Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Page 13
13
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
PV______________________________________________________________________________________________Neytendur
Haustlaukarnir eru auðveldir í gróðursetningu og þurfa litla umhirðu:
Laukarnir lífga upp á vorið
Nú eru haustlaukar komnir i
búðir og eflaust margir sem hafa
hugsað sér að lifga upp á vorið
með fallegu blómunum sem af
þeim koma. Úrvalið er geysilega
mikið og valið getur verið erfitt.
Haustlaukamir eru jafnan settir
niður áður en frost kemst í jörðu.
Búast má við því að fyrstu krók-
usamir skjóti upp kollinum áður
en vorar, jafnvel i febrúar. Síðan
fylgja stjömuliljumar, vorboðam-
ir, hátíðarliljurnar (páska- og
hvítasunnuliljur), túlípanamir og
aðrar minna harðgerðar tegundir.
A þurrum stað
Laukarnir þríf-
ast best á þurrum
stað og því er þeim oft
® valinn staður í sendn-
um jarðvegi. Það á við
um flestar tegundir að
skjól og birta skipta miklu máli -
þó eru til tegundir, svo sem
anemónur og hátíðarliljur, sem
þola raka og skugga.
Dýptin skiptir máli þegar kem-
ur að gróðursetningu laukanna.
Góð regla er að miða við að lauk-
amir fari á dýpi sem nemur
tvisvar til þrisvar sinnum hæð
þeirra, heldur dýpra ef jarðvegur-
inn er laus í sér. Bilið á milli
laukanna skal nema tvöföldu þver-
máli þeirra. Best er að grafa holu í
rétta dýpt og losa jarðveginn, sið-
an skal setja lífrænan áburð eins
og þangmjöl eða hænsnaskít, i
botninn. Einnig má blanda eilitlu
af tilbúnum áburði við moldina
áður en hún er sett yflr. Þegar
búið er að hylja
laukana skal þjappa \
jarðveginn varlega
og hylja hann með
laufi eða trjákurli.
Oft er mælt með því
að laukamir séu gróð
ursettir í þétta
hnappa. Þannig
njóta þeir sin - auk
þess sem blómin fá
stuðning hvert af öðru.
Sjö til tíu hnappar ættu að
vera hæfilegir i hvem hnapp.
sett
mælt
Úrvalið er mlklð
Starfsstúlka í Blómavali meö hrúgu af haustlaukum. Nú er rétti tíminn til aö
gróöursetja laukana; hvort sem er í garöinum eöa í kerum á svölum.
Þeir sem búa í fjölbýli eða
ekki eigin garð geta gróður-
lauka i kemm á svölum. Þá er
með að moldin í kerunum sé
blönduð sandi og möl sett í botn-
Krókusar og vetrargosar
lágvaxnar tegundir sem
vel fyrir ker.
Létt verk
Kosturinn við laukana er meðal
Vetrargosar eru mjög harðgerð-
ir og með fyrstu laukunum sem
koma upp á vorin. Þeir fjölga sér
mikið og því auðvelt að skipta
þeim á nokkurra ára fresti. Gosar
eru ljósir á litin og verða 10-20
sentímetra háir. Þeir eru skugg-
þolnir og því gott að planta þeim í
beð milli trjáa og runna.
Af hátíðarliljum er til fjöldi
ræktunarafbrigða og sum afbrigð-
in þol vel skugga. Hátíðarliljur
ættu að fá að standa lengi á sama
stað því þær eru
harðgerðar og
fjölga sér
með tíman-
um. Þær
blómsta í lok
og ná
30-50 sentímetra
hæð.
Túlipanar eru til i mörgum
gerðum og litum. Þeir eru til ein-
litir og marglitir og í ýmsum
stærðum. Algengustu tegundimar
eru villitúlipanar sem eru 10-20
sentímetra háir og lifa oft árum
saman. Kaupmannatúlipanar eru
um 20 sentímetra háir og blómstra
snemma á vorin. Darvinstúlipanar
eru langvinsælastir og verða allt
að 60 sentimetra háir. Þeir þola vel
rok. Þeir blómstra í júní og blóm-
in standa lengi. Dílatúlipanar eru
með röndótt blóm og blómstra í
lok mai og ná 35-45 sentímetra
hæð.
