Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2002, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
Sport_______________________________________________________ i>v
Liverpool sótti þrjú stig til Moskvu:
Owen sjóðheitur
- sex jafntefli í átta leikjum í meistaradeildinni í gær
Michael Owen, sem talsvert hefur verið gagnrýndur í haust fyrir að skora ekki mörk, þaggaði heldur betur niður í
slíkum röddum í gær með því að skora þrennu í 3-1 sigri á Spartak Moskvu.
Sex leikjum af þeim átta sem
leiknir voru i meistaradeild Evrópu
í gærkvöld lyktaði með jafntefli.
Það voru þó skoruð 35 mörk í leikj-
unum átta.
Arsenal tapað öðrum leik sínum
á Qórum dögum en í gær var það
Auxerre sem lagði liðið að velli og
nú var það á heimavelli sem leik-
menn Arsenal urðu að játa sig sigr-
aða. Leikmenn Auxerre komu and-
stæðingum sínum í opna skjöldu í
upphafl með tveimur mörkum á
fyrsta hálftimanum. Kanu minnk-
aði muninn fyrir Arsenal átta mín-
útum fyrir leikslok en það sem eft-
ir lifði leiks fengu leikmenn engin
umtalsverð færi sem þeir hefðu get-
að jafnað leikinn úr.
I Þýskalandi gerðu Dortmund og
PSV jafntefli en liðin leika í riðli
með Arsenal og Auxerre. Líklegt er
að Arsenal tryggi sér áframhald-
andi þátttöku í keppninni, keppnin
um hitt sætið virðist standa á milli
Dortmund og Auxerre.
Skorar mikilvæg mörk
Valencia tryggði sér sæti i
annarri umferð með því að gera
jafntefli við Basel á útivelli og náði
þar með í stigið sem til þurfti til að
komast áfram. Baráttan um hitt
sætið stendur á milli Liverpool og
Basel en liðin leika í B-riðli. Ro-
berto Ayala, leikmaður Valencia,
var rekinn út af á 88. mínútu.
í sama riðli sótti Liverpool þrjú
stig til Moskvuborgar þegar það
lagði Spartak Moskvu að velli nokk-
uð sannfærandi. Það var Michael
Owen sem tryggði Liverpool stigin
þrjú en hann gerði öll mörk liðsins
í 3-1 sigri. Liverpool fékk reyndar á
sig fyrsta mark leiksins á 23. mínút-
ur og er það fyrsta markið sem lið-
ið fær á sig í fimm leikjum. Michael
Owen náði að jafna leikinn aðeins
fimm mínútum síðar. Hann bætti
síðan tveimur mörkum við í síðari
hálfleik.
Gerard Houllier var að vonum
ánægður eftir leikinn. „Þeir byrj-
uðu að vísu betur en við, enda
þurftu þeir að sanna að þeir gætu
náð i stig í riðlinum. Við slíkar að-
stæður urðum við að reyna að
halda aftur af þeim og nota þau
tækifæri sem við fengum og Mich-
ael Owen sá um það. Fyrir
nokkrum vikum var Owen gagn-
rýndur fyrir að skora ekki nóg en
mörkin sem hann skorar eru mikil-
væg. Að skora þrjú mörk á útivelli
og það í Rússlandi eru nokkuð góð
frammistaða," sagði Houllier eftir
leikinn.
Erfiðar aðstæður
Michael Owen sagði að aðstæður
í Moskvu hefðu verið erfiðar og
hefðu minnt sig dálítið á aðstæður í
Slóvakíu þegar enska landsliðið lék
þar á dögunum. „Þetta var sko ekki
auðvelt. Við æfðum á vellinum í
gær og þá var hann mjög blautur, í
kvöld var þó vatnið að mestu farið
úr honum en hann var engu að síð-
ur gríðarlega þungur. Það var því
gott að ná fram þessum úrslitum,“
sagði Owen.
Real Madrid náði ekki að tryggja
stöðu sína á toppi C-riðils og náði
aðeins jafntefli á heimavelli sínum
gegn AEK Aþenu. Grikkimir hafa
nú gert jafntefli í öllum leikjum sín-
um í keppninni hingað til. Madrid-
ingar virtust ætla að rúlla yfir
Grikkina, komust fljótlega í 2-0
með tveimur mörkum frá
McManaman. Grikkimir gáfust
hins vegar ekki upp og náðu stigi
sem ekki margir gera á heimavelli
gegn Real Madrid í Evrópukeppn-
inni.
Lið Roma náði aðeins í eitt stig á
heimavelli sínum gegn Genk og er
þessi riðill alveg opinn. Þrátt fyrir
að Genk sé í neðsta sætinu með tvö
stig eiga í raun öll liðin fjögur enn-
þá fræðilegan möguleika á að kom-
ast áfram.
Hörkuviðureign í Lyon
í D-riðli var hörkuviðureign á
milli Lyon og Inter Milan í Erakk-
landi. Þetta varð markaleikur og
hinn fjörugasti. Sigurinn í leiknum
hefði í raun getiö fallið hvoru lið-
inu sem var í skaut en þó virtust
Frakkamir eiga meira í leiknum.
