Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Page 16
16
MIÐVEKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
Skoðun
17
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Mjalti Jónsson
Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Skaftahlíð 24, 105 Rvik, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Einelti er þjóðarvandi
Einelti tekur á sig ýmsar
myndir og sumir hafa hrein-
lega ekki gert sér grein fyrir
hvers konar böli þeir hafa orð-
ið fyrir, að sögn Stefáns Karls
Stefánssonar leikara í gær en
barátta hans undanfarin miss-
eri gegn einelti hefur vakið
þjóðarathygli. Þessi orð Stefáns
voru viðbrögð við eftirtektar-
verðri skoðanakönnun DV sem
birt var í gær en hún sýnir í hnotskurn þann vanda sem
Stefán Karl hefur vakið svo eftirminnilega athygli á.
í skoðanakönnuninni, sem var 600 manna með jafnri
skiptingu milli höfuðborgar og landsbyggðar og kynja, var
spurt: Hefur þú eða einhver á heimili þínu orðið fyrir ein-
elti? Af þeim sem afstöðu tóku í könnuninni svöruðu 32 pró-
sent spurningunni játandi en 68 prósent sögðu nei. Athyglis-
vert var að rúmlega 96 prósent þátttakenda í skoðanakönn-
uninni tóku afstöðu en það er afar hátt hlutfall og kann að
endurspegla þann árangur sem orðið hefur af umræðunni
um einelti.
Börn verða fyrir einelti, eru tekin fyrir af öðrum börnum,
lifa í ótta sem þau geta jafnvel ekki sagt frá. Þær sálarkval-
ir geta haft varanleg áhrif. Einelti er hins vegar ekki aðeins
bundið við börn eða unglinga. Frá því var greint í skýrslu
sem kom út á vegum rannsókna- og heilbrigðisdeildar
Vinnueftirlitsins fyrr í þessum mánuði að um 8 prósent
starfsmanna í útibúum banka og sparisjóða hér á landi
hefðu orðið fyrir einelti í tengslum við starfið.
Könnunin sýnir að vandinn, sem þar til nýlega var að
miklu leyti dulinn, er mikill. Um þriðjungur íslenskra heim-
ila hefur orðið fyrir barðinu á einelti. Það er hátt hlutfall en
kemur Stefáni Karli þó ekki á óvart. Hann dæmir út frá
reynslu sinni og segir hlutfallið í könnuninni nálægt raun-
veruleikanum, örugglega ekki of hátt. Undir það tekur
Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur. Hann segir að þótt talan sé há geti hún passað
miðað við þau sterku viðbrögð sem félagið fékk við herferð
gegn einelti á vinnustöðum.
Einelti er ofbeldi. Það getur verið líkamlegt en ekki síður
andlegt og oftar en ekki einna miskunnarlausast á unglings-
árum. Óttinn ræður ríkjum. Kvalarinn eða kvalararnir gefa
sér ástæður og níðast á fórnarlambinu, stundum með skelfi-
legum afleiðingum. Stefán Karl, dáður af samfélaginu fyrir
hæfileika sem afbragðsleikari, gekk fram fyrir skjöldu, sjálf-
ur fórnarlamb eineltis. Hann hefur lýst skelfingunni sem
fylgir. Nú vita þeir sem í lenda að þeir eru ekki einir. Þá eru
meiri likur til þess að þeir rjúfi einangrun sína og leiti sér
aðstoðar. Þar þurfa foreldrar að standa þétt með börnum sín-
um, kennarar og aðrir sem að uppeldismálum koma. Stefán
Karl Stefánsson er aðalhvatamaður að stofnun Regnboga-
barna, samtaka sem er ætlað að berjast gegn einelti. Þau
samtök hafa fengið góðan hljómgrunn og fyrirheit um
styrki, meðal annars frá stórfyrirtækjum.
Framtaki Stefáns Karls hefur áður verið hrósað í leiðara
DV og það að verðleikum. Það er aðdáunarvert þegar ein-
staklingar ganga fram fyrir skjöldu og berjast fyrir rétti ann-
arra, vekja athygli á þjóðarmeini sem þarf að uppræta. Fyr-
irlestrar leikarans góðkunna um einelti hafa vakið fólk til
umhugsunar. Umræða fór af stað í samfélaginu. Hann lét
heldur ekki sitja við orðin tóm. Aögerðir fylgdu í kjölfar
vakningarinnar.
