Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 ÖV Fréttir Sigurður G. Guðjónsson st^fnir Árna Tómassyni og Óla Birni Kárasyni: Ummæli Arna í DV verði dæmd dauð og ómerk Norðurljós kærðu Búnaðarbankann fyrir brot á bankaleynd: Sigurður G. leyndi bankann skilyrðum sambankalánsins - segir Ámi Tómasson, bankastjóri Rúnaðarbankans Wmm lil snjMa * «0 mUt*M Jl«m *»tí*tx W tfclu viu hv« yfinmmu »» Mnm « k«cl tmm mtí btM* bmu öí jhflffitem tjóihinkaUmiiw w oklui mtfSura Áþnstws hwJi krWQtu Mú amt * C*rv »*i totókMn b*»* *» Mbtm W feðKfcn.* Winu yr Arm <• «ia» «Ituwmmi w Wt I Mmr *r<Etr lí<3»t kð Utv«<ji imiinM ty vtfitðt vtó Nbrturtx* trytöacfc no Atfvrfi ft (Mtfinnvm u® briein*. ■mmi VmUwt Wta <W fc*l *ð ri»J4 tkoefm O. CaðjCoMOtt Sntjórt ____ M* ttDtfi AðOMttAi u M Istnkbm rth» «au o» u« (fivttMc* t» nOUð í ÆKM «»tí» 07*0* kr&iu eacr tr*mm <tt «ð*Ui«*iaii 0.0M6- Vmftwrti k«n> Staurfim- G- C»fi NorfiartJów. “ TOTffiflr^rir nr*1 •‘nnnii Arn waar ta pmt *a ornm DV mánudaginn 22. júlí 2002. Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa samskiptafélags hf., hefur stefnt Áma Tómassyni, bankastjóra Búnaðarbankans, og Óla Bimi Kára- syni, ritetjóra DV, vegna ummæla sem höfð voru eftir Áma í DV mánudaginn 22. júlí 2002. Haft var eftir Áma Tómassyni í blaðinu þennan dag að Sig- urður G. Guðjónsson hefði leynt bank- ann skilyrðum sambankaláns þess efnis að fyrirtækmu væri óheimilt að efna til lántöku án samþykkis þeirra banka sem stóðu að sambankaláninu. í stefnunni er bæði vísað til fyrirsagnar á forsíðu blaðsins þennan dag, „Sigurður G. leyndi bankann skilyrðum sambanka- lánsins", og fréttarinnar þar undir þar sem haft er eftir Áma Tómassyni: „Það er ekkert launungarmál að Sigurður G. Guðjónsson leyndi okkur þeim skilyrð- um sambankalánsins að fyrirtækinu verði óheimilt að efna til lántöku án samþykkis bankanna sem stóðu aö lán- veitingunni." Sigurður krefst þess að stefndu verði dæmdir til að greiða honum 600 þúsund krónur til að kosta birtingu dómsins í þremur dagblöðum og að þeir greiði honum málskostnað. Þess má geta að Skífan hefúr kært Reyni Traustason, fyrrum blaðamann DV, fyrir fréttaskrif um fjárframlög Jóns Ólafssonar og tengdra fyrirtækja í kosningasjóð Ólafs Ragnars Grímssonar og til sjálfstæðismanna á Akureyri fyrir síðustu alþingiskosningar. Vill Skífan fá að vita hvaðan Reynir Traustason fékk upplýsingar sínar. Sambankalánið í stefnu Sigurðar G. Guðjónssonar gegn Áma og Óla Bimi em málsatvik rakin og þar fjallað um mikla fjölmiðla- umræðu um fjármál Norðurljósa fyrri hluta árs 2002, um vanskil Norðurljósa á sambankaláni sem félagiö fékk m.a. hjá Chase Manhattan bankanum í New York, hollensku bönkunum NIB og Staal og Landsbanka íslands. Var fjallaö um að Norðurljós hefðu ekki staðið við kyrrstöðusamning sem gerður var við þá banka sem stóðu að sambankaláninu en það mætti aftur rekja til þess að Jón Ólafsson hefði ekki staðið við loforð um að leggja iram aukið hlutafé i félagið. Umræðan laut einnig að því að Landsbankinn hefði fellt niður yfirdrátt- arheimild Norðurljósa á tékkareikningi og höíðað mál til innheimtu skuldarinn- ar. Um mánaðamótin febrúar-mars hætti Hreggviður Jónsson sem forstjóri hjá félaginu. Búnaðarbankinn veitti Norðurljósum 3 ára lán upp á 350 milljónir króna í júlí 2001. Segir Sigurður að Hreggviður Jónsson, Sigurjón Sighvatsson og Jón Ólafsson hafi séð um öll samskipti við bankann vegna þessa láns. I lok júní 2002 lýsti Búnaðarbankinn hins vegar yfir gjaldfellingu lánsins og höfðaði mál til innheimtu skuldarinnar. I fjölmiðl- um kom fram að bankinn teldi heimild vera til gjaldfellingar þar sem