Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 DV Fréttir BAT Nordic í mál gegn íslenska ríkinu vegna tóbaksvarnarlaganna: Segja ákvæði laganna stríða gegn stjórnarskrá - Blaðamannafélagið varaði við takmörkun á stjórnarskrárbundnum réttindum Tóbaksrisi gegn ríkinu Fulltrúar tóbaksfyrirtækisins BAT Nordic kynna málshöfðun sína gegn íslenska ríkinu en þeir telja tóbaksvarnarlögin brjóta gegn stjórnarskrárbundnum réttindum. Þingfest var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur mál tóbaksfyrirtækis- ins British American Tobacco Nor- dic Oy (BAT Nordic) gegn íslenska ríkinu. Krefst fyrirtækið að viður- kennt verði með dómi að ákvæði tó- baksvarnarlaga séu stjórnskipulega ógild. Er vísað til ákvæðis sem bann- ar umfjöllun um tóbak nema til að vara sérstaklega við skaðsemi þeirra og ákvæðis sem bannar að tóbak eða vörumerki tóbaks séu sýnileg við- skiptavinum á útsölustöðum. BAT Nordic telur þessi ákvæði ganga í berhögg við ákvæði stjórnarskrár- innar um tjáningarfrelsi, friðhelgi eignarréttar og atvinnufrelsi. „Við gerum okkur grein fyrir að þeir sem reykja eigi á hættu að fá sjúkdóma tengda reykingum. Því styðjum við að settar séu skynsam- legar reglur um tóbak i samráði við hagsmunaaðila. Ástæða þessarar málsóknar er sú að við viljum verja tjáningarfrelsi okkar og fá viður- kennt að heimilt sé að hafa vörur okkar sýnilegar á sölustöðum. Við teljum einnig að ákvæði tóbaks- vamarlaganna, sem banna alla um- fjöllun í fjölmiðlum um einstakar tegundir tóbaks nema til að vara við skaðsemi þeirra, sé brot á stjómar- skránni,“ sagði Roy Herold, fram- kvæmdastjóri BAT Nordic, þegar málshöfðunin var kynnt í gær. Jakob Möller hrl. flytur málið fyr- ir hönd BAT Nordic, sem er hluti af einu stærsta tóbaksfyrirtæki heims. Auk fyrrgreindra krafna fyrirtækis- ins er þess kraflst að viðurkennt verði með dómi að fyrirtækinu sé heimilt að miðla upplýsingum um vörur sínar til smásala og annarra innan greinarinnar. BAT Nordic tel- ur að það hvíli á íslenska ríkinu að sanna að fyrrgreind ákvæði tóbaks- varnarlaga brjóti ekki gegn stjóm- arskrárvörðum réttindum félagsins. Vekur félagið auk þess athygli á að tóbak er lögleg vara á íslandi og að það er flutt inn af íslenska ríkinu. Gagnrýni úr ýmsum áttum Tóbaksvamarlögin sem hér um ræðir voru umdeild fyrir ýmissa hluta sakir. Sýndist sitt hverjum um tiltekin atriði. Var t.d. varað við því að sumt kynni að skerða ein- staklingsfrelsið. Þá bentu reykinga- menn á að tóbak væri löglegt á ís- landi og nokkurrar tvöfeldni gætti í þessum efnum. Tveir lögfræðingar heilbrigðis- ráðuneytisins, auk lögfræðings Tó- baksvarnarnefndar, sömdu fmm- varpið en þaðan fór það til heilbrigð- isnefndar Alþingis. Allir þingtlokkar fengu frumvarpið til umfjöllunar. Heilbrigðisnefnd samþykkti lögin samhljóma. Enginn þingmaður greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. Þorgrímur Þráinsson hjá Tóbaks- varnarnefnd sagði við DV: „Þeir sem fetta fingur út í þetta eru í raun að lýsa vantrausti á alla þá sem em búnir að samþykkja frumvarpið." í DV í maí 2001 sagði Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Kaup- mannasamtakanna, að áhrifin á verslunina yrðu mikil vegna lag- anna