Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Könnun á notkun upplýsingatækni:
Um 64% fyrirtækja
með heimasíðu
Hagstofa íslands
hefur gefið út
skýrslu sem hefur
að geyma niður-
stöður rannsóknar
á notkun fyrir-
tækja á upplýs-
ingatæknibúnaði
og rafrænum viö-
skiptum þeirra.
Rannsóknin var
framkvæmd í maí
og júní sl. og tók
hún til allra fyrir-
tækja í ákveðnum atvinnugreinum,
með 10 starfsmenn eða fleiri, alls
1.149 fyrirtækja. Rannsóknin er
byggð á samræmdum spumingalista
Evrópusambandsins og eru því nið-
urstöður rannsóknar Hagstofu ís-
lands samanburðarhæfar við niður-
stöður rannsókna í öðrum löndum
Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
í skýrslunni er meðal annars gerð
grein fyrir tölvunotkun og inter-
nettengingu fyrirtækja, hvemig fyr-
irtæki nýta sér heimasíður, bæði
sem notendur og veitendur þjónustu
á Netinu. Rafræn
viðskipti eru skoð-
uð meö tilliti til
hversu mörg fyrir-
tæki hafa keypt
eða selt vöm í
gegnum pöntunar-
form á heimasíðu.
Eins er athugað
hvað hindrar fyr-
irtæki i að selja
vömr sínar í
gegnum Netið.
Niðurstöður
benda til að 98% fyrirtækja nota
tölvur við starfsemi sina, 92% fyrir-
tækja em með intemettengingu,
65% fyrirtækja era með ADSL eða
aðra hraðvirkari tengingu við Netið,
64% fýrirtækja hafa komið sér upp
heimasíðu á Netinu, 44% fyrirtækja
höfðu í árslok 2001 pantað vörar
og/eða þjónustu í gegnum pöntunar-
form á heimasíðu annarra fyrir-
tækja eða einstaklinga og 24% fyrir-
tækja höfðu móttekið pantanir í
gegnum pöntunarform á heimasíðu í
árslok 2001. -GG
98% fyrirtækja nota tölvur
Og 92% fyrirtækja eru meö inter-
nettengingu.
Lára Margrét áfram í 5. sæti
Kynntu þér stefnumálin á www.laramargret.is
eða hringdu í síma 551 3339 og 861 3298
Dlsney-fróttum 2002 er dreift fimmtudaglnn 21. nóvember á 80.000 hoimlli
ð höfuðborgarsvæðinu, Keflevlk, Borgarnesi og Solfoasi. Hægt er að fð olntak
af Dlsnoy-fráttum I nóvember ag desember ó eftirtöldum stöðum:
Ollum útlbúum Bunaðarbanka Islands á landsbyggðlnni,
MoDonald’s veitingaatöðunum,
8AM-bf6unum I Reykjavfk, Akuroyri og Keflavlk og hjé Krakkaklúbbl DV.
Lakari fiskafli í október
Heildaraflinn var um 8.669 tonnum minni en í sama mánuði í fyrra. Botnfiskaflinn jókst hins vegar um 200 tonn.
Heildaraflinn hefur aukist um 8% milli ára:
Hátt í 9.000 tonna
minni afli í október
Fiskaflinn í októbermánuði sl. var
89.781 tonn, samanborið við 98.450
tonn í októbermánuði árið 2001 og
nemur samdrátturinn alls 8.669 tonn-
um. Botnfiskafli var 38.612 tonn,
samanborið við 38.415 tonn í októ-
bermánuði 2001, sem er tæplega 200
tonna aukning á miili ára. Þorskafli
dregst nokkuð saman á miili ára. í
október í ár veiddust 16.298 tonn sem
er 5.574 tonnum minni afli en í októ-
bermánuði 2001 þegar aflinn varð
21.872 tonn. Það sem vegur þennan
mun upp á milli ára er að ýsuafli
eykst um 3.288 tonn, ufsaafli um
2.823 tonn og karfaafli um 1.312 tonn.
Af úthafskarfa veiddist einungis 61
tonn í nýliðnum októbermánuði,
samanborið við 2.149 tonn á sama
tímabili í fyrra.
