Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Við skemmdum enga brú
„Við hjá ístaki erum óhressir
með að vera taldir hafa skemmt
brúna yfir Gönguskarðsá. Sann-
leikurinn er sá að við fórum í einu
og öllu eftir tilmælum Vegagerðar-
innar og fluttum forbrjótinn að
ánni en ekki yfir brúna eins og
umdæmisstjóri Vegagerðarinnar
segir í DV á mánudag," sagði
Ágúst Ingi Andrésson hjá ístaki hf.
í samtali við DV í gær vegna frétt-
ar um svokallaðan forbrjót, grjót-
mulningstæki á beltum, sem for-
ráðamaður Vegagerðarinnar í
Skagafirði segir að hafi valdið
verulegum spjöllum á brúnni.
Fossvélar á Selfossi eiga tækið
sem var verið að flytja suður.
Kári Jónsson framkvæmdastjóri
sagði i gær að rétt væri að ístak
hefði þarna enga sök átt. „Hitt er
annað mál að vaðið sem Vega-
gerðin haföi vísað á var eina 30
metra frá brúnni og alls ekki að-
gengilegt. Þarna urðu engar
skemmdir það best ég fæ séð, það
hrundi aðeins frá stöplum," sagði
Kári í gær. Hann segir að reynt
hafi verið að koma forbrjótnum
yfir brúna en strax hætt við. Síð-
an lögðu menn braut að vaðinu og
fóru þar yfir.
Fundur um fátækt kvenna
UNIFEMheldur morgunfund á
Hótel Loftleiðum klukkan átta í
fyrramálið undir yfirskriftinni
„Fátækt kvenna". Á fundinum
mun Harpa Njáls gera í stuttu
máli grein fyrir rannsóknum
sínum á fátækt á íslandi. Bók eftir
Hörpu er væntanleg á næstunni en
þetta verður í fyrsta sinn sem
Harpa gerir grein fyrir
niðurstöðum sínum. Fundurinn er
haldinn í tilefni þess að á morgun
er dagur Sameinuðu þjóðanna og
ársrit UNIFEM er jafnframt
væntanlegt á morgun.
Bílvelta á Strandavegi
Ökumaður flutningabíls slapp
ómeiddur í bílveltu á Strandavegi
í fyrradag. Að sögn lögreglunnar á
Hólmavík var mikil hálka á vegin-
um þegar slysið varð. Kranabíll
fjarlægði bílinn og loka þurfti veg-
inum i tvær klukkustundir. Bíl-
veltan varð milli Guðlaugsvíkur
og Borga á þjóövegi nr. 61. Bílinn,
sem er lítill flutningabíll, var á
suðurleið.
Umhverfisverðlaun veitt
Sturla Böðv-
arsson sam-
gönguráðherra
veitti Guð-
mundi Tyrf-
ingssyni ehf.
umhverfisverð-
laun Ferða-
málaráðs í lið-
inni viku.
í umhverfisstefnu Guðmundar
Tyrfingssonar er kveðið á um
kröfur um bifreiðar sem ætlað er
að draga úr mengun og lögð er
áhersla á flokkun og endurnýtingu
úrgangs, þar á meðal vélaolíu.
Kveðið er á um að bifreiðastjórar
temji sér umhverfisvænt aksturs-
lag, sýni snyrtimennsku og ástand
bíla sé gott. Annað markmið með
stefnunni varðar notkun á um-
hverfisvænum vörum.
1 rökstuðningi varðandi ákvörð-
unina kom fram mikilvægi þess að
flutningafyrirtæki sýndu viðleitni
til að halda óæskilegum áhrifum á
umhverfið í lágmarki.
-DH/JBP/shs/aþ
NOTAÐAR VINNUVÉLAR
Manitou MC 60 K dísillyftari
2WD, meö húsi, 6,0 tonna
lyftigeta, 90 hö.
Ingvar
Helgason Itf.
