Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Page 27
MÁNUDAGUR l'l. NÓVEMBER 2002 DV Tilvera Demi Moore fertug Demi Moore á stóraf- mæli í dag. Hún fæddist í Nýju-Mexíkó og var skírð Demetria Gene Guynes. Ung aö árum fór hún til Hollywood með stjömu- blik í augum. Ekki gekk henni vel til að byrja með og var um tíma illa farin af dópneyslu. Þegar henni var boðið hlutverk dópista í St. Elmos Fire varð hún að skrifa undir samning þess efnis að hún drykki ekki áfengi og notaði ekki dóp meðan á tökum stóð. Þessi klásúla breytti lífi hennar og upp frá því fór vegur hennar vaxandi. 1990 giftist hún Bruce Willis og stóð hjóna- bandið í tíu ár og eiga þau þrjár dætur. Gildir fyrir þriöjudaginn 12. nóvember Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.): yÞú skipuleggur ferða- *lag með elskunni þinni. Bjartsýni gætir hjá þér og almennrar ánægju með lífið og tilveruna. Fiskarnir(19 febr.-?0. marsl: | Gerðu eins og þér ist réttast í máli sem þú þarft að taka afstöðu til. Þó að vinir þínir séu boðnir og búnir til að hjálpa stoðar það lítt. Hrúturinn (21. mars-19. april): Þú gætir orðið var við vanþakklæti í þinn í garð. Það er ekki víst _ að það borgi sig að slíta sér út fyrir aðra. Alla vega skaltu ekki búast við miklu þakklæti. Nautlð (20. apríl-20. maí): Þú átt í mesta basli með , að sannfæra vin þinn um að það sem þú sért að gera sé það rétta í stöðunni. Þú þarft kannski að kynna honum málavextina betur. Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi: Þú hyggur á aUsheij- farbreytingar heima fyrir. Þar er í raun mikið verk að vinna. Þú færð óvænt skilaboð sem þú áttar þig ekki á. Krabblnn (22. iOni-22. iúlíl: Það eru spennandi htímar fram undan hjá ^þér. Þú fæst við eitt- ______m hvað nýtt á hverjum degi og nærð talsverðum árangri. Ástin lætur á sér kræla. Uánlð (23. iúií- 22, égýst): |Þú þarft á allri þolin- * mæði þinni að halda í samskiptum við erfiðan _ j aðila á vinnustað. Ekki láta hann finna fyrir þvi hvað þér finnst hann vera leiðinlegur. Meyjan (23. .ágúst-2g. svpU: ik. Þú færð stöðuhækkun í vinnunni eða ein- ^^V^fcJiverja verulega viðiu'- ^ ' kenningu sem á eftir að hafa töluverð áhrif. Happatöl- ur þínar eru 5, 7 og 32. Vogln (23. sept.-23. oKt.): Einhverjar breytingar eru fyrirsjáanlegar á högum þínum á næst- unni. Kannski er um búíerlaflutninga að ræða Vogln (23. se Ý búferlaflut Sporðdreklnn (24. nkt.-?i. nóv.i: Láttu eins og ekkert sé * þó að vinur þinn fari ^eitthvað í taugama á * * ^þér. Þetta ástand líður hjá. Bogmaðurinn (22. nóv.-2l. des.): Þú færð endurgoldinn Fgreiða sem þú gerðir ■ fyrir löngu og varst búinn að gleyma. Vandamál skýtur upp kollinum í vinnunni. Stelngeltin (22. des.-l9. iaoái Þú ert fremur við- kvæmur þessa dagana og tekur gagnrýni illa. Ástæðan gæti verið sú að streita hrjáir þig. Þá er slökun besta ráðið. Nýtt unglingaleikrit frumsýnt fyrir norðan: Draugasögur á Dalvík , - rætt við Júlíus Júlíusson um leiklist, veður og fisk Á miðvikudagskvöld í næstu viku frumsýnir Leikfélag Dalvíkur verkið Kverkatak, sem er nýtt drauga- og sakamálaleikrit eftir Július Júlíusson. Hann er jafnframt leikstjóri verksins, en leikarar eru tuttugu talsins og á aldrinum 13 til 17 ára. Aiis koma um sextíu manns að uppsetningu verksins, í flestum tilvikum ungt fólk. Margt af þvi fólki segir Júlíus að séu efnilegir framtíðarleikarar og tæpast þurfi leik- félagið á Dalvík að kvíða framtíðinni, en það hefur verið eitt af öflugri áhuga- leikfélögum landsms. Hvergi stoð í raunveruleikanum „Þetta eru mjög eöiilegir krakkar sem taka þátt í leikritinu. Það hefur líka verið einkar skemmtilegt að vinna með þeim,“ sagði Júlíus þegar DV sett- ist niður með honum. Leikfélagið á Dalvik setur einnig upp stórt verkefhi með þátttöku eldri leikara eftir nýár. Sögusviðið í leikritinu Kverkatak er lítill hær úti á landi. Sex unglingar, þrjár stúlkur og þrír strákar, ákveða að fara í útilegu i verbúð. Á sveimi hafa verið frásagnir um vofveiflega atburði og fljótlega eftir að krakkamir koma þangað fara hinir undarlegustu hlutir að gerast. Liggja rætur þeirra bæði í þessum heimi og annars staðar. Segir Júlíus