Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2002, Page 29
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002
29
Roy Keane hefur lent í útistöðum viö marga á sínum knattspyrnuferli. Hér þurfa félagi hans hjá Manchester United,
David Beckham, og dómarinn Uriah Rennie að halda aftur af honum eftir að honum var vísað út af í leiknum gegn
Sunderland um síðustu helgi. Reuters
Vegir knattspyrnukappans Roy Keane eru órannsakanlegir:
Alltaf í klandri
- skapofsi og hreinskilni hafa skemmt fyrir Keane
Roy Keane, fyrirliði Manchester
United, er án nokkurs vafa umdeild-
asti knattspyrnumaður Bret-
landseyja nú um stundir.
í kjölfar sumars þar sem blöðin
fjölluðu meira um hann heldur en öll
hin liðin í ensku úrvalsdeildinni til
samans mætti Keane til leiks í byrj-
un þessa tímabils vitandi það að allra
augu yrðu á honum eftir ailt
fjaðrafokið.
Hann byrjaði sumarið á því að
hætta með írska landsliðinu skömmu
fyrir HM eftir frægt rifrildi við Mick
McCarthy, þjálfara liðsins, og eyddi
sumrinu á gönguferðum með hund-
inn sinn á meðan írska liðið gerði
frábæra hluti í Japan og Suður
Kóreu og komst í 16-liða úrslit HM.
Umdeild ævisaga
í kjölfar þess fóru útdrættir úr þá
óútkominni ævisögu hans að birtast
í enskum blöðum þar sem hann við-
urkenndi að hann ætti við áfengis-
vandamál að stríða, að hann hefði
meitt mótherja sína viljandi, hversu
illa honum líkaði við nokkra af sam-
herjum sinum og að hann ætti 1 mikl-
um vandræðum með að hemja skap
sitt inni á knattspyrnuvellinum.
Enska knattspyrnusambandið hef-
ur nú gripið í taumana og kært Kea-
ne fyrir að vanvirða íþróttina með
ummælum sínum um Alf Inge
Haaland en flestir muna eftir þvf þeg-
ar hann reyndi aö framkvæma
skurðaðgerð á lofti á aumingja Norð-
manninum í apríl árið 2000. Haaland
meiddist illa og hefur aldrei náð sér
en Keane segist hafa gert þetta viij-
andi og sofi ágætlega því Haaland
hafi átt þetta fyllilega skilið.
Frábær knattspyrnumaður
Það þarf ekki að fara mörgum orð-
um um ágæti Keanes sem knatt-
spyrnumanns. Hann hefur verið
hjartað og sálin í stórkostlegu liði
Manchester United allt frá því að
hann kom tii liðsins síðla árs 1993.
Hann er einn af albestu miðjumönn-
um í heimi og segir Alex Ferguson,
knattspymustjóri Manchester
United, að hann vildi ekki skipta á
Keane og nokkrum öðrum knatt-
spyrnumanni í heimi, svo mikilvæg-
ur væri hann fyrir liðið því að sigur-
vilji hans væri einstakur.
Eignast óvini auðveldlega
Hann hefur hins vegar oftar en
ekki látið skapið hlaupa með sig í
gönur. Hann hefur tíu sinnum verið
rekinn af velli hjá Manchester
United, oftast fyrir að missa stjórn á
skapi sínu. Hann er snillingur í að
eignast óvini og það verður seint sagt
um Keane að hann sé undirförull
maður.
Hann segir skoðanir sinar á mönn-
um og málefnum beint frá hjartanu
og það hefur oftar en ekki komið
honum í vandræði. Hver man ekki
eftir því þegar hann sagði stuðnings-
mönnum Manchester United til synd-
anna og sagði þá lítið annað en hóp
af fólki sem mætti á leiki til að borða
rækjusamlokur í stað þess að styöja
liðið.
Lítið gagn að honum í banni
Hann hefur gagnrýnt samherja
sína miskunnarlaust þegar illa hefur
gengið hjá liðinu en þeir virðast ekki
taka það nærri sér enda vita þeir
hvemig Keane er. Hann er gífurlega
virtur meðal samherja sinna en hann
þarf hins vegar að fara að þroskast
og reyna að hemja skap sitt. Hann
gagnast Manchester United lítið ef
hann er alltaf í banni.
-ósk
140 laxar hafa veiðst í Krossá á Skarðsströnd:
Blússandi gangur
„Veiðiskapurinn gengur vel hjá
okkur en það eru komnir 150 laxar
og besta hollið hefur veitt yfir 30
laxa. Það er víða lax í ánni,“ sagði
Trausti Bjamason, veiðivörður í
Krossá, er við hittum hann viö ána
í fyrradag, en mikið vatn er í án-
um á þessum svæði, eftir stórfelld-
ar rigningar dag eftir dag.
„Þetta er miklu betra en í fyrra
enda miklu meira af laxi i ánni
víöa,“ sagði Trausti enn fremur.
„Við erum búnir að veiða einn
lax og setja í fimm laxa, það er
víða Fiskur," sagði séra Gunnlaug-
ur Stefánsson, en hann var við
veiðar í ánni við þriðja mann.
„Ég var að kasta flugunni héma
fyrir ofan veiðihúsið og það em
laxar hérna,“ sagði Sigurdór Sigur-
dórsson, en hann kastaði flugunni
grimmt við Krossá í fyrradag.
Komin með 230 laxa
Veiðimenn voru bæði að veiða i
Búðardalsá og Flekkudalsá í fyrra-
dag og þar hefur veiðiskapurinn
gengið vel. Flekkudalsá er komin
með 230 laxa og þar er bara leyfð
fluga í sumar eins og á síðasta
sumri. Það er víða fiskur í Flekku-
dalsánni og Tunguánni en mikið
vatn er í ánum. Rauð franses hefur
verið að gefa flugna best síðustu
daga. Hellingur hefur líka veiðst af
silungi í þeim. Góður gangur hefur
verið í Búðardalsá og veiðimaður
renndi maðki grimmt fyrir neðan
brúna á þjóðveginum.
Laxveiðiámar eru að bæta sig
verulega á svæðinu og sumar era
jafnvel með helmingi betri veiði en
fyrir ári síðan. Margir segja að
áhrif Hraunsfjarðar fari minnk-
andi og þess vegna komi fleiri lax-
ar í ámar núna. Það skyldi þó ekki
vera.
Miðá í Dölum hefur gefið um 70
laxa og smálaxinn hefur aðeins
verið aö láta sjá sig síðustu daga
eftir að rigna tók. -G.Bender
K*19
THE WIDOWMAKER
Saniisnouleii stnrinyml
tranilmilil al Sigurinm
SiQliuatssyni.
Inguar Siqurössnn ti:r a
kustum muð
stnrluikurununi Harrisun
funl ug Liam Hccsuii.
Maguaður spcnnutryllir
suiii þu uurðiir að s|a!
tínfij.iiinu
tíLunsnGinn
SITltíRH^ BÍO