VÉLADEILD
Ferskum fiski ekið suður og síðan aftur til Hornafjarðar nokkurra daga gömlum:
Gamall og illa lyktandi fiskur
í pottana í útgerðarbænum
Homfirskar húsmæður sem ekki
eru svo lánsamar að eiga sjómenn í
fjölskyldunni eru afar ósáttar við
það fiskmeti sem matvöruverslanir
á staðnum bjóða upp á. Þar vantar
mikið upp á að verið sé að selja
góða matvöru. Sé ófrosinn fiskur tO
í verslunum, þá kemur hann inn-
pakkaður í neytendaumbúðum frá
Fiskbúð Suðurlands 1-2 sinnum í
viku og finnst mörgum súrt i broti
að fólk sem býr í öílugum útgerðar-
bæ þar sem nýr fiskur kemur í land
i miklu magni geti ekki fengið
fyrsta flokks fisk í matvöruverslun-
um bæjarins.
DV hafði samband við nokkrar
húsmæður á Höfn og voru svör
þeirra öll á einn veg, að ekki væri
hægt að kaupa ófrosinn fisk í búð-
unum því hann væri gamall og Ola
lyktandi, sama hvaða dagstimpiU
væri á honum. Fiskhakkið sögðu
þær enn verra en fiskflökin.
Landsreisa fisksins
Þar sem vitað er að fiski er ekið
frá Homafirði tU Reykjavíkur og
sama fiskinum síöan aftur tU
Hornafjaröar, hafði DV samband
við Fiskmarkaðinn á Höfh þar sem
starfsmenn hans sögðu þetta rétt
vera og þessi fiskur kæmi í verslan-
ir eystra.
Jóhann Þórólfsson hjá Fiskmark-
aðinum sagði að Fiskbúð Suður-
lands fengi fisk frá þeim og það
væri ekki fyrsta flokks fiskurinn
sem þeir bæðu um, tU dæmis hefðu
þeir verið að kaupa núna þriggja
daga gamlan fisk sem síðan ætti eft-
ir að senda með bU tU Reykjavíkur
og þaðan færi hann í pökkun á Sel-
fossi og þá væri hann orðinn a.m.k.
fimm daga gamaU þegar hann kæmi
í verslanir í útgerðarbænum þar
sem honum var landað.
Tvær matvöruverslanir eru á
Höfn, Krónan og 11-11, báðar í eigu
Kaupáss, og þjóna þær sínu hlut-
verki mjög vel ef frá er talið fiskúr-
val og að ekkert kjötborð er í 11-11.
Þær húsmæður sem DV ræddi við
voru sammála um að ástandið væri
mjög leiðigjamt og oft á tíðum óhag-
kvæmt að fá ekkert kjöt nema inn-
pakkað í nokkrum stærðum pakkn-
inga sem oft passa ekki fyrir kaup-
andann. Þær sögöust vona að þar
yrði breyting á og að verslun 11-11
kæmi með kjötborð þar sem við-
skiptavinurinn gæti sjálfur valið úr
það sem hentaði. Einnig kom fram
að almenn ánægja væri með gæði
kjötvöru í báðum verslununum, þar
væri bæði ferskt og frosið kjöt mjög
gott.
Færa okkur fiskinn
Strákarnir á Dögg SF eru hér að koma aö bryggju eftirgott fiskirí. Fiskurinn lendir ekki i potti húsmæöra í piássinu
fyrr en eftir iöng feröalög um landiö, og þá oft nánast ónýtur.
DV-MYNDIR JULIA IMSLAND
Slöpp ýsa á leið til vinnslu „fyrir sunnan"
Jóhann Þórólfsson í Fiskmarkaöi Suöurnesja á Hornafiröi meö glænýja lúöu
og gamla slappa ýsu, sú síöarnefnda er á leiö í Fiskbúö Suöurlands.
Fara til útlanda
Þessar glænýju ýsur sem Jóhann
heldur á eru á leiö til útlanda meö
flugi, en lakari gæöin fara á innan-
iandsmarkaö.
Kaupmenn vilja bæta sig
DV hafði samband við Sævar Ein-
arsson, rekstrarstjóra hjá 11-11, sem
sagði að þeim hjá 11-11 þætti miður
að heyra að gæði á ferskum fiski
hafi brugðist í verslunum þeirra og
segir að 11-11 leggi metnað í að
kaupa kjöt- og fiskafurðir frá fyrir-
tækjum sem vinna þær af fag-
mennsku. Við fognum ábendingu
sem þessari og verður allt gert til að
bæta úr í samráði við framleiðanda.
