Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Síða 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
DV
Salrnan Raduyev.
Raduyev lést
í fangelsi
Salman Raduyev, eini uppreisn-
arforingi Tsjetsjena sem hefur verið
fangelsaður af Rússum, lést um
helgina í fangelsi, 35 ára að aldri.
Dánarorsök hans er sögð vera inn-
vortis blæðingar en yfirvöld neita
alfarið að honum hafi verið ráðinn
bani.
Raduyev er einna þekktastur fyr-
ir að leiða innrás í Dagestan í suð-
urhluta Rússlands árið 1996 þar sem
hann tók um 2000 manns gíslingu á
spítala. Alls létust þar 78 manns.
Rússneski herinn handtók hann svo
í mars árið 2000 og var hann leidd-
ur fyrir rétt í Dagestan og dæmdur
í lífstíðarfangelsi.
Þó svo að Raduyev hafi ekki spil-
að neitt hlutverk í núverandi átök-
um Rússa og Tsjetsjena stjórnaði
hann einum af öflugustu uppreisn-
arhópum Tsjetsjena í stríðinu við
Rússa árin 1994-96.
Flutningaskip sökk
á Ermarsundi
Norskt flutningaskip sökk á
Ermarsundi á laugardagsmorgun eft-
ir árekstur við annað slíkt sem sigldi
undir merkjum Bahamaeyja. Fyrra
skipið, sem metið er á 3,3 milljarða,
var með tæplega 4 milljarða króna
farm. Um er að ræða lúxusbifreiðir á
borð við BMW, Saab og Volvo sem
verið var að flytja til Southampton í
Englandi frá Antwerpen í Belgiu.
Áreksturinn varð rétt undan suð-
austurodda Englands.
Enginn hlaut skaða af í árekstrin-
um og þykir það lán að ekkert af
olíunni í skipinu skuli hafa fara í
sjóinn.
Yasser Arafat sendir al-Qaeda tóninn:
„Bin Laden misnotar
málstað Palestínu"
Leiðtogi Palestínu, Yasser Arafat,
sagðist í viðtali við Sunday Times í
gær vera mjög svo ósáttur við fram-
göngu Osama bin Ladens og al-
Qaeda-samtaka hans og sagði hann
nota baráttu Palestínumanna fyrir
stofnun sjálfstæðs rikis til eigin
hagsbóta. Sem dæmi nefndi hann
sprengjutilræði á hótel í Keníu sem
var í eigu ísraelsmanna en al-Qaeda
tilkynnti að árásin væri liður í því
að færa Palestínumönnum aftur
svæði sem hafa verið hernumin af
ísraelsmönnum.
Fyrr í mánuðinum sakaði Ariel
Sharon, forsætisráðherra ísraels,
Palestínumenn um að starfa með al-
Qaeda en Arafat gaf lítið fyrir þær
ásakanir og sagði að Sharon vissi
vel að engin tengsl væri þar að
finna. „Sharon vill breiða yfir árás-
REUTERS
Yasser Arafat
Arafat á ríkisstjórnarfundi í Ram-
allah á Vesturbakkanum í gær.
ir sínar á Palestínumenn með nýju
andliti," sagði Arafat. „Ég er að
segja honmn (bin Laden) beint út að
fela sig ekki á bak við málstað okk-
ar,“ bætti hann við.
Um svipað leyti og viðtalið birtist
sagði ísraelsstjórn að hún hygðist
ekki veita Arafat leyfi til að ferðast
til Betlehem til að taka þátt í jóla-
fögnuði, annað árið í röð. Ríkis-
stjómin bætti því við að ísraelsher
yrði í Betlehem um jólin en herinn
hertók borgina á nýjan leik fyrir
þremur vikum.
Þá héldu ísraelskir hermenn 5
palestínskum myndatökumönnum
og ljósmyndara fongnum í 5 klukku-
stundir fyrir að brjóta útgöngubann
í Nablus á Vesturbakkanum. Þeir
vinna fyrir Reuters-, AP- og AFP-
fréttastofurnar.
REUTERS
Oþrjótandi olía
Sjálfboöaliöar vinna höröum höndum aö því aö hreinsa strendur Cieseyja viö Norövestur-Spán en olía lekur úr olíu-
flutningskipinu Prestige sem sökk fyrir skömmu. Talið er að olía muni leka úr braki skipsins allt til ársins 2006 og aö
þaö geti haft áhrif á dýralíf undan ströndum Portúgals, Sþánar og Frakklands.
Sjóðfélagar í Lífeyrissjóði arkitekta
og tæknifræðinga og ALVÍB
Stjórnir Lífeyrissjóðs arkitekta ogtæknifræðinga og ALVÍB boða til framhaldsfunda fyrir
sjóðfélaga þarsem ræddarverða breytingatillögur á samþykktum ogsameiningsjóðanna.
Framhaldsaukaársfundur UVT
Þriðjudaginn 17. desember kl. 17.30.
Fundarstaður: Gullteigur, Grand Hótel Rvk.
Dagskrá:
1. Framhald umræðna um breytingatillögu
á samþykktum og sameiningu LAT og ALVÍB.
2. Önnur mál.
Nánari upplýsingar: www.lat.is
Tillögur fyrir fundina er hægt að fá afhentar hjá
Eignastýringu íslandsbanka, Kirkjusandi. Sjóðfélag-
ar geta einnig sótt þær á heimasiður sjóðanna eða
á slóðinni www.almenni.is. Einnig er hægt að fá
þær sendar með því að hringja í sfma 440 4900.
Framhaldssjóðfélagafundur ALVÍB
Þriðjudaginn 17. desember kl. 16.15.