Keisarakróna nær ekki að
blómstra nema einu sinni hér á
landi. Hún getur orðið allt að 1
metri á hæð og er yfirleitt rauð á
litinn.
annars sá að þeir þurfa
litla sem enga umhirðu
eftir að þeir hafa verið ,
gróðursettir. Ef þeir
blómstra illa kann
ástæðan að vera sú
að skuggi sé of mikill
eða jarðvegur of deigur.
Margar tegundir ná ekki
að safna nægum forða
yfir sumarið til að blómstra árið
eftir. Þetta á sérstaklega um túlip-
ana og ýmsar viðkvæmar tegtrnd-
ir, eins og goðaliljur og keisara-
krónu. Æskilegt er að skipta um
túlipana annað hvert ár og aðrar
viðkvæmar tegimdir þarf að setja
niður á hverju ári. Krókusar og
hátíðarliljur eru aftur á móti mjög
harðgerðar og blómstra ár eftir ár.
Vorboðinn
Krókusar blómstra snemma á
vorin. Þeir eru lágvaxnir
og í mörgum litum. Vor-
boðar blómstra gulum
blómum eldsnemma á
vorin, jafnvel í febrúar
eða snemma í mars. Þeir
er mjög harðgerðir og eiga
það til að þroska fræ og
fjölga sér þannig.
Laukurinn eða hnúð-
urinn er fremur lítill
og því gróðursettur
grunnt í jarövegi.
Jólln undirbúin
Hýjasintur eru
af laukum
og hafa verið vinsælar
jólablóm. Þeir sem
rækta þær
fyrir jólin ættu að
að því fljótlega, í
þessari eða næstu viku,
þar sem þær þurfa 8-10
vikur í forræktun áður en
þær eru teknar inn og látn-
ar blómstra. Kaupa þarf sér
undirbúna lauka sem gróð-
ursettir eru í blómapotta með
góðri mold og komið fyrir á dimm-
um, svölum stað (ca 10° C) i 8-10
vikur eins og fyrr segir. Gæta
verður þess að laukurinn þorni
ekki á þessum tíma. Þegar spíran
hefur náð um 10 cm hæð er pottur-
inn tekinn úr myrkrinu og settur i
birtu. Þá tekur hann vel við sér og
blómstrar fljótlega eftir það. Sé
potturinn tekinn of snemma úr
myrkrinu verður blómið ekki eins
stórt og nær því ekki að
. vaxa yfir laufblöðin.
Nú er rétti tíminn
til að undirbúa litríkt
vor með því aö setja
niður lauka. Laukar
eru auðveldir í ræktun
'og þurfa litla sem enga
umhirðu og þvl tilvaldir
fyrir byrjendur í garðyrkju
að spreyta sig á. -aþ
Bílar á sölu:
Eiganda að
banna reynslu-
akstur
Lesandi hafði samband við blaðið og
sagði farir sínar ekki sléttar af við-
skiptum við bílasölu eina. Hann haföi
sett bílinn sinn á sölu, kraftmikinn am-
erískan bíl. Þegar hann hugði að bíln-
um á söluplaninu nokkru síðar kom í
ljós að nýleg afturdekk voru niður-
spænd og skyndibitarusl á gólfinu.
Hafði bíllinn verið lánaður til prufu-
aksturs tvisvar, um klukkutíma í hvort
skipti, en engar athugasemdir gerðar
við þá sem fengu hann lánaðan. Þegar
eigandinn kvartaði yfir þessu var hon-
um sagt að hann hefði ekki bannað út-
lán á bílnum tii prufúaksturs og því
væri bílasölunni heimilt að lána bflinn.