„Þess má geta,“ segir Sævar, „að
11-11 hefur keypt ferskan pakkaðan
fisk á Homafirði þegar hann hefur
verið boðinn og von er á að svo
muni verða á ný,“ sagði rekstrar-
stjórinn.
„Hvað kjötborð varðar þá eru slík
ekki rekin í 11-11 og mun því miður
ekki geta orðið sökum óhag-
kvæmni, við hins vegar treystum á
og vinnum með öllum helstu fram-
leiðendum kjötvöru við að bjóða
upp á eins gott úrval af pökkuðum
kjötvörum og völ er á,“ segir Sævar
Einarsson.
Mikil og góð breyting varð í versl-
unarmálum Hornfirðinga með til-
komu Krónunnar sem er með sama
vöruverð á Höfn og í Reykjavík. Nú
heyrist fólk ekki lengur tala um að
fara í Bónus þegar farið er til
Reykjavíkur, en það tilheyrði ferð-
inni hjá fjöldamörgum áður en
Krónan var opnuð. -JI
Mjög bágborin lausafjárstaða Hveragerðisbæjar:
Ekki nægjanlega hugað að fjármögnun framkvæmda
Endurskoðun fjárhagsáætlunar
bæjarstjómar Hveragerðis fyrir árið
2002 kemur til umræðu á fundi bæjar-
stjórnar Hverageröis í dag. Lausafjár-
staða bæjarins er mjög bágborin.
Verktakar hafa ekki fengið greidda
reikninga sem gerir stöðu þeirra mjög
bága, bærinn hefur ekki greitt leigu í
marga mánuði, og heldur ekki greitt
elliheimilinu á staðnum fyrir mat sem
það sendir til eldri borgara í bænum.
Orri Hlöðversson bæjarstjóri segir
að mikið hafi verið framkvæmt á síð-
ustu misserum í Hveragerði. Þar megi
nefna grunnskóla, sem lokið var við í
sumar, fráveitumannvirki, eða skolp-
hreinsistöð, sem síar og hreinsar á lif-
rænan hátt allt það skolp sem til henn-
ar berst og bæjarfé-
laginu ber að
hreinsa. Hveragerð-
isbæ ber að reisa
samkvæmt lögmn
slíkt mannvirki og
er það fjárfrekasta
framkvæmd bæjar-
ins. Hún standi
neðan þjóðvegarins
við Varmá. Einnig
hafi bærinn staðið í
mikilli gatnagerð í
innhverfum og það
hafi eðlilega þrengt
mjög lausafjárstöðu bæjarins. Það hafi
orsakað í einhverjum tilfellum drátt á
greiðslu reikninga.
Bæjarstjóri segir
að ekki hafi verið
hugað nógu ræki-
lega að fjármögnun
þessara fram-
kvæmda, ekkert
mál sé fyrir sveit-
arfélög að fá lán í
bönkum. Því hafi
þurft að fjármagna
töluvert út úr
rekstrinum undan-
fama mánuði. Bæj-
arstjóri bendir
ja&framt á að tekj-
ur bæjarins hafi verið að stóraukast
vegna verulegrar íjölgunar íbúa og því
sé tekjuflæði að aukast. En þvi fylgi sú
kvöð að byggja við grunnskólann og
byggja fleiri leikskóla. Gríðarlega mik-
ið er byggt í Hveragerði en nú er ver-
ið að byggja um 100 hús sem er stórt
hlutfall í bæjarfélagi sem er með lið-
lega 500 hús fyrir. í Hveragerði búa nú
um 1.870 manns.
Pálína Sigurjónsdóttir, einn
þriggja bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokks í minnihluta bæjarstjórnar,
segir að fjárhagsstaða bæjarsjóðs sé
mjög erfið og henni sé kunnugt um
að viðskiptavinir bæjarins hafi ekki
fengið greidda reikninga um tíma.
Sýnt þykir að dregiö verði úr opin-
berum framkvæmdum í Hveragerði
meðan unnið er að því að bæta fjár-
hagsstöðuna. -GG
Blómabærinn Hverageröi
Margir vilja búa þar og þar eru um
100 hús í byggingu. Þjónustan er
bæjarfélaginu fjárhagstega erfiö.