Fundarstaður: Gullteigur, Grand Hótel Rvk.
Dagskrá:
1. Framhald umræðna um breytingatiIlögu
á samþykktum ogsameiningu LAT ogALVÍB.
2. Önnur mál.
Nánari upplýsingar: www.alvib.is
ALMENNUR LÍFEYRISSJÓÐUR
fSLANDSBANKA
UFEYRIS-
SJOÐUR
arkrtekta og
ALVIB
Miller hvetur Pól-
verja til að segja
„já“ við ESB
Pólski forsætisráðherrann Leszek
Milier hvatti í gær landa sína til að
segja ,já“ viö inngöngu í ESB í þjóð-
aratkvæðagreiðslu þegar að því
kæmi en gengið var frá samningum
10 verðandi aðildarríkja í ESB í
Kaupmannahöfn á föstudagskvöld.
Nærri fór að skugga væri varpað á
athöfnina en Pólverjar þráuðust við
langt fram á kvöld og gáfu ekki eftir
fyrr en þeim var lofað frekari
styrkjum frá ESB.
Nú tekur við hjá þessum 10 ríkj-
um að sannfæra þjóðir sínar um
ágæti inngöngu þeirra í ESB, sem
áætluð er 1. mars árið 2004. Þjóðar-
atkvæðagreiðslu þarf i öllum lönd-
unum svo af verði, auk þess sem
þing 15 aðildarríkjanna í ESB þurfa
einnig að samþykkja nýju aðildar-
ríkin.
8 af 10 ríkjunum eru fyrrverandi
kommúnistariki úr austurhluta
Evrópu og segjast sérfræðingar
margan íbúann þar óttast að glata
aftur frelsi sínu með því að
sameinast annarri risablokk.
Eftir að samningar voru í höfn á
fóstudagskvöld var fagnað mjög í
Kaupmannahöfn enda viðræðurnar
strembnar. Með þessum sögulega
fundi er talið að endanlega hafi öll
ummerki kalda stríðsins og skipting
Evrópu í austur og vestur verið af-
máð í eitt skipti fyrir öll.
mmamí
Gore ekki frambjóðandi
Fram kom á
CNN-sjónvarpsstöð-
inni seint í gær að
A1 Gore, fyrrum
varaforseti Banda-
ríkjanna, myndi
ekki sækjast eftir
tiinefningu Demó-
krataflokksins fyrir
forsetakosningarnar 2004. Hann
beið lægri hlut fyrir George W.
Bush í umdeildum kosningum árið
2000.
Pyntingar bannaðar í íran
Iranska þingið hefur samþykkt
lagafrumvarp sem kveður á um að
allar pyntingar i írönskum fangels-
um séu bannaðar. Er þetta talinn
mikill sigur mannréttindasinna í
landinu.
Þrýst mjög á Lott
Mikið hefur verið rætt um það
innan bandaríska Repúblikana-
flokksins að formaður öldungadeild-
arinnar, Trent Lott, ætti að segja af
sér, og það sem fyrst. Lott hefur ver-
ið sakaður um að vera hlynntur að-
skilnaði kynþátta í landinu og að
segja að betur væri komið fyrir
Bandaríkjunum nú ef aðskilnaðar-
sinninn Strom Thurmond hefði ver-
ið kjörinn forseti áriö 1948.
BJP fagnar í Gujarat
Stuðningsmenn
hindúþj óðarflokks
Indlands, Bharatiya
Janata Party, fógn-
uðu stórsigri í hér-
aðsþingskosningum
í Gujarat um helg-
ina. Forsætisráð-
herra landsins, Atal
Behari Vajpayee, sagði að þetta gæfi
til kynna það sem koma skyldi en
hann er í forsæti fyrir flokkinn. Alls
vann BJP 125 þingsæti af 182 í hér-
aðinu.
Plavsic iðrast fyrir rétti
Fyrrum forseti Bosníu-Serba,
Biljana Plavsic, mun í dag reyna að
sannfæra dómara í Alþjóða stríðs-
glæpadómstólnum í Haag um að
hún sé full iðrunar varðandi glæpi
sína gagnvart mannkyni í Balkan-
skagastríðinu. Hún er hæst setti
einstaklingurinn sem hefur játað
sakir sínum fyrir réttinum.
írakar þinga í London
Um 330 fulltrúar 6 stjórnarand-
stöðuflokka í Irak lögðu til hliðar
ágreiningsefni sín til að þinga í
London um helgina og velja
hugsanlega ríkisstjórn ef Saddam
Hussein yrði komið frá. Fundargest-
ir reyndu í gær að berja saman yfir-
lýsingu um pólitíska framtíð lands-
ins eftir tíð Saddams.
3 handteknir í Pakistan
Yfirvöld í Pakistan handtóku í
gær þrjár íslamska skæruliða og
lögðu hald á bíl sem í var sprengju-
efni. Talið er að nota ætti bílinn í
sjálfsmorðsárás á bandaríska emb-
ættismenn i Karachi.
Sýrlandsforseti í Bretlandi
Bashar al-Assad,
Sýrlandsforseti
kom í gær til Bret-
lands og hóf fjög-
urra daga opinbera
heimsókn sína sem
mun vera sú fyrsta
sem jafn háttsettur
embættismaður frá
Sýrlandi fer í til Bretlands. Líklegt
er að ástandið í írak verði efst á um-
ræðulistanum þegar hann hittir for-
sætisráðherrann, Tony Blair, en al-
Assad hefur sagt að líklega sé stríð
óumflýjanlegt í landinu en að afleið-
ingar þess í Miðausturlöndum yrðu
skelfllegar.