Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002 DV Fréttir Jón Steinar Gunnlaugsson um frumvarp Valgerðar: Forkastanleg vald- beiting ráðherra - leitt að menn úttali sig á þennan hátt, segir ráðherra „Þetta er auðvitað alveg forkast- anlegt að minu áliti, sú hugsun yfir höfuð að ráðherra skuli hverfa frá yfirlýstum tilgangi laga, sem voru sett 2001, í tilefni af svona tiifaliandi málum. Þetta vekur mikla umhugs- un um hvemig pólitískir ráðherrar séu að beita sér í málum af þessu tagi,“ segir Jón Steinar Gunnlaugs- son lögmaður um frumvarp til laga um fjármálafyrirtæki, sem Valgerð- ur Sverrisdóttir viöskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Varnir treystar Frumvarpið hefur verið i smíðum í nokkur misseri en í sumar ákvað ráðherra að í því skyldi brugðist sérstaklega við yfirtökutilboði sem umbjóðendur Jóns Steinars - fimm- menningahópurinn svokallaöi - gerðu í stofnfé Sparisjóös Reykja- víkur og nágrennis. Niðurstaðan birtist nú í frumvarpinu: ný lagaá- kvæði sem er ætlað að „treysta varnir sparisjóðanna gegn slíkum yfirtökuboðum" eins og segir í greinargerð með frumvarpinu. í því er meðal ann- ars stjómum sparisjóða gert skylt að synja um framsal á stofn- fjárhlutum sem myndi leiða til þess aö einn aðili eða skyldir aðilar eignuöust virkan eignarhlut í sparisjóði. Skref til baka „Það er auðvitað verið að stíga skref til baka og hverfa frá þeirri stefnu sem mótuð var 2001, þegar sett voru í lög heimildir til að breyta sparisjóðum í hlutafélög. Það er snúið alveg af þeirri braut og ástæðan virðist vera sú að pólitísk- ur ráðherra virðist hafa áhuga á að koma í veg fyrir að menn geti átt viðskipti með stofnfé," segir Jón Steinar Gunnlaugsson. Jón Steinar telur ólíklegt að það Jón Steinar Gunnlaugsson. Valgeröur Sverrisdóttir. standist aö lög- gjafinn leysi úr ágreiningsmálum af því tagi sem upp spruttu í sumar með laga- setningu, enda sé það hlutverk dómstóla aö fara með dómsvaldið. Valdbeiting „í ofanálag er síðan alveg ljóst, að það að ætla sér að hafa áhrif á samninga sem menn em búnir að gera sín á milli meö lagasetningu hlýtur að vera óheimilt að íslensk- um stjómlögum. Satt að segja er þetta valdbeiting - og yfirlýst sem slík - sem ætti ekki að þekkjast í samfélagi af því tagi sem við þykj- umst byggja," segir Jón Steinar, sem furðar sig jafnframt á því að Starfsmannafélag SPRON - sem bauö í stofnféð á móti fimmmenn- ingahópnum - skuli að því er virð- ist ekkert hafa gert enn til að efna gerða samninga við stofnfjáreigend- ur. Gengurekki upp Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra segir leitt að maður sem vilji láta taka sig alvarlega skuli úttala sig á þennan hátt því það sýni að hann hefur ekki lesiö frumvarpið. Engar breytingar séu gerðar á lögunum sem sett voru í fyrra heldur sé verið að skerpa á ákvæðum eldri laga um dreifða eignaraðild. Valgerður segir það skilning ráðuneytisins að Fjármálaeftirlitið hafi kveðið upp úr um að tilboð fun- menninganna í stofnfé SPRON gangi ekki upp óbreytt. Lagafrum- varpið breyti því ekki stöðunni hvað það varðar. Þá segir hún að aflað hafi verið lögfræöiálits utan ráðuneytisins um að frumvarpið standist ákvæði stjómarskrár. -ÓTG Samþykki ekki nauösynlegt Hjörleifur B. Kvaran borgarlögmað- ur telur að ekki hafi verið nauðsynlegt að fá fyrirfram samþykki allra eignar- aðila Orkuveitu Reykjavíkur vegna skuldbindinga