Vegna þessarar þörfu umræðu kannaði DV umfang einelt-
is hér á landi. Niðurstaðan var sláandi. Einelti er ekki ein-
angrað fyrirbrigði sem snertir fáa einstaklinga heldur þriðj-
ung heimila í landinu. Það var því tímabært að taka á vand-
anum.
Jónas Haraldsson
Hefur þú eða einhver á heimili
þínu orðib fyrir elnelti?
DV
Að kanna hug manna til ESB
„Umsókn er eindreginn ásetningur um að fara inn í
ESB með öllu því afsali á vilja og möguleikum á að
taka með sjálfstœðum hœtti ákvarðanir um líf og
framtíð þjóðar sem inngöngu fylgir. Umsókn leggur
enginn fram nema hann œtli sér að ná
aðildarsamningi. “
Við búum við mikla oftrú á
skoðanakönnunum: menn
skyldu gá betur að því að
niðurstöðum þeirra ræður í
lygilega miklum mæli hvað
það var sem þeir vildu
helst heyra sem efndu til
könnunar.
Það er haft eftir ágætum forstjóra
skoðanakannanafyrirtækis í Bret-
landi að hann treysti sér vel til að
búa til tvær óaðfinnanlegar skoðana-
kannir um afstöðu almennings til
kjamorkuvera. Og mundi önnur
sýna að Bretar væru hliðhollir raf-
orkuframleiðslu í kjamorkuveri en
hin að þeir væm henni andvígir -
allt eftir því hvort það væri orkuiðn-
aðurinn eða umhverfisvemdarmenn
sem pöntuðu könnunina og hefðu
þar með sín áhrif á það hvemig
spumingar voru orðaðar.
Spurningar ráða
Þessi ummæli skjótast upp í hug-
ann hvenær sem verið er að spyrja
fleiri eða færri íslendinga um það
hvort þeir vilji ganga í Evrópusam-
bandið. Niðurstaðan fer einkum eftir
því hvemig spumingamar em lagð-
ar upp. Ef menn halda því mest á
lofti að íslendingar geti éti kjúklinga-
lappir á „Evrópuverði" eins og Jón
Baldvin bauð mönnum upp á á sin-
um tíma, eða einhverjum hliöstæð-
um munaði, þá aukast vinsældir
Evrópusambandsins að miklum
mun. Ef svo Davíð Oddsson lætur
spyrja um það hvort íslendingar vilji
borga með sér kannski 10-12 millj-
arða á ári til að vera með þá hrapar
áhugi á aðild að ESB niður úr öllu
valdi. Og svo framvegis.
Togað í eina átt
Samfylkingin er nú að vasast i
þessum leik. Hún efnir til póstkosn-
inga um afstöðu síns fólks til ESB og
sú spuming sem þar er lögð fram ber
því fyrst og fremst vitni að það stend-
ur til að toga sem allra flesta til sam-
þykkis við umsóknaraðild. Ætlast er
til að menn segi já eða nei við eftir-
farandi spumingu: „Á það að vera
stefna Samfylkingarinnar að íslend-
ingar skilgreini samningsmarkmið
sin, fari fram á viðræður um aðild að
Evrópusambandinu og að hugsanleg-
ur samningur verði síðan lagður fyr-
ir þjóðina til samþykktar eða synjun-
ar?“
Þeir sem spuminguna hanna ætla
sér vitanlega að fá fram stuðning við
það sem felst í henni miöri: að sótt sé
um aðild. En til að brjóta niður alla
fyrirvara sem menn kynnu að hafa
er miðjunni pakkað inn í loðnar og
fallegar umbúðir. Tónninn er gefinn
í byrjun: getur nokkur verið svo of-
stopafullur Evrópuandstæðingur að
hann láti það á sig sannast að hann
vilji ekki að „íslendingar skilgreini
samningsmarkmið sín“? Líklega
mjög erfitt að fmna slíkan gaur. Síð-
an er allur háski skafmn af þeirri
veigamiklu ákvörðun sem felst í
miðjuspurningunni með því að
spyrja strax á eftir hvort menn ætlist
ekki til þess að hugsanlegur samn-
ingur um aðild að ESB komi til þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
í rauninni er alveg óþarft að
spyrja um þetta, vegna þess að eitt af
því fáa sem allir eru sammála um nú
þegar er að íslendingar yrðu, stjóm-
arskrár sinnar vegna, að setja aðild-
arsamning að ESB í dóm þjóðarat-
kvæðagreiðslu. En þessi bandspotti
er samt hafður með - til þess að
tryggja það enn betur að í þessari
„könnun“ segi já, ekki aðeins þeir
sem beinlínis fýsir í ESB, heldur og
allir vafagemlingar lika, og þar með
telur flokksforystan sig hafa fengið
mjög eindregna blessun til að halda
áfram á sinni braut.
