Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Blaðsíða 21
21
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
DV Tilvera v
Pelé 60 ára
Svarta perlan
Pelé er sextugur í
dag. Pelé er lang-
þekktasti knatt-
spyrmnnaður
heims en hann
hampaði heims-
meistaratitli
þrisvar sinnum
með Brasilíu.
Pelé er ötull tals-
maður knattspymumála og er und-
antekningarlaust hlustað þegar
hann tjáir sig um fótboltann. Pelé
kom til íslands á níunda áratugnum
og lék listir sínar fyrir upprennandi
knattspymumenn.
iviuuiamir
-HJ
Gildlr fyrir fímmtudaginn 24. október
Vatnsberinn (20, ian.-18. febr.);
. Tilfinningamálin verða
’ þér ofarlega í huga í
kvöld og þú þarft á
góðum vini að halda
i á hjarta þínu.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
Það er margt sem kemur
Iþér á óvart í dag, sér-
staklega hlýlegt viðmót
fólks sem þú þekkir lít-
ið. Rómantíkin hggur í loftinu og þú
átt skemmtilega daga fram undan.
Hrúturinn (21. mars-19. aprih:
. Þú færð góðar hug-
í myndir í dag en það er
hægara sagt en gert að
koma þeim í fram-
Þú færð lítinn stuðning og
allir virðast vera uppteknir.
Nautið (20. aprfl-20. maii:
Dagininn verður eftir-
minnilegur á jákvæð-
an hátt. Þú færð gott
__ tækifæri til
að'syna hæfileika þína á ákveðnu
sviði.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníu
Þú skalt forðast til-
■■ finningasemi og þó að
ýmislegt kunni að
ergja þig skaltu ekki
láta skapið hlaupa með þig í gön-
ur.
Krabblnn (22. iúní-22. iúií):
Þú lendir í timahraki
i fyrri hluta dagsins og
það gengur illa að
____ ljúka þvi sem þú ætl-
aðir þér. Þetta vesen mun þó alls
ekki skemma fyrir þér kvöldið.
Ljónið (23. iúlí— 22. áeústl:
, Það er einhver órói í
loftinu og hætta á deil-
um og smávægilegum
rifrildum.
Hafðu gát á þvi sem þú segir og
reyndu að særa engan.
Mevian (23, ágúst-22, seot.l:
Ættingjar þínir koma
þér skemmtilega á
'm. óvart í dag. Þú nýtur
■ f þeirrar
athygli sem þú færð í einkalífinu.
Rómantíkin liggur í loftinu.
Vogin (23. sept-23. okt.l;
Einhverjar ófyrirséðar
breytingar verða á
högum þínum á næst-
unni. Þegar til
lengri tíma er litið munu þær
verða afar jákvæðar fyrir þig.
gporðdrekinn(24. oHt-21, nw.);
Ef þú hyggur á breyt-
ingar í lífi þinu skaltu
f endilega drífa í þeim
núna. Þú
ert fullur orku og til í að leggja
hart að þér.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des.):
■ Gefðu þér góðan tíma
Ftil að hugsa um og
skipuleggja verkefni
sem þú ert að
byrja á áður en þú hefst handa.
Happatölur þinar eru 6, 9 og 24.
Stelngeltin (22. des.-19. ian.l:
Eitthvað sem þér berst
til eyma veldur þér
miklum heilabrotum.
Þú ert
tortrygginn gagnvart kunningja
þínum en ert ekki viss í þinni sök.
Vogin (23. st
ý
Villi Þór aftur kominn í klippingarnar:
Batinn var lottóvinningur lífs míns
Maður iifandi
mm
Lífið kemur á óvart
Brún tréhúsgögn, hlébarðalitar
ábreiður og listaverk á veggjum
setja svip á hársnyrtistofuna hans
Villa Þórs á Skólavörðustíg 41 og
kaffiilminn leggur út á götu. Þetta er
ný stofa, Hárlist.is, en Villi Þór er
þekkt nafn i hársnyrtastétt þvi um
tuttugu og þriggja ára skeið rak
hann stofu í Ármúla 26 undir nafn-
inu Hársnyrting Villa Þórs. Hann
hætti þar 1996 og flutti úr landi. Nú
er hann sem sagt kominn aftur heim
og farinn að munda skærin.
Finnur sig heima á holtinu
Eistnesk stúlka starfar með Villa
á stofunni svo hann gefur sér tíma
til að setjast niður og súpa úr kaffi-
bolla með blaðamanni DV. Hann
virðist líka lesa hugsanir hans því
hann skreppur í kæliskápinn eftir
mjólk og hellir óbeðinn út í bolla
hans, lækkar í útvarpinu og lokar
útihurðinni til að draga úr óþarfa
hávaða. Einnig óbeðinn.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
starfa á svæði 101 Reykjavík," segir
hann bro§andi og heldur áfrcim:
„Mér líður ofsalega vel héma og
finnst gott aö vera í nágrenni við
Skólavörðuholtið. Pabbi minn, Vil-
hjálmur Pálsson, ólst upp hér í
grenndinni og ég var kunnugur á
holtinu þegar ég var í Iðnskólanum
á árunum ‘68-’74. Ég tek eftir því að
ýmsir eru rótgrónir í þessu hverfi,
hafa jafnvel búið hér allan sinn ald-
ur. Þeir hafa boðiö mig velkominn
og þegar maður tekur stórar ákvarð-
anir eins og þær að byrja aftur í
svona rekstri þá hefur slíkt viðmót
mikið að segja.“
Kjaftshögg
En hvar hefur maðurinn haldið
sig síðustu ár og hvað hefur hann
verið að sýsla?
