Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Austfirðingar skila ekki inn skýrslum um gistinætur:
„Landlægur aumingjaháttur"
- segir formaður Ferðamálasamtaka Austurlands
Samkvæmt tölum frá Hagstofu Is-
lands yfir gistinætur og gestakomur
á hótelum í september fjölgaði
gistinóttum alls staðar á landinu
milli ára, nema kannski á Austfjörð-
um. Ekki er mögulegt aö birta tölur
fyrir Austurland vegna þess að stór
hluti ferðaþjónustuaðiia þar hefur
trassaö að skila inn gistiskýrslum
að sögn Hagstofunnar, og er það
ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist.
Ásgrímur Gíslason, formaður
Ferðamálasamtaka Austurlands,
segist koma af fjöllum og enga skýr-
ingu hafa á þessu aðra en þá að lík-
lega sé um landlægan aumingjahátt
að ræða. Víða sé ferðaþjónusta
aukabúgrein og svo virðist sem
austfirskir ferðaþjónustubændur
telji að aðra varði ekkert um það
hversu margir gisti hjá þeim.
Skýrslugerð sé eitthvað sem ekki
eigi að eyða tíma í.
í september 2001 voru gistinætur
á Norðurlandi 5.467 talsins en voru
7.321 í september síðastliðnum og
fjölgaði gistinóttum um 34% miili
ára. Erlendum ferðamönnum fjölg-
aði um rúm 80% á milli ára en ís-
lendingum fækkaði að sama skapi
um rúm 40%. Hótelum á Norður-
landi hefur fjölgað um eitt og hefur
rúmum fjölgað um 105 á tímabilinu.
í september fækkaði gistinóttum
um tæp 11% á Suðumesjum, Vest-
urlandi og Vestfjörðum. Þar voru
gistinætur 5.484 í september síðast-
liðnum en árið á undan vom þær
6.129. Þess má þó geta að gististöð-
um í þessum landshluta fækkaði
um einn og rúmum um 42. Gistin-
óttum á Suðurlandi íjölgaði eins og
flesta aðra mánuði ársins á Suður-
landi. Þær voru 4.780 í ágúst 2001 en
töldust 7.435 í september sl. en það
er aukning um rúm 55%. Fjölgunin
á bæði við um íslenska og erlenda
hótelgesti en gistinætur vegna út-
lendinga hafa nánast tvöfaldast
milli ára. Geta má að á Suðurlandi
fjölgar gististöðum um 4 á milli ára
og rúmum um 303. Gistinætur á hót-
elum á höfuðborgarsvæðinu í sept-
embermánuði voru nánast jafn-
margar og árið 2001. í september
síðastliðnum töldust gistinætur
vera 46.152 en árið 2001 voru þær
46.550. Athygli vekur þó að fjöldi ís-
lenskra hótelgesta á höfuðborgar-
svæðinu eykst um 47% miili ára
meðan útlendingum fækkar um
rúm 4% á sama tíma. Hótelum á
svæðinu hefur fjölgað um eitt milli
ára og rúmum um 349. -GG
Eldur í sambýli
fatlaðra
Um klukkan hálfþrjú í gær var
tilkynnt um eld í sambýli fatlaðra
við Markarflöt í Garðabæ. Eldur-
inn kom upp i þurrkara í þvotta-
húsi og hafði hann breiðst um
herbergið. Þegar slökkviliðið
kom á vettvang var búið að rýma
húsið og gekk greiðlega að
slökkva eldinn. Þá kviknaði í
potti á eldavél á Rauðarárstíg að-
faranótt laugardags en skemmdir
voru minni háttar. Aðfaranótt
sunnudags var síðan slökkviliðið
kallaö að íþróttasvæðinu við Há-
holt í Mosfellsbæ þar sem timbur-
skýli var alelda. Sömu nótt þurfti
að slökkva í opnum ruslagámi
viö Orkuveituna við Réttarháls.
Slökkviliðið þurfti einnig tvisvar
að nota vatnssugu sína þessa
helgi við að hreinsa vatn úr
tveimur íbúðum í borginni sem
orðið höfðu fyrir vatnsleka.