Kjóstu nú, Adam!
Hér kemst það alls ekki að að um-
sókn að ESB-aðild er ekki skreppitúr
á útsölu þar sem menn eru að athuga
að gamni sínu hvaða verð er í boði í
dag. Umsókn er eindreginn ásetning-
ur um að fara inn í ESB með öllu því
afsali á vilja og möguleikum á að
taka með sjálfstæðum hætti ákvarð-
anir um líf og framtíð þjóðar sem
inngöngu fylgir. Umsókn leggur eng-
inn fram nema hann ætli sér að ná
aðildarsamningi. Sem verður svo
lagður fyrir þjóðina sem fyrr segir:
og það gætu orðið síðustu kosningar
sem verulegu máli skipta í þessu
landi. Því eins og dæmi sanna, þá er
það mikill leikur í Evrópu að bregða
á leik með hugtakið kosningar. Sagt
er við þær þjóðir sem þrátt fyrir
geipilega þungan þrýsting frá flest-
um áhrifamönnum í pólitík og efna-
hagsmálum hafa fellt einhverja
áfanga í Evrópusamrunanum í kosn-
ingum, að þeim sé að vísu frjálst að
kjósa eins og þeim sýnist. En þær
skuli fá að kjósa aftur þangað til rétt
niðurstaða fæst.
Þessi leikur minnir á gamla rúss-
neska skrýtlu sem segir að kosninga-
fyrirkomulagið í Sovétríkjunum
gömlu hafi verið fundið upp í árdaga
í aldingarðinum Eden. Drottinn kom
til Adams með Evu sér við hlið og
sagði við hann: Sjáðu, héma er ég
kominn með konu handa þér. Kjóstu
nú.
Sandkom
Rithöfundur í stjómar-
ráði
Nokkuð hefur verið rætt manna á
milli um meintan fund Davíðs
Oddssonar og Hallgríms Helgason-
ar í kjölfar greinar Hallgríms um
Bláu höndina sem birtist í Morgun-
blaðinu fyrir nokkrum vikum. Sög-
um bar ekki saman um hvort rit-
höfundurinn hefði mætt til fundar við forsætisráð-
herrann í stjórnarráðinu. í viðtali við nafna sinn
Thorsteinsson á Útvarpi Sögu staðfesti Hallgrímur að
hann hefði fengið boð frá forsætisráðherra um að
mæta i stjómarráðið. í viðtalinu vildi rithöfundur-
inn ekki upplýsa hvað þeim Davíö hefði farið á milli
og sagðist hafa fyrir venju að vitna ekki í einkasam-
töl. Hins vegar vakti athygli hversu Hallgrímur var
harðorður þegar hann ræddi um stjórnunarhætti
Daviðs Oddssonar. Menn velta þvi nú fyrir sér hvort
Hallgrímur verði boðaður á annan fund í stjórnar-
ráðinu ...
Ummæli
Ögurstund
„Framleiðsla sements á Akranesi er afar hagkvæm
starfsemi fyrir þjóðfélagið. Verksmiðjan notar innlent
vinnuafl, innlenda orku og að langmestu leyti innlent
hráefni. íslenskari framleiðsla er því tæplega til. Á
jafnræðisgrundvelli á framleiðslan að geta staðið af sér
samkeppni, en hún verður að fá tækifæri til þess. Nú
líður að ögurstund varöandi framtíð verksmiðjunnar -
því eru ráöherra, þingmenn og aörir þeir sem vettlingi
geta valdið kallaðir til stuðnings."