„Ég ætlaði að kaupa stofu úti í
Danmörku og þau mál voru nánast
frágengin þegar ég seldi stofuna
mina í Ármúlanum. Ófyrirséð atvik
komu hins vegar í veg fyrir það,“
segir VUli og játar að það hafi verið
kjaftshögg. „Ég var búinn að selja
allt hér og kominn út með fjölskyldu
og búslóð en það bagalegasta var að í
sölusamningnum vegna stofunnar í
Ármúlanum var ákvæði um að mér
væri óheimilt að opna stofu hér á
landi næstu fimm árin. Nýi eigandinn
mátti hins vegar nota nafnið mitt í tvö
ár. Ég spáði ekkert í þessa klásúlu
þegar ég skrifaði undir því ég var á
útleið."
- Varstu fyrir einhveijum svikum í
Danmörku?
„Já, það má segja það. Frúin sem ég
var að kaupa af var reyndar mjög al-
mennileg og ætlaði að vinna hjá mér í
nokkra mánuði, sem var auðvitað
dýrmætt fyrir mig, þar sem viðskipta-
vinirnir þekktu hana. Bóndi hennar
var hins vegar óáreiðanlegri. Hann
var fasteignasali og hvort sem honum
staddur. Þetta var líkast þvi að vera
skotinn í hnakkann,“ rifjar hann
upp og segir bjargvætti sína hafa
verið tvær stúlkur sem unnu hjá
honum þá. „Ég missti ekki meðvit-
undina strax og hélt að þetta væri
bara eitthvert smáræði sem liði hjá
en stúlkumar yfirtóku líf mitt á
þessari stundu, hringdu á sjúkrabíl
og sendu mig umsvifalaust upp á
Landspítala. Það lá ég í tvo mánuði
og var svo á Reykjalundi í endurhæf-
ingu í rúma þrjá mánuði. Stelpumar
gerðu það ekki endasleppt við mig
heldur sáu um viðskiptavinina svo
stofan héldist í rekstri. Einn góður
vinur minn tók að sér bókhaldið og
annar sá um að borga það sem
þurfti.“ Villi kveðst hafa verið mjög
máttfarinn vinstra megin fyrst eftir
þennan atburð og það hafi tekið
hann eitt og hálft ár aö ná upp nægu
starfsþreki til að vinna allan daginn.
Enn verði hann að passa að fara vel
með sig. „Litli heilinn er ekki lítil-
vægur þótt hann heiti litli heili.
Hann stjórnar til dæmis finhreyfmg-
unum og í þessu fagi má maður illa
við að missa þær,“ segir hann alvar-
legur. Hann kveðst hafa sloppið
ótrúlega vel út úr þessum hremm-
ingum miðað við ýmsa sem hann
hitti i meðferðinni er höfðu lent í A
því sama og misstu málið og hvað-
eina. „Batinn var lottóvinningur lífs
míns. Það var ekki flóknara en það,“
segir Villi og meinar það. Bætir síð-
an við: „Maður verður að læra af
svona hlutum og reyna að brosa við
mótlætinu, annars getur maður lent
i því að velja hina leiðina."
Missti konu og dóttur
Þetta er ffáleitt eina áfallið sem
Villi hefur lent í um dagana. Fyrri
konan hans veiktist árið 1976 af
heilablæðingu sem leiddi hana til *
dauða 1984 og dóttur hennar, sem
Villi ættleiddi, missti hann fyrir
tveimur árum, einnig úr heilablæð-
ingu. „Þær voru með sjúkdóm sem
leggst á vissar ættir hér á landi og ég
hef barist mikið fyrir að fundin
verði lækning á,“ segir Villi dapur í
bragði. „Konan mín var ein af sex
systrum, fjórar þeirra fóru úr þessum
sjúkdómi á besta aldri og þrjú af börn-
um þeirra líka,“ bætir hann við. Hann
getur samt glaðst yfir því að hann á
fjögur börn á lífi, þar af tvö með fyrri
konunni og segir þau vera heilbrigð.
„Sonur minn, sem er læknir á Akur-
eyri, hefur tekið þátt í rannsóknum á
þessum sjúkdómi. Því starfi miðar
alltaf lengra og lengra og það endar .
með því að lækning finnst. Því höfum
við sterka trú á,“ segir hann einbeitt-
ur.
En nú er honum ekki lengur til
setu boðið. Inn snarast dökkhærður
ungur maður sem þarf á hársnyrtingu
að halda og hann er ekki látinn bíða.