og sumt væri beinlínis hjákát- legt. „Það þarf leyfi til að seija eitt- hvað sem hvorki má sýna né tala um og svo virðist markmiðið vera það helst að svipta menn aftur leyf- inu sem fyrst,“ sagði hann. Blaðamannafélag Islands sendi Alþingi og heilbrigðisráðherra harðorð mótmæli vegna frumvarps- ins en þær athugasemdir höfðu ekki áhrif á þingheim. í tilkynningu frá BÍ sagði m.a.: „Stjómarskráin segir að ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi megi aldrei í lög leiða. Frumvarp til laga um breytingu á tóbaksvamarlögum bannar „hvers konar umfjöllun í fjölmiðlum" um einstakar tegundir tóbaks nema tilgangurinn sé að „vara sérstaklega við skaðsemi þeirra". Stjómvöld vilja múlbinda fjölmiðla nema þeir séu tilbúnir að láta siga sér á tóbaksframleiðendur. Bl hefur skilning á þeirri viðleitni stjórnvalda að draga úr skaðsemi reykinga í þjóðfélaginu en varar eindregið við hvers konar takmörk- unum á stjómarskrárbundnum rétt- indum þegna landsins. Þeir hags- munir era meiri en umræddu laga- ákvæði er ætlað að vemda. Tilgang- urinn má ekki helga meðalið.“ -hlh Sjálfvirk plastkarasamstæða Jóhann Jónasson, framkvæmda- stjóri 3X-Stál, er ánægöur með sýn- inguna sem gefi tækifæri á aö styrkja tengslin við viðskiptavinina. Ný meðhöndlun á plastkörum Eitt þeirra fyrirtækja sem kynna vöru sína á íslensku sjávarútvegs- sýningunni 2002 er 3X-Stál ehf. sem starfar á ísafirði og í Garðabæ. Jóhann Jónasson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, segir þetta eina fyrirtækið á markaðnum sem bjóði upp á heildarlausn á meðhöndlun fiskikara í fiskvinnslunni. „Við höf- um nýveriö sett upp slíkt kerfi hjá Granda hf. sem er eitt það fullkomn- asta sem völ er á og eins það sem er hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Þetta er sem sagt alsjálfvirk með- höndlun á plastkörum, frá því lyftari afhendir stæðu af hráefni í móttöku og tekur síðan plastkörin út stöfluð og þrifin á hinum enda vinnslulín- unnar.“ - Hvaða máli skiptir svona sýning fyrir ykkar starfsemi? „Þessi sýning er fyrst og fremst ætluð til að styrkja tengsl við ís- lenska viðskiptavini okkar. Við tök- um þátt í þremur til fjórum sýning- um árlega í Evrópu og í Ameríku, en þessi sýning hér er mjög góður vett- vangur fyrir okkur.“ -HKr. íslenska sjávarútvegssýningin: Erfitt að selja ís- lendingum skip í dag - segir Bárður Hafsteinsson framkvæmdastjóri DV-MYND E.ÓL Ný hönnun á nóta- og flottrollsveiðlskipi Bárður Hafsteinsson segir verkefni Skipatækni í dag að mestu vera í hönnun á skipum fyrír erlenda aðila. Hér er hann við alveg nýja hönnun frá norskum meðeiganda Skipa- tækni, Vik-Sandvik, sem þykir um margt sérstök. Skipatækni er þekkt fyr- irtæki hér á landi og hefur hannað mörg þekkt skip i flotanum, m.a. Ingunni AK- 150, Hugann VE-55 og Guð- rúnu Gísladóttur KE-15 sem sökk eftir strand við Noregsstrendur fyrir skömmu. Fyrirtækið var stofnað á íslandi 1974, en er nú í nánu samstarfi við norska fyrirtækið Vik- Sandvik AS. Bárður Haf- steinsson, framkvæmda- stjóri og skipahönnuður, á þó enn 51% í fyrirtækinu ásamt fjölskyldu sinni, en Vik-Sandvik á 49%. - Hvemig gengur að selja íslendingum skip í dag? „Það gengur ekki neitt og þetta er erfiður „bransi". Það er ekkert á döfinni, en við skulum vona að menn hressist og fari í einhverjar fjárfestingar á næsta ári. Það er orð- in veruleg þörf á endumýjun í flot- anum.