sem kaup á ljósleiðara Línu.Nets höfðu í fór með sér. Sjálf- stæðismenn i borgarráði fóru fram á að borgarstjóri gæfi borgarráði skýrslu um áhrif skuldbindinga OR. -Mbl. greindi frá. í skóm drekans Almennar sýningar á kvikmynd Hrannar og Áma Sveinbjörnsbama, í skóm drekans, hefjast loks fimmtudag- inn 31. október. Myndin fjallar um þátt- töku Hrannar í fegurðarsamkeppninni Ungfrú ísland.is árið 2001 en taka myndarinnar hefur valdið deilum og málaferlum. Frítt fyrir rútur Stjóm Spalar, sem rekur Hvaifjarð- argöngin, hefúr ákveðið að fella niður gjald af almenningssamgöngum. Fólks- flutningabifreiðar geta því ekið um göngin endurgjaldslaust frá áramótum. Bráðsmitandi veirusýking Veirusýking sem veldur hand-, fót-' og munnsjúkdómi hefur gert vart við sig hjá ungum bömum á höfuðborgar- svæðinu. Veiran er mjög smitandi og munu dæmi um að öll böm i sömu dag- vistun hafi veikst. NOTAÐAR VINNUVÉLAR T3-021 Case 590 Super LE traktorsgrafa, 95 hö., skotbóma 45 og 90 cm skóflur, 1600 vst. Ingvar Helgason hf. VÉLADEILD Seinfærir for- eldrar stofna samtök Seinfærir foreldrar, þ.e. foreldrar sem eru með þroskahömlun, hafa stofnað samtök sem hafa einkum að markmiði víðtæka fræðslu, mannvirð- ingu og áfallahjálp. Fólkið í samtökun- um hittist reglulega og unnið er skipu- lega að ofangreindum markmiðum. DV hefur fjallað ítarlega um sein- færa foreldra og ýmis málefni þeim viðkomandi. Kveikjan að þeirri um- fjöllun var viðtal við unga foreldra sem sviptir höfðu verið bami sínu meðan móðirin lá enn á fæðingardeild Land- spitalans. Þau hafa nú höfðað mál fyrri dómstólum til að fá bamið sitt aftur. Meðlimir hinna nýstofnuðu sam- taka spanna allan reynsluheim sein- færra foreldra. Sumir hafa eignast barn, en aldrei fengið að sjá það, aðrir hafa misst barn sitt nýlega, enn aðrir eiga von á barni og loks er fólk sem gengið hefur allt i haginn. -JSS Sigurvon á flot Björgunarskip Slysavarnafélags- ins Landsbjargar, Hannes Þ. Haf- stein frá Sandgerði, dró Sigurvon á flot rétt fyrir miðnætti í gærkvöld. Skipstjóri hafði kallað á Reykjavík- urradíó um hálfeflefuleytið og til- kynnt að báturinn væri strandaður í innsiglingunni til Sandgerðis. Sex manna áhöfn var um borö í bátnum sem er 140 tonn. Einn skipverja var fluttur yfir í björgunarskipið, en hinir voru þegar komnir í flotgalla. -aþ DV-MYND HARI Þörf samtök Seinfærir foreldrar hittust á einum af reglulegum fundum sínum í gærkvöld. Fyrir borðsenda er Ottó B. Arnar, formaður samtakanna. Sjúkraflutningar á landsbyggðinni í vanda: Enginn viðsemjandi finnst Sjúkraflutningar á íslandi virðast stefna í óefni eftir að samningur, sem gerður var 26. júní 2000, rann út í októ- bermánuði sama ár og hefur ekki feng- ist endumýjaður hjá Samninganefnd ríkisins. Nefhdin teiur sig ekki hafa um- boð til samningagerðar vegna þess að um hlutastarf sé að ræða og viðkomandi menn í fjölmörgum stéttarfélögum. í fé- laginu em um 300 menn í aðalstarfi sem bæði slökkviliðs- og sjúkraflutninga- menn, um 120 aðeins sjúkraflutninga- menn en um 800 manns í félaginu. í Búðardal hefur einn sjúkraflutninga- maður sagt upp störfum vegna aldurs og sá sem er eftir hefur sagt upp störfum. Ástandið er viða svipað á landsbyggð- inni. Vemharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna, segir ríkisvaldið ekki geta haft menn í fullri vinnu við þessi störf vegna þess að það mundi kosta mikia fjármuni, en