Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Blaðsíða 28
52 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2002 Tilvera DV Mikki eldri en margur heldur Mikki mús er eldri en margur heldur því nýlega fannst 700 ára gömul mynd af honum á fomri veggmynd í kirkju í Möltu-dal í Carinthia-héraði í Austurríki. Mynin er svo svo lík að halda mætti að sjálfur Walt Disney hefði verið þar á ferð, en hann teiknaði Mikka fyrst árið 1928. Það var austurriskur listfræð- ingur, Eduard Mahlknecht, sem uppgötvaði myndina nýlega við rannsóknarstörf en Mikki er þar í öllu sínu veldi við hliðina á dýr- lingnum Sankti Kristófer. Að sögn Eduards er myndin frá því í byrjun fjórtándu aldar. „Þetta er aö mínu mati algjör tilviljun en St. Kristófer hefur oft verið málaður með dýr í kringum sig og í þetta skipti fígúru sem er ótrúlega lík Mikka mús,“ sagði Eduard. Ferðamálayfirvöld í héraðinu hugsa sér gott til glóðarinnar og sagði Siggi Neuschitzer ferðamála- fulltúi þetta algjöra himna- sendingu. „Þetta er Mikki ljóslifandi og svo likur að við gætum hugsanlega náð einka- réttinum af Disney. Okkar er 700 árum eldri og lagalegur réttur hlýtur því að vera okkar megin,“ sagði Siggi, en auðvitað í gríni. tHíkemstfljóttað! ...enþúgeturlíkapantadtíma Rakarastofan Klapparstíg stofnaðigiS* * sími 551 2725 Upplýsingar Islma 580 2525 Textavarp ÍÚ 110-113 RÚV281, 283 og 284 Jókertölur laugardags &Æ 7 2 3 3 1 —aes ■S?\ AÐALTÖLUR 1 ) 14 ) 20 21) 22) 44 BÓNUSTÖLUR Alltaf á * miðvikudögum JW Jókertölur mlðvlkudags jEaL 01910 S Listasafn íslands: Islensk samtímalist Dagur íslenskrar tungu: Þjóðlegt á Egilsstöðum Tvær danskar Sif Gunnarsdóttir skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Á laugardag var opnuð stærsta sýning sem haldin hefur verið á íslenskri samtímalist í Listasafni íslands. Listafólkið sem á verk á sýningunni er allt fætt eftir 1950, en sýnd eru 99 verk eftir 53 lista- menn í sölum en 317 verk eftir 97 listamenn í tölvum, gerð á árun- um 1980-2000. Verkin eru öll í eigu Listasafns íslands en fæst þeirra hafa verið sýnd þar áður. Safnið býður upp á viðamikla leið- sögn, barnadagskrá og umræður í tengslum við sýninguna. Sýning- arstjóri er dr. Ólafur Kvaran safn- stjóri. DV-MYNDIR KÖ Norðurljós í Listasafni ísiands Kona virðir fyrir sér Norðurljósabarinn, eitt af fjölmörgum verkum á sýningunni. Taktur samtímans Á sýningunni má kynnast ýmsum straumum og aðferðum undanfar- inna tveggja áratuga. Hér náigast Elva og Hildur taktinn og tæknina í myndlist samtimans. íslenskir jöklar Hér má sjá Jöklamyndir eftir Ólaf Elíasson en náttúran er viöamikil á sýningunni og Ijóst að margir lista- mannanna sækja sér efnivið í hana. Nútíminn sýndur Ljósmyndarinn Spessi var spekings- legur á svip, líklega að reyna að meta þróun íslenskrar nútímalistasögu. Sláandi slagverk Slagverkshópurinn Benda var með tónleika í Borgarleikhúsinu á laugardag. Meðlimir hópsins eru Eggert Pálsson, Pétur Grétarsson og Steef van Oosterhout auk Snorra Sigfúsar Birgissonar sem spilar á píanó. Benda býr til tónlist úr ýms- um hlutum og mátti t.d. heyra hóp- inn spila á dagblöð á tónleikunum á laugardag þar sem trompetleikar- inn Eiríkur Öm Pálsson var sér- stakur gestur hópsins. Dagur íslenskrar tungu var hald- inn hátíðlegur víða um land í tilefni af fæðingardegi Jónasar Hallgríms- sonar 16. nóvember. Á Egilsstöðum var veigamikil dagskrá í Mennta- skólanum á Egilsstöðum þar sem Tómas Ingi Olrich menntamálaráð- herra veitti verðlaun og viðurkenn- ingar fyrir eflingu íslenskrar tungu. Ráðherrann og þeir sem viðurkenn- ingar hlutu íluttu ávörp, einnig var flutt tónlist á vegum Tónskóla Aust- ur-Héraðs og böm úr Fellaskóla voru með upplestur. -PG Fallegur lestur Árni Jón Þórðarson, nemandi í Fella- skóla, var einn þeirra sem las upþ á samkomunni en hann fékk verðlaun í Stóru upplestrarkeppninni í fyrravetur. DV-MYNDIR PG Barnasöngur Barnakór Grunnskóla