Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Síða 24
48 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 Tilvera I>'V Katazeta eyði- lagði fínan kjól Velska leikkonan með hrafnsvarta hárið, hin elskulega Catherine Zeta Jones, eiginkona Michaels Douglas stórleikara, lenti heldur betur í leiðindamáli um daginn þegar hún átti að sýna flottan kjól frá ítölsku snillingunum Dolce og Gabbana. Filmstjarnan mætti sólbrún og sæt til að klæðast kjólnum en gaman kámaði heldur betur þegar hún átti að fara úr múndering- unni. Þá kom nefnilega í ljós að kjóllinn var allur útataður í kremi. Kom þá í ljós að þarna var komin sólbrúnkan hennar Kötuzetu. Hún var nú ekki meira ekta en svo. Það skýrir vandræði leikkonunnar frægu að hún hafði skömmu áður látið mynda sig fyrir auglýsingu á sólkremi. En brúnkan sem átti að vera afleiðing sólaráburðarnotk- unar var þá bara smurð á. „Catherine var alveg eyðilögð," segir ónafngreindur heimildar- maður Sky sjónvarpsstöðvarinnar. Það var ekki til að bæta ástandið að Katazeta hafði gert sér vonir um að hún fengi að eiga kjólinn. Þess í stað verður hún að greiða háar skaðabætur fyrir skemmdimar. Aniston sópar að sér verðlaunum Vinalega leikkonan Jennifer Ani- ston varð nánast kjaftstopp vestur í Hollywood um daginn þegar hún var kjörin leikkona ársins á kvik- myndahátíð kvikmyndaborgarinn- ar. Jennifer greip höndum um höfuð sér og var ekkert nema auðmýktin þegar hún þakkaði fyrir þann mikla heiður sem henni hafði ver- ið auðsýndur. Ekki voru þá nema tvær vikur síðan hún fór heim með styttu frá Emmy-verðlaunahá- tíðinni. Þá, eins og um daginn, barðist hún við tárin en varð að láta í minni pokann, eins og gjam- an er siður í Hollywood. Ymsir aðrir vom heiðraðir líka, svo sem Jodie Foster og Steven Spielberg. DV-MYNDIR SIG. JOKULL Níræður tenór Tenórsöngvarinn og söngkennarínn Siguröur Vincenzo Demetz Franzson fagnaöi 90 ára afmæli sínu á föstudaginn í Tónlistar- húsinu Ými. Hér er hann meö ættingjum sínum frá Þýskalandi, Tony Senoner og Idu Demetz, sem klæddust þjóöbúningum héraös síns af þessu tilefni. Prúðbúlnn velslustjóri Ævar Kjartansson og Kristín Magnúsdóttir höfðu margt aö ræöa en Ævar sá um veislustjórn á föstudaginn. Hljómplötugagniýni DV-MYNDIR SIG. JOKULL Grettlr og Glámur Hafnarfjarðarleikhúsið frumsýndi Grettissögu á laugardag í leikgerð Hilmars Jónssonar. Þeir félagar Grettir og Glámur voru grimmir þegar Ijósmyndari smellti afþeim mynd. Aöalleikarínn, Gísli Pétur Hinriksson, er vinstra megin á myndinni. Tónskáldiö hyllt Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld var hylltur að lokinni frumsýningunni. Benedikt búálfur frumsýndur Barnaleikritiö Bene- dikt búálfur var frum- sýnt i Loftkastalanum á laugardag. Leikritið er unnið upþ úr fyrstu bóks Ólafs Gunnars Guölaugssonar um búálfinn en fjóröa bókin kemur út í haust. Þau Jóhann Kaldal Jóhannsson, Steinunn Kaldal og Guörún Kaldal skemmtu sér vel á frumsýningunni. Siggi Hösk og Klakabandið - Heflaðir ★ ★★ Vinnur þægilega á Þetta er annar geisladiskur Sig- urðar Höskuldssonar frá Ólafsvík eða Sigga Hösk. Hér er hann ásamt Klakabandinu sínu. Hljómsveitin sú á tuttugu ára starfsafmæli á þessu ári. Þeir Sigurður Elínbergsson bassaleikari hafa reyndar starfað saman að músík frá því á sjöunda áratugnum. Forverar Klakabands- ins voru t.a.m. Falkon, Júnísvítan og Lúkas. Siggarnir frá Ólafsvik eru vel þekktir músikantar á Snæfells- nesi. Það er áreiðanlegt að Siggi Hösk er algerlega samkvæmur sjálfum sér í lagasmíðum sínum. Ekki er verið að hlaupa eftir stundlegtnn tískufyrirbærum en músíserað sam- kvæmt þeirri kunnuglegu hefð sem einkennt hefur meginstraumsrokk- ið síðan þeir Siggamir hófu fyrst að stilla saman strengi. Við fyrstu heym virðast lögin nokkuð lík en við endurtekna hlustun koma sér- kenni hvers og eins vel í ljós og vinna þau þægilega á flest hver. í laginu Væntingar er siglt á írsk mið og er áberandi í því ágætur tin- flautuleikur Margaret Bime og fiðluleikur Hjörleifs Valssonar en flðlan setur svip sinn á fleiri lög. Við stigum dans er rokkrúmba í stíl við Santana-útsetninguna á Black Magic Woman, Heilög stund ber með sér blæ þjóðlagarokks enda úr leikriti Jóns Hjartarsonar um Fróð- árundrin. Haust við hafið, Fótspor í fjöru og hið fallega Fyrir mig og þig em síðan ekta popplög með „sixties“blæ og koma dálítið óvænt eftir það sem á undan er gengið. Flutningur Klakabandsins er þétt- ur, einfaldur og yfirlætislaus og hæfir vel viðfangsefninu. Þótt ekki sé alveg vitað hvað átt er við með titli disksins, Heflaðir, er óhætt að segja að strákamir séu ekki óheflaðir eftir öll þessi ár nema kannski i einna fjörugasta laginu, Holur á heiðinni, en þar er náttúr- lega verið að vísa til óheflaðrar og ómalbikaðrar Fróðárheiðar. Þetta er tólf laga plata eins og alltaf tíðk- aðist í „gamla daga“. Svo einkenni- legt sem það er þá em það helst fyrsta og síðasta lagið sem skrifari er minnst sáttur við. Yfirleitt eru valin sterk lög í þessi sæti sem sýn- ir að ekki eru aðstandendur disks- ins á sama máli og undirritaður. Sá gamli refur, Björgvin Gísla- son, stjórnar upptökum og ferst það vel úr hendi. Hann lætur einnig til sín taka á gítar og hljómborð. Jens Hansson blæs í saxafón. Aðrir hjálp- arkokkar eru Kristmann Jóhannes- son og Ólína Gunnlaugsdóttir. Guð- laug Sigurðardóttir, Erla Höskulds- dóttir og Þorkell Símonarson syngja bakraddir. Klakabandið skipa, auk áðumefndra, Sveinn Elínbergsson, Aðalsteinn Kristófersson og Sigurð- ur Gíslason. Textar eru eftir Krist- ján Hreinsson, Jón Hjartarson leik- ara frá Sandi, Sæbjöm V. Ásgeirs- son og Þorkel Símonarson. Ingvi Þór Kormáksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.