Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 22
26
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
M
agasm
I>V
Mæðginin Guðjón og Guórún Berg-
mann meó fjórar bækur fyrir jólin:
Hugarorkan
til árangurs
Um þessar mundir eru að koma út
fjórar bækur en þrjár af þeim eru
eftir og ein þýdd af mæðginunum
Guðjóni og Guðrún Bergmann. Þetta
eru handbækur sem faila í flokk
sjálfshjálparbóka. í þeim bókum sem
mæðginin tengjast eru leiðbeiningar
um hvernig nýta megi orkustöðvar
líkamans, hugann og hin andlegu
lögmál til jákvæðrar uppbyggingar.
„í raun er það okkur hjartans mál að
hvetja fólk tO jákvæðs sjálfsþroska á
þessum forsendum. Það er gott að
geta meðal annars náð jafnvægi í
gegnum orkustöðvarnar og þær eru
hluti af líkamanum," sagði Guðjón
Bergmann þegar þau mægðinin
spjölluðu við DV-Magasín.
Hjálpa með margvislegum
hætti
Guðjón varð fyrst þekktur meðal
alþjóðar þegar hann annaðist sjón-
varpsþættina Tantra - listin að elska
meðvitað, fyrir nokkrum misserum.
Þeir þættir voru sýndir á Skjá ein-
um og vöktu mikla athygli. Guðjón
var einnig með jógaþætti á Skjá ein-
um.
Önnur af tveimur nýjum bókum
Guðjóns er Jóga og íþróttir og er gef-
in út af Eddu. Þetta eru leiðbeining-
ar til íþróttamanna og raunar alira
sem hreyfa sig, um það hvernig jóga-
æflngar geta hjálpað að ná enn betri
árangri. „Jógaæfingar geta hjálpað
íþróttafólki með margvíslegum
hætti en í bókinni fjalla ég m.a. um
teygjur, öndun, slökun og hvernig
virkja má hugarorku til líkamlegs
árangurs," segir Guðjón.
Hið hagnýta hlutverk
Hin bókin sem Guðjón gefur sjálf-
ur út er Jafnvægi í gegnum orku-
stöðvárnar. Þetta er bók í litlu broti
þar sem er að flnna hagnýtar upplýs-
ingar fyrir fólk sem vill koma lífi
sínu í jafnvægi í gegnum þær sjö
orkustöðvar sem í líkamanum eru
en hver um sig tengist mikilvægum
þáttum í tilveru okkar.
„í raun má segja að dulspekileg
rnnfjöllun um orkustöðvar hafi heill-
að marga en fáir hafl litið á það hag-
nýta hlutverk sem þær hafa á líf
okkar og starf,“ segir Guðjón sem
skrifaði bókina fyrr á þessu ári.
Lögmálin eru frábær
Þriðja bókin sem þau mæðginin
Guðrún og Guðjón tengjast þetta ár-
ið er Lögmál andans. Þá bók þýddu
þau en hún er eftir bandaríska met-
söluhöfundurinn Dan Millman. í
bókinni býður Millman upp á lær-
dómsrika frásögn af kynnum hans af
seiökonu sem færir hann í allan
sannleika um þau lögmál andans
sem flnna má í öllum trúarbrögðum
Mæðgin með bækur. Fyrir þessi jól koma út fjórar bækur eftir mæðginin Guðjón og Guðrúnu Bergmann - en allar
eru þær í flokki svonefndra sjálfshjálparbóka. Magasín-mynd E.ÓI.
og mæta okkur jafnframt í allri nátt-
úrunni. „Lögmálin eru frábær og
þeim falin áhrifamikil sannindi. Ef
allir færu að fara eftir þeim mynd-
um við lifa í betri heimi,“ segir Guð-
rún.
Bókin eftir Guðrúnu Bergmann
sjálfa heitir Gerðu það bara! og er
„handbók fyrir stelpur sem vilja
verða stórar" eins og segir á káp-
unni. í bókinni eru leiðbeiningar
fyrir konur á öllum aldri sem vilja
gera breytingar og axla ábyrgð á eig-
in lífi og móta það til samræmis við
drauma sína og væntingar. Byggir
Guðrún í þessari bók á eigin reynslu
og því sem hún veit að hefur gagnast
öðrum.
Margviss vinna í leit að
lausnum
Aðspurð um áhuga á þeim efnum
sem um er fjallað 1 þessum bókum
segja þau mæðginin hann falla vel
að þeim lífsmáta sem þau hafi tamið
sér. „Við erum fjölskylda sem höfum
lent í ýmsu um dagana en við höfum
líka lagt i markvissa vinnu til að
finna nýjar lausnir og gera breyting-
ar, meðal annars með þeim aðferð-
um og ráðleggingum sem í þessum
bókum er að finna. Okkur flnnst líka
mikflvægt að veita öðrum aðgang að
þessu efni,“ sögðu mæðginin Guðjón
og Guðrún Bergmann að síðustu.
-sbs
Thelma Osk Matthíasdóttir og Gréta Karen Jónsdóttlr voru áhugasamar
vlð föndrló og piparkökumálunln lék í höndum þessara ungu listamanna.
Föndrab í Léyhreilri
Svanhildur Guörún Jóhannsdóttlr og
Þrálnn Jónsson á kafl í piparkökunum.
Eigendur Lóuhreiðursins í Kjörgarðshúsinu við Laugaveg, Guðrún
Sigtryggsdóttir og Klara Sigurbjömsdóttir, buðu systrum sínum í
saumaklúbbnum „Heklunálinni" og bömum þeirra í fóndur á fyrsta
sunnudegi í aðventu.
Allar eiga konurnar í saumaklúbbnum það sameiginlegt að hafa
starfað í lengri eða skemmri tíma á DV. Bömin skemmtu sér vel við
fóndrið undir öruggri handleiðslu mæðranna og áhuginn skein úr
hverju andliti eins og myndirnar bera með sér.
Fnður og fongulegur hopur ellefu
fyrrverandi DV-kvenna sem föndraði
ásamt börnum sínum í Lóuhrelörinu.
Sara Dagný Stefánsdóttir og Viktoría Hinriksdóttir Sara Þorsteinsdóttir málar piparkökur
njóta I .................. ....................................
i lelðsagnar Dóru Kjartansdóttur.
af mikilli innllfun.
Klara Slgurbjörnsdöttir og Sigurbjörg Osk dóttir hennar
voru einbeittar við kertaskreytlngar.