Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Síða 10
10
Utlönd
MIÐVDCUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
DV
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiöir (ökutæki)
verða boönar upp viö lögreglu-
stöðina á Raufarhöfn, fimmtu-
daginn 31. október 2002, kl.
11.00:
A7679 (BK-608)
DU-476
NJ-592
NZ-110
R-8779 (HM-312)
X4045 (EA-013)______________
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
UPPBOÐ
Eftirtalin bifreiö veröur boöin
upp viö lögreglustööina á Þórs-
höfn fimmtudaginn 31. október
2002, kl. 14.00:
MR-098__________________
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
UPPBOÐ
Eftirtaldir munir verða boönir
upp við lögreglustöðina á Rauf-
arhöfn fimmtudaginn 31. októ-
ber 2002, kl. 11.00:
Beltavél, CAT 225, árg. 1978; krani,
Loren 416, árg. 1962; krani, P&H T300,
árg. 1971; vinnuvél, Case 580 K, árg.
1990; vinnuvél, EH-055, Case 580 K,
árg. 1993, og vökvahamar, Furukama
HB5G, árg. 1996.__________
Ávísanir ekki teknar gildar sem
greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
UPPBOÐ
Eftirtaliö ökutæki verður boðið
upp við lögreglustöðina á Húsa-
vík föstudaginn 1. nóvember
2002, kl. 14.00:
BZ-89___________________
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
UPPBOÐ
Eftirtaldir munir verða boðnir
upp við lögreglustöðina á Húsa-
vík föstudaginn 1. nóvember
2002 kl. 14.00:
1 loftpressa Polaris 380 1759, tví-
þrepa; 1 loftpressa, Polaris 440 1746,
tvíþrepa; 1 loftþrýstipressa, Leyland
300 bar 117991; 1 rafstöð - Robin
Subaru 6,5 kw, 3 fasa 16601; 10 eitur-
kútar - þrýsti Dupont; 12 sett spíssar
og byssur til svælinga (ónúmerað); 2
sett eiturköfunarkútar - Mangawel
35306-91887; 2 sett lungu til eiturköf-
unar - Dupont 22111911; 2 stk. eitur-
efnagalla f. eiturgufur, Trelleborg; 25
eiturefnakútar - þrýsti Mesto; 25 stk.
gildrur fyrir villiketti og minka, búr
Knes; 300 metra slöngur og tengi fyrir
lágþrýsting; 80 metra slöngur og tengi
fyrir háþrýsting; eiturefnageymir -
Kverner L-167740H; eiturefnageymir-
Kverner M-31004; gildrur fyrir varg-
fuglaeyðingu 1-4, og lungu til eiturköf-
unar - Spiro 1699753.
Ávísanir ekki teknar gildar sem
greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
Leyniskyttan skaut þrettánda fórnarlambið til bana í gær:
Börnin ykkar ekki óhult,
hvar og hvænær sem er
- segir leyniskyttan í skilaboðum til lögreglunnar
„Börnin ykkar eru ekki örugg,
hvenær og hvar sem er,“ segir í skila-
boðum sem leyniskyttan skildi eftir
sig á árásarstað á laugardagskvöldið,
þegar hann særði 37 ára gamlan karl-
mann hættulega þar sem hann var
ásamt konu sinni á leið út úr veitinga-
húsinu í bænum Ashland i Hannover-
sýslu um 110 kílómetra suður af Was-
hington.
Þetta kom fram á fréttamannafundi
sem lögreglan í Mongomery-sýslu,
sem fer með stjórn rannsóknarinnar,
boðaði til í gær eftir að skyttan hafði
enn einu sinni látið til skarar skríða i
gærmorgun en þá særði hún 35 ára
gamlan strætisvagnastjóra, Conrad
Johnson, banvænu skoti í brjóstið,
þar sem vagninn stóð á biðstöð við
Connecticut-stræti á Aspen-Hill svæð-
ini í Montgomery-sýslu um 25 kiló-
metra norður af Washington.
