Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Qupperneq 13
13 MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002 DV_____________________________________________________________________________________________Neytendur Hagstætt að kaupa uppþvottalög og fljótandi handsápu í 4 og 5 lítra brúsum: Spara má 3400 krónur í einni innkaupaferð Hægt er að spara þúsundir króna á því að kaupa stórar pakkningar af til- teknum vörum, sérstaklega þeim sem ekki eru við- kvæmar fyrir síð- asta söludegi, hafa nánast ótak- markað geymslu- þol. Útreikningar á verði fljótandi handsápu annars vegar og upp- vottalegi hins vegar sýna þetta svart á hvítu. Er þá gert ráð fyrir að stór brúsi sé keyptur og hellt úr honum yfir á smærri og handhæg- ari brúsa sem eru til heima fyrir. Gott er að nota plasttrekt, sem kost- ar lítið, til að síður hellist niður. Hér sannast hið fomkveðna að margt smátt gerir eitt stórt. DV fór á stúfana og kannaði verð á uppþvottalegi í stórum umbúðum. Tilefnið var sala verslunarinnar Europris á uppþvottalegi í 4 lítra brúsum. Eftir vangaveltur í búðinni var ákveðið að kaupa slíkan brúsa og þegar heim var komið rann upp fyrir fólki að þar var verið að gera kjarakaup. Áður en lengra er haldið er sjálfsagt að taka fram að hér verður ekki lagt mat á gæði, hvorki uppþvottalagar né handsápu, og eðlilegir fyrirvarar því viðhafðir. í Europris í Skútuvogi kostaði 4 lítra brúsi af upp- þvottalegi 285 krónur. Vinsæll uppvottalögur í 500 ml brúsa í annarri verslun kostaði 209 krón- ur. Ef verð þessara uppþvottalaga er runreiknað í lítra- verð verður lítra- verðið á 4 lítra brúsanum 72 krón- ur en lítraverð litla brúsans 418 krónur. Litli brús- inn er þannig um 6 ■sinnum dýrari en sá stóri. Til að sýna verðmuninn enn betur reiknuðum við líka hvað 4 lítrar af uppvotta- legi í 500 ml brúsum kostuðu samanborðið I - S. við 4 lítra í einum brúsa. Uppþvottalög- ur í 4 lítra brúsa kost- aði 285 krónur en átta 500 ml brúsar kost- Í uöu samtals 1672 «*| krónur. Þarna er ver- ið að borga nær I sexfalt meira fyrir sama magn af upp- þvottalegi. Beinn sparnaður er um 1400 krónur. Eitthvað fyr- | " ir hagsýnar húsmæð- j “hj ur. Handsápa er einnig gott dæmi um hag- jjg 8run sæbe Grcnn sape í RV.«4lMfO0 mi'Biír sýni þess að kaupa inn í stór- um umbúðum. í Rekstrarvörum má fá fljótandi handsápu í 5 lítra brúsum sem kosta 898 krónur. TO samanburðar má nefna verð á algengri hand- sápu i 300 ml ’ áfyllingarbrúsa (án pumpu) sem er 169 krónur. Lítraverð á stóra - brúsanum er 180 krónur en líta- verö á þeim litla 563 krónur. Mun- urinn er rúmlega þrefaldur. En kaupi maður 5 lítra af handsápu í 300 ml brúsum kostar það samtals 2817 krónur en 5 lítra brúsinn er á 898 krónur. Mun- urinn er rúmlega þrefaldur. Beinn ———1. sparnaður er um 2000 krónur. Samtals má því spara um 3400 krón- ur með þvl að kaupa bæði uppþvottalög og fljótandi hand- sápu í stórum um- búðum í einni inn- kaupaferð. Fleiri dæmi mætti taka en 5 lítrar af «U0*4|M 51 i*»S*t*m*,i RV-uppþvottalegi kosta 620 krónur og 5 lítrar af grænsápu (blautsápu) 1118 krónur. í Europris má fá 4 lítra af grænsápu á 