Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Side 26
50
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2002
DV
85 ára___________________
Dagný Hansen,
Hátúni lOb, Reykjavík.
>
80 ára __________________
Kristján Jónsson,
Breiðumörk 23, Hveragerði.
75 ára________________________
Jóhann Daníelsson,
Sunnubraut 14, Dalvík.
Jón H. Pálmason,
Móabarði 12, Hafnarfirði.
70 ára________________________
Haukur Jóhannsson,
Áshamri 27, Vestmannaeyjum.
- John Þór Toffolo,
Mánagötu 5, Keflavík.
Kristján Þóröarson,
Ytra-Krossanesi, Akureyri.
Ólína Hólmfríöur Kristinsdóttir,
Víkurási 1, Reykjavík.
Páll Björnsson,
Uröarbakka 34, Reykjavík.
Öm Aanes,
Kársnesbraut 51, Kópavogi.
60 ára________________________
Jóna Guömunda Helgadóttir,
Efstasundi 78, Reykjavík.
Lárus Svansson,
Ásvegi 17, Breiödalsvík.
Margrét Magnúsdóttir,
Laugavegi 32b, Reykjavík.
• *50 ára _______________________
Ásmundur Ármannsson,
Meistaravöllum 17, Reykjavík.
Björn Hróar Agnarsson,
Hjallalundi 18, Akureyri.
Bæring Sæmundsson,
Stúfholti 1, Reykjavík.
Guölaug Siguröardóttir,
Reykjadal 2, Mosfellsbæ.
Guörún Aradóttir,
Þórkötlustöðum 2, Grindavík.
Halla Guömundsdóttir,
Dalsmynni 2, Borgarnesi.
Jens Magnússon,
Flyðrugranda 4, Reykjavík.
Ómar Másson,
Skriðustekk 29, Reykjavík.
Skúli Ragnar Jóhannsson,
Holtsgötu 1, Sandgeröi.
Þóra Jónsdóttir,
Vogsholti 11, Raufarhöfn.
40 ára________________________
Áml Þórhallsson,
Víöilundi 14a, Akureyri.
Helga Steingrímsdóttir,
Fögrusíöu lla, Akureyri.
Hjördís Ólöf Jónsdóttir,
Birkihvammi 1, Hafnarfirði.
Ida Haröardóttir,
Kleppsvegi 68, Reykjavík.
inga Fjóla Baidursdóttir,
Álfheimum 32, Reykjavlk.
y Ruth Baldvinsdóttir,
Tungubakka 8, Reykjavík.
Rúnar Reynisson,
Holtsgötu 21, Reykjavík.
Steinvör G. Thorarensen,
Norðurbyggö 24a, Þorlákshöfn.
Þórhallur Jónsson,
Austurvegi 12, Seyðisfiröi.
- \
*
Utvarpi Sögu fm 94.3
allt það áhuga-
verðasta í heimi
viðskipta í dag
Landsbankinn
Landsbréf
Fólk í fréttum
Pétur H. Blöndal
alþingismaður í Reykjavík
Pétur H. Blöndal alþingismaður
telur vænlegra að stefna að al-
mennri lækkun virðisaukaskatts
fremur en að afnema skattinn af til-
teknum vörutegundum. Þetta kom
fram í DV-frétt á fostudaginn var.
Starfsferill
Pétur fæddist í Reykjavik 24.6.
1944. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1965, Diplom-prófi í eðlisfræði,
stærðfræði og tölvufræði við Köln-
arháskóla 1968, Diplom-prófi i hag-
nýtri stærðfræði, likindafræði, töl-
fræði, tryggingastærðfræði og al-
þýðutryggingum við sama skóla
1971 og lauk þaðan doktorsprófi
1973.
Pétur var sérfræðingur við Raun-
vísindastofnun HÍ 1973-75, stunda-
kennari við HÍ 1973-77, forstjóri Lif-
eyrissjóðs versiunarmanna 1977-84,
hefur stundað tryggingafræðilega
ráðgjöf útreikninga fyrir lifeyris-
sjóði og einstaklinga frá 1977, var
framkvæmdastjóri Kaupþings hf.