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, á Akranes.is
Spurningar og svör
..spumingar vakna um skyldur þeirra yfirvalda,
sem eiga að fylgjast með fjármálaumsýslu fyrirtækja á
vegum sveitarfélaga, þegar litið er til viðskipta Orku-
veitu Reykjavíkur og Línu.nets. Þegar spumingar
vöknuðu vegna úrsagnar Steingríms Ara Arasonar úr
einkavæðingamefnd vegna sölu ríkisbankanna, vísaði
ríkisstjómin málinu til ríkisendurskoðunar til að fá
sandkorn@dv.is
Heilbrigðisráðherra
hvetur landsliðið
Guðni landbúnaðarráðherra var
fenginn til að peppa upp stuönings-
menn íslenska landsliðsins sem
mættu vel fyrirkallaðir í síðustu
viku og hvöttu sínu menn í leiknum
gegn landsliði Litháens, sem einu
sinni hét Lithaugaland í íslenskum
landafræðibókum. Guðni mætti í Holiday Inn og tókst
vel upp. Hann á létt með aö hvetja til góðra verka og
mætti undirbúinn til hvatningarinnar. Meðal annars
hafði hann skorað á Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra að láta eitthvað af hendi rakna til að brýna land-
ann. Landbúnaðarráðherra mætti því með þessa vísu
Jóns til samkvæmisins:
Farið í kringum fagran hnöttinn
fílefldir meö þrekið sanna.
Drengir, látiö djöfuls knöttinn
dynja á marki Litháanna.
mat hlutlauss aðila. Ég hef ekki orðið var við, að R-
listinn í Reykjavík sýni nokkra tilburöi til þess, að
hlutlaus aðili verði fenginn til að fara yfir fjárfestingar
og ráðstafanir í nafni Orkuveitu Reykjavíkur vegna
Línu.nets til að fá hlutlægt mat á fjárfestingunum og
töku ákvarðana um þær.“ Björn Bjarnason á vef sínum
Undir smásjánni
„Ekki er langt síðan Davíð Oddsson sagði í ein-
hverju drottningarviðtalanna að mikilvægt væri að
tryggja dreifða eignaraðild við sölu ríkisbankanna. ...
Greinilega er iitið að marka orð forsætisráðherra í
þessu efni nú þegar á einu bretti er seldur nær helm-
ings eignarhluti Landsbankans til eins og sama aðila.
Grannt verður fylgst með hvemig nýir eigendur reka
bankann. 1 því sambandi er yfirlýsing forsvarsmanna
Samsons afar þýðingarmikil um að eigendum félagsins
sé ljós sú mikla ábyrgð sem fylgi forystu í Landsbanka
íslands, sem veiti tugþúsundum íslendinga mikilvæga
þjónustu." Jóhanna Siguröardóttir á vef sínum
Árátta,
llmvötn á konum og
rakspírar á körlum
kveikja í hinu gagnstæða
kyni og styrkja fegurð
þeirra persóna sem þann
angan bera. Á hinn bóg-
inn þykir fiskilykt, fjósa-
lykt og svitalykt hvim-
leið. Enda ber sú lykt
þess vitni að viðkomandi
hafi verið að vinna, sem
telst ekki vera mjög
kynæsandi.
Kynæsandi teljast aftur á móti
smávaxnar stúlkur úr módel- og
dansbransanum sem em svo veik-
byggðar að maður myndi ekki
treysta þeim til að halda á svo mikið
sem blýanti, en það þykir auka á list-
rænuna þótt þær séu oftar bara lyst-
rændar. Þessi úrkynjun er að sjálf-
sögðu ekki bundin við karlþjóðina.
Árangur erfiðisins
Vöðvastæltir menn em almennt
álitnir augnayndi kvenna. En það á
ekki við um vöðva sem hafa orðið til
Tökum þátt í Evrópukosningunni
Katrín Júlíusdóttir
varaformaöur fram-
kvæmdastjórnar Sam-
fylkingarinnar
Um þessar mundir stend-
ur yfir Evrópukosning
Samfylkingarinnar. Henni
lýkur í vikunni og svar-
seðlar þurfa að hafa
borist fyrir klukkan 17 á
föstudaginn á skrifstofu
Samfyikingarinnar í Aust-
urstræti.
Allir skráðir félagar hafa fengið
sendan atkvæðaseðil heim. Það eina
sem þeir þurfa að gera er að merkja
við seðilinn I þeim reit sem tjáir af-
stöðu þeirra, setja seðilinn í ófrí-
merkt umslag sem fylgir og láta í
næsta póstkassa. .
