Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Qupperneq 1
SÍIVSI 551 m 243. TBL. - 92. ARG. - MIÐVIKUDAGUR 23. OKTOBER 2002 VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK i i i i i i i i Verslanir Nóatúns í Smáralind og Austurveri: Starfsmenn grunaðir um stórþiófnað Nokkrum fjölda starfsmanna Nóa- túns í Smáralind, og i Austurveri hef- ur verið sagt upp störfum vegna um- fangsmikils þjófnaðarmáls sem komið hefur fram í gögnum fyrirtækisins sem veruleg rýmun á vörum. Ingimar Jónsson, framkvæmdastjóri Kaupáss, sem er regnhlifarfyrirtæki Nóatúns- fyrirtækja, Kaupás verslana, 11-11 og dreifíngarfyrirtækisins Búrs, staðfesti þetta í samtali við DV í morgun. Heim- ildir DV herma að jafnvel tugir starfs- manna komi þarna við sögu, mest ungt fólk, en Ingimar telur það orðum auki. Hann vildi ekki gefa upp að svo stöddu hversu mörgum hafi verið sagt upp, en hann segir hluta þessara mála hafa verið kærðan til lögreglu. „Þetta er í rannsókn hjá okkur og við munum kveðja lögregluna að þessu líka. Þetta er leiðindamál og á eingöngu við þessar tvær búðir. Það virðist hafa verið einhver tengsl og samantekin ráð starfsmanna í þessum verslunum.“ Ingimar segir að flestir starfsmenn sem þama koma við sögu séu á aldrinum um tvítugt, en nokkrir séu þó yngri. Þama sé bæði um það að ræða að stolið sé úr kössum og eins og vörur hafi verið teknar ófrjálsri hendi. Ingimar segir vörurýmun oft á tíðum vera verulega í verslunum og óhægt um vik að upplýsa hvers vegna eða sanna ef um þjófnað er að ræða. Und- anfama mánuði hefur verið imnið að því að efla eftirlit í Nóatúnsverslunun- um. Málið mun að sögn Ingimars spanna nokkurra mánaða tímabil og virðist hafa verið um samantekin ráð að ræða. Fór þetta þannig fram að starfsmenn skönnuðu vörur á kassa eins og vera ber og létu greiða fyrir, en strikuðu út hluta af vörunum áður en kassanum var lokað. Mismuninum eru starfsmennimir taldir hafa stung- ið undan. Einnig var vörum stungið undan. Samkvæmt heimildum DV hafa yf- irmenn boðið starfsmönnum afslátt af skuld sinni ef þeir greini frá aðild fé- laga sinna að málinu. Þetta hefur ekki fengist staðfest. Hefur m.a. verið leitað til foreldra viðkomandi til að reyna að fá skuldir viðkomandi gerðar upp. -HKr. Leyniskyttan: Hótar nú árásum á börnin Bandaríska leyniskyttan, sem grunuð er um að hafa skotið þrettánda fórnarlamb sitt til bana í gærmorgun, mun að sögn bandaríska dagblaðs- ins Baltimore Sun hafa skilið eftir önnur skilaboð í nágrenni morðstaðarins í Aspen Hill í Maryland, þar sem hann ít- rekar fyrri kröfur sínar frá því á laugardaginn um að yfírvöld leggi tíu milljónir dollara inn á tiltekinn bankareikning innan tveggja daga, annars taki þau afleiðingunum af fleiri morð- um. Að sögn blaðsins mun lög- reglan hafa fundið skilaboðin, sem skrifuð voru á nokkrar blaðsíður, í nálægum almenn- ingsgarði nokkrum klukku- stundum eftir árásina og þar ít- rekar hann einnig hótun sína um að ráðast gegn bömum, en í fyrri skilaboðunum mun hann samkvæmt óstaðfestum fréttum hafa sagt: „Bömin ykk- ar eru í hættu, hvar og hvenær sem er.“ Mun hann sam- kvæmt óstaðfestum fréttum hafa sagt: „Bömin ykkar eru í hœttu, hvar og hvenœr sem er. “ Fórnarlamb árásarinnar í gær, það þrettánda í röðinni síðan 2. október sl., er það tí- unda sem leyniskyttan skýtur til bana, en þar var um að ræða 35 ára gamlan strætisvagnabíl- stjóra sem stóð í tröppum vagnsins þegar hann varð fyrir skoti í brjóstið og lést síðan á spítala nokkrum stundum síð- ar. Charles Moose, yfirmaður lögreglunnar í Montgomery- sýslu, sem fer með rannsókn málsins, talaði beint til leyni- skyttunnar á fréttamannafundi í gærkvöld, þar sem hann sagði tæknilega óframkvæmanlegt að verða við kröfum hans og skoraði á hann að hafa þegar símasamband við lögregluna. ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 10 í DAG LIVERPOOL SOTTI ÞRJU STIG TIL MOSKVU: Owen sjóð- heitur og skoraði þrjú mörk SKAKBYLGJA I SKOL- UM ÁRBORGAR: Skákin erfið en gefandi 18 PHILCO18 Einfaldur 5kg ÞURRKARI fyrir barka meö 2 hitastigum, köldum blæstri krumpuvörn og rakaskynjara. Heimilistæki 29.995 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT Verð áður 34.995 IJZÍSiiiaauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.