Johnson stóð í tröppum vagnsins
þegar hann fékk skotið í sig um
klukkan sex að staðartíma og var
hann þegar íluttur meö sjúkraþyrlu
til nálægs sjúkrahúss í bænum
Af vettvangi í gær.
Bethesda þar sem hann lést nokkrum
stundum síðar.
Johnson er þrettánda fómarlamb
leyniskyttunnar en af þeim hafa tiu
látist en þrjú særst alvarlega. Eins og
oft áður lætur skyttan til skarar
skríða við fjölfarmn aðalveg til að
auðvelda sér undankomuna en árásar-
staðurinn í gær er í nágrenni þeirra
sex fyrstu.
Á fréttamannafundinum í gær las
Charles Moose, yfirmaður lögreglunn-
ar í Montgomery-sýslu, hluta af skila-
boðum leyniskyttunnar en gat þó ekki
staðfest að árásin í gær væri hans
verk þar sem ennþá væri verið að
rannsaka málið.
Bandaríska dagblaðið Washington
Post sagði frá því í óstaðfestum frétt-
um í morgun að leyniskyttan hefði
einnig hótað yfirvöldum því að ef þau
leggðu ekki tiu milljónir dollara inn á
ákveðinn bankareikning innan
tveggja daga þá tækju þau afleiðing-
unum með fleiri morðum. I skilaboð-
unum hafa einnig komið fram reiði
skyttunnar yfir því að lögreglan hafi
hunsað sex símtöl sín.
Moose notaði tækifærið til þess að
tala beint til skyttunnar og sagði að
lögreglan væri að skoða beiðni hans.
„Við höfum skoðað tilboð þitt og kom-
ist að þeirri niðurstöðu að það sé
tæknilega ekki framkvæmanlegt. Þú
segir þetta snúast um meira en of-
beldi. Hafðu því strax samband við
okkur áður en þú meiðir fleiri," sagði
Moose.
RETURSWVND
Skjaldbaka í langferö
Þessi sex ára gamla sjávarskjaldbaka, sem ber nafnib Odysseus, er i þann veginn aö halda upþ i tilraunaleiöangur frá SUW-
sjávarlífsstofnuninni í Singapore en tiigangur tilraunarinnar, sem gerö er i samvinnu viö sædýrasafnið í borginni Nagoya i Japan, er
aö sannreyna hvort bakan muni hjálparlaust eftir fímm ára dvöl i Singapore rata aftur um 5000 kíiómetra leiö til uppeldisstöðva
sinna í Nagoya, þar sem hún er borin og barnfædd. Vísindamenn munu fylgjast meö bökunni um sendibúnaö sem límdur hefur
veriö á bak henni og er ætlaö aö feröin taka tvær vikur.
Franskur dómstóll staðfestir tjáningarfrelsið:
Frægur höfundur sýknaður af
ákæru um að móðga múslíma
Franskur dómstóll sýknaði I gær
rithöfundinn Michel Houellebecq af
ákæru um að kynda undir kynþátta-
hatri í Frakklandi með því að kalla
íslamstrú „heimskustu trúarbrögð-
in“ sem til eru.
Samtök íslamstrúarmanna og
frönsk mannréttindasamtök höfðu
stefnt rithöfundinum fyrir ummæl-
in sem hann lét falla í blaðaviðtali.
Málið þykir minna óþyrmilega á
mál breska rithöfundarins Salmans
Rushdies sem klerkastjómin I íran
dæmdi til dauða fyrir það sem
henni fannst vera móðganir í garð
íslamstrúarinnar.
„Að skrifa að íslam sé heimsku-
legustu trúarbrögðin jafngildir alls
ekki því að fullyrða eða að gefa í
skyn að dæma ætti alla múslíma
sem slíka. í þessari yfirlýsingu felst
ekki nem vísvitandi móðgun, fyrir-
Ekki laus enn þrátt fyrir sýknu
Franski rithöfundurinn Michel Hou-
ellebecq var sýknaöur af ákæru um
aö hafa móögaö múslíma. Stefnend-
ur ætla aö áfrýja dómnum.
litning eða hneykslun í garð hóps-
ins sem um ræðir,“ sögðu þrir dóm-
arar í úrskurði sínum.