1984-91, kennari við VÍ 1991-94 og
starfandi stjórnarformaður Tölvu-
samskipta hf. 1994-95.
Pétur hefur verið alþingismaður
Reykvíkinga fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn frá 1995. Hann var formaður
skattamálanefndar Sjálfstæðis-
flokksins 1981-82, sat í stjórn Hús-
eigendafélags íslands 1981-92 og var
þá lengst af formaður þess, var for-
maður framkvæmdanefndar Lands-
sambands lífeyrissjóða 1980-84, for-
maður Landssambands lífeyrissjóða
1984-90, sat í endurskoðunarnefnd
lífeyriskerfisins 1984-86, í stjóm
Verðbréfaþings íslands 1985-90, hef-
ur setið af og til í stjóm Félags is-
lenskra tryggingafræðinga, í stjórn
Söfnunarsjóðs lifeyrisréttinda
1981- 88, í stjóm Kaupþings hf.
1982- 86 og verið formaður nokkurra
dótturfyrirtækja þess 1987-91, er
stjómarformaður Silfurþings hf. frá
1988, í stjóm Tölvusamskipta hf.
1990- 2000 og þá lengst af formaður
þess, í stjóm SH-verktaka hf.
1991- 92, stjómarformaður Veðs hf.
og Veðafls hf. 1992-93, í stjórn
Sæplasts hf. 1991-98, var varafor-
maður Marstars hf. 1994-98, í
bankaráði íslandsbanka hf. 1994-95,
var fulltrúi Alþingis á ÖSE-þingi
1995, sat í nefnd um reglugerð fyrir
húsbréfakerfið 1988 og um endur-
skoðun stærðfræðikennslu 1994.
Fjölskylda
Fyrri kona Péturs var Monika
Blöndal, f. 31.1. 1947, kennari. Þau
skildu. Hún er dóttir Fritz
Dworczak og k.h., Mariu Dworczak.
Böm Péturs og Moniku eru Dav-
íð, f. 1972, starfrækir eigið fyrirtæki
í Reykjavík; Dagný, f. 1972, skrif-
stofumaður í Reykjavík, Stefán Pat-
rik, f. 1976, verkamaður i Reykjavík;
Stella María, f. 1980, húsmóöir, bú-
sett i Reykjavík.
Seinni kona Péturs var Guðrún
Birna Guðmundsdóttir, f. 2.5. 1966,
tölvunarfræðingur. Þau skildu. Hún
er dóttir Guðmundar Unnars Agn-
arssonar og k.h., Ingveldar Bjöms-
dóttur.
Börn Péturs og Guðrúnar Bimu
eru Baldur, f. 1989; Eydís, f. 1994.
Systkini Péturs eru Svanfríður H.
Blöndal, f. 24.6. 1944, skrifstofumað-
ur, búsett í Reykjavík; Kristín H.
Blöndal, f. 5.12. 1947, myndlistar-
kona og borgarfulltrúi, búsett í
Reykjavík; Hjörtur H. Blöndal, f.
22.6. 1950, skrifstofumaður í Kaup-
mannahöfn; Láras H. Blöndal, f.
22.6.1950, sálfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Péturs vora Haraldur
H.J. Blöndal, f. 29.3. 1917, d. 22.6.
1964, sjómaður og verkamaður, og
k.h., Sigríður G. Blöndal, f. 5.9.1915,
d. 29.6. 2000, skrifstofumaður.
Ætt
Haraldur var bróðir Jósefs Blön-
dals, bóksala á Siglufirði. Haraldur
var sonur Jósefs Blöndals, póst- og
símstöðvarstjóra og síðar kaup-
manns á Siglufírði, bróöur Haraldar
Blöndals ljósmyndara, afa Halldórs,
forseta Alþingis. Systir Jósefs var
Jósefína, amma Matthíasar Johann-
essen, skálds og fyrrv. Morgun-
blaðsritstjóra. Jósef var sonur
Lárusar Blöndals, amtmanns á
Komsá, bróður Gunnlaugs sýslu-
manns, Magnúsar sýslumanns og
Jóns Auðuns alþm. Lárus var sonur
Björns Blöndals, sýslumanns í
Hvammi í Vatnsdal, ættloður Blön-
dalsættarinnar Auðunssonar. Móðir
Jósefs var Kristín, dóttir Ásgeirs,
dbrm. og bókbindara á Lambastöð-
um á Álftanesi, bróður Jakobs, pr. í
Steinnesi, langafa Vigdísar Finn-
bogadóttur, en móðir Kristínar var
Sigríður, systir Þuríðar, langömmu
Vigdísar. Sigríður var dóttir Þor-
valds, pr. og skálds í Holti, Böðvars-
sonar, pr. í Holtaþingum, Högnason-
ar, prestaföður á Breiðabólstað.
