Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Side 31
51
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
PV_____________________________________________ Tilvera
Liv Ullmann 63 ára
Norska leikkonan og
leikstjórinn Liv Ullmann
á afmæli í dag. Hún fædd-
ist í Tokyo í Japan. Hún
hafði leikið á sviði, bæði í
Stavanger og Ósló og auk
þess nokkrum norskum
kvikmyndum þegar Ing-
mar Bergman fékk henni hlutverk í Per-
sona (1966). Hún varð eftir það aðalleikkona
hans og alþjóðleg frægð fylgdi i kjölfarið.
Ullmann var um árabil í sambúð með hin-
um virta leikstjóra Ingmar Bergman og
saman eiga þau eina dóttur. í seinni tið hef-
ur Ullmann snúið sér að leikstjóm með góð-
um árangri. Síðast leikstýrði hún Trolösa
sem hlaut góðar viðtökur.
Gildir fyrir þriójudaginn 17. desember
Vatnsberinn (20, ian,-i8. febr.i:
I Það verður ekki auð-
' velt að sannfæra fólk
um að styðja við þig í
framkvæmdum þínum.
Imyndunarafl þitt er virkt en
hugmyndir þínar fá litla áheym.
Fiskarnlr fehr.-20. marsl:
Núna er góður tími til
lað bæta fyrir eitthvað
sem aflaga fór fyTÍr
stuttu. Komdu
tilfmriingamálunum í lag.
Happatölur þínar eru 4, 11 og 25.
Hrúturinn m. mars-19. apríl):
. Þú verður að vera á
Pvarðbergi gagnvart
fólki sem vill hagnast
á þér. Það gæti
eyðilagtTinnu sem þú ert búinn
að leggja á þig.
Nautið (20. april-20. maí):
Einhver reynir að
, sverta mannorð þitt
með einum eða öðrum
hætti þótt þér verði
þá^kki ljóst strax. Láttu ekki
troða þér um tær.
Tvíburarnir m mai-21. iúnp:
Þú átt í vændum
rskemmtilegan morgun
þar sem þú tekur þátt
í athyglisverðum
samræðum. Vinur þinn segir þér
merkilegar fréttir.
Krabbinn (2?- iúni-22. iúií):
Varastu að trúa
j orðrómi sem þú heyrir
t mn aðra. Dagurinn
_____einkennist af
topíréitu milli aðila sem þú
mngengst mikið.
Uónið (23, iúlí- 22. áeústl:
, Þér standa til boða góð
' tækifæri og þú þarft
kannski að neita þér
_ umað hitta félagana
til að koma málunum á hreint.
Happatölur þínar eru 7,11 og 17.
Mevian (23. ágúst-22. sept.i:
Forðastu að vera ná-
lægt fólki sem lætur
^^V^LaUt fara í taugamar á
* J sér. Þú gætir lent í
deilum við starfsfélaga.
Happatölur þínar eru 12, 26 og 38.
Vogin (23. sept-23. oKt.i:
J Þú átt góðan dag í
vændum bæði heima og
Ví vinnunni. Þú lýkur
r f verkefni sem þú hefur
verið að vinna að lengi og er því
ástæða til aö gera sér glaðan dag.
Sporðdreklnn (24. okt.-2i. nóv.):
Þér verður ekki tekið
jafnvel og þú vonaðist
jtil einhvers staðar þar
' " sem þú kemur í dag.
Ekki hafa áhyggjur, þetta
á eftir að breytast.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des.l:
.^—Vinur þinn sækist
ObH J^Peftir félagsskap þínum
* í dag. Ef þú ert mjög
upptekinn skaltu láta
hann vita af því í stað þess að
láta bíða eftir þér.
Steingeitln (22. des.-19. ian,):
Þú átt auðvelt með
samskipti í dag.
Streita er ríkjandi hjá
þeim sem þú umgengst
mest en þú gætir fundið ráð
til að bæta úr því.
Biskupsstólarnir voru
höfuðstaðir íslands
- segir sr. Gunnar Kristjánsson, formaður ritnefndar sögu stólanna
Sr. Gunnar Kristjánsson á Reyni-
völlum í Kjós þjónar þremur kirkj-
um, Reynivallakirkju, Brautarholts-
kirkju og Saurbæjarkirkju á Kjalar-
nesi, auk þess að vera prófastur I
Kjalamesprófastsdæmi, einu fjöl-
mennasta og víðfeðmasta prófasts-
dæmi landsins. Hann er nýkominn
heim af fundi með klerkum pró-
fastsdæmisins þegar útsendarar DV
renna í hlað. Þar höfðu línumar
verið lagðar fyrir jólamessumar og
flallað um túlkun jólaguðspjallsins
sem þrátt fyrir aldurinn er síungt.
Sr. Gunnar er ekki bara kennimað-
ur heldur líka fræðimaður og er for-
maður ritstjómar sögu biskupsstól-
anna, Skálholts og Hóla, sem verið
er að skrifa. Það er sú saga sem við-
talið á að snúast um.
Skálhoitsstóll með útgerð
Er langt síðan áhugi þinn vakn-
aði á biskupsstólunum, Gunnar?
„Hugmyndin að ritun sögu þeirra
kom fram á kirkjuþingi fyrir
nokkrum árum. Menn voru sam-
mála um að full þörf væri á að
skrifa hana því stólamir em miklir
sögu- og helgistaöir. Heimildir eru
víða, bæði prentaöar og óprentaðar,
til dæmis í okkar fomsögum, mikið
er til af óútgefnum skjölum, heim-
ildir er að fmna í biskupsvísitasíu-
bókum og í reikningshaldi stólanna
eru miklar upplýsingar - svo eitt-
hvað sé nefnt. Við munum vinna úr
öllu þessu eins og efni og ástæður
leyfa og reyna að fá góða heildar-
mynd.“
- Hverjir eru með þér?