Einnig var bensín hreinsað upp í
vesturbænum með þar til gerðu
hreinsiefni, þar sem það hafði
lekið úr bíl. -snæ
DV-MYND HARI
Regnbogaböm orðin að veruleika
Stefán Karl Stefánsson leikari haföi ástæöu til aö brosa á laugardaginn þegar langþráöur draumur hans varö aö veru-
leika. Samtökin Regnbogabörn voru formlega stofnuö í Þjóðleikhúsinu og mættu um 200 manns á stofnfundinn. Hlut-
verk samtakanna er aö berjast gegn einelti hvers konar en Stefán hefur um nokkurra ára skeiö veriö einn ötulasti bar-
áttumaöur okkargegn einelti. Á myndinni má sjá Ólaf Ragnar Grímsson, forseta íslands, sem flutti ávarp á stofnfundin-
um, Sólveigu Pétursdóttur dómsmálaráöherra, Stefán Karl og Sigurö Kára Kristjánsson, lögmann Regnbogabarna.
Björgunarsveitir kallaðar út víða um land vegna hvassviðris í gær:
Trilla, skilti, þak og ýmsir
lausamunir í hættu
- farþegar Herjólfs tæpa tólf tíma í skipinu en komust ekki á leiðarenda
Það var leiðindaveður víða um
land í gærdag og voru björgunar-
sveitir kallaðar út á nokkrum
stööum vegna hvassviðris. Far-
þegar með Herjólfi frá Vest-
mannaeyjum bjuggust líklega
ekki við því sem svo varö þegar
skipið lagði af stað klukkan 8.15 í
gærmorgun. Þegar komið var að
Þorlákshöfn var ekki taliö fært
að sigla inn í höfnina og beið
skipið þar fyrir utan í fjóra tíma
áður en ákveðið var að snúa því
við. Þar með þurftu farþegar að
dúsa í skipinu í tæpa tólf tíma
því það var ekki komið aftur til
Vestmannaeyja fyrr en rétt fyrir
klukkan 19 um kvöldð. Lárus
Gunnólfsson skipstjóri segir enga
áhættu hafa verið tekna en ekki
hafi væst um farþega og þeir hafi
borið sig vel. „Þetta var akkúrat
ekki neitt, bara ósköp venjuleg
sjóferö," sagði Lárus hress í
bragði þegar DV talaði við hann
eftir heimkomuna í gærkvöld.
Lárus segir ekki algengt að Herj-
ólfi sé snúið við en það hafi þó
komið fyrir áður.
Skilti í hættu í Hafnarfirði
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
var kölluð út klukkan 13.30 í gær
eftir að þakplötur, auglýsinga-
skilti og stillansar fóru af stað í
veðrinu. Að sögn björgunarsveit-
armanna var auglýsingaflettiskilti
við Reykjanesbraut taliö vera að
liðast í sundur í versta veðrinu.
Ekki var talið forsvaranlegt að
senda mannskap upp í skiltið til
að treysta það en skiltið hélt að
lokum. Skiltið er nokkuð skemmt.
Við Breiðvang var hreyfing á still-
ansa og plötur farnar að fjúka, við
Helluhraun fuku hlutir um og í
Lækjargötu þurfti að festa auglýs-
ingaskilti. Allt þetta tók rúmlega
Herjóifur
Vestmannaeyjaferjan gat ekki lagst
aö bryggju í Þorlákshöfn í gær vegna
veöurs.
klukkutíma og voru björgunar-
sveitarmenn svo í viðbragðsstöðu
í klukkutíma þar til veður hafði
lægt.
Trilla losnaði frá bryggju
Björgunarsveitin Þorbjörn í
Grindavík var kölluð út rétt fyrir
hádegi í gær eftir að þak á versl-
unarhúsnæði var byrjað að losna
í veðrinu. Björgunarsveitarmenn
komu smið til hjálpar og festu
niður það sem byrjað var að
losna af þakinu. Verkinu lauk um
klukkan 13 en það var slæmt veð-
ur í Grindavík, austsuðaustan
26-33 m/s.
Þá slitnaði 15 tonna trilla frá
bryggju á Rifi og rak upp í fjöru i
höfninni skömmu eftir hádegið.
Að sögn björgunarsveitarmanna
var lítil hætta á ferðum og gátu
skipverjar komið vélinni í gang
og var trillan fest við bryggju
skömmu síðar. Annars staðar
bárust einnig fréttir af slæmu
veðri og sagði lögreglan í Borgar-
nesi að vindhraði hefði farið í 54
metra á sekúndu þegar mest lét.