að verkið sé allt í senn, spenn- andi, fyndið og oft á tíðum komi það áhorfendum á óvart. Júlíus segir að leiklistaráhugmn hafi fylgt sér lengi. Það eru þó ekki nema fjögur til fimm ár siðan hann blandaði sér fyrst í leikinn og fór að starfa með leikfélagmu í heimabyggð sinni. Hafi hann enn fremur sótt sér menntun á þessu sviði, svo sem í sum- arskóla þeim sem Bandalag íslenskra leikfélaga starfrækir í Svarfaðardal á sumri hveiju. „Þetta er fyrsta verkið sem ég skrifa sjálfur og Kverkatak er verk sem á sér hvergi neina stoð í raunveruleikanum. Þetta er algjörlega saga sem hefur orð- ið til í kollinum á mér,“ sagði Júlíus og telur líklegt að hann muni jafnvel reyna meira fyrir sér á þessu sviði í ná- inni framtíð. Alltaf fyllist í skörðin „Ég hef mikinn metnað fyrir hönd Dalvíkur, þessa byggðarlags þar sem ég er fæddur og búinn að eiga heima alla mína tíð,“ segir Júlíus. Hans daglega viðurværi er að annast tómstundastarf aldraðra á dvalarheimilinu Dalbæ. Er það starf raunar þekkt hjá alþjóð fyrir tilstilli Veðurklúbbsins en spár hans um veðráttu komandi mán- aða hafa löngum þótt næsta óbrigðular. „Ég hef raunar átt í svolitlum vand- ræðum með klúbbstarfið að undan- fómu, svo margir úr hópnum hafa lát- ist á síðustu misserum. En alltaf fyllist í skörðin, en það tekur bara sinn tíma,“ segir Júlíus. Bætir við að það aldraða sómafólk sem starfað hafi í klúbbnum hafi flest hvað um sína daga starfað við sjávarútveg og landbúnað, margt af því fyrir þann tíma áður en veðurspár nútímans komu til og voru orðnar jafii góðar og nú. Þannig hafi fólk fyrri tíma orðið að fylgjast grannt með tunglkomum, sjávarfóllum og táknum í náttúrunni - til þess að fá einhveija fyrirboða um veður komandi mánaða. Þetta sé mikilvæg þekking sem mikilvægt sé að haldist við. „Eins og spáin er núna þá virðist margt benda til þess að við séum núna að sigla inn í harðan vetur. En við sjáum hvað setur,“ segir Júlíus. A5 trúa á eigin hugmyndir Öll þekkjum við hversu mikilvægt það er ætlum við að ná árangri í lifinu að trúa á okkar eigin hugmyndir og keyra þær áfram af sannfæringarkraft- inum. „Ég var strax fullviss um að hug- myndin um Fiskidaginn mikla hér á Dalvík gæti gengið upp og sú hefur orð- ið raunin. Úrtölumennimir voru þó vissulega til staðar þegar við fórum af stað í - a HH & • m _ ýf. -4-f 'wfjÍfrSý M « : Ú Hvað gamall nemur, ungur temur Hér er mátshættinum góöa snúiö við - Júlíus starfar á Dalbæ og veitir þar forstööu Veöurklúbbnum landsþekkta. Lelkhópurinn Unglingarnir sem taka þátt í leiksýningunni á Kverkataki eru á aldrinum 13-18 ára. fyrra. Þá mættu um sex þúsund gestir en voru tæplega fjórtán þúsund þegar dagurmn var haldinn í sumar; aðra helgina í ágúst. Það sýnir best hversu rækilega hugmyndin hefur slegið í gegn,“ segir Júlíus. Meginstef Fiskidagsins mikla var fiskur og sjávarfang sem boðið var upp á í fjölbreytilegum útgáfum. Skemmti- atriöi voru mörg hver tengd sjónum - sem er vel við hæfi í sjávarplássi eins og Dalvík er. Segir Július menn vera harðákveðna í að halda áfram, enda sýni góð mæting í fyrrasumar að ekki sé ástæða til að slá neitt af. Undirbún- ingur að Fiskidegi næsta árs sé raunar þegar hafinn. „Það skiptir öllu máli að hafa trú á eigin hugmyndum og finna að maður sé á réttri leið. Þá kemst maður langt, enda þótt úrtölumennirnir mæti manni gjaman. Það höfðu ekki allir trú á Fiskideginum mikla í upphafi, hvað þá heldur Veðurklúbbnum. Sjálfsagt fmnst mörgum fjarstæða að virkja fimmtíu krakka til samstarfs við að setja upp leiksýnmgu. En þau standa sig með prýði - og ég er stoltur af þeim," sagði Júlíus Júlíusson að síð- ustu. -sbs BÍLAMÁLUN JONASAR K. HARÐARSONAR i'W'duc vimubúctb / - KAPiAHRAUNi 14 HAFNARFIRÐI - . SÍMi: 555-1540 - Umboösaöilar: - veldu aðeins það besta Dekk Hjólbarðaverkstæði Bflabúðar Benna • Reykjavík Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns • Reykjavík Nesdekk • Seltjarnarnesi Dekk og smur • Stykkishólmi Léttitækni • Blönduósi Höldur • Akureyri Bílaþjónustan • Húsavík Smur og Dekk • Höfn Hornafirði IB Innflutningsmiðlun • Selfossi 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.