Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002 Fréttir DV Heimilislæknar á Suðurnesjum segjast sérfræðimenntaðir: Langþreyttir á einkaá- kvörðunum ráðuneytisins - starf heimilislækna jafnt að virðingu og annarra lækna, segir ráðherra „Viö viljum fá sérfræðiréttindi okkar viðurkennd rétt eins og aðrir sérfræðingar. Einnig erum við orð- in langþreytt á einkaákvörðunum Heilbrigðisráðuneytisins," segir María Ólafsdóttir, fyrrverandi yfir- læknir við Heilbrigðisstofnun Suð- urnesja þar sem aliir heimilislækn- ar hættu störfum í í liðinni viku. Sem dæmi um einkaákvarðanir nefndi hún vottorðamálið þar sem Heilbrigðisráðuneytið hefði tekið einhliða ákvörðun um að læknar skrifuðu vottorð í vinnutíma en ekki í yfirvinnu. María sagði að þeir heimilislækn- ar sem hætt hefðu störfum við Heil- brigðisstofnun Suðumesja hefðu verið átta fastráðnir sérfræðingar og tveir lausráðnir sérfræðingar í heimilislækningum. Þeir hefðu allir tekið 4-5 ár í sémámi, verklegu og bóklegu, eins og lyflæknar, heiia- skurðlæknar og öldrunarlæknar gerðu, svo dæmi væm tekin. Þessir læknar væru allir með viðurkennd sérfræðiréttindi. Sama máli gegndi um flestaUa heimilislækna aðra, til dæmis læknana í Hafnarfirði. „Við emm að krefjast þess að fá þessi réttindi viðurkennd eins og aðrir sérfræðingar," sagði María. „Þetta er spuming um að hafa það val að geta verið sjálfstætt starfandi á stofu eða undir heilsugæslunni." Jón Kristjánsson heilbrigöisráð- herra sagðist ekki hafa ljáð máls á því að heimilislæknar færu inn á sérfræðingasamninga af því að það hefði í for með sér kúvendingu á uppbyggingu heilsugæslunnar i landinu ef læknamir fæm út en önnur starfsemi yrði eftir. Þá myndi það fljótlega leiða til hækk- unar á komugjöldum, að áliti sér- fræðinga. Loks myndi það leiða til aukinna úrgjalda. „Okkur hefur gengið erfiðlega að hemja útgjöfdin í þessum geira,“ sagði ráðherra. „Mér finnst að læknar haldi ansi hart við þessa kröfu sem þeir setja á oddinn og telji að virðing heimilislæknastétt- arinnar sé undir því komin að þeir geti sent Tryggingastofnun reikn- inginn. Mér finnst þeir halda sér mjög fast í það að menn séu settir skör lægra með því að vinna að upp- byggingu heilsugæslunnar. Ég lít ekki svo á að það sé virðingarminna starf." -JSS HM öldunga í skák: Ingvar Ásmunds- son í 5. til 15. sæti Ingvar Ásmundsson kórónaði stór- góðan árangur sinn á heimsmeistara- móti öldunga í skák þegar hann gerði jafntefli við þýska alþjóðlega meistar- ann Klaus Klundt i 11. og síðustu um- ferð mótsins. Ingvar hlaut 8 vinninga og varð í 5. til 15. sæti ásamt mörgum heimsþekktum stórmeisturum sem settu svip sinn á alþjóðlegt skáklíf fyrr á árum. Með þessum árangri náði Ingvar áfanga að alþjóðlegum meist- aratitli sem er mjög sjaldgæft með menn á hans aldri. Fjórir skákmenn deildu efsta sæti mótsins með 8,5 vinninga en stiga- hæstur þeirra er alþjóðlegi meistarinn Josef Petkevitch frá Lettlandi. -GG