Egilsstaða og Eiða söng nokkur lög undir stjórn Ástu B. Schram tóniistarkennara. iganiim - Min sostes born -k-k-k Monas verden kk Spilaö á dagblöö Það er hægt að búa til tóniist úrýmsu öðru en hefðbundnum hljóðfærum, eins og slagverkshópurinn Benda sann- aði í Borgarleikhúsinu á laugardag. Donsk kvikmyndahatið í Regnl Min sasters bom var fyrst gerð í Danmörku árið 1966 og fjallaði um bamasálfræðing sem fær tækifæri til að reyna framúrstefnulegar hug- myndir sínar um barnauppeldi á óþekktaröngum systur sinnar. Myndin varð óhemju vinsæl og ein- ar fjórar kvikmyndir um sömu fjöl- skyldu fylgdu á eftir. Nú er komin endurgerð á smellin- um með Peter Gantzler (Taxi) í hlut- verki sálfræðingsins barnlausa. Hann er nýbúinn að gefa út bók og í byrjun myndar er hann í vinsæl- um sjónvarpsþætti að tala um bók- ina sína og við fáum samtímis að vita að hann, þessi væni og hálf- feimni maður, á að passa fimm börn systur sinnar í heila viku í niður- níddu húsi þeirra einhvers staðar í annars mjög finu úthverfl. Aha! Hugsar maður með sér, nú á aldeil- is aö reka ofan í hann allar hug- myndir hans um frjálst uppeldi og svoleiðis, en það reyndar gengur ekki eftir. Bömin eru indæl og óþæg og uppátækjasöm eins og kvikmyndaböm em gjaman: mála hús á einum degi, aka sportbíl í nærliggjandi sveitarfélag (klúður- laust), fylla kjallarann af vatni úr sundlauginni í næsta húsi, veiða hárkollu af leiöindagaur og hjálpa frændanum hjárænulega að reyna við flnu konuna í næsta húsi. Öllu þessu tekur frændi með bros á vör og allir em vinir. Það em bæði skemmtileg og skondin atriði á víð og dreif í mynd- inni Min sosters born, og eins og margar danskar fjölskyldumyndir er hún afar hlý og elskuleg. Gantzler er prýðilega hallærislegur í aðalhlutverkinu og krakkamir sykursætir og sjarmerandi. Monas verden í Monas verden leikur Sidse Babett Knudsen, sú sem var svo ómótstæðileg í Den eneste ene, hina frekar hallærislegu og fráhrindandi Monu, sem er bókhaldari á agalega töff auglýsingastofu. Hún lendir í því í upphafi myndar að vera tekin sem gísl af frekar vonlausum bankaræningjum. Hún sleppur frá þeim en þegar hún lýsir þeim fyrir lögreglunni þá gefur hún öðrum þeirra útlit draumaprinsms síns, myndarlegs módels sem hún hefur séð í strætó. Bankaræninginn, sem hún fegrar, sér teikninguna af „sér“ í dagblaöi og er handviss um að Mona hafi fegrað sig vegna ástar og fer umsvifalaust að stíga í vænginn við hana, Monu til mikillar hrell- ingar, því hún elskar hinn óínáan- lega prins en ekki þennan hálfhall- ærislega smákrimma. Ef Monas verden væri öll eins góð og bestu atriðin, þá væri hún frá- bær. En því miður er sú ekki raun- in. Mona er illa skrifuð persóna og þótt Sidse gæði hana holdi og blóði er hún svo samsett að hún er alveg óskiljanleg, eins og fjölmörgum sketsum um einhleypar konur á fer- tugsaldri hafl veið skeytt saman al- veg gangrýnislaust. Persóna banka- ræningjans Thorbjöms sem Thom- as Bo Larsen (Festen) leikur af kóm- ískum léttleika er mun heilsteyptari persóna og atriði þeirra Sidse eru þau bestu í myndinni, einkum ein ógleymanleg barsena þar sem þau bulla á heimatilbúinni rússnesku og er nánast bíóferðarinnar virði! Handritið, sem er að hluta byggt á spunavinnu með leikurunum, er allsundurlaust og i stað þess að treysta á aðalsöguna og þróa hana betur, þá er aukasögum og persón- um bætt við sem gera lítið fyrir framvindu myndarinnar. Monas verden fær mann til að hlæja dátt og stendur fyllilega jafnfætis lung- anum af þeim rómantísku kómedí- um sem hellast yfir okkur frá Hollywood en hún skilur ekkert eft- ir sig, ekki einu sinni áhuga á aðal- persónunum. Mln sosters bam. Lelkstjóri: Tomas Vill- um Jensen Aðalleikarar: Peter Gantzler, Lotte Merete Andersen, Birthe Neumann, Neel Ronholt ofl. Monas verden. Leikstjóri: Jonas Elmer Aðalleikarar: Sidse Babett Knudsen, Thomas Bo Larsen ofl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.