Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 DV Fréttir Davíð Oddsson um virkjun og álver: Andstaða er ábyrgð- arleysi DV-MYNDIR SIGURÐUR JÖKULL Bilkur á lofti Andstæöingar stóriöju á Austurlandi mættu á þingpalla til aö fylgast meö umræöunum í gær. Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiöur og formaöur Sósí- alistafélagsins, var einn þeirra og virtist ekki lítast meira en svo á blikuna. Ábyrgir Hversu mikiö sem deilt er um Kárahnjúkavirkjun og álver í Reyöarfiröi geta þó landsmenn allir sæst á aö þeir Halldór og Davíö séu ábyrgir. Þeir gagnrýna andstæöinga málsins fyrir ábyrgöarleysi, en þá er svaraö um hæl aö þeir séu vissulega ábyrgir - fyrir öllu því tjóni sem sé yfirvofandi. Hugsandi, þegjandi Valgeröur Sverrisdóttir iönaöarráöherra gjóar augum í átt aö Ögmundi Jónassyni, ekki beinlínis góölátlega aö því er viröist ogjafnvei aö honum sé hugsuö þegjandi þörfin. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að það sé ábyrgðarleysi að standa gegn þeirri miklu atvinnu- uppbyggingu sem stóriðjufram- kvæmdir fyrir austan feli í sér. I utandagskrárumræðu á Al- þingi í gær krafði Ögmundur Jón- asson stjómvöld svara um til hvaða aðgerða yrði gripið til að bregðast við efnahagslegum áhrif- um framkvæmdanna. Ríkisstjórn- in hefði enda sjálf sagt, að „verði ekkert að gert samhliða gríðar- mikilli innspýtingu fjármuna inn í hagkerfið muni það ofhitna með blússandi verðbólgu og til lengri tíma grafa undan efnahag þjóðar- innar.“ Davíð svaraði því til að ótíma- bært væri að ákveða mótvægisað- gerðir, enda yrðu mestu áhrif framkvæmdanna á efnahagslifið ekki fyrr en árin 2005 og 2006. Þá sagði hann slíkar aðgerðir tíma- bundnar á meðan ávinningurinn af stórðiðju yrði varanlegur - og verulegur. „Hagkerfið allt styrkist, hag- vöxtur verður meiri en ella, út- flutningur eykst, atvinna eykst, ríkissjóður styrkist og byggðin á Austfjörðum eflist til muna. Lífs- kjör þjóðarinnar batna því óum- deilanlega," sagði Davíð; andstaða væri því ábyrgðarleysi. Margir stjórnarandstæðingar lýstu í umræðunum áhyggjum af því að hækkandi gengi krónunnar kæmi illa niður á útflutningsat- vinnuvegum á borð við sjávarút- veg og ferðaþjónustu. Þeir vöruðu líka við „ruðningsáhrifum" stór- iðjuverkefnisins, sem fælust í þvi að skuldsett fyrirtæki og heimili yrðu illa úti þegar kæmi að þvi að hækka vexti til að spoma við þensluáhrifum framkvæmdanna. Stjómarliðar undruðust það á hinn bóginn, að stjómarandstæð- ingar skyldu líta á aukin umsvif í efnahags- og atvinnulífi sem stór- kostlegt vandamál. Ögmundur vakti athygli á því undir lok um- ræðunnar að forsætisráðherra hefði ekki svarað spumingum hans um fyrirhugaðar mótvægis- aðgerðir. Davíð sagðist þá skyldu svara Ögmundi árið 2005 - sem forsætisráðherra. -ÓTG Samvinnuviðræður sveitarfélaga við Eyjafjörð: Kunna að leiða til sameiningar allra eyfirskra sveitarfélaga Frá Ólafsfiröi. Bæjarstjóm Siglufjarðarkaup- staðar hefur sent bæjarstjómum Ólafsfjarðar, Dal- víkurbyggðar og Akureyrar bréf þar sem farið er fram á viðræður um sameiningar- og samstarfsmál sveitarfélaga. Bréf- ið er dagsett 30. desember sl., og þar er þess farið á leit að sveitarfélögin Óiafsfjöröur, Dalvík- urbyggð og Akureyri gangi til form- legra viðræðna um sameiningar- og samstarfsmál. Tillaga er um að í byrj- un hittist bæjarstjórar sveitarfélag- anna og gangi frá tillögum um fram- gangsmáta viðræðna. Bæjarráð Dalvikurbyggðar hefur falið Valdimari Bragasyni bæjarstjóra að taka þátt í undirbúningsvinnu fýr- ir þessar viðræður og það umboð hef- ur Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri á Ólafsfiröi, einnig fengið. Hún segir að fyrsta skrefið verði að kanna möguleika þessara sveitarfélaga á aukinni samvinnu, en eins og er sé um mjög góða og vaxandi samvinnu að ræða milli Dalvíkurbyggðar og Ólafsfjarðar. Það