Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Kosið aftur í Borgarbyggð 7. desember:
A síður von á að
valdahlutföll breytist
-segir Þorvaldur T. Jónsson, oddviti framsóknarmanna
Bæjarstjórn Borgarbyggöar sam-
þykkti í gærkvöld einróma tillögu
bæjarráðs um að kosning til sveitar-
stjórnar verði endurtekin 7. desem-
ber í kjölfar Hæstaréttardóms sem
gekk fyrir helgi, þar sem kosningin í
vor var ógilt.
Þorvaldur T. Jónsson, oddviti
framsóknarmanna í Borgarbyggð,
gerir síður ráð fyrir að nýjar kosn-
ingar breyti miklu um skipan bæjar-
stjórnar. „Ég á síður von á að valda-
hlutföll breytist. En við getum unnið
með hverjum sem er og það eru eng-
in sérstök leiðindi á milli manna
vegna þessa máls.“
Tvísýn kosning
Kosningin í vor var mjög tvísýn; B-
listi Framsóknarflokks hlaut 522 at-
kvæði og 3 fulltrúa, D-listi Sjálfstæðis-
flokks 546 atkvæði og 4 fulitrúa, og L-
listi óháðra, Samfylkingarinnar og
Vinstrihreyfmgarinnar - græns fram-
boðs 261 atkvæði og 2 fuiltrúa. Varpa
þurfti hlutkesti á miili 4. fulltrúa B-
lista og 2. fulltrúa L-lista. L-listi hafði
betur í hlutkestinu og stofnaði í kjöl-
farið til meirihlutasamstarfs með D-
lista.
Þorvaldur segir að vissulega verði
háð kosningabarátta. „En hún verður
auðvitað stutt og ég held að aðalverk-
efnið verði að minna fólk á að koma og
kjósa og tryggja að kjörsókn verði
góð,“ segir Þorváldur.
Óbreytt framboð
Samkvæmt lögum geta ekki komið
fram ný framboð fyrir þessar kosning-
ar og ekki má hrófla við framboðslist-
unum frá því i vor. Það eina sem breyt-
ist er að gerð verður ný kjörskrá sem
miðast við sl. laugardag, 16. nóvember.
Það voru framsóknarmenn sem
kærðu kosninguna í vor til félagsmála-
ráðuneytisins vegna ágreinings um
meðferð utankjörfundaratkvæða og úr-
skurði um gild og ógild atkvæði. Fé-
lagsmálaráðuneytið úrskurðaði kosn-
ingamar ógildar en formaður ftdltrúa-
ráðs Sjálfstæðisflokksins í Mýrasýslu
kærði úrskurðinn til héraðsdóms, sem
ógilti hann. Hæstiréttur sneri hins
vegar dómi héraðsdóms við sem fyrr
segir. -ÓTG
Slys á
Sæbrautinni
- einn í öndunarvél
Fjórir voru fluttir á slysadeild eft-
ir umferðaróhapp á Sæbrautinni á
miðnætti aðfaranótt sunnudags.
Óhappið vildi þannig til að bíl var
ekið vestur Sæbrautina á mikilli
ferð þegar ökumaður missti stjóm á
bílnum og lenti hann utan vegar.
Þar lenti bíilinn á malarbing og fór
nokkrar veltur. Þegar lögreglan
kom á vettvang hafði þremur tekist
að koma sér út úr bílnum en öku-
maðurinn og hinir þrír farþegar
hans vom fluttir á sjúkrahús og
þurftu tveir þeirra aö gangast undir
aðgerð. Annar er á batavegi en hinn
er alvarlega slasaður og er í
öndunarvél.
Að sögn lögreglunnar er ekki vit-
að hvort fólkiö var í beltum en öku-
maðurinn er grunaður um ölvun.
Sæbrautinni var lokað í klukku-
stund vegna slyssins. -snæ
Frá slysstað við Sæbraut í fyrrinótt
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir aö bíllinn þeyttist út af veginum og valt. Aökoman var Ijót en taliö er aö bifreiöin
hafi veriö á mikilli ferö er ökumaöur missti stjórn á henni.
Breytingar á bensínverði:
Öll félögin lækka
Olíufélögin þrjú hafa öll
ákveðið að lækka verö á
bensíni frá og með deginum
í dag eftir að heimsmarkaðs-
verð hefur lækkað undan-
farnar vikur. Olíufélagið,
ESSO, reið á vaðið í gærdag
og tilkynnti að félagið
myndi lækka verð um þrjár krónur
á lítra af gasolíu en aðrar tegundir,
bensín, flotaoliu og svartolíu, um
eina krónu. Eftir breytingu kostar
litrinn af 95 oktana bensíni 98 krón-
ur hjá ESSO. Olís fylgdi í kjölfarið í
gær og tilkynnti um sömu lækkun.
Kristinn Björnsson, for-
stjóri Skeljungs, sagði í
samtali við DV í gærkvöld
að fyrirtæki sitt yrði enginn
eftirbátur í þessum efnum
og tilkynnt verði um lækk-
un í dag. í tilkynningu
ESSO kemur fram að
heimsmarkaösverð hafi á liönum
vikum lækkað að stærstum hluta
vegna minnkandi spennu á heims-
markaði og aukinnar olíufram-
leiöslu en styrking krónunnar hafi
einnig nokkur áhrif á lækkunina.
-hdm
Amerískur hvíldarsfóll
Ótrúlega þœgilegur!
Tll elnskls?
