Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Side 8
8
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
x>’Vr
Fréttir
Guðjón Ó:
Gaf Mæðra-
styrksnefnd
góða gjöf
Prentsmiðjan Guðjón Ó ætlar
ekki að senda út hefðbundin jóla-
kort til viðskiptavina sinna fyrir
þessi jól. Þess í stað ákvað fyrirtæk-
ið að láta Mæðrastyrksnefnd njóta
góðs af ákveðinni upphæð sem ör-
ugglega kemur í góðar þarfir á tíma-
mótum sem þessum.
Prentsmiðjumenn festu kaup á
hangiketi frá Kaupfélaginu á
Hvammstanga og færðu forsvars-
mönnum Mæðrastyrksnefndar í lið-
inni viku.
Stjórnendur Guðjóns Ó segja
þetta hafi verið tilvalið tækifæri til
aö fagna tíu ára starfsafmæli, sem
er um þessar mundir, með því að
létta undir með þeim sem þurfa á
því að halda.
Þriðja hvert lamb fer
á kjotfjallið næsta vor
- sala á nautgripakjöti hefur gengið vel að undanförnu
Framleiðendur á nautakjöti telja
ekki að vandi skapist með sölu á
nautgripakjöti fyrr en annað haust.
Þá muni endanlega skýrast hvaða
verð sauöfjárbændur fá fyrir afurðir
sínar. En miðað við sölutölur á
lambakjöti í dag er allt útlit fyrir að
þriðja hvert lamb sem fæðist næsta
vor verði umframframleiðsla. Fari
svo, sem allt útlit sé fyrir, þá séu
mestar líkur á því að verðfall verði
á lambakjöti sem mun vissulega
hafa veruleg áhrif á verð á naut-
gripakjöti og sölu þess. Ljóst er jafn-
framt að framleiðsla á hvíta kjötinu
hefur veruleg áhrif á þróun þessara
mála en í dag er talið að flestir fram-
leiðendur þessa kjöts séu að borga
með framleiðslunni til neytenda.
Mikið framboð á svina-, lamba- og
alifuglakjöti hefur skilað lágu verði
á kjöti tÚ neytenda. Sem dæmi um
þetta má nefna að vísitala kjöts hef-
ur lækkað um nærri 5% sl. 6 mán-
uði. Offramboðið hefur leitt til þess
að kjötmarkaðurinn er í miklu upp-
námi og hefur lágt verð og mikil
sala á alifugla- og svinakjöti bitnað
Húsbréf
Fertugastí og níundi útdráttur
í 1. flokki húsbréfa 1989
InnLausnardagur 15. febrúar 2002
500.000 kr. bréf
89110069 89110466 89111043 89111717 89111966 89112135 89112534 89112956 89113525
89110113 89110680 89111236 89111734 89111970 89112181 89112566 89113140 89113549
89110214 89110686 89111387 89111821 89111985 89112208 89112824 89113248
89110229 89110865 89111655 89111919 89112016 89112254 89112857 89113402
50.000 kr. bréf
89140149 89140360 89140663 89141721 89141998 89142529 89142841 89142990 89143615
89140229 89140493 89141034 89141722 89142371 89142540 89142877 89143300 89143702
89140256 89140567 89141473 89141949 89142381 89142680 89142895 89143355 89143725
89140358 89140614 89141679 89141985 89142436 89142819 89142928 89143383 89143741
5.000 kr. bréf
89143937
89170269 89170520 89170966 89171674
89170385 89170667 89171064 89171692
89170466 89170777 89171401 89171761
89170486 89170880 89171554 89171853
89171856 89172302 89172613
89172026 89172328 89172679
89172375
89172088
89172109
89172719
89172505 89172911
89173022 89173631 89174025
89173430 89173811 89174155
89173463 89173867 89174167
89173576 . 89174004
Yfirlit yfir óinnleyst húsbréf:
5.000 kr.
(9. útdráttur, 15/02 1993)
Innlausnarverð 7.265,- 89171118
50.000 kr.
5.000 kr.
(11. útdráttur. 15/08 1993)
Innlausnarverð 75.721,-
89140248 89142408 8S
Innlausnarverð 7.572,-
89170871 89171954
5.000 kr.
(12. útdráttur, 15/11 1993)
Innlausnarverð 7.771,- 89172374
5.000 kr.
(16. útdráttur, 15/11 1994)
Innlausnarverð 8.295,- 89170036
50.000 kr.
(19. útdráttur, 15/08 1995)
Innlausnarverð 87.368,- 89140025
5.000 kr.
(23. útdráttur, 15/08 1996)
Innlausnarverð 9.459,- 89171586
500.000 kr.
5.000 kr.
(29. útdráttur, 15/02 1998)
Innlausnarv. 1.060.400,- 89111565
Innlausnarverð 10.604,- 89172063
(30. útdráttur, 15/05 1998)
E5J222I22I Innlausnarv. 107.951,- 89143689
I Innlausnarverð 10.795,- 89171030
50.000 kr.
(33. útdráttur, 15/02 1999)
Innlausnarv. 113.632,- 89141560
5.000 kr.
(36. útdráttur, 15/11 1999)
Innlausnarverð 12.395,-
89171609 89171892
5.000 kr.
(37. útdráttur, 15/02 2000)
Innlausnarv. 12.711,- 89171891
500.000 kr.
5.000 kr.
(38. útdráttur, 15/05 2000)
Innlausnarv. 1.303.061,- 89111561
Innlausnarverð 13.031,- 89171584
5.000 kr.
