Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Qupperneq 32
LOFTNETSEFNI
*
AVOC
1660
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz (íli)
- Loforð er loforð
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Hafið
fékk átta
Eddur
Hafið hlaut átta verðlaun á glæsi-
legri Edduhátíð i gærkvöld - besta
kvikmyndin, sem þar með verður
framlag íslands til Óskarsverðlauna.
Framleiðandinn, Baltasar Kormákur,
fékk einnig verðlaun fyrir bestu leik-
stjómina, og besta handritið ásamt
Ólafi Hauki Simonarsyni. Gunnar Eyj-
ólfsson var valinn besti karlinn í aðal-
hlutverki. Hann er staddur með ís-
lenska ólympíulandsliðinu i skák í Sló-
veníu og fékk tilkynningu um valið
gegnum farsíma Baltasars en leikstjór-
inn náði að láta guðfóður sinn ávarpa
þjóðleikhússgesti og landsmenn í
beinni útsendingu með aðstoð hand-
frjáls búnaðar.
! Elva Ósk Ólafsdóttir var valin besta
leikkonan í aðalhlutverki í Hafinu en
þau Herdís Þorvaldsdóttfr og Sigurður
Skúlason fengu verðlaun fyrir besta
leik í aukahlutverki í myndinni. Valdís
Óskarsdóttfr fékk Edduna íyrir bestu
klippinguna í Hafmu.
Áhorfendur risu úr sætum og hylltu
Magnús Magnússon þegar hann tók við
heiðursverðlaunum Islensku sjónvarps-
og kvikmyndaakademíunnar úr hendi
Tómasar Inga Olrichs menntamálaráð-
herra. Áramótaskaupið fékk Edduverð-
launin fyrir besta sjónvarpsverkið en
< *cÁmi Snævarr, á Stöð 2, fékk verðlaunin
fyrir að vera besti fréttamaðurinn, Jón
Ólafsson fékk Edduna fyrir þáttinn Af
flngrum fram og Sverrir Sverrisson,
Sveppi á Popp Tíví, var kosinn besti sjón-
varpsmaðurinn á mbl.is. -Ótt
Fimmti sigurinn
hjá skákliðinu
íslenska karlalandsliðið vann
sinn fimmta sigur í röð í 14. og síð-
ustu umferð Ólympíuskákmótins
þegar sterkt lið Indlands var lagt að
velli, 2,5-1,5. Helgi Áss Grétarsson
og Þröstur Þórhallsson unnu en
Helgi Ólafsson gerði jafntefli. Helgi
^ Áss fékk 4,5 v. í síðustu 5 skákunum
"* en Þröstur 4 vinninga. Kvennaliöið
tapaði fyrir Eistlandi 0,5-2,5. Rússar
urðu ólympíumeistarar í karla-
flokki en Kínverjar í kvennaflokki.
ísland varð efst Norðurlanda með 32
vinninga og er árangurinn liðsins
sá langbesti síðan 1996. -HK
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
VAR HANN EKKI A
HVOLFI?
»
DV-MYND HARl
Hafið kom, sá og sigraði
Baltasar Kormákur sópaöi til sín verölaunum á Edduhátíöinni í gærkvöld. Hér er Battasar ásamt eiginkonu sinni, Lilju Pálmadóttur, sem jafnframt var einn af
framleiöendum myndarinnar, Siguröi Skúlasyni og Herdísi Þorvaldsdóttur, en þau hlutu bæöi Eddu fyrir leik í aukahlutverki.
Össur Skarphéðinsson ánægður með útkomu flokksvalsins:
Ný leiðtogaefni
hafa komið fram
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingar, segist ánægður
með úrslitin í flokksvalskjörum
þeim sem efnt var til í nokkrum
kjördæmum um helgina. Bæði nái
þar reyndir þingmenn góðum ár-
angri, en ekki síður ungt fólk sem
klárlega sé efhiviður i forystusveit
flokksins í næstu framtíð. Segir
formaðurinn að eftir þessum úr-
slitum verði farið við frágang og
endanlega skipan framboðslista. í
einhverjum kjördæmum ættu þeir
raunar að geta orðið klárir í kring-
um næstu mánaðamót.
Nefnir Össur í þessu sambandi
meðal annars þá traustu kosningu
sem þeir Kristján L. Möller og Ein-
ar Már Sigurðarson fengu i 1. og 2.
sætið í Norðausturkjördæmi ...
en báðir eru þeir sterkir lands-
byggðarþingmenn", eins og hann
orðar það.
Beöið eftir úrslitum
Einar Karl Haraldsson og Ágúst
Ólafur Ágústsson.
Traustyfirlýsing
„Það hafa komið fram ný leið-
togaefni með flokksvalsaðferðinni.
Þama nefni ég Björgvin Sigurðs-
son sem náði þriðja sætinu í Suð-
urkjördæmi. Fjórða sætið á listan-
um í Suðvesturkjördæmi, sem
Katrín Júliusdóttir náði, verður
þingsæti á góðum degi. Ekki síður
hafa þeir Helgi Hjörvar og Ágúst
Ólafur Ágústsson náð baráttusæt-
um í Reykjavik," segir Össur
Skarphéðinsson.