285 krónur og 4 litra af alhliða hreingerninga- legi einnig á 285 krónur. Lesendur geta síðan bor- ið verð þessara stóru eininga við verð á hefð- bundnum neytenda- pakkningum. Og séð svart á hvítu að það er auð- velt að spara. Vakin er athygli á að íleiri versl- anir selja hreinlætis- vörur í stórum umbúðum á hagstæðu verði og sjálfsagt fyrir les- endur að nýta sér það. -hlh Margt smátt... Brúsi eins og þessi er til á flest- um heimilum. Hella má á hann úr stærri brúsa og spara umtalsverö- ar fjárhæöir. Rétt er aö taka fram aö brúsinn á myndinni er ekki inni í verö- samanburöi hér til hliðar. Byssuskápur Örugg geymsla fyrir byssurnar. Veiðihornið: Byssu- skápar Veiðihornið hefur hafið inn- flutning á öflugum stálbyssu- skápum frá Infac. Byssur eru ekki barna meðfæri og ráðleg- ast er að forða þeim frá því að lenda í höndum misjafnra manna. Þó að húsið sé vel varið verður aldrei of varlega farið. Skápamir eru til í 7 stærðum og gerðum, fyrir 3, 5, 7 og 12 byssur, með hliðarhillum eða án. Skáparnir eru einnig fá- anlegir með læstu innra öryggishólfi. Verð á In- fac-byssuskápum er frá kr. 33.990. Byssuskáparn- ir fást i Veiðihorninu Hafnarstræti, Síðumúla og Kringlunni. -hlh Breiðbandið: Hvetur til sítengingar myndlykils „Vegna breytinga sem gera þarf á rásaröðun Breiðbandsins þarf myndlykillinn að vera í stöðugu sambandi við rafmagn næstu daga til þess að hægt sé að uppfæra hann. Breytingamar em vegna innleiðing- ar stafræns sjónvarps.“ Þessi auglýsing kemur á sjón- varspskjá þeirra sem nota þjónustu Breiðbands Landssímans. Auglýs- ingin kemur á sama tima og fréttir berast af eldsvoðum vegna þess að kviknað hafi í heimilistækjum, m.a. sjónvörpum og fleiru sem þeim til- heyrir eins og myndlyklum. Slökkviliðið hefur hvatt fólk til þess að slökkva ekki á tækjunum með fjarstýringu heldur taka þau úr sambandi. Varðstjóri í slökkvilið- inu segir þessa auglýsingu því frem- ur óheppilega, því yfirleitt séu þessi tæki saman á fjöltengi og annað- hvort séu þau öll tekin úr sambandi eða engin. Hann býst ekki við að stór hópur nái í sérstakt fjöltengi fyrir Breiðbandsmyndlykilinn en auðvitað geri það einhverjir. Hjá Landssímanum fengust þær upplýsingar að vegna uppsetningar stafræns sjónvarps þurfi að búa til nýtt rými fyrir það í tíðnibandinu og þá þurfi að raða rásunum upp á nýtt. Ef slökkt sé á myndlyklinum tekur hann ekki við upplýsingum um að búið sé að færa rásirnar og hvar þær verði eftir breytingarnar, t.d. hvar Eurosport eða DK-1 sé að fmna. Búist er við að þessum breytingum verði lokið nk. miðvikudag, og út- sending stafræns sjónvarps hefjist eigi síðar en 10. nóvember nk. -GG NYR DISILJEPPI, JEEP GRAND CHEROKEELAREDO Turbo Dísil 3,1 sjálfskiptur, rafdr. rúður, sæti. Samlitur, litað gler, C.D. o.fl. Verð: 4.790 þús. ATH. SKIPTl. Bílasalan Höfðahöllin, Vagnhöfða 9 S. 567-4840/694-3308 Drif á öllum Bestu kaupin á fjórhjóladrifsbíl sem hægt er að gera. Mikið úrval fyrsta flokks bíla. Gott á bilathing.is Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is BÍLAÞINGÉEKLU Númer eitt I notuðum bflum!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.