Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 DV Fréttir 13 Jón Helgi Björnsson hjá Norðlenska: Getum ekki haldið uppi hærra verði Norðlensk mat- væli hafa lækkað verð á nautakjöti til bænda auk þess sem nautakjöts- framleiðendur þurfa að greiða 300 krónur ef þeir taka innmatinn til baka til sin. Fyrir inn- legg á innmat bæt- ast hins vegar 150 krónur. í frétt í DV á miðvikudag segir að skilaverð standi alls ekki undir ffamleiðslukostn- aði bænda, hvað þá lægra verð sem nú er verið að bjóða. Hætt er við að margir nautgripabænd- ur hugsi nú sinn gang, ætli þeir að fá eitthvað greitt t.d. upp í laun. Sam- keppni milli sláturleyfishafa hefúr ver- ið mjög mikil og Norðlenska var að greiða um 5% hærra skilaverð til bænda en samkeppnisaðilamir fyrir nautakjötið í júni, sem lækkaði um 3% i júlí, en telur sig ekki fá það til baka í áframsölu út á markaðinn, þ.e. í hækk- uðu vöruverði. í harðri samkeppni séu ekki forsendur til þess að greiöa hærra verð en aðrir. Jón Helgi Bjömsson, fram- kvæmdastjóri Norðlenska á Húsa- vik, segir að Norð- lenska hafi ffá því í sumar verið að greiða meira fyrir nautgripainnlegg til bænda en aðrir sláturleyfishafar en hafi í engu notið þess á markaðnum. „Það hefúr verið aukið framboð af nautum á landinu og minni sala á þessum tíma. Þegar mönnum fmnst verðið lágt minnkar ffamboðið en þó yfirleitt timabundið. Við getum ekki haldið uppi hærra verði en aðrir. Það er mikið verðstrið á kjötmarkaðnum og nautakjöt og lambakjöt er í mikilli samkeppni ffá svínakjöti. Aukin kjúklinganeysla kemur ffekar niður á fiskneyslu. Það er því nánast ekkert svigrúm til að hækka verðið til neyt- enda. Flestar afurðastöðvamar hafa undanfarin ár verið reknar með tapi,“ segir Jón Helgi Bjömsson. -GG Hafa lækkaö verð Norölensk matvæli hafa lækkaö verö á nautakjöti til bænda Lionsmenn afhenda nýju sjónvörpin Ný hjarta- og lungnaskurödeild LSH fékk góöa gjöf i gær þegar félagar í Lionsklúbbnum Víöarri afhentu 18 sjónvarpstæki fyrir sjúklinga. Ný hjartadeild: Sjónvarp fyrir alla Lionsklúbburinn Víðarr færði nýrri deild Landspítalans - háskóla- sjúkrahúss 18 sjónvarpstæki að gjöf - það þýðir aö hver sjúklingur á deildinni verður með sitt eigið sjón- varp. Sú breyting vapð á skipulagi spít- alans að hjartalækningar sameinuð- ust formlega í gær með stofnun nýrrar hjarta- og lungnaskurðlækn- ingadeild. Deildin sem kallast 12E er á spítalanum við Hringbraut. Meö stofnun nýju deildarinnar lýkur mikillli endurskipulagningu á starfsemi og húsnæði vegna samein- ingar hjartalækninganna. Þess má geta að á 12E verður einnig leigu- deild augnsjúklinga. -gss Hluthafafundur Islandssíma hf. Íslandssími hf. boðar hér með til hluthafafundar sem haldinn verður þriðjudaginn 19. nóvember 2002, kl. 14:00, í salnum Háteigi á 4. hæð Grand Hótels, Sigtúni 38, Reykjavík. Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál 1 Skýrsla stjórnar 2 Aukning hlutafjár vegna samruna við Halló! Frjáls Fjarskipti ehf. Lögð verður fram tillaga um samruna við Halló! Frjáls fjarskipti ehf. Jafnframt verður tillaga um að hluthafafundur samþykki að hækka hlutafé félagsins um kr. 412.183.730 að nafnverði, með útgáfu nýrra hluta. Hlutafénu verður ráðstafað sem gagngjald fyrir allt hlutafé í Halló! Frjálsum Fjarskiptum ehf. Skiptihlutfall er þannig að fyrir hverja 1 kr. að nafnverði sem hluthafar í Halló! Frjálsum Fjarskiptum ehf. láta af hendi fá þeir 7,708976 kr. að nafnverði í fslandssíma hf. Jafnframt falla hluthafar frá forgangsrétti til hinna nýju hluta. 3 Aukning hlutafjár vegna kaupa á hlutabréfum í TAL hf. Lögð verður fram tillaga um að stjórn félagsins fái heimild til að hækka hlutafé félagsins um kr. 1.621.621.622 að nafnverði með útgáfu nýrra hluta á sölugenginu 1,85. Hluthafar falla frá forgangsrétti til hinna nýju hluta. Heimild þessi gildir í sex mánuði frá samþykkt hluthafafundar. 4 Almenn aukning hlutafjár Lögð verður fram tiilaga um að stjórn félagsins fái heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 1.027.027.027 að nafnverði með útgáfu nýrra hluta. Sölugengi hinna nýju hluta skal ákveðið af stjórn félagsins. Heimild þessi gildir til 1. október 2003. Stjórn félagsins er heimilt að ákveða greiðslufyrirkomulag nýrra hluta. 5 Aukning hlutafjár vegna kaupréttarsamninga Lögð verðurfram tillaga um breytingu á grein 2.01.2 í samþykktum félagsins þess efnis að stjórn félagsins hafi heimild til að ákveða hækkun á hlutafé félagsins um allt að kr. 70.000.000 að nafnverði vegna kaupréttarsamninga starfsmanna. Heimildin gildir í fimm ár frá samþykkt hluthafafundar. 6 Kosning stjórnar og varastjórnar 7 Önnur mál Dagskrá og fundargögn verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins viku fyrir fundinn. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað. Stjórn (slandssíma hf. Íslandssími Smáauglýsingar allt fyrir heimilið DV 550 5000 E F ^ T M llls P Tiisftí^E b T*1* I P Í.T Sérðu atvinnutækið sem þig langar í? Taíaðu við sérfræðing! Glitnir er sérfræðingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun getur skipt mihlu um heildarkostnað við fjárfestingu. Glitnir býður fjórar ólíkar leiðir við fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á skjótan hátt þegar nauðsynleg gögn liggja fyrir. Hafðu samband við ráðgjafa Glitnis eða kíktu á www.glitnir.is ogfáðu aðstoð við að velja þáfiármögnunarleið sem hentarbest. Traustur samstarfsaðili í atvinnutækjafjármögnun Glitnir Kirkjusandi ■ 155 Reykjavík • www.glitnir.is • Sími 440 4400

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.