Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Blaðsíða 17
17 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003____________________________________________________________________________________________ DV______________________________________________________________________________________________ Útlönd Andstaða bandamanna Bandaríkjanna við einhliða innrás í írak vex dag frá degi: Bush segir frekari bið George W. Bush sagði í gær að greinilegt væri að Saddam Hussein íraksforseti myndi ekki afvopnast sjálfviljugur og að tilgangslaust væri að gefa vopnaeftirlitsmönnum SÞ meiri tíma til þess að sinna leit sinni í írak. „Hversu mikinn tíma þurfum við til þess að vera viss um að hann af- vopnist?" sagði Bush. „Þetta lítur út eins og endursýning á slæmri kvik- mynd og ég hef engan áhuga á að horfa á hana.“ Stjómvöld í Wash- ington sjá ekki fyrir að frekari ályktana Öryggisráðs SÞ sé þörf fyr- ir innrás inn í landið. Á meðan Bush þykir vigreifur virðast bandamenn hans, sérstaklega í Evrópu, mjög svo mótfallnir hvers kyns einhliða aðgerðum af hálfu Bandaríkjanna. í fararbroddi þeirra fylkingar fer Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sem ætíð hefur verið mótfallinn hugmyndum um innrás á þessu stigi málsihs. „Ekki enga þörf á á aðgerðum búast við þvi að Þýskaland samþykki ályktun sem kveður á um stríð,“ sagði Schröder, ákveðinn í máli. „Við sjáum í dag enga réttlætingu fyrir hemaðarlegum aðgerðum þar sem að vopnaeftirlitsmennimir eru fullfærir um að sinna sínu starfi í írak,“ sagði utanríkisráðherra Frakka, Dominique de Villepin. Af þeim 15 þjóðum sem eiga full- trúa i Öryggisráði SÞ hafa Frakkar, Bandarikjamenn, Bretar, Rússar og Kínverjar neitunarvald í ráðinu. Og það er alls ekki víst að Bandaríkin fái þau 9 atkvæði i Öryggisráðinu sem þörf er á og þar með eru líkurnar á einhliða aðgerðum stórauknar. Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sagði í gær að upplýsingar um ólöglega vopnaeign íraks væru sífellt að aukast og nauðsynlegt væri að halda áfram að þrýsta á Saddam. Hann útilokar ekki þátttöku Breta þó svo að Öryggisráðið samþykkti ekki hernaðarlega íhlutun. Hernaöaraðgeröum mótmælt Mótmælendur í Lundúnum í Englandi láta í Ijós skoöun sína fyrir utan þing- húsiö í borginni, á sama tíma og breskar hersveitir eru sendar til íraks. REUTERS Mettap hjá Credit Suisse Mikið tap varð á starfsemi Credit Suisse á síðasta ári, eða sem nam 3,4 milljörðum svissneskra franka. Jafngildir það um 2,5 milljörðum Bandaríkjadala. Aldrei áður hefur bankinn tapað svo miklu en tap á fjórða ársíjórð- ungi einum var um 1 milljarður franka eftir að bankinn lagði til hliðar um 456 milljónir í afskrifta- sjóð til að mæta hugsanlegum bóta- kröfum vegna ásakana um að Credit Suisse First Boston Securities héfði brotið trúnað við viðskiptamenn sína með vilhöllum greiningum. Þetta kom fram í Morgunpunktum Kaupþings í gær. Bankinn gerjr ráð fyrir viðsnún- ingi í afkomunni á þessu ári. Sú áætlun hlýtur þó að markast nokk- uð af því áð viðsnúningur verði í af- komu verðbréfa- og tryggingahluta bankans en viðvarandi tap hefur verið á Credit Suisse First Boston og Winterthur tryggingafélaginu. Gengi Credit Suisse hefur lækkað um nær helming frá því í byrjun síðasta árs og þarf þaö vart að koma á óvart í ljósi afkomuþróunar fé- lagsins. -vb Sáttasemjari Jimmy Carter hefur aö undanförnu beitt sér í máium Venesúela. Carter beitir sér í Venesúela Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og