Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Blaðsíða 1
Vilhjálmur Egilsson um viðbrögð verði prófkjör látið gilda: Þá þarf leiðbeiningar um hvaða reglur megi brjóta Ef miöstjóm flokksins vill ekki ógilda prófkjörið Mýtur hún að gefa út leiðbeiningar um hve miklir ann- markar megi vera á prófkjöri," segir Vilhjálmur Egilsson um erindi það sem samþykkt var á fundi 65 félaga í fulltrúaráðum Sjálfstæðisflokksins í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum í gær. í því er óskað eftir því við mið- stjóm flokksins að hún kveði upp úr um hvaða áhrif annmarkar á fram- kvæmd prófkjörsins í Norðvesturkjör- dæmi hafi á gildi þess. Spurður um það hver væri að hans mati besta niðurstaða miðstjórnar segir Vilhjálmur: „Réttlátasta niður- staðan er auðvitað sú að við fáum sig- ur okkar viðurkenndan." Davíð Oddsson, formaður flokksins, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að hann teldi ekki að mistök sem urðu við prófkjörið gætu orðið til þess að eyðileggja allt prófkjörið. Nýr próf- kjörsslagur væri „della og vitleysa" og hann vildi ekki ota flokknum út í slíkt. Vilhjálmur segist ætla að ræða við Davíð áður en hann túlkar orð hans en segist reiðubúinn að hlusta á aðrar tillögur en að endurtaka próf- kjörið. Til dæmis megi skoða hvort unnt sé að ógilda aðeins utankjör- fundaratkvæðagreiðsluna eða stilla upp á listann. Hann segir að verði prófkjörið látið standa hljóti að vakna spumingar um hve miklir ágallar megi vera á próf- kjöri - miðstjórnin gefi þá væntanlega út leiðbeiningar um það þannig að menn viti hvað ganga megi langt í að brjóta reglurnar. ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 2 í DAG Þaö var rafmögnuö stemning í Laugardalshöll á laugardagskvöldiö þegar fyrsti „alvöru" hnefaleikabardaginn á íslandi í 50 ár fór fram. Um 2.000 áhorfend- ur létu sjá sig og var umgjöröin öll hin glæsilegasta. íslendingar sigruöu I þremur af sex viðureignum viö bandaríska andstæöinga sína. „Þetta var frábært kvöld og alveg á viö gott atvinnumannakvöld," sagöi Guöjón Vilhelm Jónsson hnefaleikaraþjálfari eftir bardagann. Giulio Andreotti sekur um morö ítalir voru sem þrumu lostn- ir í gærkvöld eftir að Giulio Andreotti, fyrrum forsætisráð- herra Ítalíu, var dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir að hafa feng- ið mafluna til að drepa blaða- mann sem ætlaði að birta skað- andi upplýsingar um hann. Fyrir þremur árum var hinn 83 ára gamli Andreotti, sem sjö sinnum gegndi embætti forsæt- isráðherra, sýknaður af ákæru um að hafa látið myrða blaða- manninn Mino Pecorelli árið 1979. Andreotti hefur ávallt neitað sök. Andreotti ætlar að áfrýja dóminum og á meðan fær hann að ganga laus. „Þetta er algjört brjálæði," sagði Franco Coppi, lögmaður Andreottis, í simtali við frétta- mann Reuters. ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 10 í DAG ENSKA KNATTSPYRN- AN: Liverpool náði ekki að leggja Sund- erland 31 NÚTÍMADANSHÁTÍÐ í TJARNARBÍÓI: Óljósir draumar • Bílaréttlngar • Bílamálun Þú fsrð bílaleigubíl á —BHI Símí 554 2510 Nýbýlavegi 10 ■ Kópavogi Við hliðina á Toyota umboðinu • www.bilasprautun.is AUKARAF W ver, verks Skeifan 4 æoi Sími 585 0000 www.aukaraf.is Handfrjáls GSM búnaður á 9.945.- ‘ its**? * ^ •“-s ‘S-sn* • f ■ ÍJ mammmmm ____ ...... cí ““ — .... geislaspilárar frá 2879 0 0.- m m m m jgg* FRI-IÍSETNING I NOVEMBER

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.