Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Side 1
SEMUR LOG OG HELDUR
TÓNLEIKA. BLS. 46
DAGBLAÐIÐ VISIR
289. TBL. - 92. ARG. - MANUDAGUR 16. DESEMBER 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
Mikið framboð jólatrjáa þegar 8 dagar eru til jóla:
ísland
auðugt
ísland er næstefst á lista yfir
ríkidæmi ferskvatns í 147 rikjum
í heiminum. Breskir vísinda-
menn hafa birt listann í tilefni af
Ári vatnsins hjá Sameinuðu
þjóðunum. Finnland, kemur í
fyrsta sæti, þá Kanada og Noreg-
ur á eftir íslandi, allt vatnsauðug
lönd, en Bandaríkin aðeins í 33.
sæti á listanum. Fimmti hver
íbúi jarðarinnar glimir við
neysluvatnsskort. -JBP
NV-kjördæmi:
Vilhjálmur
kærir
Vilhjálmur
Egilsson.
Vilhjálmur
Egilsson alþing-
ismaður fer
fram á það i dag
við stjórn kjör-
dæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins
í Norðvestur-
kjördæmi að
hún ógildi próf-
kjör flokksins í
kjördæminu
vegna annmarka sem á því voru.
Vilhjálmur sagðist í samtali við
DV í gærkvöld hafa undirbúið
formlegt erindi þessa efnis ásamt
greinargerð um helgina og að
þessi gögn yrðu væntanlega send
stjórninni í dag.
Þórólfur Halldórsson, formaður
kjördæmisráðsins, segist ekkert
geta sagt um hvernig stjórnin
bregðist við erindi Vilhjálms.
Spurður um hvort það þýði að
stjórn ráðsins verði kölluð til
fundar segir Þórólfur: „Ég reikna
ekkert frekar með því.“
Ágúst Þór Bragason, sem situr
í stjórn kjördæmisráðsins, sagði
við DV fyrir viku að kæra frá VO-
hjálmi hlyti að kalla á fund í
stjórninni. „Það er sjálfgefið að
stjórnin verður kölluð saman til
að fjalla um kæru Vilhjálms,"
sagði Ágúst Þór og bætti við að
stjómin hefði aldrei tekið afstöðu
til þess hvort prófkjöriö væri lög-
mætt.
Sem kunnugt er komst mið-
stjóm Sjálfstæðisflokksins að
þeirri niðurstöðu í liðinni viku að
hún gæti ekki fjallað um lögmæti
prófkjörsins nema ágreiningur
væri um það í stjórn kjördæmis-
ráðs.
Þórólfur Halldórsson sagðist
ekki vilja tjá sig um ummæli
Ágústs Þórs. -ÓTG
Stefnir í verðstríð
Mikið framboð er nú á jólatrjám
í landinu og töldu ýmsir seljend-
ur, sem blaðið hafði samband við,
líklegt að verð lækkaði þegar nær
liði jólum. Einn sölustaða, Garð-
list, lækkar verðið þegar í dag um
30%. Jólatrjáakaupmenn ætla
greinilega ekki að brenna sig á
sama soðinu og í fyrra þegar öll
tré seldust upp á Reykjavíkur-
svæðinu og farið var í skógarhögg
í ýmsum nærliggjandi trjáreitum.
Normannsþinur er vinsælaStur
jólatrjáa, enda barrheldinn. Mikið
af honum kemur frá Danmörku.
Þó eru íslensk tré að sækja á og
þeir sem á annað borð hafa prófað
þau virðast halda við þau tryggð,
að sögn sölufólks.
DV gerði lauslega könnun á
verði jólatrjáa í Reykjavík. Þar
var aðeins litið á eina gerð og eina
stærð, normannsþin í stærðinni
1,26-1,50 m, sem er tré í minni
kantinum. Það skaí tekið fram að
gæðin voru ekki könnuð og ekki
er sama tré og tré, jafnvel þótt
normannsþinur heiti. Ýmsir
gæðaflokkar eru til af þessari teg-
und og úr þeim hafa verslanir að
velja þegar þær gera sín innkaup.
Einungis sex sölustaðir voru
heimsóttir eða haft samband við
þá símleiðis. Það voru Blómaval,
Garðheimar, Europris, Flugbjörg-
unarsveitin, Landakot (í Skeif-
unni við Verkfæralagerinn) og
Garðlist við Umferðarmiðstöðina.
Lægst var verðið í Garðlist, 2.500,
en hæst hjá Flugbjörgunarsveit-
inni, 3.600. „Við tökum ekki þátt í
verðstríði enda erum við að safna
fé til góðra mála,“ sagði sölumað-
ur flugbjörgunarsveitarinnar. í
Garðlist var verðið að lækka um
30% og sá afsláttur á að gilda til
jóla.
-Gun
,
•>
Bergrún Lilja og
Ingunn Eva voru föður
sínum, Reyni Einars-
syni, hjáipiegar við
val á jólatrénu í gær-
kvöid.
GRÓTTA/KR KOMIÐ í
8-LIÐA ÚRSLIT:
Reiðarslag
fyrir
Danina
JÓLAGETRAUN DV:
Stórglæsi-
legir
vinningar
í boði
Tjónaskoðun • Bílaréttingar ■ Bílamálun
Þú færð bílaleigubíl á
\ meðan viðgerð stendur yfir
Sími 554 2510
Nýbýlavegi 10 • Kópavogi
Víð hliðina á Toyota umboðinu ■ www.bilasprautun.is
BÍLASPRAUTUN OG RÉTTINGAR
^ AUÐUNS m
Tókum pað með. . .
trukki
Landi
SAMSKIP
Aóalskrifstofa:
Skútuvogi 8
104 Reykjavík
Sími 569 8400