felist m.a. í sameig- inlegum félagsmálastjóra og skólafull- trúa sem kemur mun betur út fyrir þessi sveitarfélög, bæði faglega og fjárhagslega. Stefanía segir reynsluna af þessum tveimur samvinnuverkefn- um við Dalvíkurbyggð mjög góða. „Nú er búið að sameina bama- vemdarnefndir og með í því eru bæði Siglufjörður og Hrísey. Þannig verður mun betur hægt að taka á þessum málaflokki með faglegum hætti. Það er fulit af verkefnum sem sveitarfélög þurfa að standa undir og geta sinnt af meiri myndarskap sameiginlega. Við erum líka að horfa á þetta verkefni sem stækkun á atvinnusvasði og sam- vinnu i þeim málum en um er að ræða um 5.000 manna byggð sem gæti sem best staöið sameiginlega að rekstri tveggja ára framhaldsskóla þannig að bömin geti verið lengur heima í þessum byggðalögum, þ.e. tvo vetur eftir 10. bekk til 18 ára aldurs. Það tekur ekki nema um 15 mínútur að aka frá Ólafsfirði til Dalvíkur og svipaðan tíma til Siglufjarðar þegar jarðgöngin verða komin. Einnig sjá- um við fyrir okkur samvinnu á vetr- aríþróttasviðinu en hér eru mjög góð skíðasvæði, en ólík. Nú þegar hafa knattspymumenn í Ólafsfirði og Dal- vík sameinað krafta sína i einu félagi, Leiftri-Dalvík. Það vakti athygli mína að Hríseyj- arhreppur er ekki með í þessum við- ræðum en við gerum ekki athuga- semdir við það. Það er alls ekki ómögulegt að í framtíðinni verði allur Eyjafjörður, ffá Siglufirði í vestri til Grenivíkur í austri, eitt sveitarfélag með yfir 20.000 íbúa. En nú er það aukið hagræði af samvinnu sem er til umræðu tU að tryggja íbúum meira félagslegt öryggi," segir Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri á Ólafsfirði. -GG mBMMm&Áxrn REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 16.42 16.09 Sólarupprá5 á morgun 10.35 10.36 Síödegisflóö 21.31 13.37 Árdeglsflóö á morgun 09.50 02.04 Hlýnar talsvert Austlæg átt, víða 13-18 m/s og snjókoma eða él um mestallt land, en hægari norðlæg eða breytileg átt norðaustan- og austanlands fram á kvöld. Frost 2 til 15 stig, kaldast I innsveitum noröaustan til, en hlýnar talsvert í kvöld og nótt. Veðriö Lægir er líður á dag Austan og suðaustan 15-20 og slydda eða snjókoma meö köflum, en heldur hægari austan tll. Lægir nálægt hádegi með éljum, fyrst suðvestan til. Hiti um frostmark. Föstudagur Laugardagur Sunnudagur Hiti 0° c> H»ti 0° w Hitl 0° tii 5“ tii 6* til 2° Vindun 8—13m/s Vindur: 4-9nv's Vindur 10-15 °vs ♦ NA 8-13 m/s norðvestantii, en annars hæg suövestanátt. Skúrlr eöa él um mest aitt iand. Hlti 0 tll 5 stlg. Fremur hæg norðlæg átt og él, en víöa bjart veöur sunnanlands. Frost 0 til 6 stlg, en frostlaust vlö suöurströndlna. Austlæg átt, víöa 10-15 m/a og rtgnlng eöa slydda, on sunnan 8-13 og skúrlr nálægt hádegl. Hlýnandi voöur. m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stlnnlngskaldl 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviörl 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárvlörl >= 32,7 iœeeehi: AKUREYRI snjókoma -8 BERGSSTAÐIR hálfskýjaö -8 BOLUNGARVÍK úrkoma í gr. -6 EGILSSTAÐIR snjóél -9 KEFLAVÍK skýjað -4 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö -5 RAUFARHÖFN snjóél -10 REYKJAVÍK alskýjaö -5 STÓRHÖFÐI snjókoma -2 BERGEN skúr 5 HELSINKI þokumóöa 1 KAUPMANNAHÖFN þokumóða 1 ÓSLÓ rigning 3 STOKKHÓLMUR 2 ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 0 ÞRÁNDHEIMUR snjókoma -2 ALGARVE þokumóöa 15 AMSTERDAM alskýjaö 7 BARCEL0NA skýjaö 10 BERLÍN CHICAGO skýjaö -11 DUBLIN léttskýjað 4 HALIFAX skafrenningur 14 HAMBORG skýjaö 4 FRANKFURT skýjaö 6 JAN MAYEN snjóél -20 LONDON skýjaö 6 LÚXEMBORG rigning 5 MALLORCA léttskýjaö 13 M0NTREAL heiöskírt -23 NARSSARSSUAQ skýjaö -2 NEW Y0RK léttskýjaö -9 0RLAND0 hálfskýjaö 12 PARÍS skýjaö 7 VÍN rigning 1 WASHINGTON heiðskírt -8 WINNIPEG léttskýjaö -28

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.