Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Síða 13
13
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002_______________________________________________________
DV_____________________________________________________________________Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaöið
HEILDARVIÐSKIPTI 3.300 m.kr.
Hlutabréf 1700 mkr.
Ríkisbréf 600 mkr.
MEST VIÐSKIPTI
Baugur 560 mkr.
€ íslandsbanki 530 mkr.
0 Landsbankinn 170 mkr.
MESTA HÆKKUN
O Skýrr 12,2%
0 Tangi 10,7%
0 Baugur 10,6%
MESTA LÆKKUN
0 Marel 2,6%
0Flugleiðir 1,3%
0 Landsbankinn 0,3%
ÚRVALSVÍSITALAN 1,292
- Breyting 1,4%
Fj ármálafyrirtæki:
Spá 0,42%
verðbólgu í
september
Fjármálafyrirtækin Búnaðar-
bankinn, Landsbankinn, íslands-
banki og SPRON spá því að verð-
bólga í september verði 0,42%. Ef
rétt reynist mun 12 mánaða verð-
bólga mælast 3% en síðasta 12 mán-
aða mæling nam 3,2%. Af þessum
fjórum fjármálafyrirtækjum var ís-
landsbanki svartsýnastur á horfum-
ar en hann spáir 0,5% hækkun milli
ágúst og september. Búnaðarbank-
inn og SPRON voru hvort um sig
með spá upp á 0,4% og spáði Lands-
bankinn lægst, eða 0,36%.
Forsendur spáa fyrirtækjanna
eru sumarútsölulok með hækkun
fatnaðar í kjölfarið og hækkun olíu-
félaganna á eldsneyti, en heims-
markaðsverð á eldsneyti hefur ver-
ið að hækka að undanfömu. Þau
gera reyndar einnig ráð fyrir hækk-
un á húsnæðislið vísitölunnar en sá
liður hefur verið að hækka að und-
anfómu. íslandsbanki telur að
einnig megi gera ráð fyrir hækkun
á liðnum tómstundir og menning
sem stafar m.a. af hækkunum á
námskeiðum, íþróttaiðkun og sjón-
varpsáskrift.
Fiskneysla
tvöfaldast á
næstu 30 árum
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuöu þjóðanna hefur birt nýja
skýrslu þar sem því er spáð að
íiskneysla muni aukast meira en
sem nemur fólksfjölgun fram til árs-
ins 2030. Gert er ráð fyrir að
fiskneysla muni aukast um tvo
þriðju frá því sem hún er nú og fari
í 150-160 milljónir tonna, en það
gerir um 19 kíló af fiski á hvert
mannsbam. Skýrsluhöfundar telja
eftirspurnina enn meiri og fullyrða
að tækist að styrkja framboðshlið-
ina hraðar en gert er ráð fyrir í
skýrslunni gæti fiskneysla farið í
186 milljónir tonna, eða tvöfaldast
frá þvi sem nú er.
Fram kemur í lýðfræðirannsókn
stofnunarinnar aö þróun fiskneyslu
og eftirspumar verði mjög mismun-
andi eftir landsvæðum og ráði efna-
hagsaðstæður mestu þar um.
Þannig er gert ráð fyrir að hlutfall
flsks í mataræði í Afríku og Mið-
austurlöndum muni dragast mjög
saman. Að Egyptum undanskildum
hafa þjóðir á þessum slóðum nánast
ekkert hugað að fiskeldi, en þorri
þess fisks sem auka á framboðið á
næstu áratugum verður að öllum
líkindum eldisfiskur. Þetta kemur
fram í Morgunpunktum Kaupþings.
Eins og vísast mátti gera ráð fyr-
ir eykst fiskur sem hlutfall af
mataræði í Evrópu og Norður-Am-
eríku en breytist lítið í Suður-Amer-
íku og Kína. Hins vegar er búist við
að mesta aukningin í fiskneyslu
verði í ríkari löndum í Suðaustur-
Asíu. Jafnvel er búist við að hún
tvöfaldist og nemi þannig 40 kilóum
á mann árið 2030.
Landsbanki íslands í Austurstræti.
Afkoma fimm stærstu sparisjóð-
anna á landinu ásamt Sparisjóðabank-
anum var mun verri fyrsta hálfa árið
en á sama tímabili í fyrra. Þannig
nam samanlögð afkoma þeirra fyrstu
sex mánuði ársins tapi upp á 9 millj-
ónir króna, samanborið við hagnað
upp á tæpar 900 milljónir króna í
fyrra. Þetta vekur nokkra athygli
vegna þess að afkomubati viðskipta-
bankanna fjögurra, Landsbankans,
Búnaðarbankans, Islandsbanka og
Kaupþings, nam 107% milli sömu
tímabila.
í samtali við Sólon Sigurðsson, ann-
an bankastjóra Búnaðarbankans, kom
fram að hann teldi þennan af-
komumun á miili annars vegar við-
skiptabankanna og sparisjóðanna
hins vegar felast að einhverju leyti í
stærðarhagkvæmni. Hann taldi
einnig að fyrstu sex mánuðir síðasta
árs hefðu hugsanlega ekki gefið mjög
góða mynd af afkomu sparisjóðanna
vegna þess að þá hefðu þeir margir
hverjir innleyst töluverðan hagnað af
sölu Kaupþings. Hann tók þó fram að
hann hefði ekki skoöað þetta mál sér-
Á allra næstu dögum verður skrif-
að undir kaupsamning Flögu hf. á
bandaríska fyrirtækinu Medcare Di-
agnostics, en það hefur verið helsti
keppinautur Flögu. Kaupverðið er um
1400 milljónir króna.Fyrirtækin hafa
bæði sérhæft sig i gerð hugbúnaðar og
tækja til svefnrannsókna Kaupþing
banki hf. var ráögjafi Flögu við kaup-
in og hefur umsjón með fjármögnun
kaupanna, en fleiri fyrirtæki en Flaga
sóttust eftir að kaupa Medcare. Sam-
hliða þessum viðskiptum hefur tekist
samkomulag um að Kaupþing kaupi
20% hlut í Flögu af dr. Helga Krist-
bjamarsyni og fjölskyldu, en Helgi er
stofnandi og frumkvöðull fyrirtækis-
ins. Helgi og fjölskylda munu halda
eftir 10% hlut í fyrirtækinu.