forsvars- menn Norðurljósa hefðu ekki upplýst bankann um gjaldfellingarákvæði sam- bankalánsins. í stefnunni vísar Sigurð- ur sérstaklega til umfjöllunar DV sem getið er um hér að framan. Stóð ekki að lántökunni Sigurður segist hafa ritað Áma Tómassyni bréf og skorað á hann að draga ummæli sín til baka. Ámi varð ekki við þvi en lét að því liggja í svar- bréfi að bréf Sigurðar væri á misskiln- ingi byggt. Hann hefði upplýst að bank- inn teldi Norðurljós hafa leynt þessum upplýsingum en bætt við að Sigurður hefði verið í stjóm Norðurljósa þegar lánið var tekið og lögmaður félagsins að auki. ítrekaði hann þetta síðan í fréttum RÚV. í Morgunblaðinu daginn eftir var haft eftir Áma að hann hefði tjáð blaðmanni DV að Norðurljós hefðu leynt bankann skilyrðum samhanka- lánsins, ekki Sigurður. Hann hefði ekki rætt um persónu Sigurðar heldur félag- ið Norðurljós en lagt á það áherslu að þegar samið var um lánveitinguna hefði Sigurður verið stjómarmaður í Norður- ljósum og lögmaður félagsins og sem slíkur hafi hann hlotið að vita um inni- hald samninga Norðurljósa og Búnaðar- bankans. Sigurður ítrekar að Áma hafi átt að vera það kunnugt að hann hafi ekki staðið að lánveitingunni. Vísar Sigurð- ur síðan í símbréf sem Ámi sendi starfs- mönnum bankans áður en frá láninu var gengið og vitnar í það: „Eitt að lok- um. Við þurfum að fá upplýsingar um gjaldfellingarákvæði á stóra erlenda lán- inu til Norðurljósa þannig að við verð- um ekki lakar sett en þeir með okkar lán.“ Virðingarhnekkir Segist Sigurður hafa beðið Óla Bjöm Kárason, ritstjóra DV, aö upplýsa á hvem veg ummæli Áma féllu í viðtali hans við blaðamann DV og birta leið- réttingu á ummælum Áma sem hefðu verið á annan veg en komið hafi fram í fréttDV. DV stendur við frétt sína og hefur því ekki séð ástæðu til að birta „leiðréttingu“. Sigurður telur að í ummælum Áma felist aðdróttun sem sé til þess failin aö verða virðingu hans til alvarlegs hnekk- is. Sé einnig vegið að trúverðugleika Norðurljósa. Ummæli Áma séu þeim mun alvarlegri þar sem þau hafi verið borin út gegn betri vitund. -hlh Seyðisfjörður: Umfangs- mikil leit að sjómanni Mikil leit stóð yfir í allan gær- dag og fram i myrkur að 55 ára sjómanni, Guðmundi Sigurðssyni, sem hvarf af Jónu Edvalds SF 20 í fyrrinótt. Skipið lá við bryggju á Seyðisfirði. Björgunarsveitin á Seyðisfiröi leitaði vandlega i bænum í gær og fékk til liðs við sig björgunarsveit- armenn frá Egilsstöðum, Reyðar- firði og Borgarfirði. Alls leituðu um fimmtíu manns í gær. Reynt hefur verið að kafa en það hefur ekki borið árangur vegna dimmunnar. Von er á varð- skipi til þess að aðstoða við köfun og köfurum frá Neskaupstað og Stöðvarflrði auk leitarmanna frá Eskifirði. Þá kemur leitarhundur með flugi frá Reykjavík. Leit var hafln á ný í birtingu í morgun. -KÞ DV-MYND E.ÓL Héit upp á tvöfalt sextugsafmæli Þaö var mikiö um dýröir hjá Arnari Jónssyni ieikara í gærkvöld þegar hann fagnaöi „tvöföldu“ sextugsafmæli. Fyrst hélt hann upp á sextugsafmæli Helga Klingenfeldt Hansen í leikritinu Veislunni og síöan upp á sitt eigiö. Fjölskylda og vinir Arnars samfögnuöu meö honum aö lokinni sýningu og færöi Þjóöleikhússtjóri honum veglegan blómvönd frá leik- húsinu. Á myndinni heilsar afmælisbarniö upp á Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu. Afföll húsbréfa snarminnka: Ibúðakaupendur græða andvirði notaðs bíls Sá sem tekur hámarkshúsbréfalán í dag vegna kaupa á notuðu húsnæði, 8 milljónir króna, fær nær 830 þúsund krónum meira fyrir bréfin en fyrir rúmiega háifu ári. Ástæðan er að afföll húsbréfa hafa minnkað úr um 10 pró- sentum í 3 prósent. Því er spáð að