Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Qupperneq 28
28
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002
Sport
Bikarkeppni 3. flokks karla í knattspyrnu: ^
i>v
Fram sigraði IA i
vítaspy r n u keppn i
- Þór frá Akureyri sigraði í Norðurlandsriðli
Um síðustu helgi fóru fram úslita-
leikirnir í 3. flokki karla en í 3. flokki
er keppt i tveimur riðlum, Norður-
landsriðli og Suðvesturlandsriðli. I
Suðvesturlandsriðlinum léku Fram og
ÍA tU úrslita og var um hörkuleik að
ræða enda bæði félög með mjög svo
frambærUeg lið i 3. flokki.
Heiðar Geir Júlíusson kom Fram
yfír í leiknum á 15. mínútu og þannig
var staðan í hálfleik. Hafþór Ægir VU-
hjálmsson jafnaði síðan fyrir ÍA í
byrjun seinni hálfleiks með glæsUegri
afgreiðslu, en Hafþór var mjög ógn-
andi í framlínu Skagamanna í leikn-
um. Staðan eftir venjulegan leiktíma
var 1-1 og því varð að framlengja.
Fram byrjaði framlenginguna af
krafti og skoraði Aron Bjarnason af
mUdu harðfylgi eftir aðeins þrjár mín-
útur. Eftir það sóttu Skagamenn
nokkuð stíft og uppskáru mark í byrj-
un seinni hálíleiks. Það gerði vara-
maðurinn VUhjálmur Pétursson með
viðstöðulausu skoti eftir góðan undir-
búning Hafþórs. Því varð að grípa tU
vítaspymukeppni og þar höföu Fram-
arar betur og var það Aron sem skor-
aði úr sigurspyrnunni eftir að Jósef
Már Jónsson, markvörður Fram,
hafði varið glæsUega frá Hafþóri.
Þór hélt haus í lokin
Þór Akureyri sigraði Leiftur Dalvík
3-2 í Norðurlandsriðlinum. Þórsarar
komust í 3-1 með mörkum frá Arnari
Þórðarsyni, Hannesi Hannessyni og
Jóni Eyberg. Leiftur/Dalvík minnkaði
síðan muninn skömmu fyrir leikslok
og voru lokamínúturnar spennandi en
Þórsarar héldu haus.
Hlynur Eiríksson, þjálfari Þórs, var
ánægður með strákana sína eftir leik-
inn. „Þetta var hörkuleikur. Við vor-
um meira með boltann en þeir eru
með fljóta og hættulega stráka innan-
borðs. Strákamir hafa staðið sig vel i
sumar, mæta vel og taka vel á því.
Þeir hafa mikinn metnað og áhuga og
þetta er í fyrsta skipti sem þeir vinna
svona stóran bikar. Það eru svona
20-25 strákar að æfa og allt skemmti-
legir strákar sem gaman er að vinna
með,“ sagði Hlynur. -Ben
Styrktarmót vegna þátttöku Ólafar Maríu
á úrtökumót fyrir L.P.G.A. í USA í haust
Nú er komið að okkur
- sagði Kristján Hauksson, fyrirliði Fram
Kristján Hauksson, fyrirliði
Fram, var sáttur við sigurinn þegar
DV tók hann tali eftir leik. „Það er
gaman að vinna svona leiki og við
höfðum trú á því að gætum þetta,“
sagði Kristján. „Þeir unnu okkur
2-0 uppi á Skaga í íslandsmótinu og
síðan gerðum við jafntefli við þá á
heimavelli. ÍA hefur verið með
sterkasta liðið í sumar en ekki leng-
ur þvi nú er komið að okkur.“
Spurður út í vítaspymukeppnina
sagði Kristján að hann hefði verið
við öllu búinn. „Það var góð stemn-
ing í hópnum fyrir vítaspymu-
keppnina og við vissum að þetta
snerist mikið um heppni. Við vor-
um heppnir í þetta skiptið og þeir
óheppnir.
Minn árgangur hefur ekki verið
að vinna neitt þannig í gegnum tíð-
ina. Urðum Reykjavíkurmeistarar
um árið en aldrei unnið svona stór-
an bikar. Þegar við höfum verið á
yngra árinu þá höfum við verið í
baráttunni á flestum vígstöðvum.
ÍA varð íslandsmeistari þegar við
vorum í 4. flokki þannig að þeir
hafa lengi verið með sterkt lið.
Þess má geta að ÍA og Fram mæt-
ast aftur á sunnudaginn en þá leika
þau til úrslita um Islandsmeistara-
titilinn. Það má búast við hörkuleik
og ekki minni haráttu en í bikarúr-
slitaleiknum.
-Ben
Mótiö veröur haldiö sunnudaginn 8. september
hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfiröi
Keppnisfyrirkomuiag:
Punktakeppni meö og án forgjafar í karla- og kvennaflokki
Hámarksgefin forgjöf karla 24 og kvenna 28
Veitt veröa glæsileg verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sætið
í bæöi karla- og kvennaflokki meö og án forgjafar
Nándarverólaun á ölium par 3 hoium, baeói í karla og kvenna
Aliir fá teiggjöf ..ít:/., ísll
Dregiö veróur úr skorkortum f mótslok
Ræst út frá ki 8:00
Skrántng í sima 565 3360 og á golf.is
Mótsgjald kr. 2500
Igppm
-itfuujáoól ktm-
FIEDDV
Kristján Hauksson,
fyrirliöi Fram, lyftir
hér bikarnum á loft
eftir sigurinn gegn
Skagamönnum.
DV-mynd Ben