Á sjöunda tug félagsmanna í fulltrúaráöum Sjálfstæöisflokksins í Húnavatns-
og Skagafjaröarsýslum funduöu á Blönduósi í gær og samþykktu ályktun þar
sem óskaö er eftir því aö miöstjórn flokksins kveöi upp úr um hvaöa áhrif
annmarkar á prófkjörinu um síöustu helgi hafi á lögmæti þess. Allt eins er
líklegt aö miöstjórnin vísi erindinu frá.
Firamboðslistar á forræði kjördæmisráða:
Ovíst að miðstjórn
fjalli um prófkjörið
Samkvæmt skipulagsreglum Sjálf-
stæðisflokksins er skipan framboðs-
lista vegna alþingiskosninga nær al-
farið í höndum kjördæmisráðs við-
komandi kjördæmis. Úrslit í próf-
kjöri eru tfl dæmis aldrei bindandi -
nema varðandi þá tillögu sem kjör-
nefhd gerir til kjördæmisráðs um
skipan framboðslistans. Kjördæmis-
ráð getur samþykkt eða fellt tillögu
kjömefndar, alveg óháð úrslitum
prófkjörs. Miðstjóm flokksins skipt-
ir sér ekki af framboðslistanum að
öðru leyti en því, að hún þarf að
staðfesta hann áður en hann er form-
lega borinn fram í nafni flokksins.
í prófkjörsreglunum er hvergi
minnst á að aðrir en stjóm kjör-
dæmisráðs geti vísað ágreiningi um
prófkjör til miðstjórnar flokksins.
Ekki var tekin ákvörðun um slíkt á
fundi stjómar Kjördæmisráðsins i
Hrútafirði í liðinni viku og formað-
ur ráösins segist sannfærður um að
prófkjörið sé lögmætt.
Það virðist því allt eins líklegt að
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins vísi
frá erindinu, sem fundur sjálfstæö-
ismanna í Húnavatns- og Skaga-
fjarðarsýslum samþykkti á fundi í
gær að beina til hennar, án þess að
fjalla frekar um málið.
Um þetta atriði segir Vilhjálmur
að það verði ekki vandamál að fá til
þess bæra aðila að vísa málinu til
miðstjórnar verði erindi fundarins í
gær visað frá á þessum forsendum.
-ÓTG
jemhbmkm
Innbrot í Mývatnssveit
Brotist var inn í fyrirtækið Sniðil
í Mývatnssveit um helgina. Hurð á
bílaverkstæði var brotin í spað en
svo virðist sem engu hafi verið
stolið að sögn lögreglunnar á Húsa-
vík.
Skemmtistað lokaö í Keflavík
Lögreglan í Keflavík varð að loka
einum skemmtistað þar í bæ á
föstudagskvöld vegna þess að dyra-
verðir voru ekki samþykktir en lög-
reglan var með sérstakt eftirlit með
skemmtistöðunum þessa helgi.
Vinnuslys við Kröflu
Starfsmaður við Kröfluvirkjun fót-
brotnaði við vinnu sína um helgina.
Maðurixm stóð í stiga þegar hann féll
og ökklabrotnaði hann við það.
Afskipti af rjúpnaskyttum
Lögreglan í Búöardal var við
rjúpanaskyttueftirlit um helgina og
þurfti hún að hafa afskipti af
nokkrum skyttum sem ekki voru
með tilskilin leyfi né veiðikort með-
ferðis. Ein skytta var svo tekin á
fjórhjóli.
MR áfram í Morfís
MR vann Kvennó á fóstudags-
kyöldið í undanúrslitakeppni MOR-
FÍS, mælsku- og rökræðukeppni
framhaldsskólanna. Umræðuefni
kvöldsins var töffarar. Ræðumaður
kvöldsins var Jóhann Alfreð Krist-
insson, MR, og hann var 60 stigum á
undan næsta ræðumanni. Munur-
inn á milli liðanna var 120 stig. Það
er því ljóst að MR er kominn áfram
í 8 liða úrslit. Þessi keppni fór vel
fram og voru ræður ræðumanna
skemmtilegar. Framkvæmd keppn-
innar var til fyrirmyndar.
Halldór í Prag og á Möltu
Halldór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra, mun sækja
leiðtogafund Atlan-
rshafsbandalagsins
sem haldinn verður
í Prag dagana 21.-
22. nóvember næst-
komandi. Utanrík-
isráðherra mun eiga fund með Jos-
ef Bonnici, viöskiptaráðherra Möltu
i dag og einnig heimsækja nýtt fyr-
irtæki í eigu Lánstrausts hf. sem
opnað hefur verið á eyjunni.
Miðasala hefst í dag
Miðasala á tónleika stórhljóm-
sveitanna Coldplay og Ash í Laugar-
dalshöll þann 19. desember hefst í
verslunum Skífunnar í dag. Miða-
verð er 4.400 krónur og miði í stúku
kostar 5.400 krónur. Sala á miöum
fer fram í verslunum Skífunnar í
Kringlunni, Smáralind og á Lauga-
vegi sem eru opnaðar klukkan 10 í
dag. Báðar þessar sveitir hafa verið
á tónleikaferðalögum í Bandaríkj-
unum undanfama mánuði, Cold-
play til að kynna breiðskífuna A
Rush of Blood to the Head en Ash til
að kynna smáskífusafnið Interga-
lactic Sonic 7’s. Coldplay lék hér á
landi í fyrrasumar fyrir næstum
fullri Laugardalshöll en Ash spilaði
hér 1996 þegar ferillinn var rétt að
byrja. Má búast við mikilli ásókn í
miða á tónleikana. -snæ/hdm