“ Bárður segir að Skipatækni sé hins vegar í mörgum erlendum verkefnum með Vik-Sandvik. Þannig hafi þeir m.a. alfarið séð um hönnun á stóru kapalskipi sem er sérhannað fyrir grannsævi og til notkunar i Karíbahafmu. Það skip er smíðað í Króatíu fyrir þýskt fyr- irtæki og verður notað til að leggja ljósleiðara. Bárður segir að á sýningunni sé meðal annars kynnt ný hönnun frá Vik-Sandvik á 90 metra löngu og 16 metra breiðu nóta- og flottrollsveiðiskipi. „Ganghraðinn á þessu skipi er um 20 mílur. Það sem er sérstakt við þetta skip er m.a. að nótin er tekin inn um síðuna í lokaðan nótakassa og lögð þar sjálfvirkt niður. Öll spil og flottrollstroml- ur eru undir dekki svo mannskapurinn verður í skjóli fyrir veðri og vind- um. Þetta skip á að geta fiskað í vondum veðrum á norðlægum slóðum og tekur um 2.000 tonn í lest- ar af kældum afla. Gang- hraði skipsins verður mikill og vélin um 10.000 hestöfl." Bárður segir að ein útgerð í Nor- egi sé þegar búin að semja um smiði á slíku skipi, en það er sama útgerð og átti Óla í Sandgerði sem um tíma var á Akranesi. Hann segir að skrokkur skipsins verði líklega smiðaður i Rúmeníu en skipið síðan fullklárað í Noregi. -HKr. jgsHZiXii/SZ)}! REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 20.27 20.14 Sólarupprás á morgun 06.27 06.15 Síðdegisflóó 18.40 23.03 Árdegisflóð á morgun 06.25 10.58 Stöku skúrir Norðlæg átt og léttir til, 5-10 m/s og bjartviðri en stöku skúrir austaniands og 10-15 m/s við ströndina. Fremur hæg breytileg átt, léttskýjað og hætt við næturfrosti í innsveitum i nótt. Hiti 8 til 15 stig. Skýjað með köflum Suðvestan 5-10 m/s norðvestan til en annars breytileg átt. Skýjaö meö köflum vestan til en léttskýjað austan til. Hiti 8-10 stig að deginum. Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur Híti 8° Hiti 6° Hiti 8° «115° tif 14° «115° Víntíur: I 3-8m/® Vindur: 3-8'iV'a Vindur: 2-10 m/» | Suövestlæg eöa broytileg átt. Skýjaö meö kóflum vestan til. Hæg austlæg eöa breytileg átt. Þurrt aö kalla. Austiæg átt. Rigning austaniands en skýjaö meö köflum og úrkomufltiö. 7» m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárviðri >= 32,7 Í^TA J 'X 3 ''' ‘ ‘ - AKUREYRI rigning 7 BERGSSTAÐIR úrkoma 6 BOLUNGARVÍK úrkoma 6 EGILSSTAÐIR alskýjaö 7 KIRKJUBÆJARKL. skýjað 11 KEFLAVÍK skýjað 9 RAUFARHÖFN alskýjað 7 REYKJAVÍK skýjað 9 STÓRHÖFÐI skýjaö 9 BERGEN skýjað 12 HELSINKI þrumuveöur 16 KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 16 ÓSLÓ súld 14 STOKKHÓLMUR 12 ÞÓRSHÖFN ÞRÁNDHEIMUR skýjað 10 ALGARVE léttskýjað 16 AMSTERDAM þokumóða 16 BARCELONA skýjað 20 BERUN þoka 15 CHICAGO heiöskírt 17 DUBUN skýjað 10 HAUFAX heiðskírt 12 FRANKFURT léttskýjaö 12 HAMBORG lágþokublettir 12 JAN MAYEN léttskýjaö 4 LONDON rigning 16 LÚXEMBORG lágþokublettir 12 MALLORCA skýjað 19 MONTREAL heiðskírt 11 NARSSARSSUAQ alskýjað 5 NEW YORK heiörskírt 19 ORLANDO skýjað 23 PARÍS lágþokublettir 12 VÍN léttskýjaö 19 WASHINGTON heiöskírt 18 WINNIPEG léttskýjaö 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.