Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Sementsverksmiðjan á Akranesi í hart stríð við keppinaut:
Stjórnvaldssekt yfir-
vofandi vegna kæru
Aalborg Portland
- líður að „ögurstund“ - ráðherra og þingmenn kallaðir til stuðnings
Gísli
Gíslason.
Jón
Bjarnason.
Aml Steinar
Jóhannsson.
Sementsverksmiðjan hf. á Akra-
nesi á yfir höfði sér stjórnvalds-
sekt fyrir að misbeita markaðs-
ráðandi stöðu sinni gagnvart sam-
keppnisaðila. Kemur þetta til álita
að mati Samkeppnisstofnunar við
kæru Aalborg Portland frá því í
ársbyrjun en óafgreidd er önnur
kæra Aalborg sem kom til umfjöll-
unar í stofnuninni á mánudag.
Allir sem
vettlingi
geta valdiö
„Nú líður að
ögurstund varð-
andi framtíð
verksmiðjunnar
- því eru ráð-
herra, þingmenn
og aðrir þeir
sem vettlingi
geta valdið kall-
aðir til stuðn-
ings,“ segir Gísli
Gislason, bæjar-
stjóri á Akra-
nesi og stjórnar-
maður í Sem-
entsverksmiðj-
unni hf., í pistli
um verksmiðj-
una. Þetta kem-
ur fram á vefn-
um akranes.is
þar sem Gísli
lýsti því að á
síðustu vikum
hefðu átt sér
stað ýmsar
hræringar sem
svo sannarlega
hafa áhrif eða
geta haft áhrif á
samfélagið á
næstunni. Staða
Sementsverk-
smiðjunnar sé
erfið og að hún
hafi tapað um
fjórðimgi af
markaði sínum,
auk þess sem
sala á sementi
hefur dregist
saman síðustu
mánuði. Verk-
smiðjan verði að
fá tækifæri til
að standa af sér
samkeppni á
j afnræðisgrund-
velli.
Þingsályktun
gegn
Aalborg
Portland
Virðist sem að
minnsta kosti tveir þingmenn taki
undir ákall bæjarstjórans og hafa
Jón Bjarnason og Árni Steinar Jó-
hannsson, báðir úr röðum Vinstri-
grænna, lagt fram tillögu til þings-
ályktunar sem virðist beinlínis
stefnt gegn helsta samkeppnisað-
ila Sementsverksmiðjunnar, Aal-
borg Portland ísland hf. Þar segir
m.a.:
„Alþingi ályktar að fela iðnað-
arráðherra aö láta gera úttekt á
verðmyndun á innfluttu sementi
og að grípa tO aðgerða ef í ljós
kemur að um undirboð er að
ræða. Þá segir einnig að ef um sé
að ræða undirboð, eða svokallað
„dumping," þurfl að taka á því og
tryggja að jafnræði verði gætt
hvað varðar framleiðslu Sements-
verksmiðjunnar hf.
Flutningsmenn telja að verði
ekkert að gert geti það stofnað
rekstri verksmiðjunnar i hættu og
Bjarnl
Halldórsson.
Valgeröur
Sverrisdóttir.
Sementsverksmiöjan hf. á Akranesi
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi og stjórnarmaður verksmiðjunnar, ákall-
ar ráðherra, þingmenn og aðra sem vettlingi geta valdið þar sem nú líði að
ögurstund varðandi framtíð verksmiðjunnar sem á yfir höfði sér stjórnvalds-
sekt. Tveir þingmenn hafa orðið við ákallinu og lagt fram þingsályktunartil-
lögu sem virðist beinlínis stefnt gegn helsta samkeppnisaðila Sementsverk-
smiðjunnar.
jafnvel orðið þess valdandi að
reksturinn verði lagður niður.
Kærur á víxl
Harðar ásakanir hafa gengið á
vixl á milli þessara samkeppnisað-
ila. Aalborg Portland kærði sem-
entsverksmiðjuna í ársbyrjun
m.a. til Samkeppnisstofnunar fyr-
ir meinta ólöglega viðskiptahætti
í ljósi stöðu sinnar með 80%
markaðshlutdeild. Sementsverk-
smiðjan kærði á móti Aalborg
Portland fyrir undirboð á íslensk-
um markaði. Samkeppnisráð úr-
skurðaði 16. maí og þótti ekki
ástæða til aðgerða gegn Alborg
Portland. Áfrýjaði Sementsverk-
smiðjan þá málinu til áfrýjunar-
nefndar og krafðist þess að
ákvörðun Samkeppnisráðs yrði
hnekkt. Niðurstaðan fékkst í mál-
ið 23. júlí sl. og var krafa Sements-
verksmiðjunnar ekki tekin til
greina en staðfest niðurstaða Sam-
keppnisráðs. Hefur Sementsverk-
smiðjan einnig kært Aalborg
Portland í Danmörku til ESA, eft-
irlitsstofnunar EFTA.
