndin á bak við Lone Hero er vestrinn. Myndin gerist í smábæ þar sem helsta lifi- > brauð ungra manna er að taka þátt í sýningu sem fjallar um atburði í villta vestr- inu. Að öðru leyti er bæjarlífið eins og venjulegt smábæjarlíf. Það verð- ur mikO breyting á þegar nútímaút- lagamir, mótorhjólatöffarar í leður- klæðnaði, koma i bæinn Þessir út- lagar nútímans eru af verstu tegund og foringi þeirra, Bart (Lou Di- amond Phillips), skreytir sig með lögregluskjöldum þeirra lögreglu- þjóna sem hann hefur drepið. Geng- iö setur allt á annan endann og að- eins einn maður, John (Sean Pat- rick Flanery), sem leikur í vestra- sýningunni og er góð skytta, þorir að ráðast gegn ógninni. Hann kem- ^ ur Bart í fangelsi, en aðeins í stutt- an tíma. Vélhjólagengið er fjöl- mennt og tekur öll völd i bænum. Og þar sem John hafði niðurlagt foringjann nægir ekki að rústa bæ- inn, bærinn verður ekki yfirgefinn fyrr en Bart hefur hefnt sín ... Lone Hero er brokkgeng kvik- mynd þar sem formúluatriðin eru allsráðandi. Mikið er lagt upp úr átakaatriðum og skotbardagar eru á fimm mínútna fresti. Við það verð- ur myndin nokkuð einhæf og lang- dregin. Lou Diamond Phillips, sem hefur bætt við sig vöðvum, ferst vel _ úr hendi að leika óþokka og er sá * leikari sem er eftirminnilegastur. -HK Útgefandl: Skifan. Lelkstjórl: Ken Zanz- el. Bandaríkin 2001. Lengd: 92 mín. Lelkarar: Lou Diamond Phillips, Sean Patrick Flanery og Robert Forster. Bönn- uö bömum innan 16 ára. DV-MYNDIR SIGURÐUR JÖKULL Hlýtt fyrir veturinn Það veröur ekki amalegt aö klæöast þessum klæönaði í vetur þegar fer aö kólna. Staðiö í ströngu Undiþúningur fyrir sýninguna var mikill og hvíldi þaö meðal annars á heröum Lindu Olsen, Ingu Sjafnar Kristinsdóttur, Fanneyjar Siguröardóttur, Rannveigar Jónsdóttur og Huldu Haraldsdóttur sem eru á myndinni. Broadway: Það nýjasta í undirfötum Undirfatatiskan breytist ekki síð- ur en önnur tíska. í gærkvöld fór fram á Broadway sýning á vegum Oroblu þar sem sýningarstúlkur frá Eskimo Models sýndu það nýjasta í undirfatatískunni auk þess sem einnig var sýnt það nýjasta í baðfót- um, sokkabuxum og sokkum. Marg- ir létu sjá sig á Broadway og voru það aðallega konur sem vildu sjá hvemig þær ættu að klæðast innan- kiæða í vetur. Ánægtar með sýninguna Þær Hildur, Guörún og Silja voru ánægöar meö sýninguna og umgjörð hennar. Skjár Einn: DV-MYNDIR SIGURÐUR JÓKULL Sjónvarpsstjórinn og þjónarnir Sjónvarpsstjórinn á Skjá Einum, Árni Þór Vigfússon, er hér í góöum félags- skap þjóna sem voru skrautlega klæddir eins og sjá má. Vetrardagskrá kynnt Það var mikiö um dýrðir í Borg- arleikhúsinu í gærkvöld þegar Skjár Einn kynnti vetrardagskrá sína þar sem bæði verða gamlir kunningjar og nýir liðsmenn sem kynntir voru til leiks. Dagskrá Brosmildir gestlr Kristján hjá Góöu fólki, Guöjón Ped- ersen, leikhússtjóri Borgarleikhúss- ins, og Helgi Björnsson, leikari og tónlistarmaður, voru meöal fjöl- margra gesta. stöðvarinnar byggist sem fyrr á skemmtiefni í bland við fræðslu og mál sem eru ofarlega á baugi hverju sinni. Fjöldi fólks sótti veisluna þar sem kynnt var dagskráin og skemmti sér hið besta. Málin rædd Þeir Skapti og Birgir voru meö bjór- flösku í hendi og ræddu málin þegar Ijósmyndari DV hitti þá. Norræna húsið: Norrænar barnamyndir Norræna húsið hefur til margra ára sýnt norrænar bamakvikmynd- ir. Myndimar eru ekki textaðar og því tilvalið fyrir þá krakka sem hafa norrænu tungumálin á valdi sínu eða vilja halda þeim við að horfa á skemmtilegar kvikmyndir. Fram að jólum verða sýndar fjórar myndir frá Noregi, Sviþjóð, Dan- mörku og Finnlandi. Fyrsta myndin er norsk teikni- mynd sem heitir Solan Ludvig og Gurin með tófuskottið. Kvikmyndin er byggð á verðlaunaðri bamabók eftir rithöfundinn Kjell Aukrust um útihússálfmn Gurin sem getur ekki stillt sig um að vera óttalegur refur og vaknar einn daginn með tófu- skott á rassinum. Nú kynnist Gurin því sjálfur hvemig það er að verða fyrir athlægi. En verra er þó að það fréttist alla leið til flnustu hverf- anna í vesturhluta Óslóar af þessu glæsilega tófuskotti. Þar keppa hefð- arfrúmar um hver eigi flnasta refaloðkragann ... Aðgangur er ókeypis á sýninguna sem er á sunnudaginn kl. 14.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.