Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Qupperneq 19
19 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002 DV Tilvera - lífifl • Leik hú s MNemendaleikhúsið • F yrirlestrar Kl. 20 ver&ur Nemendaleikhúsi& með sýningu í Smiðjunni. Sölvhólsgötu 13. Leikritiö heitir Skýfall og er eftir spænska leikskáldiö Sergie Belbel. Það eru nemendur á 4. ári leiklistardeildar Listaháskólans sem standa að sýningunni en leikstjóri er Egill Heiðar Anton Pálsson. Sími miðasölu er 5521971. Verkiö Qallar um nokkra starfsmenn í alþjóðlegu stórfyrirtæki þar sem strangt reykingarþann ríkir. Atþurðarásin á sér öll stað á þaki fýrirtækissins en þangað laumast allir til þess að reykja. ■Sellófon Milli kl. 12 og 13 mun Sigurlína Davíösdóttir kynna rannsóknarniöurstöður sínar um líðan fikla. Sigurlína stendur nú að rannsókn í samvinnu við Heilsustofnun NLFÍ , þar sem þetta efni var skoðað meðal annars. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 101 í Odda. ■Sellófon Sellófon er kærkomin innsýn inn f daglegt líf Elínar sem hefur tekið að sér það hlutverk í Iff- inu að halda öllum hamingjusömum, nema ef til vill sjálfri sér. Á gamansaman hátt er skyggnst inn f Iff Elínar sem er tveggja barna móðir í ábyrgðarstöðu hjá tölvufyrirtæki á milli þess sem hún tekur til sinna ráða til þess að viðhalda neistanum f hjónabandinu. Björk Jak- obsdóttir er handritshöfundur en hún er jafn- framt eini leikarinn f sýningunni. Verkið er sýnt f Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld kl 21. •Uppákomur ■Dansaó i Tiarnarbíó í kvöld verður dagskráin Dansþytur flutt af dansskólum borgarinnar í Tjarnarbíó. Sýndur verður götudans og atriði frá Listdansskóla ísiands, klassiska listdansskólanum, Dansleikhúsi JBS, Dansskóla Birnu Björnsdóttur og Dansskóla Guðbjargar Björgvinsdóttur. Dagskráin hefst kl. 20. Ekki er vitað til þess að stúlkan hér á myndinni að ofan muni dansa I sýningunni. Kross^ata Lárétt: 1 krampakast, 4 grasbali, 7 pískur, 8 gráöa, 10 stunda, 12 óhróöur, 13 bút, 14 fiski- mið, 15 þreytu, 16 beiti- land, 18 kraft, 21 enduö- um, fánýt, 23 gort. Lóörétt: 1 andlit, 2 klampi, 3 vatnsósa, 4 óá- reitinn, 5 aðstoð, 6 spil, 9 umla, 11 frjóanga, 16 skar, 17 gegnsæ, 19 ker, 20 fjör. Lausn neðst á síðunni. Umsjón: Sævar Bjarnason Anand sigraði í heimsbikarkeppni FIDE sem var útsláttarkeppni meö mörgum góðum skákmönnum, Ivanchuk, Morechevich og fleiri mjög sterkir. Tefldar voru kappskákir og Anand var á heimavelli. Þessi staöa kom upp i lokaeinvíginu og svartur á í vandræöum meö riddara sina. Hvít- ur hótar i3 meö mannsvinningi og svartur afræður aö fóma manni. Lík- lega hefði síðan 23. - Rg5! verið skárri leikur. En eins og Benóný Benediktsson heitinn sagði oft: „Það er slæmt að láta riddara valda hvor annan, þeir taka reiti hvor af öðr- um!“ Mikið til í því. Hvitt: Vishy Anand (2755) Svart: Rustam Kasimdzhanov (2653) Rússnesk vöm. Heimsbikarkeppni FIDE, Hyderabad, Indlandi (2), 20.10. 2002 1. e4 e5 2. RÍ3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Bd6 7. 0-0 0-0 8. c4 c6 9. Dc2 Ra6 10. a3 He8 11. Rc3 Bf5 12. Hel h6 13. c5 Bc7 14. Bd2 Ba5 15. Bf4 Bxc3 16. bxc3 Rc7 17. h3 Re6 18. Bh2 R6g5 19. Re5 f6 20. Rg4 Da5 21. Re3 Be6 22. Hacl Stöðumyndin! 22. - Rxh3+ 23. gxh3 Bxh3 24. Rc4 Dxc3 25. Dxc3 Rxc3 26. Rd6 Hxel+ 27. Hxel b5 28. He3 Bg4 29. Bf5 1-0. Lausn á krossgátu •de} 08 ‘Bure 61 ‘æ[3 L\ ‘ont 9t ‘}SiA5( ti ‘Binei 6 ‘bii 9 ‘Qil S únurespuj p ‘ineiquSaa g ‘15(0 z ‘saj I niajgcn •dnej 92 'iæuio zz ‘um3(ni \z ‘iieui 81 ‘ESeq 91 ‘enj si ‘qias h ‘qqn>( £1 ‘giu zi 'e>(0! 01 ‘3|is 8 ‘!JAa>( L ‘IPD f> '3oy i majeq "Vá1 -tevCjLivn ecvisog Vfeúw? QS.W1 Vtéy em 'tóuvtdaXðt'’ Dagfari íslenskir kynþáttafordómar Samkvæmt nýrri skoðanna- könnun DV eru 28% íslend- inga mótfallin því að hér á landi setjist að til frambúðar fólk af öðrum litarhætti. Þetta er í fljótu bragði sláandi nið- urstaða en þó ekki alveg öll þar sem hún er séð. Hvað er það nákvæmlega sem þessi 28% eru á móti? Að hér setjist að 50 einstaklingar af öðrum litarhætti, 5000 ein- staklingar, eða 500.000. Eru þeir á móti því að þessir ein- taklingar setjist hér að á næstu dögum, eða mánuðum, árum eða öld? Spurningar af þessum toga sýna hversu erfitt er að mæla nákvæmlega viðhorf fólks til innflytjenda af öðrum litar- hætti. Líklega eru ekki margir íslendingar hlynntir því að hingað flyttu 500.000 útlend- ingar á morgun. Og líklega eru heldur ekki margir mót- fallnir því að við tækjum á móti og björguðum 50, jafnvel 500, stríðshrjáðum flótta- mönnum, konum og börnum, undan hernaðarátökum og hungri, vonleysi og örbirgð. En efasemdir um skoðana- kannanir eru engin afsökun fyrir andvaraleysi gagnvart kynþáttafordómum. Við þurf- um að standa okkur betur í að eyða slíkum fordómum sem ætíð eiga rætur í fáfræði, ótta og bernskri efnishyggju. Við þurfum að vekja betur og oft- ar athygli á því að þjóðerni er fyrst og fremst menningarlegt en ekki líffræðilegt hugtak, að innflytjendur frá öðrum lönd- um hafa auðgað mjög íslenska menningu sl. áratugi og að kynþáttafordómar eru alvar- legasta ógnunin við friðsama, íslenska menningu. Kjartan Gunnar Kjartansson blaðamaöur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.