Á mánudag tók Samkeppnis-
stofnun til umfjöllunar kæru Aal-
borg Portland sem kom í kjölfar
kæru Sementsverksmiðjunnar.
Ekki tókst þó að ljúka málinu. Þar
er kærð meint óeðlilegt fyrir-
greiðsla til viðskiptaaðila Sem-
entsverksmiðjunnar, (BM-Vallár),
meint óeðlileg fyrirgreiðsla eða
undirboð til viðskiptaaðila og
lækkun á verði til að koma í veg
fyrir samkeppni.
Alþingi beitt gegn sam-
keppnisaöila
Bjarni Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Aalborg Portland
ísland hf., segir sérkennilegt ef
beita eigi Alþingi beinlínis gegn
fyrirtæki á samkeppnismarkaði
til að verja Sementsverksmiðjuna
hf. sem er markaðsráðandi fyrir-
tæki í eigu ríkisins. „Þetta er með
ólíkindum og auðvitað er þetta
okkur til höfuðs. Það hefur t.d.
aldrei verið hringt í mig af þess-
um mönnum til að kanna hvort ég
hafi einhver sjónarmið fram að
leggja, heldur einungis lögð fram
blaðagrein úr Morgunblaðinu til
áréttingar þingsályktunartillög-
unni“ Að öðru leyti vildi Bjarni
litt tjá sig um málið fyrr en niður-
staða liggi fyrir hjá Samkeppnis-
stofnun.
Stjórnvaldssekt
yfirvofandi
Samkeppnisstofnun óskaði eftir
upplýsingum 6. febrúar 2002 frá
Sementsverksmiðjunni um við-
skiptakjör fimm stærstu við-
skiptaaðila verksmiðjunnar vegna
kæru Aalborg Portland i febrúar.
Barst svar 1. mars og þar á meðal
samningur við BM-Vallá frá 27.
ágúst 2001. Samkeppnisstofnun
telur að Sementsverksmiðjan
kunni með þessum samningi að
hafa brotið gegn 11. grein sam-
keppnislaga sem segir að rík
skylda hvíli á markaðsráðandi
fyrirtækjum að grípa ekki til
neinna ráðstafana sem raskað geti
samkeppni á markaðnum eða mis-
beita með öðrum hætti stöðu
sinni. Að mati stofnunarinnar er
umræddur samningur, einka-
kaupasamningur í skilningi samn-
ingsréttar. í lið 1-C í samningnum
komi skýrt fram að samningurinn
gildi fyrir öll sementskaup BM-
Vallár með fáum undantekning-
um. Er vísað til fyrri úrskurða um
að slíkt sé brot á samkeppnislög-
um. Fleiri atriði eru einnig nefnd
til sögu er talin eru brot á lögun-
um. Þá segir:
„Til álita kemur því að beita
heimildum 52. greinar samkeppn-
islaga og leggja stjórnvaldsekt á
Sementsverksmiðjuna." Var þetta
kynnt Sementsverksmiðjunni 3.
júní og Aalborg Portland 23. sept-
ember. Virðist sem Samkeppnis-
stofnun eigi erfitt með að líta fram
hjá þessari niðurstöðu sinni við
afgreiðslu á seinni kæru Aalborg
Portland sem ekki tókst að klára á
mánudag.
Neyðarfundur?
Sementsverksmiðjan virðist
komin i alvarlega stöðu ef marka
má fund Valgerðar Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um
málefni verksmiðjunnar í ráðu-
neytinu í hádeginu 2. september.
Fundinn sat fjármálaráðherra og
ráðuneytisstjóra fjármálaráðu-
neytis, stjórn og framkvæmda-
stjóri Sementsverksmiðjunnar og
ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneyt-
is. Ekki hefur verið upplýst hvað
rætt var á fundinum. -HKr.
Hver býður
betur?
Startpakkinn
■ - allt sem til þarí
Tilboð 1.
Aðeins 5
8W« Jp%
• /UU iv.i •
ADSL mótald • Stofngjald
Samtals verðmæti 18.125 kr.
Tilboð 2.
9.900 kr.
Nokia 3310 á 9.900 kr.
Með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 3--1ölD
Venjulegt verð 14.900 kr.
.......................-
Hringdu strax f sfma 800 1111 eða
komdu f verslun okkar f Kringlunni.
>
—. :.:-r3L
Íslandssími
i s I a n d s s i m i. i s
fSlENSKA AUGLÝSINGASTOfAN/SIA.IS ISS 191 41 1 0/2092