Hann segist jafnframt líta svo á
að hinn góði árangur sem allflest-
ir þingmenn flokksins náðu sé
traustsyfirlýsing .. til okkar í
þingflokki Samfylkingarinnar sem
höfum verið atkvæðamesti þing-
flokkurinn það sem af er þessum
vetri", eins og Össur kemst að
orði.
Hugmyndir í vopnabúrið
Sumir sem stefndu hátt í próf-
kjöri Samfylkingar náðu ekki
þeim árangri sem þeir stefndu að,
svo sem Jakob Frímann Magnús-
son sem ætlaði sér 2. sætið í
Reykjavík en endaði í þvi 10. „Jak-
ob setti markið hátt en eins og
hann hafði raunar allan rétt á. En
þann lagði í baráttu gegn fólki sem
er burðarásar í okkar þingliði og
það styggði ýmsa flokksfélaga frá.
Hins vegar komu bæði hann og
Einar Karl Haraldsson fram með
ýmsar nýjar hugmyndir inn í
stjómmálin - og þær mun Sam-
fylkingin tvímælalaust draga í sitt
vopnabúr á þeim þingvetri sem nú
fer í hönd.“ -sbs
Örlögin tóku í taumana við Ljósavatn:
Ok ölvaður og endaði á hvolfi
Miðaldra maður var handtekinn
á móts við Ljósavatn í samnefndu
skarði um hábjartan dag siðdegis á
laugardag - maðurinn er grunaður
um að hafa verið vægast sagt ölvað-
ur.
Málavextir eru þeir aö þegar öku-
maður fólksbils ók sem leið lá aust-
ur Ljósavatnsskarð, áleiðis til Húsa-
víkur, tók hann eftir bfl mannsins
sem var á sömu leið. Aksturslagið
virtist grunsamlegt en þegar bílnum
var ekið út úr beygju rásaði hann
til, fór út i hægri vegkantinn en síð-
an yfir til vinstri og út af þeim meg-
in, endastakkst og valt út á hlið.
Bíllinn endaði á hvolfi. Þegar farið
var að huga að bílstjóranum reynd-
ist hann hafa sloppið ómeiddur.
Ljóst var hins vegar á öllu að hann
var mjög ölvaöur og óökuhæfur.
Vegfarandinn sem kom að
hringdi á lögreglu. Hann ákvað að
„geyma hinn grunaða" á meðan lög-
reglumenn kæmu frá Húsavík á
staðinn en þaðan eru um 46 kíló-
metrar.
Þegar lögreglumenn komu urðu
þeir þess áskynja að maðurinn var
ekki alveg í lagi - létu hann blása og
mældist alkóhól greinilega mjög
langt yfir mörkum. Maðurinn var
síðan handtekinn og skýrsla tekin
af honum og honum tekið blóð hjá
lækni.
Maðurinn kvaðst hafa verið að aka
frá Akureyri austur í Þingeyjarsýslur.
Hann hafði því lagt um 42 kílómetra
að baki þegar örlögin tóku völdin af
honum en þó er ljóst að hann ætlaði
sér að fara mun lengra.
Gera má ráð fyrir að maðurinn
missi ökuréttindin í a.m.k. í eitt ár og
sektin verður ekki minni en 100 þús-
und krónur. -Ótt
Norðlingaölduveita:
Forsenda stækk-
unar álvers
„Norðlingaöldulónið er forsenda
fyrir stækkun álversins i Hvalfirði ef
það á að byggjast á þeim tíma sem fyr-
irhugað er,“ segir Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar, í DV-yfir-
heyrslu í dag.
Enginn annar kostur sé í stöðunni á |
þessari stundu miðað við þann tíma og
byggingarhraða sem um er rætt varð- ,
andi álverið. Friðrik telur að rök
þeirra sem hafa lýst yfir andstöðu við '
gerð miðlunarlóns við Norðlingaöldu
vera verulega lituð af tilfmningum. í
ljósi fuglavemdarsjónarmiða telur
hann að hættan fyrir heiðagæsina sé
miklu minni en hingað til hefúr verið
talið. Aðeins veröi hróflað við mjög
litlu broti af því svæði sem heiöagæsin
notar til varps í Þjórsárvemm. -HKr.
Sjá yfirheyrslu bls. 6.
Pétur vill
ráðherrastól
Pétur H. Blöndal
alþingismaður set-
ur stefnuna á ráð-
herrastól í vor. „Ef I
Kjósendur vilja
veita mér 3. sætið í
prófkjöri og Sjálf-
stæðisflokkurinn
verður í stjóm eftir
næstu þingkosningar, þá mun ég gefa
kost á mér sem ráðherra," sagði dr.
Pétur í gær. Hann segist þess umkom-
inn að stjóma ráðuneyti heilbrigðis-
mála eða fjármála.
Pétur hefur senn setið i 8 ár sem
þingmaður. Hann segir að barátta sín
sé fyrir hugsjónum og gegn sérhags-
munum. -JBP
/
I
Brother PT-2450 merkivélin
Mögnuö vél
sem, meí> þlnni hjálp,
hefur hlutina f röð
og reglu.
Snjöll og góð lausn á
óreglunni.
Rafport
Nýbýlavegi 14 • sími 554 4443 •