Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 2
2
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Sitjandi þingmenn í fimm efstu sætunum eftir flokksval Samfylkingar í Reykjavík:
Það var hart að
þingmönnum sótt
- segir Ásta Ragnheiöur Jóhannesdóttir sem hafnaöi í 4. sæti
Norðvesturkjördæmi:
Ók 30 þúsund km
til að kynnast
kjósendum
Kristján L. Möller.
Kristján L.
Möller, alþingis-
maður frá Siglu-
firði, er búinn að
aka 30 þúsund
kílómetra síð-
ustu flmm mán-
uði - það stafar
af því að hann
hefur heimsótt
allt hið víðlenda
Norðvesturkjördæmi og átt fundi
og spjall með þúsundum manna á
þeim tíma. „Ég var að sækja inn í
tvö ný kjördæmi og vildi kynnast
fólkinu í þeim og lífsbaráttu þess.
Margt kom mér á óvart á þessum
ferðalögum," sagði Kristján í gær,
en hann var kjörinn til forystu á
lista Samfylkingarinnar í þessu
nýja kjördæmi. Hinn frambjóðand-
inn er Einar Már Sigurðarson, al-
þingismaður frá Neskaupstað sem
fékk 723 atkvæði í annað sætið.
„Við Einar Már höfum átt einstak-
lega gott samstarf á þingi og ég er
ánægður að það samstarf mun halda
áfram á næstu árum,“ sagði Kristján
í gærkvöld. „Ég sé að Samfylkingin er
á réttri leið og mun fá gott brautar-
gengi næsta vor.“
Kosningin var póstkosning, kjós-
endum var gefin vika til að koma
kjörseðli áfram til kjörstjórnar.
Þetta gaf góða raun að sögn Jóns
Inga Cesarssonar kosningastjóra
því að um 70% kusu. -JBP
Fyllilega sátt viö útkomuna
„Ég er fyllilega sátt við útkomuna en
gerði mér alltaf grein fyrir að þetta
gæti farið á hvorn veginn sem væri. Ég
setti markið hátt og átti í baráttunni
um annað sæti við öflugan keppinauta
að etja sem var Jóhanna Sigurðardótt-
ir,“ sagði Bryndís Hlöðversdóttir í sam-
tali við DV í gær. Ekki hefúr verið
ákveðið að öðru leyti, segir Bryndís,
hvemig framboðslistar Samfýlkingar í
Reykjavík nákvæmlega verða. Þau Öss-
ur og Jóhanna, sem náðu tveimur efstu
sætunum, munu fara fyrir listum
flokks síns hvort í sínu Reykjavíkur-
kjördæminu.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
náði 4. sætinu í flokksvalinu og kveðst
ánægð með útkomuna. „Ég setti mér
það markmið að ná öðra sætinu í öðru
hvoru Reykjavíkurkjördæminu og það
Einn af sigurvegurum dagsins
Jóhanna Sigurðardóttir vann yfirburöasigur í keppni um annaö sæti í
prófkjörinu, sem er um leiö forystusæti í ööru Reykjavíkurkjördæmanna.
gekk eftir. Það var hart sótt að þing-
mönnum flokksins af öðrum frambjóð-
endum en Reykvíkingar treysta greini-
lega mér og öðrum þingmönnum
flokksins í borginni til áframhaldandi
starfa í sína þágu. En annars var mjög
óljóst hver úrslitin yrðu því að þetta
var mjög hörð barátta."
Ná góðum árangri
„Með þessum úrslitum tel ég að kjós-
endur séu að lýsa yfir trausti sínu á
þingmönnum flokksins í Reykjavík.
Fyrir svo utan að góðum árangri ná öfl-
ugir menn eins og Helgi Hjörvar og
Mörður Ámason og svo nýliðinn Ágúst
Ólafur Ágústsson," sagði Bryndís
Hlöðversdóttir.
Helgi Hjörvar, sem hafiiaði í 7. sæti,
segist vera ánægður með úrslitin og ár-
angur sinn. „í síðustu kosningnum
náðum við á þing 6,35 þingmönnum
miðað við nýja kjördæmaskipan og
auðvitað stefnum við að því að auka
við fylgi okkar núna. 7. sætið hlýtur
því að vera baráttusæti," sagði Helgi.
Spurður um hvort þörf hefði verið á
endumýjun á þingliði flokksins í borg-
inni svarar Helgi því til, að úrslitin
sýni að þátttakendur í flokksvalinu
hafi verið á annarri skoðun.