Tímaritið Lire, sem birti orð Hou-
ellebecqs skömmu fyrir hryðju-
verkaárásirnar 11. september í
fyrra, var einnig sýknað í þessu
máli þar sem takast á tjáningar-
frelsið og trúarleg viðkvæmni.
Stefnendur ætla að áfrýja.
Houellebecq sagði við málflutn-
inginn í síöasta mánuði að gagnrýni
á ein trúarbrögð jafngilti ekki gagn-
rýni á þá sem þau aðhyllast.
Houellebecq lét hin móðgandi orð
falla í viðtali um bók sina
Plateforme þar sem aðalsöguhetj-
unni er illa við múslíma eftir að
unnusta hans lætur lífið í árás ís-
lamskra harðlínumanna á ferða-
mannastað á Taílandi. Bókin mun
væntanleg í íslenskri þýðingu.
bjartsýnn
Jiang Zemin
Kínaforseti gerir
sér vonir um að
bæta samskiptin
við Bandaríkin í
heimsókn sinni til
Georges W. Bush.
Forsetarnir munu
ræða heimsins
gagn og nauðsynjar á búgarði Bush
í Texas. Búist er við að vel fari á
með þeim, þótt þeir séu ósammála
um margt, svo sem íraksmálið.
Ræningjar í steininn
Sex ungir menn voru dæmdir til
langrar fangelsisvistar í Eystri
landsrétti í Kaupmannahöfn í gær
fyrir að ræna tvo peningaflutninga-
bíla og hafa á brott með sér um hálf-
an milljarð íslenskra króna.
Hergögn seld til íraks
Gæsluliðar NATO hafa komist yf-
ir sannanir um að serbneskt fyrir-
tæki í Bosniu hafi selt hergögn til
íraks, fyrir milligöngu júgóslav-
nesks fyrirtækis.
Þrír grunaðir á Balí
Teikningar hafa verið gerðar af
þremur indónesískum karlmönnum
sem grunaðir eru um sprengjutil-
ræðið á Balí fyrir rúmri viku þar
sem hátt í tvö hundruð létust.
Áhyggjur af talíbönum
Ráðamenn í Afganistan hafa
þungar áhyggjur af því að velgengni
harðlmumúslíma í kosningunum í
Pakistan verði til þess að endur-
vekja hugsjónir talíbana og grafa
undan stjómvöldum.
Bush með viðskiptunum
Á meðan George
W. Bush Banda-
ríkjaforseti sat í
stjóm orkufyrir-
tækisins Harken
fyrir meira en tíu
árum átti Harken í
flóknum viðskipt-
um við orkusölufyr-
irtækið Enron sem varð gjaldþrota í
mikilli svikamyllu í desember á síð-
asta ári. Enron styrkti kosningabar-
áttu Bush rausnarlega.
Kóreuríkin leita samnings
Kóreuríkin tvö urðu sammála um
það í morgun að leita friðsamlegrar
lausnar á kjamorkuvopnaáætlun
norðanmanna.
Kínaforseti
Robertson viil hertækni
George Robert-
son, framkvæmda-
stjóri NATO, sagði í
gær að Bandaríkja-
menn yrðu að veita
evrópskum banda-
mönnum sínum
aukinn aðgang að
hernaðartækni til
að brúa bilið sem er milli herja
þessara tveggja fylkinga í NATO.
Júgarnir skammaðir
Carla Del Ponte, aðalsaksóknari
striðsglæpadómstóls SÞ, skammaði
stjómvöld í Júgóslavíu í gær fyrir
að hafa ekki haft hendur í hári
stríðsglæpamannsins Mladics.
Villt um fyrir Karli
Breska lögreglan var í gær sökuð
um að hafa villt um fyrir Karli
Bretaprins og Vilhjálmi syni hans í
rannsókn sinni á fyrrum bryta
Díönu prinsessu, að því er fram
kom við réttarhöldin yfir brytanum.