á sama tíma geti þeir ekki réttlætt það að semja ekki við þá þar sem þeir séu í hlutastarfi og séu í fullri vinnu við óskyld störf. Vemharö segir mannréttindi þessa hóps ekki virt. Áður fyrr var það algengt að sjúkra- flutningar vom sjálfboðaliðsstarf, raun- ar hugsjónastarf eftir að safriað hafði verið fýrir sjúkraflutningabifreið, og þess em dæmi enn í dag. „Heilsugæslustöðvum og heilbrigðis- stofnunum er lögskylt að mennta sjúkraflutningamenn, en hafa í flestum tilfelium ekki sinnt því og útvega þess- um mönnum heldur ekki fatnað eða hlífðarbúnað til að sinna starfinu sóma- samlega. Því er í dag stór hópur manna að sinna sjúkraflutningum án þess að hafa til þess réttindi. Enginn vill tryggja fjármagn til þessarar þjónustu, og eng- inn vifl heldur vera án hennar," segir Vemharð Guðnason. Gunnar Bjömsson, formaður Samn- inganefridar ríkisins, segir að enginn þessara sjúkraflutningamanna sé í fuflu starfi og í mörgum stéttarfélögum, en margir þeirra séu í starfsmannafélögum viökomandi sveitarfélaga og sums stað- ar sjái lögreglan um sjúkraflutninga. „Það er ekki í okkar verkahring að benda á lausn í þessu máli. Það væri þó kannski eðlilegt að hækka þeirra iaun í samræmi við aðra kjarasamninga í þjóðfélaginu," segir Gunnar Bjömsson. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segist ekki hafa heyrt af þessum vanda sjúkraflutningamanna á landsbyggð- inni, það hafi ekki verið kynnt fyrir honum. „Ef ástandið er svona alvarlegt verður þetta efalust tekið upp til um- ræðu, og vonandi lausnar. Það gefur augaleið að þessi þjónusta þarf að vera til staðar," sagði heilbrigðisráöherra. -GG HjoogaroMiernu Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra skipaði í gær nefhd til að móta tiflögur og vera umhverfisráð- I herra til ráðgjafar um stofhun vemdar- svæðis eða þjóðgarðs norðan Vatnajökuls Undir kjaranefnd Samstaða var um það á félagsfundi heilsugæslulækna í gær að vera áfram undir kjaranefnd þótt úrskuröur kjara- nefhdar sem felldur var í síðustu viku um kjör heilsugæslulækna feli ekki í sér þá kjarabót sem þeir höfðu vonast eftir. Stórverkefni Á næstunni hefst viðamikið fjölþjóð- legt rannsóknarverkefni, EUKETIDES, sem hlotið hefur liölega 172 milljóna króna styrk frá framkvæmdastjóm Evr- ópusambandsins. Mun þetta vera eitt stærsta verkefni undir stjóm íslenskrar stofnunar sem ESB hefur styrkt. Óraunhæf verksmiöja Gríðarlega mikill | úrgangur og hár flutningskostnaður útiloka að raunhæft sé að ræða um súráls- verksmiðju á Norður- landi; slík verksmiðja gengi aldrei upp fjár- ' hagslega, segir Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. -RÚV greindi frá. Hækkun á leigu Félagsmálaráð Reykjavikurborgar hefur nýlega ákveðið að hækka leigu- verð allra íbúða Félagsbústaða um 12% fyrir mars á næsta ári vegna vaxta- hækkana. Fuiltrúar Sjálfstæðisflokks- ins í borgarráði leggja til að metið verði, hvort skynsamlegra sé að borgin axli hluta leigukostnaðarins. -HKr. Haidið Haldið tii haga Eins og margir flugáhugamenn hafa tekið eftir var í frétt blaðsins í gær um flugslys sem stafað hafa af bilun í hraða- mælum á Boeing 757 flugvélum talað í tvígang um „Pilot system." Hið rétta er auðvitað „Pitot system en svokallað Pi- tot er vinkiliaga mælirör utan á skrokk vélanna. Orðinu var breytt vegna mis- skiinings við vinnslu blaðsins. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.