-sbs/ÓTG
Erum í meðbyr
- segir Guðmundur Árni Stefánsson, kominn í leiðtogasætið í „kraganum‘
Guðmundur Árni Stefánsson er
kominn í hlutverk leiðtoga Samfylk-
ingar í nýju kjördæmi, „kraganum",
en svo hefur Suðvesturkjördæmi
landsins verið nefnt. Það spannar
byggðarlög tugþúsunda íbúa allt um-
hverfis höfuðborgina. Guðmundur
Árni var ánægður með gang mála í
gær og bjartsýnn á framtíðina. Sú var
tíð að hann gekk í gegnum meiri
hremmingar á stjórnmálaferlinum en
títt er og sagði af sér ráðherraemb-
ætti.
„Ég held glaður út í þennan kosn-
ingavetur sem án efa verður heitur.
Amerískur hvíldarstóll
Ótrúlega þœgilegur!
Það er mikill
hugur í okkur
samfylkingar-
fólki, ekki sist
hér í þessu kjör-
dæmi. Það er
ekki spurning að
við munum
sækja 4 þing-
menn enda finn-
um við greini-
lega fyrir mikl-
um meðbyr,"
sagði Guðmund-
ur Ámi Stefáns-
son sem fékk
1.094 atkvæði í
fyrsta sæti eða
tæp 58%.
Þrjár konur
í kjölfar Guð-
mundar Árna
komu fjórar kon-
ur sem hann segir öflugar. í öðru sæti
er Rannveig Guðmundsdóttir, sem
keppti við Guðmund Áma um for-
ystusætið og hlaut tæp 30% atkvæða,
og Þórunn Sveinbjarnardóttir í þriðja.
í fjórða sæti er Katrín Júlíusdóttir, 27
ára. Hún hlaut ekki bindandi kosn-
ingu í fjórða sætið en svo litlu munaði
að engar líkur eru á að við því verði
hróflað. Guðmundur sagði að róið
yrði að því öllum árum að Katrín
næði kjöri á næsta vori og þangað
kæmi hún með ferska vinda, nýjar og
góðar hugmyndir.
Ásgeir Friðgeirsson ritstjóri varð
fimmti, hlaut 1.002 atkvæði í 1.-5.
sæti, og Valdimar Leó Friðriksson 718
atkvæði í 1.-6. sæti.
„Flott forystusveit"
Rannveig Guðmundsdóttir tók nið-
urstöðunni vel. „Við Guðmundur höf-
DV-MYND HARI
Á toppnum
Guömundur Árni og Inga Dóra kona hans ánægö eftir
prófkjöriö.
um háð hildi saman áður, ég hef tvi-
vegis unnið. Ég vissi að í þessu
flokksvali ætti ég undir högg að sækja
og að leikurinn yrði ójafnari en áður.
En það get ég sagt á þessari stundu að
ég mun standa þétt við hliðina á Guð-
mundi Árna eins og ævinlega. Þetta
er flott forystusveit, góð blanda af
konum og körlum og ung og efnileg
kona í baráttusætinu. Þetta er fram-
boðslisti sem nær miklum árangri á
vori komanda," sagði Rannveig.
„Það er greinilegt að samfylkingar-
fólk vill ungt fólk til starfa. Ég hef
mörg málefni sem ég vildi vinna að á
þingi ef til þess kæmi; húsnæðismál
ungs fólks, menntamálin og svo vil ég
skoða aðild að Evrópusambandinu.
Málefnin eru fjölmörg," sagði Katrín
sem var afar ánægð með niðurstöðu
prófkjörsins.
-JBP/ÓTG
Það var langt liðið á aðfaranótt
sunnudags þegar tölur lágu fyrir í
flokksvali Samfylkingar í Reykjavík
um skipan framboðslista flokksins fyr-
ir kosningamar í vor. Svo sem búast
mátti við fékk össur Skarphéðinsson,
formaður flokksins, flest atkvæði í
fyrsta sæti, sem hann sóttist einn eftir.
Stuðningur við formanninn var þó
ekki nema ríflega 55%; hann fékk 1.989
atkvæði í fyrsta sæti en alls greiddu
3.605 atkvæði.