Flaga áformar að sameina rekstur
félaganna undir nafhi Medcare og
verður eftir það stærsta fyrirtækið á
sviði hugbúnaðar og tækja til svefn-
rannsókna í heiminum, með rúmlega
100 starfsmenn. Svanbjöm Thorodd-
sen, framkvæmdastjóri Flögu, segir
að þrátt fyrir það séu möguleikar fé-
lagsins til að vaxa enn frekar mjög
góðir en mörg fyrirtæki á þessum
markaði séu smá og starfi á afmörk-
SPRON á Skólavörðustíg.
staklega.
I samtali við Hallgrím Jónsson hjá
Sparisjóði vélstjóra, sem var reyndar
eini sparisjóðurinn i hópi 5 stærstu
sparisjóða landsins sem jók hagnað
sinn á milli ára, kom fram að afskrift-
ir sparisjóðanna vegna útlána hefðu
verið miklar að undanfömu. „Ein-
staklingar og heimilin í landinu hafa
verið ansi skuldsett. Sparisjóðirnir
hafa verið mjög stórir í útlánum til
þeirra og verða þannig fyrir meiri
höggum þegar dregur saman hjá þess-
um aðilum." Hallgrimur sagði aö
þrátt fyrir að einhverjir sparisjóðir
hefðu innleyst gengishagnað af hluta-
bréfum Kaupþings hefði einnig verið
um að ræða tap á hlutabréfum á sið-
asta ári þannig að ekki mætti skýra
góða afkomu í fyrra álgjörlega með
því. Kostnaðarhlutfallið hjá Sparisjóði
vélstjóra er einungis 46% þannig að
Hallgrímur sagði að það þyrfti ekki
endilega að vera þannig að litlar ein-
ingar væru óhagkvæmari í rekstri
heldur en stærri einingar og var því
að þessu leyti ósammála Sóloni.
uðum svæðum.
Alþjóðleg fyrirtæki á borð við
Flögu em fá en Flaga hefur selt vörur
sínar til 48 landa í 6 heimsálfum.
Markaðshlutdeild Flögu í Bandaríkj-
unum er í dag um 20% og svipuð á
heimsvísu og því nægur markaður
eftir til að vinna.
Starfsemi sameinaðs félags verður
á þremur stöðum: í Buffalo í Banda-
ríkjunum, í Amsterdam og á íslandi,
og verða höfuðstöðvar Medcare í
Reykjavík. Svanbjörn segir að nýlegar
breytingar á skattaumhverfi fyrir-
tækja á íslandi hafi ráðið þar miklu
um. „Við værum að öðrum kosti að
greiða líklega um helmingi hærri
skatta, hvort sem við værum að gera
út frá Amsterdam eða Bandaríkjun-
um,“ segir Svanbjöm og bætir við að
aðgerðir stjómvalda hjálpi mjög ís-
lenskum fyrirtækjum í útrás.
Á fyrri hluta næsta árs er áætlað að
gefið verði út nýtt hlutafé í Medcare
og það boðið í lokuðu hlutafjárútboði.
Enn fremur er stefnt að því að
Medcare verði skráð á markaði á ár-
inu 2004 og segir Svanbjöm að til að
byrja með horfi menn til skráningar í
Kauphöll fslands.
Afkoma viðskiptabankanna og sparisjóðanna milli ára:
Miklu betri afkoma
viðskiptabankanna
Viðskiptabankarnir 2001 2002 Mismunur milli ára
Landsbankinn 162 927 765
íslandsbanki 1655 1647 -8
Búnaðarbankinn 57 1261 1204
Kaupþing 322 703 381
Samtals 2196 4538 2342
Sparisjóðirnir
SPRON 464 -132 -596
Sparisjóður vélstjóra 120 154 34
Sparisjóður Hafnarfjarðar 113 -70 -183
Spkef 81,8 64,6 -17
Sparisjóður Mýrasýslu 44 25 -19
Sparisjóðabankinn 22 -95 -117
Samtals 844,8 -53,4 -898
Sameinað félag Flögu og Medcare:
Höfuðstöðvarnar
verða á íslandi
TÍSKUOG
LJÓSM YNDAFÖRÐUN
Haustnámskeið 9. september.2002
Vetrarnámskeið 13. janúar 2003
www.noname.is
NONAME
NÝTT OG GLÆSILEGT HÚSNÆÐI
9 SEPTEMBER
AÐ HJALLABREKKU 1
COSMETICS ICELAND
5.588-6525
HAUKUR DÓR
sýnir málverk í Listasal Man,
Skólavörðustíg 14.
Verið velkomin, ásamt gestum ykkar,
á opnun sýningar laugardaginn
7. september kl. 15.00.
Sýningin verður opin mánudaga til
föstudaga kl. 10.00-18.00, laugardaga
kl. 10.00-18.00, laugardaga kl.10.00-17,00
og sunnudaga kl. 13.00-17.00.
Sýningunni lýkur mánudaginn
17. september.
HtWVO <2rt«í Aknl i ítri&> tm.
haukirdOk