-hdm
Hálka truflar ökumenn
Nokkuð var um umferðaróhöpp
um helgina á landinu öllu sem
rekja má til hálku. Á Akureyri
lenti einn á ljósastaur nálægt flug-
vellinum, nokkur minni háttar
óhöpp urðu í Kópavoginum vegna
ísingar og þrennt var flutt á
heilsugæslu eftir útafkeyrslu rétt
við Laxfoss. Nálægt Selfossi var
svo ekið á hross aðfaranótt sunnu-
dags. Bæði ökumaður og hestur
fóru undir læknishendur en bíll-
inn, sem stórskemmdist, var sótt-
ur af kranabíl. Hjá Vík í Mýrdal
varð einnig umferðaróhapp en þar
fór bíll með fimm manns út af
vegi, bíllinn skemmdist töluvert
og er talið að einn af farþegunum
hafi fótbrotnað.
Bíll á brúarhandrið
Betiu- fór en á horfðist um átta-
leytið á fostudagskvöld þegar sendi-
ferðabíll lenti utan í brúarhandriði
Borgarfjarðarbrúar. Bíllinn var að
taka fram úr þegar óhappið varð en
hann rann til i hálku. Sjónarvottar
segja það mikla mildi að bíllinn
skyldi ekki fara út af brúnni en
hann rásaði á veginum og lenti
utan í handriðinu báðum megin.
Farmur bílsins lenti á ökumanni
við óhappið en hann og farþegi
hans sluppu þó með minni háttar
áverka.
Umfangsmikil leit
Ekkert hefur spurst til rauða
Isuzu Trooper-jeppans sem leitað
hefur verið að frá því á föstudag.
Um 50 björgunarsveitarmenn frá
14 björgunarsveitum tóku þátt í
leitinni í gær á sunnan- og norðan-
verðum Vestfjörðum og notuðu
þeir 20 björgunarsveitarjeppa til
leitar. Til ferða jeppans sást á
þriðjudaginn í Hrútafirði þar sem
hann var á vesturleið. Síðan þá
hefur ekkert spurst til ferða hans.
Samkvæmt upplýsingum frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg komu
engar vísbendingar fram við leit-
ina sem tilefni gefa til að henni sé
haldið áfram. Frekari leit er því
ekki fyrirhuguð að svo stöddu.
Samkvæmt heimildum DV er
það fjölskylda ökumanns bílsins
sem óskaði eftir leitinni en óvenju-
legt þykir að ekkert hafi heyrst frá
honum síðan um síðustu helgi.
Hann hafi þó áður látið nokkra
daga líða án þess að láta í sér
heyra sem skýrir eflaust af hverju
leitin hófst ekki fyrr. Ökumaður-
inn mun eiga ættir aö rekja til
Vestfjarða.
Þeir sem hafa orðið ferða rauða
Isuzu Trooper-jeppans varir eru
beðnir að hafa samband við Lög-
regluna í Reykjavík. Jeppinn er
árgerð 1982 með gamlar númera-
plötur, U-3949.
Tennur kýldar úr dyraverði
Eitthvað var um áflog og stimp-
ingar í Reykjavík á laugardags-
kvöld. Gárungar segja að hugsan-
lega sé hægt að kenna um hinni
miklu umræðu um box sem verið
hefur í gangi í þjóöfélaginu en lög-
reglan í Reykjavík vildi nú ekki
játa það þó svo mörgum virðist
hafa verið laus höndin um helg-
ina. Tvær tennur voru t.d. kýldar
úr dyraverði á L.A Café við Lauga-
veg en ofbeldismaöurinn var hand-
tekinn af lögreglu og færður í
fangageymslur. Þá var lögreglu-
maður sem var að sinna starfi
sínu sleginn í andlitiö i Breiðholt-
inu, einn maður var sleginn niður
á Grensásvegi og einnig voru
slagsmál á Lækjartorgi og við
Gauk á Stöng. Eitt innbrot var
framið í bíl viö Kirkjustræti en
lögreglan náði í skottið á þeim
sem þar voru að verki.
-snæ/hdm
RÖGUM Á MDRGUN
Fáðu þér miða í síma 800 6611 eða á hhl.is
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings