Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Síða 7
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002 23 Valinn hefur verið úrvalshópur efhilegustu glímukappa landsins: Sport DV Eins og sjá má voru það engin vett- lingatök sem blöstu við Ijósmyndara DV þegar hann leit inn á fyrstu æfingu úrvalshóps 14-19 ára gamalla krakka í Hagaskóla um helgina. Hópurinn, sem samanstendur af srákum jafnt sem stelpum sem koma hvaðanæva af landinu, er að hefja undirbúning fyrir íþróttasýningu í Kanada eftir tvö ár og mun hann hittast með reglulegu milli- bili fram að þeim tíma. Á efri myndinni má sjá Helga Kjartansson, fram- kvæmdastjóra Glímusambands ís- lands, og Ólaf Sigurðsson, einn af þremur þjálfurum hópsins. DV-myndir Teitur Góö alhliða íþrótt í úrvalshópnum eru fimm stelpur og DV-Sport náöi tali af tveimur þeirra, Berglindi Krist- insdóttur og Elisabeth Patri- arca. Berglind sem er 17 ára hef- ur stundað glimu í tæp níu ár en Elisabeth er 14 ára og hefur verið að æfa í um 5 ár. „Pabbi er þjálfari hjá Garpi sem er íþróttafélagið heima og ég byrjaði aðallega út af hon- um,“ segir Berglind. Elisabeth æfir með félaginu Dímon og hún byrjaði í glímu fyrir tilviljun. „Systir mln var mikið í þessu og ég flæktist með henni á æfingu eitt sinn ég hef haldið áfram síðan.“ Þær segjast báðar hafa mjög gaman af þessu. „Þú þarft að vera liðugur en samt sterkur. Það skiptir engu máli hvernig þú lítur út, feitur, mjór, stór, það skiptir ekki máli. Þetta reynir nefnilega ekki síð- ur á hugsun en hreyfingar," seg- ir Berglind og bætir við að það sé mjög gaman að vera i þessum hóp. „Þetta eru krakkar sem hafa verið að keppa gegn hvort öðru en núna erum við saman og kynnumst hvort öðru og æfum saman. Það er alveg frábært." Þær segjast hvorugar vera á leiðinni að hætta í glímunni. „Nei, það er ákeðinn hópur af stelpum sem hafa verið saman í mörg ár og mæta á öll mót og ég veit að það er engin á leiðinni að hætta af þeim,“ segir Berg- lind. -vig Ætlu Urvals- hópur GLÍ utan um þennan hóp - segir Helgi Kjartansson, framkvæmdastjóri Glímusambands íslands Nýlega var valinn úrvalshópur efni- legasta glímufólks landsins í aldurs- flokknum 14-19 ára. Um 30 krakkar um allt land voru valdir í hópinn sem mun síðan fara á alþjóðlega íþróttasýningu sem haldinn verður í Kanada árið 2004. DV-Sport leit inn á æfingu í Hagaskóla um helgina þar sem hópurinn kom saman í fyrsta skipti. „Þetta er hátíð sem haldin verður í Kanada fyrir þjóðlegar íþróttir og þjóð- lega leiki. Búist er við að um 70 lönd taki þátt og það verði á milli eitt og tvö þúsund manns sem komi saman í öll- um aldursflokkum. Við ætlum að reyna að fara út með þessa yngri kyn- slóð og með í fór verða eldri glímu- kapparnir þannig að úr verður stór sýningarflokkur," segir Helgi Kjartans- son, framkvæmdastjóri Glímusam- bands íslands. Þjálfarar hópsins eru þrír af fremstu glímumönnum íslands, þeir Ólafur Sig- urðsson, Ingibergur Sigurðsson og Lár- us Kjartansson. Mun hópurinn hittast tvær helgar í vetur og stefnan