Leikurinn einkenndist af opnum
leik, mikið af mistökum á báða
bóga og talsvert um opin færi sem
bæði voru nýtt og fóru forgörðum.
Ámi Gautur Arason og félagar
hans í Rosenborg náðu í sitt þriðja
stig í gærkvöld þegar liðið gerði
jafntefli á útivelli á móti Ajax. Þrátt
fyrir að hafa ekki unnið leik í
keppninni til þessa á liðið ennþá
möguleika á að komast upp úr riðl-
inum, þó það sé nú ekki líklegt.
Ajax lék síðustu mínútur leiksins
einum færri en Jelle Van Damme
var rekinn út af á 85. mínútu. Ámi
Gautur lék allan timann í marki
Rosenborgar. -PS
$ MEiSTARADEILDíN
A-riðill
Arsenal-Auxerre.........1-2
0-1 Kapo (8), 0-2 Fadiga (28), 1-2 Kanu
(53).
Dortmund-PSV ...........1-1
1-0 Koller (10), 1-1 Bruggink (47),
Stadan i A-riðli
Arsenal 4 3 0 1 8-2 9
Dortmund 4 2 1 1 6-5 7
Auxerre 4 1 1 2 3-4 4
PSV 4 0 2 2 2-8 2
B-riðill
Spartak Moskva-Liverpool . . 1-3
1-0 Danishevski (23), 1-1 Owen (29),
1-2 Owen (70), 1-3 Owen (90).
Basel-Valencia.............2-2
1-0 Ergic (32), 1-1 Baraja (36), 1-2
Torres (72), 2-2 Ergic (90)
Staóan i B-riðli
Valencia 4 3 1 0 13-4 10
Liverpool 421 1 9-4 7
Basel 4 12 1 7-9 5
Spartak 4 0 0 4 1-13 0
C-riðill
Real Madrid-AEK . . , 2-2
1-0 McManaman (24), 2-0
McManaman (43), 2-1 Koatsouranis
(74), 2-2 Walter (86)
Roma-Genk Staóan í C-riðli 0-0
Real Madrid 4 2 2 0 14-5 8
Roma 4 12 1 1-3 5
AEK 404 0 5-5 4
RC Genk 4 0 2 2 0-7 2
D-riöill
Lyon-Inter..................3-3
1-0 Anderson (21), 1-1 Cacapa (31
sjm), 2-1 Carriere (44), 2-2 Crespo
(56), 2-3 Crespo (66), 3-3 Anderson
(75)
Ajax-Rosenborg..............1-1
1-0 Ibrahimovic (41), 1-1 Emerly (85).
Staðan i D-rióli
Lyon 4 2 1 1 11-6 7
Inter 4 1 2 1 7-7 5
Ajax 4 1 2 1 3-3 5
Rosenborg 4 0 3 1 3-3 3
Markahæstu menn
Filippo Inzaghi, AC Milan..........7
Hernan Crespo. Inter ..............5
Roy Makaay, Deportivo..............4
Yakubu Aiygbeni, Maccabi..........3
Alessandro Del Piero, Juventus . . 3
Ryan Giggs, Man. Utd...............3
Guti, Real Madrid..................3
Predrag Djordjevic, Olympiakos .. 3
Javier Saviola, Barcelona..........3
Ruud Van Nistelrooy, Man. Utd. .. 3
Nýi Arsenal-völlurinn:
Miklar kostn-
aðarhækkanir
Kostnaður vegna byggingar á
nýjum heimavelli Arsenal í
London hefur samkvæmt nýjum
áætlunum hækkað um 100 millj-
ónir punda á nokkrum vikum.
Upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir að hann myndi kosta um 400
milljónir punda. Hækkun kostn-
aðar má fyrst og fremst rekja til
þátta tengdra vellinum, svo sem
vegna samgangna og fleiri slíkra
þátta. Forráðamenn félagsins
sögðu í gær að þetta myndi þó að
engu leyti hafa áhrif á þau fjárráð
sem Arsene Wenger hefur til leik-
mannakaupa. Nýi völlurinn mun
taka um 60 þúsund áhorfendur i
sæti. -PS
Vonast eftir
landsliðssæti
Pascal Cygan, leikmaður með
Arsenal, segist halda að með
hverjum leiknum sem hann leik-
ur með Arsenal aukist líkurnar á
að hann komist í franska landslið-
ið. Hann segist sjálfur vera núna
aðeins skrefi frá þvi að verða val-
inn og þakkar Arsene Wenger,
framkvæmdastjóra liðsins, og
leikmönnum þess að svo er kom-
ið. Hefði hann verið áfram hjá
Lille í Frakklandi hefði hann
aldrei komið til greina í franska
landsliðið. -PS
Leikmenn Basel fagna hér öðru marka sinna gegn hinu sterka liði Valencia. Basel á enn ágæta möguleika á að
komast upp úr riðlinum f meistaradeildinni.