Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Side 20
40
Ferðir
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
DV
•á
>
Snóker- og Poolstofan Lágmúla 5, kynnir í samvinnu við BT.
5P5H
>7* Mótið verður haldið dagana 17. — 22. des.
> 1 Glæsileg verðlaun -
2.000 kr. þátttökugjald -
engin borðagjöld. & ■.
14 ára aldurstakmark. Meistaraflokksmenn
Billiardsambands íslands ekki gjaldgengir. - \
Skráning á staðnum til kl. 24.00 í dag
Ferðaþjónustan að Minni-Mástungu:
Hannyrðir og jólaskraut
setja svip á húsin
VAGNHÖFÐA 23 • SÍMI 590 2000 • WWW.BENNI.IS
Húsin Rósakot og Brekkubær að
Minni-Mástungu í Gnúpverjahreppi
eru komin í jólaskrúðann, en þau
hafa hamskipti eftir árstiðum.
Hannyrðir og jólaskraut af öllu tagi
minna á hátíðina sem i vændum er,
auk þess sem öll þægindi eru til
staðar í húsunum, svo sem uppbúin
rúm, sjónvarp, hljómflutningstæki
og vel búið eldhús. Utan við eru svo
heitu pottamir, að ógleymdum
gönguleiðum allt í kring. „Helgarn-
ar hafa verið fullbókaðar að undan-
förnu og húsin eru pöntuð um jól og
áramót. Enda er ég ein á markaðin-
um með svona hús,“ segir Olga
Andreasen húsfreyja. Hún og mað-
ur hennar, Finnbogi Jóhannsson,
bóndi og kennari, hafa rekið húsin í
fimm ár og hyggja á frekari upp-
byggingu á staðnum.
Sykurinn flæðir
Olga er mikil hannyrðakona og
heldur oft námskeið í hvers kyns
handavinnu. Nú er hún nýkomin
frá Ameríku með bútasaumsvin-
konum sínum á Selfossi og að sjálf-
sögðu freistaðist hún til að kaupa
eitt og annað fallegt. „Ég stóðst ekki
mátið þegar ég sá alls konar gamal-
dags jólaskraut og tók með mér eitt
og annað til að setja í húsin
Nú er Olga komin á fullt í jóla-
baksturinn fyrir heimilið og kveðst
halda þeirri venju að baka margar
sortir. „Hjá mér flæðir sykurinn,“
segir hún og lýsir frati á allt heOsu-
kjaftæði um hátíðar. „Sumir for-
dæma þennan gamla og góða sið að
bera fram smákökur um jólin en
úöa svo í sig súkkulaðikexi allan
ársins hring.“
Einkabrenna
Um síðustu jól var Olga með er-
lent par í öðru húsinu sínu. Það var
sonur gítarleikara Rolling Stones,
ásamt unnustu sinni sem er þekkt
fyrirsæta. „Þau keyptu allt til jól-
anna í kaupfélaginu á Selfossi og
voru hæstánægð með allt héma.
Höfðu vonast eftir snjó og hann
kom einmitt síðustu nóttina sem
þau voru. Þeim fannst það meiri
háttar," segir Olga. Hún segir hefð
fyrir brennu í Minni-Mástungu á
gamlárskvöld. „Við söfnum í hana á
gamlársdag og gestimir taka þátt i
því ef þeir vilja. Um kvöldið er svo
dregið í happdrætti heimilisins.
Nöfn þeirra gesta sem hafa gengið
sérstaklega vel um húsin okkar fara
í pott og þeir heppnu fá ókeypis
helgardvöl, ásamt ýmsu óvæntu, á
nýju ári.“ segir Olga. Við forðumst
að tefja frúna lengur að sinni enda
mega kökumar ekki brenna í ofnin-
um.
-Gun.
Jólalegt
Húsin í Minrii-Mástungu eru skreytt eftir árstíðum. Þegar
jóiatímabiiinu lýkur tekur rómantíska tímabilið viö, fram
aö páskum.
MYNDIR PÁLL PÉTURSSON
Húsfreyjan
Olga er mikiö jólabarn og telur ekki handtökin viö skreyt-
ingarnar.
Á ferð og flugi:
Opnið pakkann og
borðið hneturnar
um og farþegar á fyrsta farrými hjá
félaginu drekka rúma tuttugu þús-
und flöskur af áfengi á mánuði.
Cathay Pacific státar af besta kín-
verska matnum í háloftunum. Um
borð í vélunum er hægt að velja á
milli sextíu rétta sem byggðir eru á
matseðli frægra matsölustaða í Hong
Kong. Þegar flug 747-400 hjá KLM
tekur á loft frá Amsterdam til Sydn-
ey í Ástralíu eru í vélinni rúmlega
tonn af matvælum og tæpir fjórtán
hundruð lítrar af drykkjarvörum:
vatni, gosi, léttvíni og viskíi. Ef
marka má leiðbeiningar á litlum
hnetupökkum sem farþegar fá í flug-
vélum hafa flugfélögin ekki mikið
álit á farþegum því á umbúðunum
stendur: Opnið pakkann og borðið
hneturnar.
Fyrsta flugfélagið var stofnað 16.
október 1909 og flutti það farþega
milli borga í Þýskalandi með Zeppel-
in-loftfari. KLM er elsta flugfélag i
heimi, stofnað árið 1919. -Kip
Þeir sem ferðast hafa með lang-
flugi kannast við matinn sem boðið
er upp á um borð í flugvélum. Sum-
um finnst hann góður, aðrir snerta
ekki við honum en flestir borða
hann til að láta tímann líða.
Fyrirtækið LSG Sky Chefs i
Bandaríkjunum sér 260 flugfélögum
fyrir mat handa farþegum. Árið 2001
framleiddi það 427 milljónir matar-
bakka. Flugfélagið Jetblue Airways
býður farþegum sínum eingöngu
upp á bláar kartöflur og á tímabili
fengu allir farþegar gefms bol með
mynd af hænu og áletruninni: Þeim
var aldrei ætlað að fljúga. Singapore
Airlines er annar stærsti kaupandi
Dom Perignon kampavins í heimin-
Leigan í þínu hverfí
V
Dadge
Rabbi
öchrysler AUKAHLIITA- OC VARAHLUTAVERSLUN