er að hittast í 3-4 skipti næsta vetur. I milli- tíðinni verða krakkarnir svo að sjálf- sögðu að æfa með sínum félögum. Aðspurður segir Helgi nóg um að vera á ári hverju fyrir þá sem stunda glímu. „Það er alltaf fullt af mótum í gangi. Íslandsglíman eða baráttan um Grettis- beltið er stærsta mótið en svo er líka mótaröð þar sem sá er hlýtur flest stig að loknum þremur mótum er krýndur íslandsmeistari. Svo er líka bik- arglíma, sveitaglíma og fleiri keppnir. Ég held að það séu 12 mót á vegum Glimusambandsins í vetur allt í allt og yngri kynslóðin tekur þátt í þeim öll- um fyrir utan Grettisbeltið." Helgi segir að það séu á bilinu 10-20 manns eldri en tvítugir að æfa glímu af fullum krafti en af þeim séu aðeins nokkrir sem treysta sér í stærstu mót- in. Til að mynda voru aðeins sex kepp- endur í síðustu Íslandsglímu. „En til þess er einmitt þessi úrvals- hópur. Við ætlum að reyna að halda utan um krakkana og minnka brottfall- ið sem er mest á unglingsárunum, og þannig skOa þau sér vonandi upp eftir 3-4 ár og verða í baráttunni um Grett- isbeltið þá,“ segir Helgi og bætir við að þó að það líti ekki út fyrir það þá séu það fleiri konur sem stunda glímu heldur en karlar ef eitthvað er. „í síðustu Íslandsglímu hjá körlun- um voru sex keppendur en í Freyjuglímunni, sem er sambærilegt mót fyrir kvennaflokkinn, voru 10 kon- ur að kljást um titilinn. En það fer vissulega minna fyrir þeirn," segir Helgi. Nú er framboðið á íþróttagreinum alitaf að aukast á Isiandi og nú síðast er það boxið sem laðar að sér unga Is- lendinga. Er Helgi ekkert hræddur um að glímuáhuginn fjari bara út? Jú, maður er dauðhræddur um það. Framboðið er gríðarlegt og samkeppn- in um krakkana er ekki minni. Við keppum ekkert við þessar stóru grein- ar sem eru svo vel markaðssettar þannig að ef við höldum okkar tjölda og náum kannski að bæta einhverju við þá erum við sáttir og vel það,“ segir Helgi að lokum. -vig Þau 30 sem valin voru eru í stafrófsröð: Ari Kristinsson, HSK, Aron Kárason, HSK, Atli Már Sig- marsson, UÍA, Berglind Kristins- dóttir, HSK, Birkir Bragason, HSK, Elísabeth Patriarca, HSK, Eva Lind Lýösdóttir, GFD, Guð- jón Kr. Einarsson, KR, Hafsteinn Kristinsson, HSK, Heimir Hauksson, HSK, Hildur Ágústs- dóttir, HSK, Ingibjörg Ragna Gunnarsdóttir, HSK, Jóhann Gunnar Böðvarsson, HSK, Jón Kristinsson, HSK, Jón Ólafur Eiðsson, UÍA, Jón Öm Ingileifs- son, HSK, Jón Óskar Björgvins- son, HSK, Jónas Ingólfsson, HSÞ, Júlíus Björnsson, HSÞ, Kristján Bjöm Sigurðarson, UÍA, Magnús Þorri Jónsson, HSÞ, Ólafur Gunnarsson, UÍA, Orri Ingólfs- son, Fjölni, Pálmi Hjaltason, KR, Pétur Gunnarsson, HSÞ, Snær Seljan Þóroddsson, UÍA, Sólveig Jóhannsdóttir, GFD, Svana Jó- hannsdóttir, GFD, Þórður Guð- mundsson, UÍA. Lækkað verð m. HEKLA Lægstu verðin á notuðum bílum. Fylgstu með, því hér er hægt að gera góð kaup! m £ ÍD X m < Gott á bilathing.is Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is BÍLAÞINQÉEKLU Númereitt I notuðum bílum!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.