Mikið um ölvunarakstur Sjö ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur í Reykjavík í fyrrinótt. Þá tók Kópavogslögregla einn fyrir sama brot. Eru þetta fleiri ölvunarakstursbrot en undanfarnar helgar. Helgin var nokkuð erilsöm hjá lögreglu. Vegna veðurblíðu var mikill fjöldi fólks í miðbæ Reykjavíkur og töluvert um ryskingar. Voru fanga- geymslur fullar af þeim sökum. -hlh Bessastaðir undir svörtum boga Nú standa yfir dýpkunarfram- kvæmdir á Amamesvogi í Garða- bæ. Þar er unnið við að dæla upp úr sjó efni af hafsbotni og til verksins er notuð öflug dæla. Þegar ljós- myndari DV var á ferð um Garðabæ á dögunum stóðst hann ekki freist- inguna og lét bununa frá dælunni ramma þjóðhöfðingjasetrið Bessa- staði inn á mynd. -NH Undir svörtum boga Miklar framkvæmdir í Arnarnesvogi innramma Bessastaöi á þessarí mynd. DV-MYND NJORDUR HELGASON w www.help.is Hjalparstarf kirkjunnar. (i>-£ ijíivjirííJJ REYKJAVÍK AKUREYRI Sólariag i kvöld 17:02 16:40 Sólarupprás á morgun 09:23 09:19 Síódegisfló& 17:52 22:25 Árdegisflóö á morgun 06:17 10:50 Ve&riö í kvöii Suölæg átt meö skúrum Búist er við suðlægri átt, víða 8-13 m/s en 13-18 með austurströnd- inni. Rignging eöa skúrir og hiti á bil- inu 3 til 8 stig. & <23 © (53í\ © ® <20 & Rigning, fyrst sunnanlands Á morgun, þriðjudag, er reiknað með suðaustlægri eöa breytilegri átt, vfða 8-15 m/s. Fer aö rigna, lyrst sunnanlands. Hiti veröur á bilinu 3 til 8 stig. | Veðriö n; ■bs'U ilu■£ 11 Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Hiti 2° «18° Hrti r til 6° Hiti 0° til 0“ Vindur: 8-13™/» Vindun 8-13 "V* Vindur: 8-13 ”>/» 71 4 i Suövestan eöa vestan &-13 m/s og skúrír en dálrtil rígning norövestan tll. Hiti 2 til 8 stig. Vestlæg átt og ví&a rign- Ing en úr- komuliti& austan tll. Hlti 1 til 6 stlg. Otlit fyrir nor&læga átt me& rignlngu e&a slyddu, elnkum nor&- an- og aust- anlands. Heldur sval- ara ve&ur. Logn Andvari Kul Gola Stinningsgola Kaldi Stinningskaldi Allhvasst Hvassvi&ri Stormur m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 Rok Ofsave&ur 24.5- 28,4 28.5- 32,6 Fárvi&ri >= 32,7 IjjfJITr'!' AKUREYRI súld 2 BERGSSTAÐIR alskýjaö 2 BOLUNGARVÍK skýjaö 7 EGILSSTAÐIR súld 4 keflavIk alskýjaö 7 KIRKJUBÆJARKL rigning 7 RAUFARHÖFN þokumóöa 5 REYKJAVÍK rigning 7 STÓRHÓFÐI rigning 7 BERGEN léttskýjaö 1 HELSINKI súld -3 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 2 ÓSLÓ léttskýjaö -6 STOKKHÓLMUR -7 ÞÓRSHÖFN rigning 8 ÞRÁNDHEIMUR heiöskírt -4 ALGARVE léttskýjaö 17 AMSTERDAM rigning 13 BARCELONA skýjaö 16 BERLÍN léttskýjaö 0 CHICAGO skýjaö -1 DUBLIN léttskýjaö 9 HALIFAX skýjaö -1 HAMBORG skýjaö 3 FRANKFURT súld 10 JAN MAYEN þoka 4 LONDON skýjaö 11 LÚXEMBORG rigning 13 MALLORCA þokumóða 12 MONTREAL heiöskírt -5 NARSSARSSUAQ snjókoma 0 NEW YORK hálfskýjaö 6 ORLANDO heiöskírt 17 PARÍS skýjaö 12 VÍN skýjaö 4 WASHINGTON heiöskírt 1 WINNIPEG alskýjaö -5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.