Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Qupperneq 20
36 MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002 Sport____________________________ dv Michael Owen hefur heldur bet- ur þaggað niður í þeim gagnrýnis- röddum sem heyrðust í upphafi keppnistímabilsins þegar honum gekk illa að skora. Hann hefur farið á kostum að undanfórnu og gengið frá and- stæðingum Liverpool upp á eigin spýtur hvað eftir annað. Þrenna gegn Spartak Moskvu í meistaradeildinni í vikunni var mikilvæg og markið hans gegn Tottenham um helgina var ekki síður mikilvægt. Hann bjó það til upp á eigin spýtur með frábæru einstaklingsframtaki og sýndi síð- an mikið hugrekki með því að taka vítaspyrnuna, sem hann fiskaði sjálfur. Owen hafði þegar brennt af tveimur vítaspyrnum á þessu keppnistímabili en á laugardag- inn urðu honum ekki á nein mis- tök. Sigurmarkið var staðreynd sem og fjögurra stiga forysta Liverpool á toppi ensku úrvals- deildarinnar. Gerard Houllier, knattspymu- stjóri Liverpool, varði Owen með kjafti og klóm þegar illa gekk hjá pilti í byrjun tímabils og hann er að uppskera ríkulega. „Michel Owen er sérstakur leikmaður sem getur unnið leiki fyrir okkur upp á sitt eindæmi. Hann hefur oft sýnt það og sann- að,“ sagði Gerard Houllier í vikunni. -ósk Michael Owen Fæddur: 14. desember 1979 Heimaland: England Hæð/þyngd: 175 cm/65 kg Leikstaða: Framherji Fyrri lið: Engin DeUdarleikir/mörk: 219/119 Landsleikir/mörk: 44/19 Hrós: ..Michael Owen var munurinn á lið- unum í dag. Hann er ótrúlega fljótur og þó að við reyndum okkar besta til að stoppa hann þá slapp hann nokkrum sinnum í gegn ..." Glenn Hoddle, stjóri Tottenham, um Michael Owen. Tveir leikir fóru fram i ensku knattspyrnunni í gær: Beattie með þrennu - þegar Southampton sigraði Fulham. Everton marði sigur á West Ham á útivelli Framherjinn James Beattie var hetja Southampton 1 gær þegar liðið sigraði Fulham 4-2 á heimavelli. Ful- ham var komið í 2-0 eftir 24 mínútur með mörkum frá Lee Clark og Steed Malbranque, og það stóð ekki steinn yf- ir steini í leik heimamanna. Tveimur minútum siðar fengu Dýrðlingarnir vítaspymu og eftir að Beattie hafði skorað örugglega úr henni héldu heimamönnum engin bönd. Beattie skoraði tvö glæsileg skallamörk áður en Brett Ormerod innsiglaði sann- v gjaman sigur rúmum stundarfjórð- ungi fyrir leikslok. Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Southampton, hélt vart vatni yfir frammistöði sinna manna. „Þetta er írábær hópur sem ég er með í höndunum. Þeir hreinlega þola ekki að tapa og það sýndi sig í dag. Ég sagði einfaldlega við Beattie að ef hann héldi áfram að leggja sig fram þá hlytu mörkin að koma. Þegar hann brenndi af við markteig gegn Manchester City um daginn sagði ég við hann að hann hefði náð botninum hvað varðar það að brenna af dauða- færum. Þaðan í frá gæti leiðin ekki leg- ið annað en upp á við,“ sagði Strachan. Beattie var sjálfur hógvær að leik loknum. „Ég er kominn aftur og von- v andi get ég skorað fleiri mörk á næstu vikum og komið liðinu enn ofar á töfl- unni. En þetta var liðsandinn sem vann hér í dag. Það þurfti griðarlegan anda til að komast aftur inn í leikinn en við gerðum það og gott betur." Lee Carlsley skoraði eina mark leiksins þegar Everton sigraði West Ham á útivelli. Hið góða gengi Everton heldur því áfram og ljóst er að sigur- inn á Arsenal um siðustu helgi hefur fært liðinu aukið sjálfstraust. Leikurinn á Upton Park var í jám- um og gat sigurinn dottið hvorum meg- in sem var. Eins og áður segir var það Carsley sem skoraði og var það með glæsilegum skalla á 70. mínútu. Skömmu áður hafði táningurinn Way- '* ne Rooney komið inn á sem varamað- ur og við það breyttist leikur Everton til hins góða. Eftir markið sóttu heima- menn nokkuð stíft að marki Everton en höfðu ekki erindi sem erfiði og fundu enga leið fram hjá Richard Wright í marki gestanna. Við sigurinn færist Everton upp í 8. sæti úrvalsdeildarinnar en West Ham, sem hefur ekki enn unnið á heima- velli, virðist eiga erfitt með að hífa sig frá botnbaráttunni. -vig James Beaftie for