Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
stgr. 7.100,-
stgr. 10.900,-
mmmm
Stólar
og borðstofuhúsgögn
Spænsk borðstofuhúsgögn
Petra borö + 4 Donna stólar stgr. 39.900.-
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKÍIRVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100
Sera; beyki, kirsuber
stgr. 9.800.-
stgr. 8.900.
Viva; beyki, kirsuber
stgr. 8.400.-
Útsölustadir: Reykjavfk: Penninn • Eymundsson • Leikbœr
Utan Rvk; Penninn - Bókab. Keflavfkur • Penninn - Bókab. Andrésar, Akranesi • Versl. Sjóvarborq,
Stykkishótmi • Hrannarbúdin, Grundarfirði • Penninn - Bókhlaðan, ísaflrðl • Kaupf. Húnvetninga,
Blönduósl • Bókab. Brynjars, Sauðórkróki • Bókav. Pór. Stefónssonar, Húsavfk • Urð, Raufarhöfn
Bókab. Hlöðum, Fetlabœ • Tónspit, Neskoupstað • Penninn - Bókabúð, Vestmannaeyjum
Lelkbœr, Setfossi • Penninn - bókvat, Akureyri.
Heitdsötudreiflng: Stöng ehf. Símar 554 7700 & 894 3095
Þú getur byggt nœstum
því allt med GEOMAG!
MED GEOMAG MÁ BYGGJA
EINFÖLDUSTU SMÁHLUTI UPP í
STÓRAR OG FLÓKNAR BYGGINGAR.
GEFÐU (MYNDUNARAFLINU LAUSAN TAUMINN!
ÞROSKANDI SEGUL LEIKFÖNG SEM
BÖRN Á ÖLLUM ALDRI LAÐAST AÐ!
M,
agasm
DV
Svava Hrönn Magnúsdóttir og Ómar Kristinsson með tvíburasysturnar og
elstu dótturina, Þórkötlu Björgu, sem er eins og hálfs árs.
Magasín-mynd Björn Einisson
Tvíburasystur í heíminn á Akureyri:
„Þetta voru vitanlega mikil við-
brigði í fyrstu og nokkuð sjokk en
þegar við höfðum áttaö okkur á
þessu var þetta auðvitað ekkert
annað en gaman," segir Svava
Hrönn Magnúsdóttir. Hún eign-
aðist á dögunum tvíbura ásamt
eiginmanni sínum Ómari Krist-
inssyni en þau eru bæði frá Ak-
ureyri og búsett þar.
„Við vissum að um tvíbura var
aö ræða þegar við fórum fyrst í
sónar eftir 19 vikna meðgöngu.
Fæðingin gekk mjög vel en döm-
urnar komu í heiminn þremur
vikum fyrir tímann sem mér
skilst að sé mjög eðlilegt þegar
tvíburar eiga í hlut. Við getum
ekki kvartað því stelpurnar eru
mjög þægar og gera lítið annað
en að sofa og drekka og eru ótrú-
lega værar og góðar. Við erum
heppin hvað þetta hefur allt geng-
ið vel en vissulega er þetta mikil
vinna. Og svo er ljóst að við
þurfum að fara að hugsa okkur til
hreyfings með vorinu því
vitanlega þurfum við stærra
húsnæði fljótlega," segir Svava
Hrönn.
Fyrir eiga þau Ómar og Svava
eina stelpu og er hún eins og
hálfs árs og heitir Þórkatla Björg.
„Hún hefur tekið þessu ágætlega.
Ég var í eina viku á sjúkrahúsinu
og það tók auðvitað svolitinn
tíma að taka mömmu í sátt eftir
þann tíma en þetta er allt að
koma,“ segir hin stolta móðir og
bætir við: „Við erum mjög sátt
við þessa niðurstöðu og teljum að
við höfum nú lagt okkar af mörk-
um til fólksfjölgunar á lands-
byggðinni. Svo sýnir þetta líka
kraftinn í Akureyringum og hve
góðir hlutir gerast hér í hreina
loftinu fyrir norðan.“
-SK
Guðmundur Guðmundsson landsliösþjálfari, Jón Kristján Sigurðsson
bókarhöfundur og Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSI, glugga í
„Afram Island". Magasín-mynd ÞÖK
* A
„ fram lsland/y er komin úf
„Áfram ísland“ er heiti á nýrri
handboltabók sem fjallar um frá-
bæran árangur íslenska handknatt-
leikslandsliðsins á Evrópumótinu í
Svíþjóð sem fram fór í byrjun árs-
ins. Mótið i Svíþjóð þótti eitt best
heppnaöa handknattleiksmótið sem
haldið hefur verið. Áhorfendur hafa
aldrei verið Qeiri og var leikjum
keppninnar sjónvarpað til 40 landa.
í bókinni er sagt á lifandi og
skemmtilegan hátt frá leikjum liðs-
ins og yfirgripsmikil viðtöl eru tek-
in við stjömur liðsins. Hver man til
að mynda ekki eftir þrumufleygum
Ólafs Stefánssonar, snilldarmark-
vörslu Guðmundar Hrafnkelssonar
og handahlaupi Guðmundur Guð-
mundssonar þjálfara eftir hliðarlin-
unni? Höfundur bókarinnar er Jón
Kristján Sigurðsson og það er Bóka-
útgáfan Hólar sem gefur út.