Stærsta málið
„Vond vinnubrögð sem eru að ganga af stjómmálastarfinu dauðu og löngu kom-
inn tími til að breyta því. - Það gerir Samfylkingin og stígur þannig stórt skref í
rétta átt til lýðrœðisvæðingar innra starfs flokksins. “ - Kosningavaka hjá Sam-
fylkingunni
Evrópumálið er eitt stærsta málið
sem uppi er í umræðu samtímans.
Stjómmálaflokkum ber borgaraleg
skylda tO aö efla opna og upplýsta
umræðu um tengsl okkar við Evr-
ópu. Það hefur Samfylkingin gert
svikalaust. Síðustu vikumar hafa
næstum fjörutíu fundir verið haldn-
ir þar sem kostir og gallar hugsan-
legrar aðildar voru ræddir og reifað-
ir. Bæði flokksmönnum og borgur-
um landsins hefur verið kynnt hvað
í aðild geti falist. Svanfríður Jónas-
dóttir alþingismaður fór fyrir ferl-
inu og á hún heiður skilinn fyrir þá
afbragðs vinnu sem hún innti af
hendi.
Flokksmenn fá að ráða
Sú aðferð, að leyfa flokksmönnum
að hafa með þessum hætti bein áhrif
á ákvörðun í mikilvægu máli sem
varðar þjóðarhag, er vonandi leið
sem islenskir stjórnmálaflokkar
temja sér í ríkari mæli. Samfylking-
in er hér að brjóta í blað í íslensku
flokkastarfi og má vera stolt af
þeirri tilraun.
Evrópukosningunni lýkur um
næstu helgi og ég skora á flokks-
menn að skila seðlunum á réttum
tima og taka þannig þátt í þessu lýð-
ræðislega ferli.
Með því að félagsmenn í stjóm-
málaflokki taki slíkar ákvaðanir er
jafnframt kominn tilgangur til að
taka þátt i starfi þeirra. Enda hefur
fjöldi fólks gengið til liðs við flokk-
inn að undanfomu til að hafa sitt að
segja um afstöðu Samfylkingarinnar
til Evrópumálanna.
Þessi aðferð er vissulega nýstár-
leg og ekkert skrýtið að hún sé um-
deild. Nýjungar era alltaf umdeild-
ar. Ég lit svo á að hér sé á ferðinni
róttæk og kjarkmikil framþróun í
flokkslýðræðinu sem fram að þessu
hefur veriö býsna frumstætt og af
skornum skammti. Hefðin í gömlu
flokkunum er sú að klíkur og flokks-
eigendafélög fara með ferðina. Vond
vinnubrögð sem eru að ganga af
stjómmálastarfinu dauðu og löngu
kominn tími til að breyta því. - Þaö
gerir Samfylkingin og stígur þannig
stórt skref í rétta átt til lýðræði-
svæðingar innra starfs flokksins.
Þjóðaratkvæöagreiðsla
Það eru skiptar skoðanir um hvað
aðild hefði í för með sér. Svo virðist
sem það sé einkum skoðanamunur á
hvort aðild að Evrópusambandinu
leiddi til að við myndum missa yfir-
ráð yfir auðlindum í hafi. Ég átti
kost á að grandskoða það þegar ég
tók þátt í því með Ágústi Ó. Ágústs-
syni, formanni Ungra jafnaðar-
manna, að skrifa sjávarútvegskafl-
ann í Evrópubók Samfylkingarinn-
ar. Mín niðurstaða var að það væru
engar líkur á við misstum yfirráðin
yfir fiskimiðunum.
Aðrir eru hins vegar annarrar
skoðunar. Eina leiðin til að ganga úr
skugga um hvaða sjónarmið er hið
rétta er að skilgreina samnings-
markmið út frá ýtrustu hagsmunum
íslendinga, sækja um aðild í fullri
alvöru og láta svo þjóðina greiða at-
kvæði um niðurstööuna í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki
leyfa umræðu um Evrópumálið.
Honum er í mun að loka umræðuna
inni í reykfylltum herbergjum. En
af hverju eiga Davið Oddsson og fé-
lagar að ráða þessu einir? Allir vita
að ástandiö á lýöræðinu í Sjálfstæð-
isflokknum stappar nærri einræði
og raddir um Evrópusambandsaðild
eru þaggaðar niður með hörkunni.