í öðru sæti varð Jóhanna Sigurðar-
dóttir, sem heita má sigurvegari próf-
kjörsins, en hún hafði Bryndísi
Hlöðversdóttur undir í baráttunni um
forystusæti í öðru Reykjavíkurkjör-
dæmanna með um 700 atkvæða mun að
eigin sögn. (Upplýsingar um skiptingu
atkvæða i sæti hafa ekki fengist hjá
kjörstjóm en fengust staðfestar annars
staðar.)
Bryndís hafhaði í þriðja sæti, Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir í því fjórða
og Guðrún Ögmundsdóttir í fimmta
sæti.
Utan þingflokksins náði Mörður
Árnason bestum árangri eða sjötta
sæti. Helgi Hjörvar hafnaði í sjöunda
sæti, Ágúst Ólafur Ágústsson i áttunda
og Einar Karl Haraldsson í níunda.
Jakob Frimann Magnússon, sem setti
markið á annað til þriðja sæti, hafnaði
í tíunda sæti.
Stuttar fréttir
Verklag gagnrýnt
Lögfræðingur Alþjóðahúss hefur
gert alvarlegar athugasemdir við
verklag Útlendingaeftirlitsins. Mál-
ið snýst um kæru til dómsmálaráðu-
neytis en ráðuneytið hefur í tvígang
á árinu hnekkt úrskurði Útlend-
ingaeftirlitsins og veitt útlending-
um dvalarleyfi af mannúðarástæð-
um. RÚV sagði frá.
Geta krafist greiðslna
Hæstiréttur dæmdi í liðinni viku
konu í vil þegar hún stefndi ríkinu
vegna launa í barnsburðarleyfi.
Gísli Tryggvason, lögmaður og
framkvæmdastjóri BHM, segir í
samtali við mbl.is að kröfur kvenna
í vinnu hjá ríkinu um að fá um-
samda óunna yfirvinnu viður-
kennda sem hluta af dagvinnulaun-
um í fæðingarorlofi hafi lengi verið
baráttumál samtakanna.
Ölvaður í bílastæöi
Héraðsdómur
Reykjavikur dæmdi
í síðustu viku karl-
mann á sextugsaldri
til greiðslu 100 þús-
und króna sektar og
svipti hann ökuleyfi
í eitt ár fyrir ölvun-
arakstur. Maðurinn
var ákærður fyrir að hafa ekið bíl af
stað úr bílastæði við Fríkirkjuveg í
Reykjavik, stuttan spöl út á götuna og
síðan aftur í stæðið.
Fjórir skipta vinningi
Fjórir voru með allar tölur réttar
í lottóinu um helgina og deila með
sér fyrsta vinningi sem var tæpar 50
milljónir króna. Alls koma 11,9
milljónir i hlut hvers þeirra. Vinn-
ingstölumar voru 2, 8, 13, 15 og 36
og bónustalan var 7.
Borgarkarlar kvarta
Karlar á fimmtugsaldri, búsettir í
höfuðborginni, kvarta öðrum frem-
ur til umboðsmanns Alþingis. Þetta
kemur fram í nýútkominni árs-
skýrslu umboðsmanns Alþingis.
Alls kvörtuðu 188 karlar og 57 kon-
ur til umboðsmanns. Flest málin
fjalla um tafir á afgreiðslu mála hjá
stjórnvöldum og einnig málsmeð-
ferð stjórnvalda.
EFTA-ríkin borga mest
Framkvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins gerir kröfu um að EFTA-
ríkin leggi margfalt meira fé í þró-
unarsjóð fyrir fátækari riki en þau
gera nú. Þetta kemur fram i drögum
að samningsumboði sem fram-
kvæmdastjórnin hefur sent EFTA-
ríkjunum. RÚV greindi frá.
Vindasamt í Öræfum
Vindur var hvass i Öræfum og
fór I hátt í 40 metra á sekúndu í
mestu hviðunum um helgina. Færð
er víðast hvar góð á landinu.
Búslóðin brann
Kennarabústaður við Reykja-
skóla í Hrútafirði brann til grunna
á laugardagskvöld. Húsiö var mann-
laust þegar eldurinn kom upp og
missti kennari sem þar bjó búslóð
sína.
Unnu hönnunarkeppni
Hjallaskóli og Klébergsskóli sigr-
uðu í hönnunarkeppni verkfræði-
deildar HÍ og Barnasmiðjunnar sem
haldin var i dag. Þar kepptu nemend-
ur tólf grunnskóla í Reykjavík í hönn-
un farartækja úr Legokubbum. -aþ