-Gun.
A stofunni
Villi Þór hefur ekki unniö á svæöi 101 áöur en segist kunna vei viö sig í nágrenni viö
Skólavöröuholtið.
hefur verið boðið eitthvað undir borð-
ið eða ekki þá hvíslaði hann ýmsu að
mér sem varð til þess að ég hætti við
kaupin. Mánuði áður hafði hann
klappað mér á bakið og sagt. „Ef það
dregst eitthvað að þú getir selt heima
þá er ekkert mál fyrir okkur hjónin að
bíða með söluna til sumarsins." Þetta
var slæm reynsla en eigum við ekki
að vona að maður verði gáfaðri á eft-
ir?“
Orð skulu standa
Eftir þessa brotlendingu kveðst
Villi hafa komið víða við. Hann hafi
verið lausráðinn á hársnyrtistofum í
Danmörku, Reykjavik og Noregi.
Einnig hafi hann gripið í sölu-
mennsku og hin ýmsu störf. „Það var
dálítið los á manni,“ segir hann eins
og afsakandi. Hann segir sér hafa ver-
ið boðið að kaupa stofu á nafni ann-
arra og vinna þar en hann hafi ekki
hrifist af þeirri hugmynd. „Ég var
ekki tilbúinn að lifa með þann blett á
samviskunni enda er ég alinn upp við
það að orð skuli standa." Villi dregur
þó ekki dul á að þetta hringl hafi kost-
að hann mikla peninga en nýja stofan
hans er til vitnis um að hann eyddi
ekki öllu í vitleysu heldur stendur
enn á uppréttum fótum.
Eins og skot í hnakkann
Fótunum var hins vegar kippt und-
ap VUla í bókstaflegri merkingu einn
dag árið 1994 þar sem hann var við
vinnu sína á stofunni, þá rúmlega fer-
tugur. „Ég fékk blóðtappa við litla
heilann og datt niður þar sem ég var
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar.
Einhvern tíma heyrði ég þá kenn-
ingu að fólk eignaöist böm vegna þess
að það hefði þráð framlengingu af
sjálfu sér. Sem mér finnst benda til
fullmikillar sjálfhverfu. Mér finnst
einmitt að fólk eigi bara aö eignast
böm ef það hefur meiri áhuga á öðr-
um en sjálfum sér. Þá getur það gefið
af sér af örlæti. Annars held ég að fólk
sé alltof oft að eignast börn af því það
haldi að það sé hinn venjulegi
lífsmáti. Þegar svo kemur að því að
annast bamið 24 tíma á sólarhring þá
er fólk ekki alveg tilbúið í þá púl-
vinnu. Fer að vorkenna sér og verður
önugt. Og lætur vansældina bitna á
bami sem bað ekki um að koma í
heiminn. Sumir ganga meira að segja
svo langt að misþyrma bömum sin-
um.
Um helgina las ég framhald met-
sölubókarinnar „Hann var kallaður
þetta" eftir Dave Pelzer. Þessi nýja
bók heitir „Umkomulausi drengur-
DAVE PEL2ER
Umkomulausi
drenguriim
inn“ og fjallar um líf Daves frá tólf ára
aldri til átján ára aldurs. Fyrri bókin
var saga drengs sem var ofsóttur af
móður sinni. Seinni bókin fjallar um
flakk á milli fósturheimila. Það
merkilega við þessa sögu Daves Pelz-
ers er að honum tókst að lifa af og
verða ástríkur faðir. Þeir sem verða
fyrir ofbeldi enda víst æði oft sem of-
beldismenn. Sem er sorgleg niður-
staða því maður vill trúa því að
mannsandinn geti hafið sig yfir ömur-
legar aðstæður og unnið sigur á þeim.
Dave Pelzer er dæmi um andlegan sig-
urvegara. Saga hans er sannarlega
þess virði að hún sé lesin.
Vinkona mín ein, tveggja bama
móðir, er ekki sátt við bækur Daves
Pelzers sem hún segir í Dale Camegie
stíl. Ég held hins vegar að manneskja
sem hafi gengið í gegnum jafh skelfi-
lega reynslu og Dave hafi ekki átt
aðra björgunarleið en að skrifa sig frá
reynslunni og kalla til vitnis kennara,
fósturforeldra og sálfræðinga. Sam-
kvæmt tölfræði átti hann sáralitla
„Þeir sem verda fyrir of- <.
beldi enda víst œði oft sem
ofbeldismenn. Sem er sorg-
leg niðurstaða því maður
vill trúa því að mannsand-
inn geti hafið sig yfir ömur-
legar aðstæður og unnið
sigur á þeim. Dave Pelzer er
dæmi um andlegan sigur-
vegara. Saga hans er sann-
arlega þess virði að hún sé
lesin. “
r
möguleika á því að verða að eðlilegum
manni eftir misþyrmingar móöur
sinnar. Svona álíka og við sem lifum
venjulegu lífi eigum á því aö fá fimm-
faldan lottóvinning. Stundum kemur
lífið gleðilega á óvart. Mikið er gott að
vita af því.