Varðandi dekkin og ruslið stendur
staöhæfmg gegn staðhæfmgu.
DV leitaði tfl bflasala í Reykjavík
sem upplýsti blaðið um að eigendur
bila sem teknir væru í sölu yrðu að
taka það sérstaklega fram ef ekki
mætti lána bflana í prufuakstur og ef
einungis mætti gera það að fengnu
leyfi eigandans. Hugbúnaður flestra
bflasala gerði ráð fyrir þessum tak-
mörkunum en það væri eigandans að
óska þeirra. Hins vegar væri regla á
viðkomandi bflasölu að lána bfla ekki
lengur en háiftíma í senn til prufúakst-
urs og fylgst væri vel með meðferð
þeirra eftir slikan akstur, sérstaklega
ef vélarstærð eða annað gæfi tilefni til
glannalegs aksturs. -hlh
Parmaskinka
Karl K. Karlsson hf. hefur hlotið
leyfi landbúnaðarráðuneytisins til
innflutnings á parmaskinku frá Ítalíu.
Er þetta í fyrsta skipti sem þessi
fræga skinka er fáanleg á íslandi.
Parmaskinka er afar mikilvæg í mat-
armenningu ítala. Vinnsluaðferðir
við parmaskinku hafa ekki breyst
mikið í grundvallaratriðum frá því á
tímum Rómverja þó vissulega hafi
þær þróast í takt við kröfur nútímans.
Kjötið er lagt í salt og síðan látið
hanga og loftþurrkað í um 12 mánuði.
Parmaskinkan er ilmandi og sæt að
bragðgæðum. Árið 1996 öðluðust ítalir
lögverndun Evrópusambandsins á
vöruheitinu „Parmaskinka" og var
varan ein sú fyrsta á sviði matvæla til
að hljóta D.O.P. vottun (Denomination
of Protected Origin) Evrópusambands-
ins. Parmaskinku má fá í neytenda-
pakkningum eða eftir vigt úr kjöt-
borði. Hún er seld í Nóatúni, Hag-
kaupi, Melabúðinni og ýmsum sér-
verslunum. -hlh
Vippur
Sælgætisgerðin Freyja hefur sett
á markað Vippur, frauðstangir með
súkkulaði og kaffikremi. í hverjum
pakka eru 20 vippur eða alls 170
grömm. Hjá Freyju segja menn að á
ferðinni sé góður kostur á ljúfri
stund, sætmeti sem tilvalið er með
kaffinu.
I
gfríMfÚ
mm
Sendu inn SMS-skeytið SVAR og við sendum
þér tilbaka spurningar til að svara. Við sendum
þér þrjár spurningar og ef þú svarar þeim öllum
rétt færðu aukavinning og kemst í aðal-
vinningspottinn. í aðalvinningspottinum eru:
Nokia farsímar, utanlandsferð, áskrift að DV,
DVD- spilarar, DVD-diskar, geisladiskar, bíómiðar
frá Skífunni, fullt af Princessa súkkulaði, enn
meira af Fanta og margt fleira.
Ekki klikka á þessum leik því allir sem svara
þremur spurningum rétt vinna og það eru
Þessi þjónusta er frá Smart auglýsingum ehf.
þúsundir vinninga í pottinum. Að svara hverju
SMS-skeyti kostar 99 kr. Við sendum þér þrjár
spurningar, þú svarar og við sendum þér strax
SMS-skeyti sem segir þér hvort þú hafir unnið
og þá hvað.
Allir sem svara þremur spurningum rétt vinna
kippu af Fanta og fullt af Princessa súkkulaði og
fara í aðalvinningspottinn sem dregið verður úr
11. nóvember 2002.
Þú greiðir aðeins fyrir að senda inn SMS-skeyti
sem byrja á SVAR í leiknum, ekki fyrir að
móttaka spurningar. Hvert innsent SMS-skeyti
kostar 99 kr.
rsm