Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 43
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002
Helqarblctö DV
Síðasta smalamennskan
Allir smalanienn samankoninir við Fjarðarhorn í Kollafirði áður en
Iagt er á heiðina.
Féð dregið í sundur við Fjaiðarhorn og eyjarollur reknar út í
Skálanes þar sem þær munu bíða flutnings út í eyjar.
Svanhildur Jónsdóttir, fjárbóndi í Flatey, sem varð sextug í síð-
ustu smalamennskunni, ásamt ungum aðstoðarinönnum.
Þegar tímabilum lýkur eða einhverj-
ir merkilegir hlutir renna sitt skeið á
enda þá gerist það með ýmsum hætti.
Stundum lýkur merkri sögu með lúðra-
þyt og söng að viðstöddu fjölmenni en
stundum lokast einhvers staðar dyr og
leggjast hljóðlega að stöfum og aðeins
fáir vita að þær verða aldrei opnaðar
aftur.
í haust lauk sennilega þriggja alda
löngum kafla í atvinnusögu íslands.
Þetta var ekki stór kafli eða fyrirferð-
armikill en kaflaskil samt. Þá fóru
smalamenn fjárbænda í Breiðafjarðar-
eyjum í síðasta sinn til smalamennsku
í sumarhögum eyjabænda og smöluðu
Kollafjörð og Fjarðarhornsdal áleiðis
upp á Kollafjarðarheiði að fornum sið.
Féð er síðan rekið til réttar á Fjarðar-
horni og þar er dregið í sundur eyjafé
og fé bænda upp á landi. Eyjaféð er síö-
an rekiö að Skálanesi og þaðan flutt í
bátum til síns heima.
Það eru þrír fjárbændur enn í
Breiðafjarðareyjum. Það eru Svanhild-
ur Jónsdóttir í Flatey sem varð sextug
í þessari smalamennsku og Jóhannes
og Eysteinn Gíslasynir í Skáleyjum og
Hafsteinn Guðmundsson í Flatey. Til
stendur að fækka fé svo mikið hjá þess-
um bændum að hér eftir mun upp-
rekstur í sumarhaga leggjast af. Þá
verður báturinn Svanur sem Skáley-
ingar nota til fjárflutninganna verða
settur í annað hlutverk en hann hefur
flutt fé eyjabænda í tæp 100 ár.
Tryggvi Gunnarsson smiður, bíl-
stjóri, íhlaupaleikari og „alt-
muligmand" hjá kvikmyndafélaginu
Umba útvegaði DV myndirnar sem
fylgja grein þessari en hann er sonur
Svanhildar í Flatey og ólst þar upp.
Tryggvi tók þátt í smalamennskunni í
haust eins og hann hefur gert í áratugi.
„Mér fannst vera sérstök spenna í
hópnum í þetta skipti. Veðrið var sér-
staklega gott og í afmælisveislu móður
minnar sem haldin var um kvöldið var
hægt að stilla kertum út í kjarrinu alla
nóttina. Það lá í loftinu að þetta væri
síðasta smalamennskan."
Um árabil hafa það aðeins verið
Skáleyingar og Svanhildur sem hafa
flutt fé sitt í land en eftir þá fækkun
sem vofir yfir verður allt fé látið ganga
úti í eyjum yfir sumarið í heimahög-
um. En skyldi það ekki vera erfitt að
mismuna hinu sauðþráa fé um borð i
árabáta til flutnings?
„Nei, þær eru bátvanar þessar kind-
ur og margar þeirra ganga nánast sjálf-
viljugar um borð,“ segir Tryggvi.
„Þær vita alveg hvað er að gerast.
En auðvitað er þetta töluverð fyrirhöfn
en kannski ekkert meiri en annars
staðar."
Tryggvi ólst upp í Flatey og segir að
þar sé mannlíf með miklum blóma en
um 1970 eftir að Flatey var nánast far-
in í eyði fóru listamenn að venja kom-
ur sínar þangað. Tryggvi segir að Jök-
ull Jakobsson hafi með bók sinni Síð-
asta skip suður komið Flatey á kortið á
ný þegar hún var að hverfa.
„Ég man vel eftir Jóni Gunnari
Árnasyni, Guðbergi og Nínu Björk og
mörgum fleiri listamönnum sem
dvöldu þarna sumarlangt. Það voru
skemmtilegir tímar.“
Gamla þorpið í Flatey, sem er eins
og lifandi minjasafn, hefur verið notað
mikið í kvikmyndir og þannig ílentist
Tryggvi í kvikmyndabransanum þegar
verið var að taka Nonna og Manna í
Flatey á árum áður. Nú er hann þús-
undþjalasmiður fyrir Umba en þar á
bæ er verið að leggja síðustu hönd á
kvikmyndina Stella í framboði sem
verður frumsýnd rétt fyrir jól.
„En eyjarnar eiga alltaf sess í huga
manns og þar mun ég alltaf eiga
heima.“ -PÁÁ
r
Vígreifir smalainenn úr liði eyjabænda safnast sainan í inorgunsárinu eftir gist-
iiigu i Gróarnesi.
UHF handtalstöðvar
ICOM VHF talstöð
Textaskjár
Ljós I tökkum
AUKARAF
Sterku trönuberjatöflurnar
komnar aftur!
,ÁT, " -----
Nature’s Plus
Thc Energv SaMdflntntR
AyAlLABLE
Itfftra
CRANBERRY
1000
CftAN^EHfiY,
> $5RB &
100 Mti
VITAMIN C
SUPPLEMBNTjí
00 TABLETS
SUSTitjHFDt
s
Fyrir blöðruna
náttúrulega
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Boxhanskar
Boxpúðar
Boxhlífar
Vafningar
Handapúðar
Belti
STOFNAD 1925
Skeifunni 11. Simi S88 9890
Opið laugard. 11-15
www.orninn.is