Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 M agasm DV Guðfinna Helgadóttir, bróöurdóttir Guðmundar, og Guðni Einarsson blaðamaður, ásamt Guðný Erlu dóttur sinnl. Guðmundur Hallvarðsson ásamt fjölskyldu.sinni; konu, börnum - og barna- og tengdabörnum. Magasín-myndir kö Með Qármálaráðherrann á milli sín. Til vinstri á rnyndinni er Bryndís Símonardóttir og Sigríður Smlth til hægri. „i =9 eldist V€ i\" „Ég er léttur í lund og horfi á þessa jákvæðu punkta 1 tilverunni. Að eltast ekki við það nei- kvæða sem yfirleitt skipt- ir engu máli. Því fmnst mér ég eldast vel,“ segir Guðmundur Hallvarðs- son alþingismaður sem hélt upp á sextugsafmæli sitt um sl. helgi. Fjöl- menni mætti í Ými, hús Karlakórs Reykjavíkur í Öskuhlíðinni, og ýmsir stigu á stokk og fluttu þar ræður. Þeirra á með- al Davíð Oddsson forsæt- isráðherra og einnig var forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, meðal gesta. Óvænt atriði í afmæl- inu var söngur Ragnars Bjarnasonar á laginu New York. Sjálfur segist Guðmundur hafa oft leik- ið þetta lag af hljómplötu þegar fjölskylda hans var með honum þar ytra í heimsborginni er hann sat þing Sameinuðu þjóð- anna þar fyrir tæpum áratug. Bæði hafi lagið orkað sterkt á sig, rétt eins og borgin fræga sem þykir engri annarri lík. -sbs I skemmtilegu afmæll. A myndlnni eru, frá vlnstri tallð: Oddur Kr. Eln- arsson arkitekt, Asgeir Ingvarsson, framkvæmdastjóri Sjómanna- dagsráðs, og Ómar Bjömsson endurskoðandi. Góðlr gestir. Rúnar Brynjólfsson, franv kvæmdastjórl hjúkrunarheimllisins Skjóls, og Eiríkur Skarphéðlnsson bókhaldari. Fulltrúar ungu kynslóðarinnar. Frá vinstri talið á myndinni eru Kristinn ingi Þórarinsson rafvirki, Geir Þórhallsson húsasmiður og Elmar Þor- bergsson rakari. Fjölmenni í aðveníufagnaði Heklu: Sálarylurinn lífgaður Ekki færra en hálft þúsund gesta mætti í aðventufagnað Heklu hf. sem haldinn var í húskynnum fyrir- tækisins í sl. viku. Dagskráin var menningarleg en fram kom kór starfsmanna Strætó og Diddú söng ein- söng. Þá var boðið upp á veitingar að hætti þeirra þjóða og landa sem bílar Heklu koma frá. Á einum stað í salarkynnunum var boðið upp á munngæti að þýskum sið - og á hinum voru þeir réttir sem Japanir eru best þekktir fyrir. „Síðan var boðið upp á guðaveigar sem lífga sálaryl. Með þeim fer gjarnan að lyftast brúnin á fólki og tekið er upp léttara hjal,“ sagði Finnbogi Eyjólfsson, blaðafulltrúi Heklu. Hann sagði þessa stund hina skemmtilegustu og að Heklumenn væru bjartsýnir á bílasölu og annan rekstur sinn í nánustu framtíð. -sbs Þrír stjórar. Frá vinstrl: Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, Knútur Hauksson hjá Samsklpum og Baldur Guönason hjá Sjöfn á Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.