„Með mér í ritstjóm era Hjalti
Hugason, prófessor í kirkjusögu, og
sr. Sigurður Sigurðarson, vígslu-
biskup í Skálholti. Eitthvað munum
viö leggja til af efhi en við réðum
tvo aðalhöfunda sem hófu störf fyr-
ir tæpu ári. Jón Þ. Þór sagnfræðing-
ur er aðalhöfundur Hólasögu og
Guðrún Ása Grímsdóttir sagnfræð-
ingur er með Skálholtssögu. Svo
verða ráðnir sérfræðingar á ýmsum
sviðum til að skrifa einstaka kafla
um afmörkuð efni. Biskupsstólamir
voru höfuðstaðir trúarlífs og helgi-
halds og ráku almennt talaö mikla
menningarstarfsemi. Þeir komu að
bókaútgáfu og prentsmiðjurekstri.
Þeir höfðu skip í forum til útlanda
lengst af. Þama verður fjallað um
þátt biskupsstólanna í hagsögu þjóð-
arinnar og umfangsmikilli atvinnu-
starfsemi þeirra verða gerð skil.
Skálholtstóll var með talsverða út-
gerð, einkum á Suðurnesjum. Stól-
amir áttu líka jarðir víða um land.
AUt þetta stóð undir rekstri stól-
anna, biskupsembættanna, skól-
anna svo og fátækraframfærslu og
fleiri þátta. Á biskupsstólunum var
margt manna, gestagangur mikiU
og oft straumur þurfamanna. Tals-
verðar tekjur þurfti tU að standa
undir þessu öUu.“
Aðgengileg fyrir almenning
„Biskupsstólamir vora líka tengi-
punktar við útlönd,“ heldur sr.
Gunnar áfram. „Þeir voru í nánu
sambandi við erkibiskupsstólana og
páfastól í Róm og almennt talað við
heim mennta og menningar, lista og
bókmennta í Evrópu. AUar miðaldir
gegndu þeir vissu hlutverki sem
höfuðstaðir íslands, þannig var það
líka eftir siðaskiptin. Svo þetta er
merkUeg saga sem hefur aldrei ver-
ið skrifuð í heUd, kannski vegna
þess hversu hún er umfangsmikU.
Nú á að bæta úr því og sagan á að
verða læsUeg og aðgengUeg fyrir al-
menning."
- Upp á mörg bindi?
„Nei, við ætlum okkur að hafa
þetta í einni bók upp á svona 5-600
síður en aUt er þetta háð fjár-
magni.“
- Era staðimir orðnir blankir?
„Já, að minnsta kosti miðað við
það sem þeir vora,“ segir sr. Gunn-
ar og brosir.
„En við fengum fjórar miUjónir
úr Kristnihátíðarsjóði í fyrra og
aðrar fjórar núna. Þetta er stærsta
verkefni sem hann hefur lagt fé í,
fyrir utan fomleifarannsóknir sem
meðal annars fara fram í Skálholti
og á Hólum. Það sýnir að menn
beina sjónum að biskupsstólunum
sem aftur undirstrikar að tími er
kominn til að gera þeim góð skU,
sagnfræðUega séð.“
- Hvenær á svo ritið að koma
út?
„Markmiðið er að það komi út á
afmælisári beggja biskupsstólanna
2006. Þá eru 900 ár frá stofnun
Hólastóls og 950 ár frá stofnun
Skálholtsstóls. Við reiknum með
því að ritun verksins verði lokið á
árinu 2005 og erum búnir að semja
við bókaútgáfu. Það er bókaútgáf-
an Hólar á Akureyri." -Gun
Cage skilinn við
dóttur Presleys
Stórleikarinn Nicolas Cage
og Elvisdóttirin Lisa Marie
Presley hafa áreiðanlega verið
nálægt því að slá öU met í vik-
unni þegar fréttist að hjóna-
band þeirra væri ein rjúkandi
rúst eftir aðeins þrjá mánuði.
Þau sem höfðu svarið hvort
öðru að ekkert nema dauðinn
sjálfur myndi komast upp á
miUi þeirra.
Það var Nicolas sem fór
fram á skUnað og bar við óbrú-
anlegum ágreiningi. Lisa
Marie sendi ffá sér yflrlýsingu
og sagði að hjónabandið hefði
verið dauðadæmt frá upphafi.
„Ég talaði aldrei um hjóna-
bandið og ég æUa ekki aö fara
að tala um skilnaðinn," sagði
Nicolas þegar hann var spurð-
ur út í ástæðumar fyrir því að
hjónabandið var svona
skammlíft.
„Ég harma að svona fór en
við hefðum aldrei átt að gifta
okkur,“ sagði Lisa Marie bless-
unin.
Nicolas og Lisa Marie gengu
í hjónaband á laun í ágúst í
sumar og fór vígslan fram á
Hawaii. Þá höfðu þau verið
sundur og saman í hálft annað
ár.
REUTERS-MYND
Sælan úti
Hjónaband þeirra Nicolas Cage og Lisu
Marie Presley entist ekki nema í þrjá mán-
uöi sem þykir stutt, meira að segja á mæli-
kvaröa þeirra í Hollywood.
Verð frá
68.500
m. grind
Queen 153 x 203
(•Good Housékeeping V)
^King
f Koil
Skipholti 35 • Sími 588 1955