a ko|ti!m qjlgn Fulharpii gær og s|oraöi pren'iu: fy rip Southampton. Hann skoraði einnig stjjúrmark Southaifipton gegrfAston Villal siíiistu viku $euters Larus Orri Sigurósson kom mn á sem varamaöur á 65. minútu þegar West Bromwich Albion tapaöi fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Eiöur Smári Guöjohnsen sat á vara- mannabekknum hjá Chelsea í sama leik og kom ekki viö sögu í leiknum. Hermann Hreiöarsson spiiaöi allan leikinn fyrir Ipswich sem tapaði fyrir GUfingham á heimavelli i fyrsta leikn- um undir stjóm nýja knattspymustjór- ans, Tony Mowhray. Brynjar Gunnarsson og Bjarni Guöjónsson spiluðu báöir allan leikinn fyrir Stoke sem steinlá fyrir Rotherham í ensku 1. deildinni. Péíur Marteinsson var ekki i leikmannahópi Stoke í leiknum. Heiöar Helguson spilaöi alfan leikinn og skoraði sigurmark Watford gegn Sheffield Wednesday í ensku 1. deildinni á laugardaginn. ívar Ingimarsson kom inn á sem varamaður á síðustu minútu leiksins þegar Wolves vann stóran sigur á Grimsby í ensku 1. deildinni. Helgi Valur Danielsson kom inn á sem varamaöur á 65. minútu hjá Peterborough sem tapaði fyrir Bristol City í ensku 2. deildinni. Arnar Gunnlaugsson var ekki í leikmannahópi Dundee Utd sem gerði jafntefli gegn Partick í skosku úrvalsdeildinni. Jóhannes Karl Guöjónsson sat allan tímann á bekknum þegar Real Betis geröi jafntefli gegn Recreativo í spænsku 1. deildinni. Eyjóifur Sverrisson sat allan tímann á bekknum þegar Hertha Berlin geröi jafntefli gegn Bayer Leverkusen i þýsku 1. deildinni. Marel Baldvinsson og Tryggvi Guömundsson vom báðir í byrjunarliði Stabæk sem vann stórsigur á Moss, 7-2, í norsku úrvalsdeildinni. Tryggvi lék allan leikinn og skoraði tvö mörk en Marel var skipt út af á 63. mínútu. Guöni Rúnar Helgason lék allan leikinn með Start sem tapaði enn einum leiknum, nú gegn Bodo/Glimt, 3-0. Ármann Smári Björnsson spilaði í 65 mínútur fyrir Brann sem tapaði fyrir Rosenborg, 4-0. Árni Gautur Arason var ekki í marki Rosenborg. Gylfi Einarsson og Indriöi Sigurósson spiluðu báðir allan leikinn þegar Lillestrom vann Odd Grenland, 3-0, í norsku úrvalsdeildinni. Bjarni Þorsteinsson og Ólafur Stigsson spiluðu alian leikinn þegar Molde gerði jafntefli, 3-3, gegn Sogndal. Bjami skorað annað mark Molde í leiknum. Andri Sigþórsson kom inn á sem varamaður á 82. mínútu. -ösk Okkar menn Hetjan Bandaríski markvöróurinn Brad Friedel, sem leikur með Blackburn, var ástæðan fyrir því að lið hans fór með sigur af hóimi gegn Arsenal um helgina. Hann varði hvað eftir annað stðrkost- lega frá leikmönnum Arsenal og Graeme Souness, knattspymu- stjóri Blackburn, var ekki að spara lofsyrðin um Friedel að leik loknum. „Hann er einfaldlega besti markvörðurinn í Englandi í dag. Hann er meiddur á hné og auðvit- að hefur það áhrif á hann en hann stendur samt sína vakt frá- bærlega. Hann þarf að fara í upp- skurð en vonandi heldur hann út þar til það hentar okkur,“ sagði Souness. -ósk ... skúrkurinn Arsene Wenger, knattspymu- stjóri Arsenal, ætti að vera búinn að læra þá lexíu að það borgar sig að tala varlega í knattspyrnu- heiminum. Hann fór mikinn ekki alls fyrir löngu og lýsti því þá yfir að lið hans væri ósigrandi og að hann sæi það fara taplaust i gegn- um ensku deildina í vetur. Eitt- hvað hefur vikan 20.-26. október verið í móðu hjá Frakkanum því að liðið tapaði tveimur leikjum í þessari viku. Með orðum sínum um hið ósigrandi lið Arsenal setti hann pressu á liðið sem það hefði vel getað verið án. Hann hlýtur að hugsa næst áður en hann talar. -ósk Mánudagur 28. október Bolton-Sunderland Laugardagur 2. nóvember Birmingham-Bolton Liverpool-West Ham Man. Utd-Southampton West Brom.-Man. City Sunnudagur 3. nóvember Fulham-Arsenal Tottenham-Chelsea Blackbum-Aston Villa Leeds-Everton Charlton-Sunderland Mánudagur 4. nóvember Newcastle-Middlesbrough Laugardagur 9. nóvember Man. City-Man. Utd Arsenal-Newcastle Aston Villa-Fulham Bolton-West Brom. Chelsea-Birmingham Everton-Charlton Middlesbrough-Liverpool Southampton-Blackbum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.