Förum leið Samfylkingarinnar sem
er leið lýðræðisins, þar sem fólkið
fær aö ráða. Ég hvet fólk til að taka
þátt í póstkosningu Samfylkingar-
innar um stefnu í Evrópumálinu. -
Henni lýkur á fostudaginn kemur.
dýrgripir og öruggt líf
við vinnu. Því þeir vaxa í ójafhar átt-
ir og ófagrar línur. Sem stafar af því
að líkamleg vinna getur haft einhæft
álag á vöðvana. Engu að síður er
hinn vinnandi maður ánægður með
afrakstur dagsins, á vinnustað em
gerbreyttar aðstæður eftir átökin,
hvort sem um er að ræða grafinn
skurð, gangvirkan bíl eða nokkur
tonn af fiski i lestinni sem var áður
tóm. í líkamsræktarstöðvum em
vöðvamir byggðir upp með skipu-
legu álagi til að ná fagurfræðilegum
línum á líkamann. En sá sem stund-
ar líkamsrækt er ekki síður ánægður
með árangur erfiðisins en hinn vinn-
andi maður.
Hann kom að tækjum með lóðin
niðri, lyfti þeim upp og niður í tvo
tíma og yfirgaf síðan salinn við sömu
aðstæður og þegar komið var í hann.
Það fróðlega er, að sá sem var að
vinna við að grafa skurð er líklegri
til að teljast ónáttúrulegur nú á dög-
um þar sem hann raskaði náttúrunni
heldur en sá sem borgaði fyrir að
lyfta lóðum upp og niður og raskaði
engu í líkamsræktarstöðinni. Flestir
njóta þess að horfa á óbeislaða nátt-
úmna en að sjá einhverja beisla hana
getur vakið þvílíka andúð nú á dög-
um að menn em tilbúnir til að leggja
allt í sölumar til að stöðva það.
Rusliö og dýrgripirnir
Óbeisluð getur náttúran vakið með
okkur lotningu (sem okkur skortir
svo sárlega á þessum guðlausu tím-
um), það nægir okkur að horfa á
mýkt árinnar sem þvingar björg
áfram í ógnarkrafti sínum og hvem-
ig mosi og blóm brjóta sér leið til lífs
á eyðilandi. En ef minnst er á að
„Oft er hlutaðeigandi gert að hreinsa eftir sig. Samt
þökkum við Guði fyrir að Rómverjar og Grikkir hafi
ekki hreinsað upp eftir sig allt ruslið. Og flest það rusl
sem menningarþjóðir hafa skilið eftir sig. “
breyta farvegi áa eða að byggja her-
stöð, virkjun eða verstöð á mosa og
blómum verður fjandinn laus. Og ef
menn yfirgefa ver- eða herstöð er lit-
ið á það sem þeir skilja eftir sig sem
rusl.
Og oft er hlutaðeigandi gert að
hreinsa eftir sig. Samt þökkum við
Guði fyrir að Rómverjar og Grikkir
hafi ekki hreinsað upp eftir sig allt
mslið. Og flest það msl sem menn-
ingarþjóðir hafa skilið eftir sig.
En þótt staðnaðar skoðanir þeirra
og þjóðfélagsbygging, sem var svo illa
móttækileg fyrir áhrifum að hún
breyttist ekki í þúsund ár (indíánam-
ir sem vikingar lentu í átökum við
lifðu nánast við sömu aðstæður og
þeir indíánar sem Bandaríkjamenn
brytjuðu niður á 19. öld) hafi um
margt verið mjög áhugaverð og njóti
mikillar aðdáunar sumra umhverfis-
vemdarsinna, þá er hún ekki flokkuð
sem mikil menningarþjóð í sögunni.
Árátta og öruggara líf
Það má vel vera að fólk sem stund-
ar líkamsrækt skilji ekki eftir sig
msl þegar það gengm- á brott. Og þótt
mér finnist, eins og mörgum, vel
ræktaðir vöðvar þeirra fallegir, ilm-
vötn geta laðað mig að konum og
sjáifur nota ég rakspíra, þá get ég vel
fyrirgefið fólki sem angar af svitalykt
við að byggja eða grafa. Því þótt þaö
stórsjái oft á því svæði sem ég áður
unni þess að horfa á, þá veit ég að
vegna þessarar áráttu okkar lifi ég
ömggara lifi en forfeður okkar og hef
úr þúsund að velja með hvað ég geri
með líf mitt. - Og ég myndi gjaman
vilja að það fólk sem á eftir að koma
í heiminn hafi það enn betra.