handhafi friðar- verðlauna Nóbels, hefur að undan- fcirnu beitt sér í málum Venesúela en verkfóll olíuverkamanna hafa skekið landiö síðastliðnar sjö vikur. Carter mun hafa sent Hugo Chaves, forseta landsins, og stjórnarand- stæðingum áætlun um lausn sem myndi binda enda á verkfóllin. Ann- ars vegar vill Carter að boðað verði til kosninga í landinu eða gengið verði til þjóðaratkvæðis um áfram- haldandi stjórnartíð Chaves. Stjórnarandstæðingar fagna til- lögu Carters og segja hana til þess fallna að ráðamenn setjist niður og finni lausn mála. Nutreco áformar stór- fellt þorskeldi Nutreco, sem er stærsti fóður- framleiðandi heims og leiðandi í fiskeldi, áætlar í samstarfi við Cod Culture Norway að framleiða um eina milljón þorskseiða á þessu ári. Á næstu árum gerir Nutreco ráð fyrir að framieiðslan margfaldist og verði í Noregi orðin 50 milljónir seiða árið 2008. Frá þessu var sagt í Morgunkorni íslandsbanka í gær. Erlend sérrit um sjávarútveg hafa að undanfornu fjallað um þessi áform Nutreco. Gangi áform Nu- treco eftir getur farið svo að um 3.000 tonnum af eldisþorski verði slátrað þegar á þessu ári. í sam- ræmi við vaxtaráform félagsins yrði 10.000 tonnum slátrað á næsta ári og verður sú tala komin upp i 80.000 tonn árið 2008. Gangi framleiðslan að óskum sjá forsvarsmenn Nutreco fyrir sér að allt að 400.000 tonnum af eldisþorski verði slátrað árið 2015 en til samanburðar má nefna að heildarþorskafli íslenskra skipa á árinu 2002 var 213.000 tonn. -vb Heyrnarlausir á tónleikum / tilefni af ári fatlaöra í Evrópu voru haldnir tónleikar fyrír heyrnarlaus börn í Muziekcentre i Utrecht í Hollandi í gær. Nokkur þúsund börn voru viöstödd og nutu tónleikanna mörg hver á mismunandi hátt, þessi stúlka setti blööru upp aö andlitinu til þess aö finna titringinn af tónaflæöinu. Kýpur-leiðtogar sestir að samningaborðinu Leiðtogar þjóðarbrotanna á Kýpur, þeir Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur- Tyrkja og Glafcos Clerides, forseti Kýpur-Grikkja, settust loks að samn- ingaborðinu í fyrradag til þess að ræða sáttatillögu Sameinuðu þjóð- anna um sameiningu eyjarinnar í eitt ríki eftir nærri þrjátíu ára aðskilnað frá árinu 1975. Leiðtogamir hafa frest til 28. febrú- ar til þess að komast að samkomulagi en þá rennur út frestur Evrópusam- bandsins, sem gerir sameiningu þjóð- arbrotanna að skilyrði fyrir inngöngu Kýpur í ESB í maí á næsta ári, en að öðrum kosti verði Kýpur-Grikkjum aðeins veitt aðild að sambandinu. Miðað við síðustu yfirlýsingar leið- toganna virðast litlar líkur á því að samkomulag sé í nánd og hefur Denktash, leiðtogi Kýpur-Tyrkja, ít- rekað lýst því yfir að fyrr segi hann af Rauf Denktash leiötogi Kýpur-Tyrkja. sér en að samþykkja fyrirliggjandi til- lögur SÞ óbreyttar en þær séu í flestu sniðnar að hagsmunum Kýpur- Grikkja. Hann fordæmdi fjöldamótmæli um 50 þúsund Kýpur-Tyrkja sem kröfðust saméiningar fyrr i mánuðinum og sagði þau ekkert annaö en hnifstungu í bakið. „Ég hef miklar efasemdir um stjómarskrárhluta tillögunnar og ef- ast þar að auki um að þjóðarbrotin séu tilbúin til þess að lifa saman í sátt og samlyndi,“ sagði Denktash. Á móti segir Yiannakis Cassou- lides, utanríkisráðherra Kýpur- Grikkja, að hinn 78 ára gamli Denk- tash sé maður fortíðarinnar. „Ég tel daga hans talda sem þjóðar- leiðtoga Kýpur-Tyrkja og að afsögn hans sé tímabær. Leiðtogamir hafa samþykkt að hitt- ast annan hvern dag næstu vikumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.