af- föllin minnki enn og veröi nánast eng- in á næstu vikum. Þetta þýðir aö kaupandi fær sem nemur andvirði notaðs bils upp í hend- umar vegna minni affalla. Sem dæmi má nefna beinskiptan 4 dyra Hyundai Accent, árgerð 1999, sem ekinn er 36.000 þúsund km, eða 5 dyra sjálfskipt- an Golf skutbíl, árgerð 1998, sem ekinn er 72.000 km. Fyrir ríflega háifu ári voru afföllin allt að 12 prósent og þá fengust tæpar 7 milljónir fyrir 8 miiljóna króna hús- hréf. Afföllin voru ríflega ein milljón króna. Miðað við ávöxtunarkröfú hús- bréfa I gær eru affóllin nú mun minni. Af sömu upphæð húsbréfa fást nú tæp- lega 7,9 miUjónir sem þýöir að afföllin eru um 100 þúsund krónur. Mismunur- inn á afföliunum nú og fyrir um hálfu ári er um 830 þúsund krónur. Ástæöa lækkandi ávöxtunarkröfu er rakin til umframeftirspumar, lækkunar stýrivaxta og stórfelldra kaupa erlendra aöila á ríkistryggö- um bréfum. -hlh mmmmm Nýr vegamálastjóri Sturla Böðvarsson samgönguráöherra hefur skipað Jón Rögnvaldsson í stöðu vegamálastjóra frá 1. mars nk. og til næstu fimm ára, í stað Helga Hall- grímssonar sem þá lætur af störfum fyrir aldurs sakir. Jón var í hópi sex umsækjenda sem sóttu um stöðuna. Samþykkir lánsábyrgð Bæjarstjóm Akureyrar samþykkti á fundi í gær að veita Landsvirkjun lánsábyrgð vegna framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun en áður hafði bæj- arráð mælt með því að ábyrgðin yrði veitt. Akureyrarbær á 5% í Lands- virkjun á móti 50% hluta ríkisins og 45% hluta Reykjavíkurborgar sem áður hefur samþykkt að veita Lands- virkjun ábyrgö. Ráðherra efins Halldór Ásgrímsson utanrikisráð- herra segist vera mjög svartsýnn á að samningar takist milli EFTA-ríkjanna og ESB vegna stækkunar sambands- ins. Hann segist ekki hafa áhuga á að undirrita samninga sem séu nánast óbærilegir fyrir íslenska hagsmuni. Gegn mengun Ríkisstjómin samþykkti á fundi sínum í gærmorgun aö setja á laggfrn- ar starfshóp til að móta samræmda stefnu um málefni hafsins, með áherslu á sjálfbæra nýtingu og vernd lífríkisins og vamir gegn mengun. Hámarkskvóti stækkaöur Framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa segir að lög um hámarks veiðiheimildir hamli eðlilegri stækk- un sjávarútvegsfyrirtækja hér á landi. Hann leggur til að lögum verði breytt og hámarkskvótinn hækkaður veru- lega svo fyrirtækin geti vaxið og dafn- að. - RÚV greindi frá. Haraldur Öm Ólafsson undirbýr nú enn einn fjalla- leiðangur í sjötmda- göngunni. Um er að ræða hæsta tind Ástralíu, Kosci- uszko, 2.228 m, og Carstensz Pyramid, 4.884 m, hæsta tind Eyjaálfu. Skýring- anna er að leita í því að tveir tindar eru viðurkenndir sem einn hátind- anna sjö. - Mbl. greindi frá. Rækjukvóti Þormóður rammi-Sæberg á Siglu- firði fær í sinn hlut nærri 3.000 tonna rækjukvóta á Flæmingjagrunni á þessu ári. Samherji fær í sinn hlut 1.700 tonn og Útgerðarfélag Akureyr- inga tæp 1.000 tonn. Veöur hamlar björgun Vetrarveörið í N-Noregi veldur óvissu um hversu langan tíma tekur að bjarga fjölveiðiskipinu Guðrúnu Gísladóttur af hafsbotni úti fyrir Lo- foten. Köfunarfyrirtækið Selöy Und- ervannsservice verður komið með öfi tæki og mannskap á staðinn á morg- un og getur byrjaö aðgerðir strax og veður leyfir. Mega skoða tölvupóst Stjórnendum fyrirtækja er heimilt að skoða tölvupóst starfsmanna sé varlega farið, segir lögmaður Samtaka atvinnulífsins. Umræða um tölvupóst- notkun í fyrirtækjum komst í hámæli eftir að starfsmanni var vikið úr starfi og tölvupóstur hans síðar lagð- ur fram sem málsgagn. Persónuvemd taldi að fyrirtækið hefði gengið of langt. -HKr. A hæsta tind

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.