(41. útdráttur, 15/02 2001)
innlausnarverð 13.916,-
89172061
50.000 kr.
5.000 kr.
(44. útdráttur, 15/11 2001)
Innlausnarverð 156.086,-
89142511
Innlausnarverð 15.609,-
89170892
5.000 kr.
(46. útdráttur, 15/05 2002)
Innlausnarverð 16.361,-
89170503 89171005 89171588
5.000 kr.
(47. útdráttur, 15/08 2002)
fnnlausnarverð 16.675,-
89174251
50.000 kr.
(48. útdráttur, 15/11 2002)
Innlausrtarverð 169.939,-
Útdregin óinnleyst húsbréf bera hvorki vexti né veróbætur frá
innlausnardegi. Þvi er áriðandi fyrir eigendur þeirra að innleysa
þau nú þegar og koma andvirði þeirra í arðbæra ávöxtun.
Húsbréf eru innleyst í öllum bönkum, sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 [ 105 Reykjavík | Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Salan hefur gengið vel
Nautgripaframleiöendur sega sölu á nautgripakjöti hafa gengiö vel á seinni
hluta þessa árs.
svo til eingöngu á sölu á lambakjöti.
Þrátt fyrir þennan mikla slag á
markaðinum segja kúabændur að
sala á nautgripakjöti hafi gengið
framar vonum.
Þeir segja að seinni hluta þessa
árs hafi sala á nautgripakjöti gengið
vel. Nautgripakjöt sé í eðli sínu
dýrasta kjötið sem framleitt er hér-
lendis, enda eldistími langur og
kostnaður vegna vinnu og húsnæð-
is mikill. Verð til nautgripabænda
hafi um langa hrið verið langt und-
ir framleiðslukostnaði, sem skýrir
að hluta til hvers vegna sala á
nautakjöti hefur verið svo til
óbreytt undanfarna mánuði miðað
við sömu mánuði árið 2001, á meðan
miklar breytingar hafa orðið á sölu
á t.d. lambakjöti.
Kúabændur segja ljóst að fram
undan sé mikil samkeppni um neyt-
endur og samkvæmt upplýsingum
frá kjúklingabændum sé enn von á
framleiðsluaukningu. Útlit er því
fyrir að framan af árinu 2003 verði
áfram offramboð á kjöti hérlendis.
-NH
Hraðfara aukning atvinnuleysis:
Gæti verið 4%
í lok ársins
Félagsmálaráðherra, Páll
Pétursson, kynnti í gær á rík-
isstjórnarfundi atvinnuástand-
ið eins og það var í lok nóvem-
bermánaðar. í þeim mánuði
voru skráðir 85.584 atvinnu-
leysisdagar á landinu öllu sem
jafhgilda því að 4.077 manns
hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum.
Þessar tölur jafngilda 2,8% af
mannafla á vinnumarkaðnum.
Meöalfjöldi atvinnulausra var um
15,7% meiri í nóvember en i október
en hefur hefur tæplega tvöfaldast
frá því í nóvember 2001. Síðustu 10
ár hefur atvinnuleysið aukist um
11,4% frá október til nóvember svo
árstíöarsveiflan nú er 38% meiri en
meðaltalssveiflan síðustu 10 ár svo
atvinnuleysi í nóvember hefur verið
komið í 3,4%.
Atvinnuástandið versnar iðulega
Páll Pétursson.
í desember miðað við
nóvember og hefur at-
vinnuleysið aukist að
meðaltali rnn 23,4% frá
nóvember til desember.
Þannig gæti atvinnuleys-
ið í lok jólamánaðarins
verið komið í 4%.
Atvinnuleysi eykst um
35% á landsbyggðinni
milli mánaða, er nú 2,5%
af mannafla en var 1,5% á sama
tíma í fyrra. Hlutfallsleg aukning at-
vinnuleysis er mest á Austurlandi
en á Norðurlandi vestra er það svip-
að milli ára, eða 1,2%, en mest er at-
vinnuleysið á Suðurnesjum, 3,8%.
160 störf voru laus hjá vinnumiðlun-
um í lok nóvember sl, voru 178 í lok
október. 32% þessara starfa eru á
höfuðborgarsvæðinu, hefur fækkað
um 28 milli mánaða en fjölgað um
10 á landsbyggðinni. -GG
Bæjarstjórn Siglufjarðar um jarðgangagerð:
Hagkvæmni sam-
legðaráhrifa helst
Bæjaryfirvöld á Siglufirði fagna
því heils hugar að nú liggur fyrir
endanleg ákvörðun ríkisstjómarinn-
ar og samgönguráðuneytis um útboð
jarðganga um Héðinsfjörð, milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, í febrú-
ar 2003 og í framhaldi af því fram-
kvæmdir við verkið.
í ályktun bæjarstjórnar segir m.a.:
„Er mikilsvert að með þeirri tilhög-
un sem ákveðin hefur verið helst sú
hagkvæmni af samlegðaráhrifum
beggja verkefnanna sem gert var ráð
fyrir með sameiginlegu útboði. Það
hlýtur alltaf að vera fagnaðarefni
þegar skynsamlegar ákvarðanir eru
teknar í samgöngumálum þjóðarinn-
ar en áætluð þjóðhagsleg arðsemi af
byggingu jarðganga um Héðinsfjörö
er 14,5% samkvæmt skýrslu Vega-
gerðarinnar um umhverfismat fram-
kvæmda." -GG