Móðir Haralds var Guðrún Guð-
mundsdóttir, í Bakkakoti, Guð-
mundssonar, b. á Brennu í Lundar-
reykjadal, Sigurðssonar. Móðir
Guðmundar í Bakkakoti var Rann-
veig Ólafsdóttir. Móðir Guðrúnar
Guðmundsdóttur var Sigríður Friö-
riksdóttir, Illugasonar. Móðir Sig-
ríðar var Guðrún Pétursdóttir frá
Þingnesi.
Sigríður var dóttir Péturs Þór-
halls Júlíusar, stórkaupmanns í
Reykjavík, Gunnarssonar, skósmiðs
í Reykjavík, bróður Sigríðar, móður
dr. Björns Karels, bókavarðar við
Konunglegu bókhlöðuna í Kaup-
mannahöfn. Gunnar var sonur
Björns, b. að Fitjamýri undir Eyja-
fjöllum, Bjömssonar, b. í Stóru-
Mörk, Jónssonar. Móðir Péturs stór-
kaupmanns var Þorbjörg Péturs-
dóttir, hreppstjóra að Gufuskálum,
Jónssonar.
Móðir Sigriðar var Svanfríður,
formaður Thorvaldsensfélagsins,
Hjartardóttir, trésmíðameistara í
Reykjavik, Hjartarsonar, b. í Gufu-
nesi, Hannessonar. Móðir Svanfríð-
ar var Sigríður Guðfmna, systir
Helgu, móður Hafsteins Bergþórs-
sonar, skipstjóra og síðar forstjóra
BÚR, fóður Gunnars, forstjóra
Freyjunnar, og Hafsteins, forstjóra
Landhelgisgæslunnar.
Þórdís G. Jóhannesdóttir
sjúkraliði í Reykjavík
Þórdís Guðfinna Jó-
hannesdóttir sjúkra-
liöi, Breiðuvik 7,
Reykjavík, er sextug í
dag.
Starfsferill
Þórdís fæddist á
Reykjavík en ólst upp
á ísaflrði. Hún stund-
aði nám við lýðhá-
skóla í Danmörku
1960-61, stundaði nám
við Húsmæðraskól-
ann á Blönduósi
1962-63, hóf síðan nám
við bjukrahöaskoia
íslands og útskrifað-
ist þaðan sem sjúkra-
liði 1982.
Þórdís var sjúkra-
liði við Landspítalann
en starfar nú viö
heimahjúkran.
Fjölskylda
Þórdís giftist 2.11.
1963 Hilmari Stein-
grímssyni, f. 20.9.
1935, rafvirkjameist-
ara. Hann er sonur
Steingríms Sveins-
sonar, lengst af verkstjóra hjá J.
Þorláksson og Norðmann í Reykja-
vík,i, og k.h., Bjamheiðar Sigurðar-
dóttur húsmóður en þau eru bæði
látin.
Dætur Þórdísar og Hilmars eru
Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir, f.
15.6. 1963, leikskólakennari, sér-
kennari og sérkennslufulltrúi á
skólaskrifstofu Reykjanesbæjar í
Keflavik, gift Einari Helga Aðal-
bjömssyni og er böm þeirra Sunna
Dís, f. 11.4. 1981, Einar Orri, f. 28.10.
1989, og Egill Darri, f. 1.9. 2000;
Heiða Margrét Hilmarsdóttir, f. 4.9.
1965, bankastarfsmaður í Reykjavík
en maður hennar er Ásgeir Helgi
Erlingsson og era böm þeirra Þór-
dis Anna, f. 8.3. 1992, og Hilmar Ey-
þór, f. 22.1. 1997; Guðbjörg Hilmars-
dóttir, f. 3.8. 1971, þjónn í Reykjavík
og á hún óskírða dóttur.