Af flatfiski bárast 2.537 tonn á
land en í októbermánuði i fýrra
veiddust 2.295 tonn og er munurinn
242 tonn. Af veiði einstakra tegunda
má nefna að 700 tonn veiddust af
sandkola, aukning um 98 tonn frá
fyrra ári, og 664 tonn af skarkola
sem er aukning um 176 tonn frá
fyrra ári. Af kolmunna veiddust tæp-
lega 23.600 tonn sem er samdráttur
um rúm 11.700 tonn, samanborið við
októbermánuð 2001. Alls veiddust
tæplega 21.300 tonn af síld, saman-
boriö við rúmlega 16.400 tonna afla í
októbermánuði í fyrra og er þetta
aukning um tæplega 4.900 tonn. Skel-
og krabbadýraafli var 3.776 tonn sem
er nokkra minni afli en i október í
fyrra og munar þar 2.237 tonnum.
Samdráttur í rækjuafla nam 1.563
tonnum, í hörpudiski 218 tonnum, í
kúskel 270 tonnum og í humri 11
tonnum. Þá var annar skelfiskafli
175 tonn í október árið 2001 en eng-
inn í ár.
Heildarafli landsmanna á fyrstu
tíu mánuöum ársins er orðinn
1.954.566 tonn sem er rúmum 160.000
tonnum meiri afli samanborið við
sama tímabil á árinu 200, eða um
8%. Heildarafli botnfisktegunda er
orðinn rúmlega 385 þúsund tonn og
nemur aflaaukningin 13.367 tonnum.
Uppsjávarafli ársins 2002 er oröinn
1.491.492 tonn, flatfiskaflinn 30.984
tonn, og skel- og krabbadýraaflinn
46.833 tonn. Milli októbermánaðar
2001 og 2002 dregst verðmæti bráða-
birgöafiskaflans saman, á fóstu verði
ársins 2000, um 5,7% en fyrstu 10
mánuði ársins hefur aflaverðmætið,
á fostu verði ársins 2000, hins vegar
aukist um 4,1%. -GG
Ráðstefna um uppeldishæfni á Hótel Sögu á föstudag:
Afskipt börn, of-
dekrun og einelti
- meðal þess sem rætt verður á ráðstefnunni
Á ráðstefnu um uppeldishæfni
sem haldin verður á Hótel Sögu nk.
föstudag mun dr. Jean Illsley Clarke
fjalla um þarfir fullorðinna og sam-
félagsins með hliðsjón af þörfum
bama og afleiðingar þess að böm
séu afskipt. Einnig kynnir Clarke
rannsókn á ofdekran sem hún gerði
ásamt David Bredehoft, starfsfélaga
sínum. Auk þess mun hún á ráð-
stefnunni fjalla um eineiti sem mjög
hefur verið til umræðu að undan-
fómu. Að ráðstefnunni stendur ÓB
Ráðgjöf í samvinnu við Bamavemd-
arstofu, Heimili og skóla, landssam-
tök foreldra og Kennaraháskóla ís-
lands.
Ólafur Grétar Gunnarsson hjá ÓB
Ráðgjöf segir mikla þörf á ráðstefnu
sem þessari í landi þar sem stór
hluti bama fæðist utan hjónabands.
Rannsóknir sýni að böm sem ekki
njóta skjóls og öryggis beggja for-
eldra sinna og fjölskyldu séu mörg
hundruö prósent líklegri til að
lenda í vandræðum á lífsleiðinni
heldur en böm sem getin era með-
vitað í skjóli hjónabands og sam-
búðar.
Ólafur segir mikinn feng að Jean
Blsley Clarke sem fyrirlesara. Hún
hefur mikla reynslu að baki og hef-
ur hlotið margvislegar viðurkenn-
ingar fyrir störf sín. Clarke hefur
m.a. lokið MA-prófi í mannþróun
(Human Development) og hlotið
heiðursdoktorsnafnbót fyrir þjón-
ustu í þágu mannkyns. Hún er for-
eldrakennari, kennsluþjálfari og
mun m.a. kynna kennsluefni eða
handbók fyrir foreldra, bamavemd-
arstarfsfólk og uppeldisstéttir sem
hún er meðhöfundur að. Bókin kem-
ur út í íslenskri þýðingu á næstunni
og heitir: „Að alast upp aftur: Ann-
ast okkur sjálf, annast börnin okk-
ar.“
Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða Ragnhildur Bjamadóttir, dós-
ent við Kennaraháskóla íslands,
Herdís Egilsdóttir kennari og Krist-
björg Hjaltadóttir, framkvæmda-
stjóri Heimilis og skóla, landssam-
taka foreldra. Nánari upplýsingar
um ráðstefnuna má finna á vefslóð-
inni rsn.is. -HKr.