Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Síða 27
LAUGARDACUR 12. OKTÓBER 2002
HeIqorblctö I>V
27
Hjónin Sindri Sindrason, forstjóri fjárfestingasviðs Phannaco, og Kristbjörg Sigurðardóttir
eiga hcima í þessu gullfallega húsi við Þingholtsstræti 28 í Reykjavík. Sindri er með 1,9 rnillj-
ónir króna í tekjur hvem niánuð.
Saga steinsteyptra húsa á íslandi er mjög stutt og lengi vel
var Laugarásinn kallaður „Snob Hill“ sem endurspeglar af-
stöðu samfélagsins en síðar varð Arnarnesið viðurkennt at-
hvarf efnamanna. í dag er sennilega eftirsóttast að búa nær
Kvosinni en áður og vönduð einbýlishús í Þingholtum og
vesturbæ ganga kaupum og sölum á hærra verði en ætla
mætti.
Síðan er misjafnt eftir mönnum hve mikið vægi húsið hef-
ur í lífi þeirra og margir sem hafa rúman efnahag vilja ekki
láta það sjást með þessum hætti og kjósa að hverfa í fjöldann
eða raðhúsalengjuna eftir atvikum meðan aðrir virðast seilast
mjög langt eftir verðlagðri virðingu sem mæld er í fermetrum.
DV ákvað að skyggnast aðeins inn í lífsstil þeirra sem stýra
nokkrum stærstu fyrirtækjum landsins og athuga hvernig há
laun endurspeglast í stórum og dýrum húsum. Afraksturinn
sést á meðfylgjandi myndum og það er lesandans að meta
hversu vel húsin hæfa eiganda sínum og efnahag hans.
Það vekur athygli að sumir forstjórar kjósa að búa í lítt
áberandi húsum í hverfum sem varla verða kölluð „milla-
hverfi" með neinum rétti meðan aðrir vilja greinilega að það
fari ekkert á milli mála að peningar séu engin fyrirstaða þeg-
ar mann vantar þak yfir höfuðið. -PÁÁ/JKÁ
Þórarinn V. Þórarinsson, fyrrverandi forstjóri Landssímans, býr hér við Einimel 2 í höf-
uðborginni ásamt eiginkonu sinui, Ásdísi Guðmundsdóttur. Forstjórinn fyrrverandi er
með tæpar 1,5 milljónir króna á mánuði.
Það eru hjónin María Guðmundsdóttir og Einar Bcnediktsson sem búa í þessu fallega
húsi við Neströð 5 á Seltjarnarnesi. Bílarnir eru ekki af verri endanuin heldur. Einar
hefur um 1,5 milljónir króna á mánuði fyrir að gegna forstjórastarfi Olís.
Heimili Ilarðar Sigurgestssonar, stjórnarformanns Fluglciða, við Skeljatanga 1. Hér býr
hann ásamt eiginkonu sinni Áslaugu Ottesen. Stjórnarformaðurinii hefur tæpar 2,3
milljónir í tekjur á niánuði.
Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, og eiginkona hans, Sólveig Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, eru búsett í Bjarmalandi 18 enn sem komið er en eru í óða önn að gera
upp gamla „ættaróðal" Kristins við Fjólugötu 1 og þangað flytja þau innan tíðar. Kristinn er
með ríflcga 2,1 niilljón króna í mánaðartekjur og til gamans má geta þess að dóinsmálaráð-
herrann er með 650 þúsund krónur.
Það er stjórnarformaður Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, sem býr í þessari höll við I.aufás-
veg 69 í Reykjavík og húsið verður að teljast með þeim fallegri á þessum lista. Greinilega
vellauðugur smekkmaður á ferð en hann hefur 1.300 þúsund krónur í mánaðartekjur.
Forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, býr á Valhúsabraut 20 á Seltjarnarnesi ásamt
eiginkonu sinni, Arndísi Björnsdóttur. Forstjórinn hefur 2,2 milljónir króna í laun á
niánuði sem duga væntanlcga fyrir þessuni fallegu bíluni líka.