Systir Þórdísar er Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. 22.12. 1948, ljósmóð-
ir, búsett í Reykjavík, gift Bergi
Jónssyni og eru böm þeirra Svein-
björg, f. 14.12. 1970, Guðmundur, f.
7.7. 1973, og Bragi, f. 28.7. 1978.
Foreldrar Þórdísar: Jóhannes Jó-
hannesson, f. 18.12. 1918, nú látinn,
sjómaður á fsafirði, og Ingibjörg
Bryndís Eiríksdóttir, f. 6.7. 1908, lát-
in, húsmóðir.
Þórdís verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Óskar Guðmunds-
son, fyrrv. verslunar-
stjóri, Nesvegi 70,
Reykjavík, lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 3.11. Útfor
hans var gerð frá Nes-
kirkju þriðjudaginn
12.11. sl.
Starfsferill
Óskar fæddist í
Reykjavík 16.1.1932 og
ólst þar upp í Vestur-
bænum. Hann stund-
aði nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík og
lauk prófi í bifvélavirkjun 1952.
Að loknum prófum var Óskar bif-
vélavirki hjá Ræsi hf. næstu funm
árin en frá 1957
stundaði hann versl-
unarstörf og var
verslunarstjóri hjá
ýmsum helstu herra-
fataverslunum höfuð-
staðarins.
Óskar var ætíð bú-
settur í Vesturbæn-
um. Hann hóf ungur
að æfa og keppa í
knattspymu me.ð KR
og sat í stjóm skíða-
deildar KR nokkur ár.
Óskar hóf að stunda
badminton 1957, var
einn af stofnendum
badmintondeildar KR 1963. Hann
var áttfaldur íslandsmeistari í ein-
liðaleik karla í badminton, var for-
maður Badmintondeildar KR frá
stofnun, að undanskildum tveimur
árum, sat í stjóm Badmintonráðs
Reykjavíkur, var einn af stofnend-
um Badmintonsambands íslands,
sat i stjóm þess og var varaformað-
ur þess í nokkur ár.
Óskar var sæmdur gullmerki KR
og gullmerki íþrótta- og Ólympíu-
sambands íslands 2000.
Fjölskylda
Óskar kvæntist Oddnýju Helga-
dóttur en þau slitu samvistir.
Óskar kvæntist 24.7. 1965 Erlu
Friðriksdóttur, f. 11.12. 1944, versl-
unarstjóra. Hún er dóttir Friðriks
Guðmundssonar, f. 15.9.1906, d. 20.4.
1988, lengst af starfsmanns Mjólkur-
samsölunnar, og k.h., Þórannar
Halldórsdóttur, f. 11.9. 1909, d. 28.9.
1981, húsmóður.
Dætur Óskars og Erlu era Þór-
unn Ásdls Óskarsdóttir, f. 21.3. 1964,
en maður hennar er Júlíus Þor-
fmnsson, f. 1965 og er sonur þeirra
Sindri, f. 2002 en fyrir átti Júlíus
Styr, f. 1992; Guðný Amdís Óskars-
dóttir, f. 16.4. 1971 en fyrrv. maður
hennar er Fahad Falur Jabali, f.
1963 og er sonur hans Corto, f. 1988.
Systkini Óskars: Lárus M.K. Guð-
mundsson, f. 19.6. 1924, d. 17.5. 1994,
bifvélavirki í Kópavogi; Hrefna
Guðmundsdóttir, f. 2.5. 1926, hús-
móðir og fyrrv. verslunarmaður, í
Reykjavík; Yngvi Guðmundsson, f.
13.6.1929, d. 10.7.1981, verkstjóri hjá
Flugleiðum í Keflavík.
Foreldrar Óskars voru Guðmund-
ur Elías Símonarson, f. 13.9.1898, d.
30.6. 1980, sjómaður í Reykjavík, og
k.h., Lára Margrét Knudsen, f. 23.10.
1904, d. 20.6. 1986, húsmóðir í
Reykjavík.
Andlát
Óskar Guðmundsson
verslunarstjóri í Reykjavík